Fréttablaðið - 30.03.2006, Page 24
30. mars 2006 FIMMTUDAGUR24
hagur heimilanna
Vélhjólabakterían hefur blundað í Reinhard Reyn-
issyni, bæjarstjóra á Húsavík, frá því að hann var
ungur sveitapiltur vestur á fjörðum. Fyrir tveimur
árum lét hann æskudraum sinn rætast og keypti
sér forláta mótorhjól. „Ég keypti mér 1400 rúm-
sentimetra Suzuki Intruder og er það með betri
kaupum sem ég hef gert. Hjólið var nýkomið til
landsins, árgerð 1995, og í toppstandi.“
Reinhard ók hjólinu frá Grindavík til Húsavíkur en
hefur einkum notað það í styttri hjólaferðir um
Þingeyjarsýslur og Eyjafjörð. „Það er ólýsanleg
tilfinning að ferðast á mótorhjóli um landið
og skemmtilegast ef góðir félagar eru með
í för. Vonandi kemst maður í að hjóla um
Austurland í sumar og aldrei að vita nema ég
eigi eftir að taka góða rispu um vegi Evrópu
síðar meir. Ef konan biður fallega getur vel
verið að hún fái að sitja aftan á,“ segir
Reinhard.
Bæjarstjórinn segir að þeir sem
ferðist um landið á vélhjólum upplifi náttúruna á
annan máta en þeir sem ferðast með bíl. „Maður
er í mun nánara sambandi við náttúruna og nýtur
margbreytileika hennar því betur.“
Vélhjólum hefur farið fjölgandi á Húsavík undan-
farin ár og segir Reinhard stutt í að vélhjólamenn
bæjarins stofni formlegan félagsskap.
Bæjarstjórinn segist ekki hafa lent í neinum stór-
áföllum sem neytandi og er að mestu sáttur
við flest sín viðskipti. „Ég man ekki eftir,
eða á erfitt með að viðurkenna, einhver
einstök slæm kaup sem ég hef gert.
Ætli þau liggi ekki bara í öllu góssinu í
bílskúrnum og geymslunni sem aldrei
er hreyft nema þegar maður er að
taka til á þessum stöðum, sem þó
er nú ekkert mjög oft,“ segir
Reinhard.
Fulltrúar neytenda eru
sammála um að oft skorti
á jafnvægi í verðlagi út frá
gengisbreytingum. Þegar
krónan sé veik séu fyrir-
tæki fljótari að hækka verð
heldur en að lækka verð við
styrkingu krónunnar.
„Miðað við hvað neytendur fundu
seint og illa fyrir styrkingu krón-
unnar vænti ég þess að þeir finni
seint og illa fyrir veikingu krón-
unnar,“ segir Jóhannes Gunnars-
son, formaður Neytendasamtak-
anna, sem telur að neytendur eigi
inni ákveðna hluti hjá innflytjend-
um.
Að sögn Jóhannesar gera neyt-
endur kröfu til þess að seljendur
vöru og þjónustu hafi samhengi í
hlutunum hjá sér. „Við hljótum að
gera athugasemdir við að menn
haldi að sér höndum þegar krónan
styrkist og hækki verð um leið og
hún veikist. Ef þeir hækka einungis
verð við veikingu krónunnar eru
þeir að taka aukalega til sín.“
Gengi íslensku krónunnar hefur
verið að gefa nokkuð samfellt eftir
frá seinnihluta febrúarmánaðar
eftir að hafa haldist sterkt í langan
tíma fram að því. Seinustu daga
hefur krónan verið að styrkjast
aftur.
Að sögn Jóhannesar hafa áhrif
veikingar krónunnar til dæmis
verið að koma fram í verði á bens-
íni og dísilolíu undanfarið en verð
hefur hækkað í þrígang á undan-
förnum þremur vikum. Ekkert sé
við því að segja í sjálfu sér svo
lengi sem samræmis sé gætt. „En
ef forsendur breytast þar hljótum
við að ætlast til þess að verð á bens-
íni og olíu lækki á nýjan leik.“
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda, segir þær hækkanir
sem hafa orðið í marsmánuði vera í
samræmi við þróun heimsmark-
aðsverðs og veikingar krónunnar.
