Fréttablaðið - 30.03.2006, Síða 34

Fréttablaðið - 30.03.2006, Síða 34
 30. mars 2006 FIMMTUDAGUR34 Við sjálfstæðismenn fluttum til- lögu í borgarstjórn þann 21. mars síðastliðinn. Þar lögðum við til að tekið yrði upp formlegt samstarf við samtök eldri borgara í Reykja- vík. Inntak þessa samráðs væri fyrst og fremst þríþætt: - Að fjölga tækifærum eldri borgara til að búa sem lengst í eigin húsnæði. T.d. með lækkun fasteignaskatta og aukinni sam- fellu í heimahjúkrun og heima- þjónustu. - Að tryggja einstaklingum með afar brýna þörf fyrir hjúkrunar- heimili eða þjónustuíbúð viðeig- andi úrrræði í góðri samvinnu við ríkið, sjálfseignarstofnanir, sam- tök eldri borgara, sjúkrasjóði og lífeyrissjóði. Jafnframt verði lögð áhersla á aukið val og fjölbreytni í húsnæði fyrir eldri borgara við skipulag nýrra hverfa. - Að skoða leiðir til að auka val þessa hóps um búsetu, umhverfi og þjónustu. Það er skemmst frá því að segja að tillagan var ekki samþykkt held- ur var henni vísað til borgarráðs. Það sem vakti þó athygli á borgar- stjórnarfundinum var það hvað fulltrúar R-listans voru viðkvæmir fyrir því að við legðum fram þessa tillögu. R-listinn veit upp á sig skömmina í þessum málaflokki sem og fleirum og þolir illa að við sjálfstæðismenn skulum taka frumkvæði með þessum hætti. Verk R-listans tala ekki Það þarf enga „spekúlanta“ til þess að sjá að málefni aldraðra hafa ekki verið og eru ekki ofarlega á vinsældalista R-listans. Það hefur lítið sem ekkert verið gert fyrir eldri borgara í 12 ára valdatíð R- listans. Ef eitthvað er hefur verið dregið verulega úr þjónustu við þennan hóp á undanförnum árum. Félagsstarfið hefur dregist saman, gjöld hafa hækkað og biðlistar lengst. Við sjálfstæðismenn í Vel- ferðarráði höfum ítrekað bent á að þessi þróun sé til þess fallin að auka félagslega einangrun. Það er t.a.m. ófært að fjárhagur hamli þátttöku aldraðra í félagsstarfi. Allar íbúðir geta verið þjónustuíbúðir Við sjálfstæðismenn höfum lýst yfir vilja okkar til þess að Reykja- víkurborg taki enn frekar yfir mál- efni aldraðra. Þannig gætum við samþætt betur hjúkrunar- og heimaþjónustu og náð því takmarki að allar íbúðir geti verið þjónustu- íbúðir. Auðvitað geta aðstæður verið þannig að það sé ekki nóg að fá þjónustu heim, margir ein- staklingar hafa þörf fyrir meira en það og þá þurfa að vera til hjúkrunar- heimili eða þjónustuíbúðir. Meðan einstaklingur vill og getur mögu- lega með mikilli aðstoð verið heima, er það hans réttur. Það eru athyglisverðar nýjung- ar sem ákveðið hefur verið að fara í hjá Kópavogsbæ. Þar munu ein- staklingarnir halda sjálfstæði sínu þrátt fyrir að þurfa að fara inn á stofnun. Það er t.d. gert með því að hafa allan kostnað sýnilegan og einstaklingarnir haldi sínum tekj- um. Einstaklingar greiða þannig húsaleigu og fleira, þó að sjálf- sögðu sé ekki greitt sérstaklega fyrir þá hjúkrunar- og læknisþjón- ustu sem þeir þurfa á að halda. Ég tel þetta afar jákvæða þróun og vil gjarnan sjá okkur þróa svipaða möguleika í búsetu hér í Reykja- vík. Enda boðum við sjálfstæðis- menn fjölbreyttara búsetuform í okkar tillögum. Ekki benda á mig - segir R-listinn Björk Vilhelmsdóttir borgarfull- trúi fer mikinn í grein í Morgun- blaðinu síðastliðinn sunnudag. Þar talar hún um að Reykjavíkurborg bíði með peninga á biðreikningum í byggingu hjúkrunarheimila vegna þess að rekstrarleyfi fyrir hjúkr- unarheimilum hafi strandað á sam- þykktum ríkisins. Rekstrarleyfi