Fréttablaðið - 30.03.2006, Page 4
4 30. mars 2006 FIMMTUDAGUR
Bandaríkjadalur 71,31 71,65
Sterlingspund 123,9 124,5
Evra 85,64 86,12
Dönsk króna 11,476 11,544
Norsk króna 10,777 10,841
Sænsk króna 9,097 9,151
Japanskt jen 0,6045 0,6081
SDR 102,45 103,07
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 29.3.2006
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
Gengisvísitala krónunnar
119,979
VARNARMÁL Fjölmenn sendinefnd á
vegum bandarískra stjórnvalda
kemur frá Washington í dag og
ræðir um varnir landsins við níu
manna íslenska samninganefnd í
utaníkisráðuneytinu á morgun.
Albert Jónsson, formaður
íslensku nefndarinnar, neitar að
nefna þær áherslur sem íslenska
sendinefndin setur sér. Hann sagði
í gær ekki tímabært að segja frá
þeim. Ragnheiður Árnadóttir,
aðstoðarmaður utanríkisráðherra,
sagði menn ætla að bíða og sjá hvað
Bandaríkjamenn hefðu fram að
færa.
Sendiherra Bandaríkjanna,
Carol van Voorst, fer fyrir
bandar ísku nefndinni en sendiráðið
gefur ekki upp hverjir sitja í henni
að svo stöddu. Sendiherrann gaf
sér ekki tíma til að tjá sig við fjöl-
miðla í gær, þar sem undirbúning-
urinn fyrir fundinn væri stremb-
inn.
Forsætisráðherra, Halldór
Ásgrímsson, sem sagði við NFS að
sendinefnd bandarískra stjórn-
valda ætli að koma með tillögur um
hvernig þau muni tryggja varnir
Íslands. Í bréfi sem van Voorst
færði honum frá Bandaríkjafor-
seta, George Bush, standi að Banda-
ríkin ætli að virða varnarsamning
ríkjanna, þótt til standi að draga
stórlega úr starfsemi varnarliðsins
á Keflavíkurflugvelli. Bréfið var
svar Bandaríkjaforseta við fyrir-
spurn íslenskra stjórnvalda um
hvernig vörnum landsins verði
háttað.
„Ég verð að segja það alveg eins
og er, í ljósi þess sem hefur gerst,
að ég er ekkert sérstaklega bjart-
sýnn um framvindu mála, en ég
virði að sjálfsögðu þetta bréf
Bandaríkjaforseta,“ sagði Halldór.
Hann bætti við að tillögur Banda-
ríkjamanna verði metnar í fram-
haldi fundarins og sagði fátt nýtt
felast í bréfi Bandaríkjaforseta.
Bandaríska sendinefndin flýgur
af landi brott síðdegis á morgun.
Halldór ítrekaði í fyrrakvöld það
sem hann sagði við Fréttablaðið um
þarsíðustu helgi, að varnarsamn-
ingur án varnarliðs sé lítils virði.
Um sexhundruð starfsmönnum
varnarliðsins hefur verið sagt upp
störfum og er uppsagnarfrestur
þeirra sex mánuðir. gag@frettabladid.is
Bandarísk stjórnvöld
með ráð um varnir
Sendinefnd bandarískra stjórnvalda kemur til landsins í dag og leggur
fram tillögur um hervarnir Íslands á fundi í utanríkisráðuneytinu á morg-
un. Leynd hvílir yfir tillögum hennar og svari íslenskra stjórnvalda.
VARNARMÁL Jón Baldvin Hanni-
balsson, fyrrverandi í sendiherra
Íslands í Bandaríkjunum, segir
ríkisstjórn Bandaríkjanna eiga
lítið erindi til samstarfs við aðrar
þjóðir í utanríkismálum.
Jón Baldvin segir það ekki
vera verkefni íslenskra stjórn-
valda að fara eftir tillögum stjórn-
valda í Bandaríkjunum í varnar-
málum heldur eigi frumkvæðið
að koma frá íslenskum stjórn-
völdum. „Núverandi ríkisstjórn í
Bandaríkjunum hefur gjörbreytt
í grundvallaratriðum hefðbund-
inni utanríkisstefnu landsins.
Hún hefur nánast sagt sig úr
lögum við alþjóðlegt samfélag
með kenningu George
W. Bush, Bandaríkjafor-
seta, sem áskilur sér rétt
til þess að hefja stríð á
hendur öðrum þjóðum
tilefnislaust í forvarnar-
skyni. Þetta er það sama
og að lýsa því yfir að
Bandaríkin áskilji sér
rétt til valdbeitingar
hvar og hvenær sem
er.“
Jón Baldvin hefur
ekki trú á því að mark-
verðar niðurstöður fáist út úr
fundinum á morgun. „Íslensk
stjórnvöld eru búin að hafa tíma
til þess, frá því að stefna Donalds
Rumsfeld um allsherjar
endurskipulagningu á
her Bandaríkjamanna
var gerð opinber fyrir
meira en fimm árum, að
bregðast við breyttum
veruleika í varnarmál-
um. Það er verkefni
íslenskra stjórnvalda að
koma fram með tillögur
til lausnar á þeirri stöðu
sem upp er komin. Við
eigum ekki að þurfa að
bíða eftir tillögum
Bandaríkjamanna. Tillögur um
lausn eiga að koma frá okkur og
þær eiga að þjóna hagsmunum
Íslands.“ -mh
Jón Baldvin segir ríkisstjórn Bandaríkjanna ekki heppilega til samstarfs:
Hagur Íslands ráði ferðinni
CAROL VAN
VOORST Sendiherra
fer fyrir bandarísk-
um stjórnvöldum á
fundinum.
