Fréttablaðið - 30.03.2006, Síða 40

Fréttablaðið - 30.03.2006, Síða 40
 30. mars 2006 FIMMTUDAGUR40 menning@frettabladid.is Kl. 11.30 Gavin Morrison, heimspekingur og sýningarstjóri frá Bretlandi, heldur erindi á vegum Opna listaháskólans í húsnæði LHÍ á Laugarnesvegi 91, stofu 024. Fyrirlesturinn verður flutt- ur á ensku. > Ekki missa af... Sýningu á opinskáum ljósmyndum Spencers Tun- ick í Listasafni Akureyrar. „Bersvæði“ er áhrifamikil og ögrandi yfirlitssýning á verkum þessa umdeilda listamanns sem sýnir nekt í nýju ljósi. Viðtalinu, döffleikriti sem sýnt er í Hafnafjarðarleik- húsinu. Frábær sýning fyrir heyrandi og heyrnarlausa. Fyrirlestri dr. Magnúsar Þorkels Bernharðssonar um stöðuna í Írak og Íran og almenna þróun öryggismála í heiminum. Fyrirlesturinn verður fluttur í Odda kl. 12.15. Sænski básúnuleikarinn, tónskáldið og hljómsveitarstjórinn Christian Lindberg heldur tónleika ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands og norska einleikaranum Ole Edvard Antonsen í dag. Að þessu sinni mun Lindberg stjórna hljómsveitinni í flutningi á eigin verki sem ber heitið Akbank bunka. Christian Lindberg er þekktur fyrir líflega framkomu og nýtur ákveðinnar sérstöðu í tónlistarheiminum. Hann hóf kornungur að semja tónlist, en átján ára varð hann fyrir reynslu sem mörg tónskáld þekkja, eftir að hafa hlustað á frumsmíð sína flutta á æfingu leist honum ekki betur á en svo að hann sór þess dýran eið að semja aldrei tónlist framar. Sem betur fer rauf hann þann eið og útkoman er ótrúlega glæsilegar tónsmíðar, þá auðvitað sérstaklega fyrir básúnuna og önnur málmblásturshljóðfæri. Lindberg hefur tvisvar spilað með Sinfóníunni áður en margir áheyr- endur muna ef til vill eftir flutningi hans á hinum víðfræga Mótórhjóla- konsert eftir Jan Sandström og ævin- týralegri innkomu hans en þá fékk einleikarinn heiðursfylgd Bifhjóla- samtaka Lýðveldisins að Háskólabíói. Að þessu sinni lætur hann öðrum blásara eftir einleikshlutverkið en Ole Edvard Antonsen er einn af fremstu trompetleikurum heims. Auk trompetkonsertsins flytur hljómsveitin tónverkið Stund milli stríða eftir Önnu S. Þorvaldsdótt- ur, forleik í ítölskum stíl eftir Franz Schubert, Herragarðssögu eftir Jan Sandström og trompetkonsert eftir Tartini. Tónleikarnir hefjast kl. 19.30. TÓNSKÁLDIÐ OG BÁSÚNULEIK- ARINN CHRISTIAN LINDBERG Blásið til tónlistarveislu Gerður hefur verið góður rómur að sýningu myndlist- arhjónanna Leifs Breiðfjörð og Sigríðar Jóhannsdóttir í Skissernas Museum í Lundi í Svíþjóð. Þetta sérstæða safn gefur gestum sínum tækifæri á að sjá hvernig listaverk verða til. „Þetta er mjög merkilegt safn sem hefur sérstöðu í öllum heiminum því þar er eingöngu safnað frum- drögum, skissum, módelum og vinnuteikningum sem eru í opin- berum bygginum eða rýmum,“ segir Sigríður. „Það safnar ekki listaverkunum sjálfum heldur ein- göngu gögnum um þróun þeirra.“ Þetta er stærsta samsýning þeirra hjóna til þessa en þau hafa starfað saman um árabil, meðal annars að gerð kirkjulistaverka. Fágætur safnkostur Leifur er einn þekktasti glerlista- maður Íslands og má sjá verk hans í kirkjum landsins, til að mynda í Hallgrímskirkju og í opinberum byggingum eins og Leifsstöð og Þjóðarbókhlöðunni, en hann á einnig verk í byggingum í Skand- inavíu og Þýskalandi. Sigríður Jóhannsdóttir er textíllistamaður og hefur meðal annars unnið vegg- teppi, dúka og messuskrúða fyrir fjölmargar kirkjur hérlendis. Safnið í Lundi var stofnað árið 1935 og á yfir sjötíu þúsund verk, þar á meðal