Fréttablaðið - 29.03.2006, Side 50

Fréttablaðið - 29.03.2006, Side 50
 29. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR26 menning@frettabladid.is Kl. 20.30 Tónverk Gunnars Þórðarsonar, Brynjólfsmessa, verður flutt í Grafarvogskirkju. Kórar Grafar- vogskirkju, Skálholtsdómkirkju og Keflavíkurkirkju flytja verkið ásamt einsöngvurunum Sigrúnu Hjálmtýs- dóttur og Jóhanni Friðgeiri Valdi- marssyni og hljómsveitinni Jóns Leifs Camerata. Stjórnandi Hákon Leifsson. > Ekki missa af... Barnaleikritinu Hodja frá Pjort sem sýnt er hjá Leik- félagi Hafnarfjarðar. Verkið byggir á sögu Ole Lund Kirkegaard en leikstjóri er Ármann Guðmundsson. Hljómsveitunum Hoffman og Benny Crespo´s Gang sem leika á Dillon á morg- un kl. 22.30. Ókeypis inn. Sýningunni „Stað úr stað“ eftir Örnu Valsdóttur á Café Karólínu og „Týnda fiðrildinu“ hans Óla G. á Karólínu Restaurant. Forleggjarar JPV hafa verið ötulir með pennann undanfarið og gengið frá útgáfu- samningum við for- lög á meginlandinu sem hyggjast gefa út þýðingar á verkum íslenskra höfunda. Fyrst ber að nefna að Svanurinn, skáldsaga Guðbergs Bergssonar frá árinu 1991, hefur verið seld til Hollands en bókin hefur þegar komið út á tólf tungumálum og hlotið frábærar viðtökur. Útgáfurétturinn á Tíma nornarinnar eftir Árna Þór- arinsson, einnar söluhæstu bókar síðasta árs, hefur verið seldur til Þýska- lands, Ítalíu, Noregs, Finnlands, Danmerk- ur og Hollands fyrir metfé en nýlega bættust Frakkland og Tékkland við og fleiri samningar kunna að vera í bígerð. Metsölubókin Valkyrjur eftir Þráin Bertelsson hefur einnig verið seld til Þýskalands en DTV, einn stærsti útgefandi þar í landi, hreppti hnossið þegar þýsku forlögin bitust um verkið, en forlagið vinnur ennfremur að frekari útbreiðslu á öðrum verkum Þráins. Íslenskar bækur út ! Þeir sem misstu af sótsvörtu kóm- edíunni Forðist okkur eftir Hug- leik Dagsson geta tekið gleði sína því leiksýningin fer aftur á fjal- irnar í Borgarleikhúsinu nú á vor- dögum. Valur Freyr Einarsson, leikari og forsprakki leikhópsins Common Nonsense, er einn af aðstandendum sýningarinnar sem sló eftirminnilega í gegn fyrr í vetur en hann segir að aðsóknin hafi verið vonum framar. Verkið er unnið upp úr róm- an tískum en ósmekklegum hug- myndaheimi Hugleiks sem birtist í myndasögubókunum Elskið okkur, Drepið okkur og Ríðið okkur en Valur kveðst strax hafa séð heil- mikið leikhús í bókunum. „Hugleik- ur er mikill sagnamaður og hann spann þessar sögur saman fyrir okkur en í leikritinu sjáum við hvað gerist bæði fyrir og eftir augna- blikin sem sjást í bókunum.“ Valur segir að verkinu hafi verið vel tekið af öllum aldurshóp- um en það hafi komið honum nokk- uð á óvart að leikhúsgestir í eldri kantinum hafi líka sýnt verkinu mikinn áhuga. „Sýningin spurðist svo vel út,“ segir Valur en sam- starfi Hugleiks og Common Nons- ense er langt því frá lokið því Hug- leikur vinnur nú að söngleiknum Legi sem leikhópurinn mun setja upp á næsta leikári. Meinsemdir nútímamannsins í allri sinni dýrð og ljótleika leika lausum hala á sviðinu en Valur áréttar að verkið sé kómedía með sterkar meiningar, en móralskur boðskapur verksins sé kominn úr stemningu bókanna. „Hugleikur fær sinn innblástur úr nútímanum, úr DV og öðru slíku,“ segir Valur og bendir á að persónur verksins séu ekki beinlínis aðlaðandi. „Það er kannski það sem fólk ætti að forðast, að verða eins og þessar persónur.