fyrir hvaða hjúkrunarheimilum? Það er ekki eins og R-listanum hafi tekist að klára þá undirbúnings- vinnu sem nauðsynleg er til þess að reisa þessi hjúkrunarheimili. Skipulagningsvinna í Mörkinni tók þvílíkan óratíma að það er fyrst núna sem þeim er að takast að koma því á einhvern rekspöl og hjúkrunarheimili sem átti nú aldeilis að byggja á kjörtímabilinu á Lýsislóðinni er enn í einhverju óskilgreindu ferli. Nei, nei, nei segi ég, R-listinn getur ekki skýlt sér á bak við það að ríkið standi ekki við gefin lof- orð. Það er kominn tími til að það fólk sem stendur að meirihlutan- um hér í borg líti sér nær og hætti að benda á þessi eða hin sveitar- félögin og ríkið. Það sem skiptir máli er hvernig staðið er að málum hér í höfuðborginni. Við munum gera vel við eldri borgara Það er afskaplega auðvelt að tala alltaf eins og einhver fagurkeri, hafa uppi háleit markmið og láta allt hljóma eins og um einhverja stórkostlega hluti sé að ræða. Aðal- atriðið er á hvern hátt staðið er að hlutunum í raun, hvað er gert og hvernig. Okkur er fullkomlega treystandi til þess að gera vel í þessum málaflokki og það ætlum við að gera, fáum við til þess umboð á næsta kjörtímabili. Höfundur er hjúkrunarfræðing- ur og varaborgarfulltrúi Sjálfstæð- isflokksins og skipar 7. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Aldraðir Reykvíkingar takið eftir UMRÆÐAN MÁLEFNI ALDRAÐRA JÓRUNN FRÍMANNSDÓTTIR Við sjálfstæðismenn höfum lýst yfir vilja okkar til þess að Reykjavíkurborg taki enn frek- ar yfir málefni aldraðra. Tjörnin okkar í Reykjavík var lengi silfurtær með hornsílum syndandi með bökkunum og kríum gargandi í hólmanum. Í dag er hún full af sóti bílanna og malbiksryki og er orðin líflaus vegna mengun- ar. Vargfugl tók öll völd svo sem sílamávur með sinn sóðaskap. Óþverri fyllti Tjörnina. Auðvelt er að laga hana og gera silfurtæra aftur. Leir frá bílum sem safnast hefur á botninn mætti dæla út í skolpræsið hjá Miðbæj- arskóla sem bæri daglega óþverrann út í sjó norður. Á móti væri dælt hreinum sjó inn í Tjörn- ina í suðri úr Skerjafirði. Dæla þarf aðeins fyrst en svo gæti hreinn sjórinn runnið sjálfur eftir skurði norður í Tjörnina. Skurður- inn gæti runnið norður hjá Háskól- anum eða sunnar. Sjórinn er hreinn en óhreint skólpið úr Tjörninni bærist burt út í sjó með skolpleiðslunni við Miðbæjarskólann og tæki með sér allan skítinn. Tjörnin yrði hrein. Undir henni er hrein möl frá tíma Ingólfs Arnarsonar. Þúsund ár eru síðan svo var. Tjörnina silfurtæra UMRÆÐAN TJÖRNIN LÚÐVÍK GIZURARSON LÖGMAÐUR Forseti og varaforseti ASÍ áttu fund með Árna Magnússyni, þáver- andi félagsmálaráðherra, í febrúar síðastliðnum. Þar fóru fulltrúar ASÍ yfir málefni sem ráðherrann sagðist hafa áhuga á að ræða. Meðal annars var rætt um ILO samþykkt nr. 158. Fulltrúar ASÍ bentu ráðherra á að hann hefði ekki ennþá tekið formlega afstöðu til lögleiðingar þeirrar samþykkt- ar, eins og hann hafði lofað að gera. Málið væri fast í nefnd hjá ráðu- neytinu og það væri ráðuneytisins að skera á hnútinn. Síðan áréttuðu fulltrúar ASÍ afstöðu sambandsins til málsins og rökstuddu mikilvægi þess að réttarstaða launafólks gagnvart uppsögnum yrði treyst í samræmi við það sem ILO sam- þykkt nr. 158 kveður á um. Ráðherra lofaði að taka form- lega afstöðu til samþykktarinnar á næstunni og jafnframt að setja fram viðhorf sín varðandi máls- meðferð annara ILO samþykkta. Eitthvað á þessa leið voru umræð- ur fulltrúa