Fréttablaðið - 30.03.2006, Side 2

Fréttablaðið - 30.03.2006, Side 2
2 30. mars 2006 FIMMTUDAGUR Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18. Opið virka daga: 10-18 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 DÓMSMÁL Samkeppnisyfirvöld ósk- uðu eftir vikufresti á olíumál inu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær eftir að olíufélögin þrjú ósk- uðu þess að matsmenn mætu útreikninga samkeppnisyfirvalda af gróðanum af verðsamráði þeirra. Málið frestast til 5. apríl. Esso, Olís og Skeljungur reyna í sameiningu að hnekkja niðurstöðu yfirvaldanna um bætur vegna verðsamráðs á olíu, en fyrirtækin voru dæmd til að greiða samtals 1,5 milljarða króna. Fjölmargir bíða dómsins, meðal þeirra Neytendasamtökin, áður en þeir krefjast skaðabóta vegna verðsamráðsins, en talið er að vinna matsmannanna geti tekið marga mánuði. - gag Olíumálinu frestað: Fá gróða olíu- félaga metinn LÖGREGLUMÁL Ökumaður húsbíls missti bíl sinn út af veginum í gærmorgun skammt frá félags- heimilinu Heimalandi undir Eyja- fjöllum. Leiðindaveður var á þessum slóðum og að sögn varðstjóra hjá lögreglunni virðist sem bíllinn hafi fengið á sig mikinn vind, með þeim afleiðingum að ökumaður- inn missti stjórn á bílnum. Bíllinn valt og hafnaði á hliðinni utan vegar. Ökumaður bílsins var fluttur á heilsugæslustöðina á Hvolsvelli en meiðsl hans eru ekki talin alvarleg. Húsbíllinn er óökufær eftir óhappið og talinn ónýtur. -mh Bíll út af við Hvolsvöll: Húsbíll fauk út af veginum Fóstur fjarlægð úr ungabarni Pakistanskir læknar fjarlægðu á þriðjudag tvö fóstur úr tveggja mánaða gömlu kornabarni, en þau höfðu vaxið inni í telp- unni á meðan hún var enn í móðurkviði. Að sögn lækna voru fóstrin þríburar en eingöngu telpan náði fullum þroska, og höfðu fóstrin dáið eftir um fjóra mánuði. Telpan er þungt haldin eftir uppskurðinn. PAKISTAN PALESTÍNA, AP Ný heimastjórn Pal- estínu sór embættiseið í gær. Palest- ínska löggjafarþingið samþykkti á mánudag 24 ráðherra nýju stjórnar- innar, sem flestir koma úr röðum Hamas-hreyfingunnar, með 71 atkvæði á móti 36. Fjórtán ráðherrar hafa setið í ísraelskum fangelsum. Ismail Haniyeh, forsætisráðherra heimastjórnarinnar, sagðist ekki myndu samþykkja áætlun starfandi forsætisráðherra Ísraels, Ehmud Olmerts, um að Ísrael muni einhliða ákveða endanleg landamæri milli Ísraels og Palestínu fyrir árið 2010. Þó sagðist Haniyeh ekki hafa áhuga á frekara ofbeldi gegn Ísrael. Hamas- hreyfingin, sem staðið hefur að morðum á hundruðum Ísraela, hefur að mestu virt vopnahlé seinasta árið. - smk Hamas að taka við völdum: Þingið staðfest- ir ráðherra ISMAIL HANIYEH Verðandi forsætisráðherra heimastjórnar Palestínu ræddi við blaða- menn í Gazaborg í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP STJÓRNMÁL Frumvarp um Ríkisút- varpið var afgreitt frá menntamála- nefnd Alþingis í gær gegn mótmæl- um frá minnihluta nefndarinnar. „Við hörmum þetta vegna þess að við höfum lýst vilja til þess að ná samstöðu um að breyta Ríkisút- varpinu í hlutafélag með ákveðnum skilyrðum þó,“ segir Mörður Árna- son, Samfylkingunni, en hann á sæti í nefndinni. Sigurður Kári Kristjánsson, Sjálfstæðisflokki og formaður menntamálanefndar, segir að fá mál hafi fengið jafn mikla umfjöll- un og frumvarpið um RÚV. „Búið