Hann tekur þó undir að fyrirtækin
séu oft fljótari til við að hækka verð
heldur en að lækka verð. Alþýðu-
samband Íslands gerir reglulegar
verðkannanir og að sögn Hennýjar
Hinz, hjá verðlagseftirliti ASÍ, er
misjafnt eftir flokkum hvernig
gengisáhrif skila sér út í verðlag.
Hún telur ótímabært að segja fyrir
um áhrif veikingar krónu á verðlag
nú en segist geta tekið undir með
Jóhannesi og Runólfi í ákveðnum
tilvikum hvað varðar ósamræmi í
verðlagi miðað við gengi krónu.
Almennt séð fylgir matvara
gengisþróun nokkuð vel að sögn
Hennýjar en til að mynda fylgja
bílar alls ekki sveiflunni. Allan
þann tíma sem gengisstyrkingin
var lækkuðu þeir ekki í verði held-
ur stóðu í stað eða hækkuðu.
Jóhannes vill ekki spá fyrir um
hvað sé fram undan í verðhækkun-
um en segir að Neytendasamtökin
muni fylgjast með breytingum á
framfærsluvísitölu vöru og þjón-
ustu og vöruflokkum innan henn-
ar.
Jóhannes hvetur neytendur ein-
dregið til að gera athugasemdir og
hafa samband ef þeir verða varir
við miklar verðhækkanir á næst-
unni. sdg@frettabladid.is
Verðbreytingar
ekki í takt við gengi
Margvísleg tilboð eru hverju sinni á flestum sólbaðsstof-
um landsins og ætli fólk á annað borð að fara í ljós oftar
en einu sinni og oftar en tvisvar er um að gera að gera
verðsamanburð því tilboð koma og fara og veita mörg
hver ríflegan afslátt af gildandi verði.
Lausleg könnun Fréttablaðsins leiddi í ljós að verð á stökum
tímum víðast hvar er milli 600 og 700 krónur. Þeir dýrustu fara reyndar alla leið í
800. Tíu tíma kortin eru hvað vinsælust og er á flestum stöðum boðið upp á tvenns
konar slík kort; annað sem gildir í einn mánuð og hitt í þrjá mánuði. Mikill verðmun-
ur getur verið á hverjum stað en algengt verð er 5.600 til 5.900. Þannig sparast að
meðaltali tvö hundruð krónur miðað við að kaupa stakan tíma.
■ Hvað kostar... í ljós
Hagstæðast að kaupa kort
Hulda Hallgrímsdóttir, meistaranemi í
iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands,
nýtir sér húsráð sem
hún sá í þættinum
Allt í drasli, sem
sýndur er á Skjá
einum.
„Ég man eftir einu
húsráði sem ég nota
stundum. Ég fékk
það í sjónvarpsþætt-
inum Allt í drasli. Það er að setja sítrónu
og vatn í skál, hita í tvær mínútur inni
í örbylgjuofni og þá er hægt að strjúka
öll óhreinindi úr ofninum og það skilur
einnig eftir sig góða lykt. Algjör óþarfi að
nota hreinsiefni. Það kom mér nokkuð á
óvart að þetta skyldi virka.“
GÓÐ HÚSRÁÐ
HITA SÍTRÓNU OG VATN
■ Hulda Hallgrímsdóttir nýtir sér hús-
ráð úr sjónvarpsþættinum Allt í drasli.
NEYTANDINN: REINHARD REYNISSON, BÆJARSTJÓRI Á HÚSAVÍK
Um Evrópu með frúna aftan á
Framlag atvinnugeira til
landsframleiðslu 2005
Heimild Hagstofa Íslands
Mikill meirihluti telur að starfsmenn einkafyrirtækja veiti
betri þjónustu en starfsmenn opinberra stofnana, sam-
kvæmt könnun sem IMG Gallup gerði fyrir Samtök verslun-
ar og þjónustu. Reyndust sjötíu prósent aðspurðra þeirrar
skoðunar og er niðurstaðan því afgerandi. Aðeins ellefu
prósent voru á því að þjónusta innan opinbera geirans væri
að jafnaði betri og nítján prósent töldu þjónustuna svipaða. Var könnunin hluti af viða-
mikilli úttekt Háskólans í Reykjavík á stöðu og horfum í íslenskum þjónustugreinum.