Alþýðusambandsins við ráðherrann um þetta brýna rétt- indamál launafólks. Lágmarks mannréttindi Um leið og ég þakka forsetum ASÍ, þeim Grétari Þorsteinssyni og Ingibjörgu R. Guðmundsdóttur, fyrir framgöngu þeirra lýsi ég yfir skömm minni á þeim seinagangi sem Árni Magnússon, fyrrverandi ráðherra, og Páll Pétursson, for- veri hans í starfi, hafa sýnt þessu brýna réttindamáli. Allan sinn starfstíma höfðu þeir ILO sam- þykkt nr. 158 niðri í skúffu hjá sér í stað þess að leggja hana fram á Alþingi og hvetja þingmenn til að fullgilda hana. Flest vestræn ríki hafa fullgilt fyrrgreinda samþykkt eða eru með ákvæði í lögum sínum sem gilda það sama og þar er áréttað. Það er því íslenskum stjórnvöldum til skamm- ar að standa gegn lögleiðingu henn- ar hérlendis. Það er með sanni hægt að segja að félagsmálaráðherrar Framsóknarflokksins, þeir Árni Magnússon og Páll Pétursson, hafi gert allt sem þeir gátu til að koma í veg fyrir að Alþingi fjallaði um brýn mannréttindaákvæði, sem Samein- uðu þjóðirnar leggja mikla áherslu á að gildi í hverju einasta landi. Nú er Jón Kristjánsson tekinn við sem félagsmálaráðherra. Verður hann jafn neikvæður í garð launafólks og fyrirrennarar hans? Sýndarmennska Miðað við þær fullyrðingar sem ráðherrar og ýmsir alþingismenn viðhafa um frelsi og jafnrétti á Íslandi skyldi maður ætla að ekki stæði í þeim að samþykkja hérlend- is lög um lágmarks mannréttindi. En því er nú ekki þannig farið. Þeim er gjörsamlega sama um starfsör- yggi annarra á meðan það varðar ekki þeirra eigin hag og réttindi. Við núverandi aðstæður geta atvinnurekendur sagt fólki upp störfum án þess að hafa til þess nokkra eðlilega ástæðu, enda ekk- ert í íslenskri löggjöf sem bannar þeim það. Á þessu sviði er fólk ein- ungis metið út frá rekstrarlegum hagsmunum fyrirtækja en ekki sem einstaklingar eða fyrirvinnur heimila. Því er einungis stillt upp sem nauðsynlegum vinnukrafti til afnota fyrir innlend og erlend fyr- irtæki. Hvort og hvernig því er sagt upp störfum er síðan algjörlega á valdi viðkomandi fyrirtækis. Kynningarátak Íslensk verkalýðshreyfing hefur verið langt frá því nógu dugleg að kynna þjóðinni innihald ILO sam- þykktar nr. 158, sem er gerð af Vinnumálastofnun Sameinuðu þjóðanna til að sporna við geðþótt- auppsögnum. Til þess að fá þessa samþykkt lögleidda hérlendis þarf annað og meira en stuttar umræð- ur á ársfundum Alþýðusambands- ins eða fundi með ráðherra einu sinni eða tvisvar á ári og láta þar við sitja. Við verðum að fá almenn- ing með okkur. Við verðum að fræða og upp- lýsa fólk um málið og fá það í lið með okkur. Við verðum að kynna það fjölmiðlum, skrifa um það blaðagreinar, halda um það ráð- stefnur, ræða við þingmenn og hætta ekki fyrr en Alþingi sér sóma sinn í því að lögleiða sam- þykktina. Alþýðusambandið og verkalýðsfélögin hafa oft lagt vinnu í minna áríðandi verkefni en hér er á ferðinni. Vilji fólk fræðast meira um ILO samþykkt nr. 158 er hún á heimasíðu Verkalýðsfélags- ins Hlífar www.hlif.is. Höfundur er fyrrverandi for- maður Verkalýðsfélagsins Hlífar. Lög um uppsagnir UMRÆÐAN ATVINNUMÁL SIGURÐUR T. SIGURÐSSON Um leið og ég þakka forsetum ASÍ, þeim Grétari Þorsteinssyni og Ingibjörgu R. Guðmunds- dóttur, fyrir framgöngu þeirra lýsi ég yfir skömm minni á þeim seinagangi sem Árni Magnússon, fyrrverandi ráðherra, og Páll Pétursson, forveri hans í starfi, hafa sýnt þessu brýna réttindamáli.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.