er að velta við öllum steinum. Þó svo að efnislegur ágreiningur sé um málið er vel hægt að afgreiða það frá nefndinni,“ segir Sigurður Kári. Mörður segir að aldrei hafi farið fram samræður innan nefndarinn- ar um málið sjálft. „Með því að taka þetta út úr nefndinni núna er tekið fyrir að við getum komið sjónar- miðum okkar á framfæri. Þetta veldur einungis tímafrekari umræðum í þingsölum,“ segir Mörður. Minnihluti menntamálanefndar telur órætt hvort upplýsingalög geti gilt um Ríkisútvarpið hf., hvort unnt sé að breyta skipunartíma útvarpsstjóra, tempra vald hans og koma honum undan pólitískri yfirstjórn. Að mati minnihluta menntamála- nefndar ríkir einnig óvissa um eig- infjárstöðu Ríkisútvarpsins hf. og að óbreyttu verði skuldir þess meiri en eignir. Þá verði að taka tillit til fjölmiðlanefndarinnar sem hafi sett fram ákvæði um ritstjórnar- legt sjálfstæði fréttastofa en það hafi bein áhrif á frum- varpið um Ríkisútvarp- ið. „Fjármála- ráðuneytið og menntamála- ráðuneytið eru að skoða hvern- ig gengið verð- ur frá eigin- fjárstöðu RÚV. Menn hefja ekki þessa vegferð til þess að fara af stað með gjaldþrota félag frá fyrsta degi. Það mun koma niðurstaða frá þeim sem verður væntanlega útfærð í fjáraukalögum,“ segir Sigurður Kári, formaður menntamálanefnd- ar. Um ritstjórnarlegt sjálfstæði segir hann að menntamálanefnd hafi fengið upplýsingar um það í gær að fjölmiðlanefndin væri búin að forma reglur um það atriði. „Ég veit ekki betur en að um það ríki nokkuð breið sátt. Ég er þess full- viss að ákvæði, sem almennt á að gilda í fjölmiðlalögum um ritstjórn- arlegt sjálfstæði, sé nægjanlegt gagnvart sjálfstæði fréttastofa Rík- isútvarpsins,“ segir Sigurður Kári. johannh@frettabladid.is RÚV frumvarpið sett í flýtimeðferð Frumvarp um Ríkisútvarpið var afgreitt frá menntamálanefnd í gær, minni- hluta nefndarmanna að óvörum. Aðeins 15 dagar eru eftir til þingfunda og er talið víst að frumvarp um RÚV verði að lögum fyrir sumarleyfi. FRUMVARPIÐ TEKIÐ ÚR NEFND Minnihluti menntamála- nefndar telur að afgreiðsla frum- varpsins úr nefnd verði til þess að umræður í þingsöl- um verði tímafrekari en ella. SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON MÖRÐUR ÁRNASON AFGANISTAN, AP Afganinn, sem átti yfir höfði sér dauðadóm í heima- landi sínu fyrir að hafa snúist frá íslam til kristni, lenti á Ítalíu í gær þar sem honum hefur verið veitt pólitískt hæli. Áður en fréttist af brottför hans frá Afganistan sam- einuðust þingmenn á afganska þinginu um að krefjast þess að honum yrði ekki hleypt úr landi. „Hann er kominn til Ítalíu,“ staðfesti ítalski forsætisráðherr- ann Silvio Berlusconi síðla í gær. Áður hafði Berlusconi sagt það vera Ítalíu heiður að veita „svo huguðum manni“ hæli. „Við sendum bréf og hringdum í innanríkisráðuneytið og kröfð- umst þess að stjórnin leyfði Abdul Rahman ekki að fara úr landi,“ tjáði Yunus Qanooni, forseti þings Afganistan, fréttamönnum í Kabúl fyrir hönd alls þingsins. Um 500 Afganar, þar á meðal trúarleiðtogar múslima og náms- menn, söfnuðust saman við mosku í bænum Qalat í Zabul-héraði í suðurhluta landsins og kröfðust þess að Rahman yrði þvingaður til að snúa aftur til íslams eða vera drepinn ella. „Þetta er hræðilegt og mikil skömm fyrir Afganist- an,“ sagði Abdulrahman Jan, æðsti