frumdrög eftir málar- ana Matisse, Picasso og Chagall en Sigríður segir að hin íslenska deild safsins sé merkileg því þar sé að finna heimildir um gerð íslenskra listaverka sem jafnvel hafa verið eyðilögð. „Þetta safn á sennilega flest verk eftir íslenska listamenn af öllum listasöfnum á Norður- löndum,“ útskýrir Sigríður og nefnir til dæmis að safnið eigi verk eftir Barböru Árnason, Ásmund Sveinsson, Erró og Ólaf Elíasson. Mikilvægi varðveislunnar Sama ár og Leifur Breiðfjörð hélt sína fyrstu sýningu árið 1969 heimsóttu hjónin safnið í Lundi og segir Sigríður að það hafi verið verðmæt kennslustund fyrir þau bæði. „Safnvörðurinn sýndi okkur safnið og geymslurnar en við lærðum í þessari heimsókn hversu mikið heimildagildi skissur og frumdrög hafa fyrir listaverkin og ekki síður fyrir mann sjálfan. Síðan þá höfum við kerfisbundið safnað saman öllum heimildum um listaverkin sem við gerum en Leifur hefur passað betur upp á þetta en íslenskir listamenn gera almennt.“ Þessar heimildir hafa þau hjónin síðan sýnt sem hluta af öðrum sýningum á listaverkum sínum en þau gæta þess vel að láta þær ekki frá sér og því munu grip- irnir ekki verða hluti af safninu í Lundi þó leitað hafi verið eftir því. Ómetanlegt tækifæri Þetta er í fyrsta skipti sem Íslend- ingum er boðið að sýna í safninu en þar má sjá heimildir um þrjátíu ára myndlistarferil þeirra hjóna. Sýningin er yfirgripsmikil og Sig- ríður útskýrir að ekki sé mögulegt að setja upp viðlíka sýningu hér- lendis því sýningarrými af þessari stærðargráðu finnast ekki hér. Glerlistaverk Leifs Breiðfjörð eru gríðarstór en njóta sín vel í Skiss- ernas Museum. Hefur sýningin hlotið lofsamlega dóma í fjölmiðl- um þar ytra og verður hún fram- lengd um tvo mánuði vegna góðr- ar aðsóknar. kristrun@frettabladid.is GLERLISTAVERK EFTIR LEIF Verk Leifs eru gríðarstór en njóta sín vel í safninu í Lundi. MYND/JAN TORSTEN AHLSTRAND Ómetanleg heimild um listina LEIFUR BREIÐFJÖRÐ OG SIGRÍÐUR JÓHANNSDÓTTIR Hafa starfað saman um árabil, meðal annars að gerð kirkjulistaverka. MYND/JAN TORSTEN AHLSTRAND ! Samtök herstöðvaandstæðinga efna til kvikmyndasýningar í kvöld í tilefni þess að 57 ár eru liðin frá því að innganga Íslands í Atlantshafsbandalagið var sam- þykkt á Alþingi, en óeirðir brutust út á Austurvelli í kjölfarið eins og þekkt er. Friðarsinnar hafa upp frá því helgað daginn baráttunni fyrir herlausu landi. Á kvikmyndasýningunni verða sýndar tvær myndir sem sjaldan hafa komið fyrir almenningssjón- ir. Önnur er fréttamynd sem tekin var á Austurvelli daginn örlaga- ríka og sýnir atburðarásina og átökin sem brutust út. Hin myndin var einnig tekin á Austurvelli, en fjörutíu árum síðar, og sýnir sviðs- setningu margra landskunnra leik- ara á atkvæðagreiðslunni á Alþingi og umræður um hana. SHA stóð að sviðssetningunni á sínum tíma en þetta mun vera í fyrsta sinn sem myndin er sýnd opinberlega. Árni Björnsson þjóðháttafræð- ingur mun gera grein fyrir mynd- unum og ýta umræðum úr vör að þeim loknum. Friðarsinnar munu svo sitja áfram, ræða málin og gera sér glaðan dag og eru léttar veitingar í boði á vægu verði. Sýn- ingin fer fram í Friðarhúsi á Njáls- götu 87 og hefst klukkan 20. Ókeypis er inn og allir velkomnir. Fágætar myndir frá Austurvelli AUSTURVÖLLUR 30. MARS 1949 Mikil átök brutust út þegar gengið var til atkvæða á Alþingi. �������������� �������� ������ ������� ���������������� �������� ��� ������������������������������ ���������������������

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.