“ Leikstjórar sýningarinnar eru Stefán Jónsson og Ólöf Ingólfs- dóttir en um leikmynd sér Ilmur Stefánsdóttir. Aðeins tíu aukasýn- ingar verða á Forðist okkur að þessu sinni. Hinar fyrri verða nú um helgina og hinar síðari næstu tvær helgar. Nú á föstudaginn verður líka haldin fermingarveisla í anddyri Borgarleikhússins til að fagna útkomu bókarinnar Fermið okkur eftir Hugleik en hann mun troða upp ásamt Hljómsveit Benna Hemm Hemm og frumflytja lag í tilefni dagsins. -khh Forðist okkur – Fermið okkur FORÐIST OKKUR Magnea Björk Valdimars- dóttir í hlutverki sínu. Óperettan Nótt í Feneyjum eftir Johann Strauss verður frumsýnd í kvöld. Ungir og upprennandi söngvarar stíga þar á svið á vegum Óperustúdíós Íslensku óp- erunnar. Þetta er þriðja sýningin á vegum Óperustúdíósins og sú viðamesta til þessa en Daníel Bjarnason, hljómsveitarstjóri sýningarinnar, segir að þetta tækifæri sé mikil- vægt fyrir alla aðstandendur sýn- ingarinnar. „Allir söngvaranir eru nemar og hljómsveitin er líka skip- uð nemendum en leikstjórinn og aðrir eru atvinnumenn. Sýningin er síðan unnin alveg eins og venjuleg sýning hjá Íslensku óperunni. Krakkarnir fá þannig að kynnast því hvernig það er í raun og veru að vinna í óperuhúsi og setja upp alvöru óperusýningu.“ Þetta er í fyrsta skipti sem Daníel starfar með Óperustúdíóinu en hann stund- ar nám í hljómsveitarstjórn í Frei- burg í Þýskalandi. Afdrifarík nótt Daníel segir að Nótt í Feneyjum sé mjög hefðbundin óperetta eftir Strauss. „Það er mjög létt yfir þessu verki og músíkin er einkenn- andi fyrir Strauss – mjög skemmti- leg og dálítið áhyggjulaus.“ Verkið hefur verið staðfært að hluta og nú gerist farsakennd atburðarrásin í Reykjavík nútímans en aðalpers- ónan, hertoginn Herzog sem held- ur afdrifaríkan grímudansleik í verkinu, er slagarasöngvari sem gengur undir nafninu Partí-Hans. Þetta er í fyrsta skipti sem þessi óperetta Strauss er flutt hérlendis en höfundurinn samdi alls 16 óper- ettur á ferli sínum, þar á meðal Leðurblökuna og Sígaunabarón- inn. Viðamikil sýning Um fimmtíu manns mættu í áheyrnarprufu vegna verkefnisins í haust svo ljóst var frá upphafi að örðugt myndi reynast að gera upp á milli margra hæfileikaríkra söngnema. Alls taka um áttatíu manns þátt í uppsetningunni, þar af fimmtán einsöngvarar, fjörutíu manna hljómsveit skipuð nemend- um úr tónlistarskólunum á höfuð- borgarsvæðinu og ellefu manna kór. Sýningunni er leikstýrt af Uschi Horner en Kurt Kopecky, tónlistarstjóri óperunnar, hefur umsjón með Óperustúdíóinu. Aðeins sex sýningar verða á óperettunni en verkið er frumsýnt í kvöld kl. 20.00. Léttleikandi óperetta ÓPERETTAN NÓTT Í FENEYJUM FRUMSÝND Á ÍSLANDI Ásgeir Páll Ágústsson söngvari í kröppum dansi. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI GUÐBERGUR BERGSSON RITHÖFUNDUR ashtanga vinyasa jóga byrjendanámskei› 3. apríl til 26. apríl ~ skráning hafin kennari ingibjörg stefánsdóttir skráning í síma 553 0203 og yoga@yogashala.is engjateigur 5 www.yogashala.isyoga shala vinyasa kraftjóga ~ mjúkir og rólegir hatha jógatímar ZAPPA PLAYS ZAPPA miðasala 2. apríl www.rr.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.