Fréttablaðið - 30.03.2006, Side 10

Fréttablaðið - 30.03.2006, Side 10
10 30. mars 2006 FIMMTUDAGUR NISSAN MICRA MICRA EN ALLT ANNAÐ! Verð frá 1.490.000 kr. 6 diska geislaspilari, lyklalaus, sjálfvirkar rúðuþurrkur. MICRA er betra! Nissan Micra *Mánaðarleg greiðsla 16.816 kr. Miðað við 20% útborgun og bílaálán frá VÍS í 84 mánuði.Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mán – fös kl. 9-18 og lau kl. 12-16 E N N E M M / S ÍA / N M 2 0 6 9 6 *Mánaðarleg greiðsla 17.990 kr. miðað við 20% útborgun og bílasaming í 84 mánuði ATHYGLI VAKIN Víetnamar vekja þessa dag- ana athygli á fæðingargöllum í víetnömsk- um börnum sem talið er að rekja megi til efnavopna sem bandarískir hermenn notuðu í Víetnamstríðinu. Rúm 30 ár eru liðin frá lokum stríðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Rétt rúmlega tvítugur maður hefur verið dæmdur í mán- aðar fangelsi haldi hann ekki skil- orð næstu tvö árin. Hann stal bíl á Húsavík, ók honum undir áhrifum áfengis um götur bæjarins og braust inn á veitingastaðinn Gamla bauk. Þar stal hann fjórtán fullum vodkaflöskum, vískýflöskum og á fimmta tug bjórflaskna. Vínandinn í blóði hans mældist 1,78 prómill en má ekki fara yfir 50 prómill. Ungi maðurinn hefur ekki sætt refsingu áður, en auk skilorðs- ins missir hann bílprófið í eitt ár og greiðir 130 þúsund krónur í sekt og rúmlega 22 þúsund krónur í sakar- kostnað. - gag Stal bíl og braust inn: Missir prófið og greiðir sekt SAMKEPPNISMÁL Þrátt fyrir ein- róma andstöðu álitsgjafa hefur Samkeppniseftirlitið úrskurðað að hámarkstaxtar leigubíla skuli felldir niður 1. maí 2006. Guðmundur Sigurðsson hjá Samkeppniseftirlitinu segir að samkvæmt nýjum lögum sem voru samþykkt í fyrra þá sé það í mótsögn við eðlilegt starf sam- keppnisyfirvalda að skipta sér af verðlagningu starfsgreinar. Einn- ig byggi úrskurðurinn á því að með stækkun gjaldsvæðis á suð- vesturhorninu síðastliðið haust séu frekari forsendur fyrir sam- keppni heldur en hefðu verið áður. Samkeppniseftirlitið ítrekar jafn- framt það sjónarmið að stað- bundnar fjöldatakmarkanir fyrir leigubifreiðar og fleiri samkeppn- ishömlur verði afnumdar. Hjalti Hafsteinsson, stjórnar- maður í Frama sem er félag leigu- bílstjóra, segir einhliða úrskurð Samkeppniseftirlitsins varðandi afnám hámarkstaxta leigubíl- stjóra hafa komið þeim að óvör- um. Hjalti segir þó eðlilegt að Samkeppniseftirlitið vilji hætta afskiptum af verðlagsmálum leigubílstjóra þar sem þetta sé ekki á þeirra könnu miðað við ný samkeppnislög sem þeir vísa í. Hjalti telur þörf á nýrri lagasetn- ingu til að finna þessum málum farveg. - sdg LEIGUBÍLARÖÐ Í LÆKJARGÖTUNNI Frami, félag leigubílstjóra, hefur áfrýjað úrskurði Samkeppnisyfirvalda og býst við niður- stöðu fyrir helgi. Samkeppniseftirlitið telur afskipti af verðlagningu í mótsögn við eðlilegt starf: Forsendur fyrir samkeppni KJARAMÁL Hópuppsagnir hjá ófag- lærðu starfsfólki á dvalarheimil- um eru fyrirsjáanlegar ef launa- munur þeirra og starfsfólks sem vinnur sömu störf á vegum Reykjavíkurborgar verður ekki jafnaður hið fyrsta. Starfsfólkið fór í setuverkfall í gær til að vekja athygli á kjarabaráttu sinni. Á baráttufundum því tengdu var samþykkt að fara í verkfall að nýju á fimmtudag og föstudag í næstu viku ef engin viðbrögð fást nú. Setuverkfallið náði til um 900 starfsmanna hjá Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfirði, Vífil- stöðum, Víðinesi og á Dvalarheim- ilum á Grund, Ás í Hveragerði, Sunnuhlíð og Skógarbæ. Á bar- áttufundinum á Hrafnistu í Reykjavík komu sjónarmið starfs- fólksins skýrt fram. „Við viljum fá viðbrögð frá ráðuneytinu og það strax. Ekki síst vegna þess að þetta er hluti af umræðunni um stöðu eldri borgara.“ Fram kom að lægstu byrjunarlaun hjá sjálfs- eignarstofnunum eru 101.000 krónur en 134.000 krónur fyrir sömu vinnu hjá Reykjavíkurborg eftir nýgerða samninga. „Það kemur fljótlega upp sú staða að það fást engir til að vinna svona vinnu og það vantar nú þegar starfsfólk.“ Sveinn H. Skúlason, forstjóri Hrafnistuheimilana, segir að talað hafi verið við fjármálaráðherra og svarið sé einfaldlega að það sé í gildi kjarasamningur sem gildir til 2008 og eftir honum verði farið. Kerfið sé þannig að heimilin fái svokölluð daggjöld frá ríkinu og þau séu ákvörðuð í desember ár hvert. Þar er miðað við kjara- samninga sem ríkið hefur gert og því búið að festa launin með dag- gjöldunum. Sveinn skilur starfs- menn sína vel og tekur eftirfar- andi dæmi. „Tökum starfsmann á Hrafnistu í Reykjavík sem segir upp í dag og gengur inn gang sem þar er og inn í Norðurbrún, sem borgin rekur, og byrjar að vinna þar 1. apríl. Sá starfsmaður hækk- ar um 25 prósent.“ Hann segir að staðan sé einnig sú að erfitt sé að manna heimilin því næga vinnu sé að fá. Það gangi illa að fylla stöðugildin og fólk stoppar stutt. „Fólk sem hefur unnið hjá okkur lengi og hefur verið kjölfestan í rekstrinum er farið að segja upp.“ Ekki náðist í ráðherra heil- brigðis- og fjármála vegna máls- ins í gær. svavar@frettabladid.is Uppsagnir þegar hafnar Ófaglærðir starfsmenn á dvalarheimilum ætla að ganga út í hópum ef laun þeirra verða ekki leiðrétt. Samningar í gildi til 2008 segir fjármálaráðuneytið. STARFSKONUR Á HRAFNISTU Mikil reiði er á meðal starfsfólks vegna launamunar þeirra og borgarstarfsmanna sem vinna sömu vinnu. Munurinn er 25 til 30 prósent en fjármálaráð- neytið vísar til gildandi samninga. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.