klerkur í Zabul-héraði, um að Rahman skyldi hafa verið sleppt. Samkvæmt strangtrúartúlkun sjaría-laga múslima er það dauða- sök að snúa baki við íslam. Rahman var látinn laus úr fang- elsi eftir að málarekstur á hendur honum var látinn niður falla vegna skorts á sönnunum og gruns um að sakborningurinn væri ekki heill á geðsmunum. Vestrænar ríkis- stjórnir þrýstu mjög á Hamid Karzai, forseta Afganistans, að sjá til þess að dauðadómur yrði ekki felldur yfir manninum. Þetta var fyrsta málið sinnar tegundar til að koma til kasta dóm- stóla í Afganistan frá því ofstæk- isstjórn talibana var steypt í kjöl- far innrásar Bandaríkjamanna og NATO-herliðs í lok árs 2001. - aa ABDUL RAHMAN Í sjónvarpsviðtali í dóm- húsi í Kabúl 16. mars. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Kristna Afgananum forðað undan herskárri réttvísi landa sinna: Rahman veitt pólitískt hæli á Ítalíu SAMKEPPNISMÁL Samkeppniseftir- litið hefur úrskurðað Flugþjónust- una á Keflavíkurflugvelli, IGS, til þess að greiða 80 milljónir króna í stjórnvaldssekt fyrir að hafa mis- notað markaðsráðandi stöðu sína við afgreiðslu farþegaflugvéla. Gunnar Olsen, framkvæmda- stjóri IGS, segir lögmenn fyrirtæk- is vera að skoða úrskurð Samkeppn- iseftirlitsins. „Við munum skoða málið með okkar lögmönnum og tökum síðan ákvörðun um fram- haldið. Við töldum okkur ekki vera að brjóta reglur.“ IGS er í tilkynningu frá Sam- keppniseftirlitinu sagt hafa brotið samkeppnislög þegar það gerði einkakaupsamninga við flugfélög sem lenda á Keflavíkurflugvelli með því að gera flugfélaginu LTU „samkeppnishamlandi tilboð“, eins og segir orðrétt í tilkynningu frá eftirlitinu. IGS er með meira en 90 prósenta markaðshlutdeild á Kefla- víkurflugvelli. Árið 2001 hóf fyrirtækið Vallar- vinir starfsemi á Keflavíkurflug- velli, og var þá í samkeppni við IGS. Í kjölfarið lækkuðu flugafgreiðslu- gjöld á flugvellinum mikið. Þrátt fyrir samkeppnina hafði IGS áfram trausta stöðu á markaðnum en þjón- ustan við systurfélagið, Icelandair, var stór hluti af allri starfsemi á vellinum. Þýska flugfélagið LTU gerði samning við Vallarvini árið 2001. Áður hafði félagið verið í viðskipt- um við IGS en ákvað að breyta til, þar sem tilboð Vallarvina var hag- stæðara. IGS gerði LTU tilboð árið 2004 sem var nokkuð lægra en samningurinn þýska flugfélagsins við Vallarvini hljóðaði upp á. Samkeppniseftirlitið segir í úrskurði sínum að í tilboði IGS hafi „falist beinskeitt og sértæk aðgerð gegn Vallarvinum sem hafi verið til þess fallin að draga úr umsvifum þess félags.“ -mh Samkeppniseftirlit úrskurðar IGS vegna brota á samkeppnislögum: Greiði 80 milljónir í sekt VINNA Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI Sam- keppniseftirlitið telur IGS hafa brotið reglur er það undirbauð Vallarvini í samningavið- ræðum við þýskt flugfélag.FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SPURNING DAGSINS Stefán Jón, gleymdirðu að taka lyfin þín? „Ég fer alltaf í uppsveiflu þegar framtíð Reykjavíkur ber á góma.“ Ýmsir hafa sett spurningamerki við skrif Stef- áns Jóns að Reykjavík geti vel sett sér það markmið að verða besta höfuðborg heims og telja slíkt bæði hrokafullt og óraunhæft. Stefán Jón Hafstein er formaður borgarráðs.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.