■ Verslun og þjónusta
Betri þjónusta einkafyrirtækja
Margt er líkt með
skyldum og þó að
skyr og jógúrt séu
að mörgu leyti líkar
afurðir eru þær líka
að ýmsu leyti ólíkar.
Það sem helst skilur
á milli er vinnsluað-
ferðin, en hún gerir það að verkum að
skyr flokkast til osta en jógúrt telst vera
hefðbundin sýrð mjólkurafurð. Algeng-
ast er að skyr sé unnið úr undanrennu
og er þar af leiðandi
fitulaust en jógúrt er oftar
unnin úr nýmjólk eða
léttmjólk.
Ástæða þess að skyr
flokkast til osta er sú að
við sýringu er undanrennan
hleypt og mysan skilin frá
líkt og gert er við hefð-
bundna ostagerð. Aðferð við
að skilja skyrmysu frá skyr-
inu hefur þróast nokkuð og
breyst á undanförnum árum
og áratugum. Frá því að menn hófu að
framleiða skyr á mjólkurbúum, á fyrri-
hluta síðustu aldar, var það framleitt
með þeim hætti að skyrhleyp-
an var sett í léreftspoka sem
mysan var síuð úr. Seinna
var farið að skilja mysuna frá
í skilvindu og nýjasta afurðin,
Skyr.is, er framleidd með
örsíunartækni. Einn mikilvæg-
asti þáttur í sérstöðu skyrs er
skyrgerillinn. Hann er í raun
ekki einn gerill heldur
blanda mjólkursýru-
gerla og gers sem er
ekki nákvæmlega þekkt,
og getur verið breytileg milli
lagana. Ástæða breytileikans
er sú að í nýja skyrlögun er
settur skyrþéttir sem er í raun
skyr frá eldri framleiðslu. Þannig
hefur skyrgerillinn haldist við frá
kynslóð til kynslóðar, alltaf í nýju
skyri. Á hinn bóginn inniheldur
jógúrt hreina jógúrtgerla, Lacto-
bacillus bulgaricus og Streptococcus
thermophilus, sem sýra mjólkina og
breyta henni í jógúrt. Reyndar verða
þessir tveir tilteknu gerlar að vera
í vörunni til að megi kalla hana
jógúrt.
Um vinsældir þessara mjólkur-
afurða þarf vart að fjölyrða.
Jógúrt er þekkt um allan heim
og skyr, sem er eins og flestir
vita séríslenskt fyrirbrigði, er afar
vinsælt hérlendis og ýmislegt
bendir til að það eigi vaxandi fylgi
að fagna á erlendri grundu. Til að
mynda er töluvert magn af Skyr.
is nú flutt út til Bandaríkjanna en
einnig er það væntanlegt á markað
í nokkrum Evrópulöndum, svo sem
Bretlandi, Danmörku og Svíþjóð svo
að einhver lönd séu nefnd. Það má því
segja að gamla góða skyrið taki þátt í
íslensku útrásinni af fullum krafti, enda
afskaplega holl og góð afurð, eins og
auðvitað jógúrt er líka.
www.mni.is
MATUR & NÆRING BJÖRN S. GUNNARSSON, MATVÆLA- OG NÆRINGARFRÆÐINGUR
Munur á skyri og jógúrt
Þjónusta 55%
Framleiðsla
33%
Verslun 12%
JÓHANNES
GUNNARSSON
RUNÓLFUR
ÓLAFSSON
VIÐ BENSÍNSTÖÐ Veiking krón-
unnar hefur þegar haft áhrif á á
eldsneytisverð, sem hefur hækkað.
�������������
���������������������������