HALLDÓR
ÁSGRÍMSSON
Forsætisráðherra segir
varnarsamning án
hervarna lítils virði.
JÓN BALDVIN
HANNIBALSSON
9.mars
Geir fór í opinbera
heimsókn til Noregs
í boði Jonas Gahr
Støre, utanríkis-
ráðherra Noregs.
Hann hitti að
auki Anne-Grete
Ström-Erichsen,
varnarmálaráð-
herra, og ræddi við
hana um samstarf í
öryggis- og varn-
armálum, friðargæslu og norrænu
samstarfi. Geir skoðaði herstjórnar-
miðstöð Atlantshafsbandalagsins í
Stavanger. Að auki hélt hann erindi í
Stavangerháskóla um stöðu Íslands í
hnattvæddum heimi.
13.mars
Opinber heimsókn
Geirs til Danmerkur
hófst með fundi í
varnarmálaráðuneyti
Danmerkur þar sem
Geir fundaði með
danska varnar-
málaráðherran-
um, Søren Gade.
Danski ráðherrann
gerði Geir meðal
annars grein fyrir breyttu skipulagi
Danmerkur í varnarmálum, í ljósi
aðstæðna í heimsmálunum. Einnig
ræddu þeir samstarf á sviði landhelgis-
gæslu. Til umræðu var einnig hugsan-
leg endurnýjun á loftferðasamningi á
milli ríkjanna.
21.mars
Geir fór til Parísar
í boði Phillippe
Douste-Blazy, utan-
ríkisráðherra Frakk-
lands. Geir ræddi við
Phillippe um stöðu
varnarmála hér
á landi og gerði
grein fyrir stöðunni
sem upp væri komin
á Íslandi, í ljósi þess
að varnarlið Banda-
ríkjanna hygðist fara af landi brott.
Geir H. Haarde utanríkisráðherra:
Heimsóknir
Geirs í mars
FRANK-WALTER
STEINMEIER
SERGEI LAVROV
PHILLIPPE
DOUSTE-BLAZY
SØREN GADE
JONAS
GAHR STØRE
24.mars
Í Moskvu hitti Geir
Sergei V. Lavrov,
utanríkisráðherra
Rússlands, og ræddu
þeir meðal annars
stöðu Íslands í
varnarmálum.
Einnig fóru þeir
yfir samskipti
Íslands og Rússlands
á sviði viðskipta- og
efnahagsmála, orkumála, flugsam-
gangna og menningarmála. Þá
fjölluðu ráðherrarnir um viðfangsefni
Barentsráðsins og norðlæga vídd Evr-
ópusambandsins, en að henni standa
Rússar, Norðmenn og Íslendingar auk
Evrópusambandsins.
28.mars
Geir átti fund með
Frank-Walter Stein-
meier, utanríkisráð-
herra Þýskalands,
og ræddu þeir
stöðu Íslands í
varnarmálum,
auk annarra
mála. Geir gerði
ráðherranum grein
fyrir stöðunni sem
upp væri komin
hér á landi. Ræddu þeir aðdraganda
ákvörðunar Bandaríkjamanna og gerði
Geir ítarlega grein fyrir fyrirhuguðum
viðræðum sendinefnda stjórnvalda
Bandaríkjanna og Íslands.
Hjálmar Árnason, þingmaður Fram-
sóknarflokksins og íbúi í Reykja-
nesbæ, segir mikilvægt að krefja
sendinefnd bandarískra stjórnvalda
svara vegna ákvörðunar þeirra um að
kalla varnarliðið heim frá Íslandi. „Það
er nauðsynlegt að krefjast skýrra svara
um það hvað Bandaríkjamenn hyggist
fyrir og ekki draga það stundinni
lengur.“
Hjálmar vonast til þess að sérstak-
lega verði hugað að þeim starfsmönn-
um á Keflavíkurflugvelli sem lengstan
starfsaldur hafa. „Þeir starfsmenn hafa
sýnt sínum vinnuveitanda trúnað í
langan tíma og siðferðileg skylda að
heiðarlega verði komið fram við þá.“
Hjálmar Árnason:
Nefndin verði
krafin svara
VARNARLIÐSMENN VIÐ STÖRF Á KEFLAVÍKURFLUG-
VELLI Sex hundruð manns hefur verið sagt upp
störfum vegna samdráttar bandaríska hersins á
Keflavíkurflugvelli. Sendinefnd frá Bandaríkjun-
um fundar hér á landi á morgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA