Fréttablaðið - 30.03.2006, Síða 42

Fréttablaðið - 30.03.2006, Síða 42
 30. mars 2006 FIMMTUDAGUR42 Kammerkórinn Hymnodia heldur stórtónleika í Akureyrarkirkju laugardaginn 1. apríl og í Hall- grímskirkju daginn eftir. Með kórnum koma fram sænsk- ir atvinnu barokkhljóðfæraleikar- ar og ein skærasta stjarna barokks- ins í Svíþjóð, Anna Zander sópransöngkona, sem syngur bæði einsöngskantötu og einsöngs- og kórhlutverk í aðalverki tónleik- anna, Membra Jesu Nostri og mesta verki tónskáldsins, Diet- richs Buxtehude. „Þetta er sjálf- sagt stærsta og fegursta verk 17. aldar,“ segir Eyþór Ingi Jónsson, kórstjóri Hymnodiu. Kórfélagar eru fjórtán talsins, en kórinn hefur hefur starfað í núverandi mynd í um eitt ár við vaxandi orðstír, til dæmis var gerð- ur góður rómur að frammistöðu hans á Myrkum músíkdögum í síð- asta mánuði. „Þetta hefur gengið vel,“ segir Eyþór. „Við reynum að vera fjölbreytt í efnisvali og fara ótroðnar slóðir, en á hverjum tón- leikum reynum við að vera með ákveðið þema.“ Tónleikarnir í Akureyrarkirkju hefjast klukkan 15 á laugardag en tónleikarnir í Hallgrímskirkju klukkan 17. - bs EYÞÓR INGI JÓNSSON Kórstjóri Hymnodiu, sem hefur starfað við vaxandi orðstír í um eitt ár. MYND/ MYNDRÚN EHF. Fegursta verk 17. aldar Guðmundur Jónsson arkitekt hlaut nýlega Byggingarlistaverð- laun fyrir sjávarmenningarsafnið NORVEG í Þrændalögum í Nor- egi. Hann er einnig meðhöfundur að sjávarútvegssýningu safnsins, sem að þessu sinni er tilnefnt til evrópsku safnaverðlaunanna. Guðmundur hefur talsvert fengist við að setja upp fræðslu- sýningar og er einn atkvæðamesti arkitektinn á því sviði í Noregi. „Ég fæst bæði við sýningarnar og menningarbyggingar og oft sam- eina ég þetta tvennt. Þetta kemur að hluta til inn á menningartengda ferðaþjónustu, sem Norðmenn eru mjög uppteknir af,“ segir Guð- mundur. Um þessar mundir vinn- ur hann að sýningu í tilefni af hundrað ára ártíð leikskáldsins Henriks Ibsen sem sett verður upp í miðborg Óslóborgar. „Það er nóg að gera og allt á útopnu þessa dagana,“ segir Guðmundur en sýningin, sem er sautjánda verk- efni hans af þessu tagi, verður opnuð 23. maí. Það var hálfgerð tilviljun að Guðmundur hóf að starfa á þess- um vettvangi. „Mér bauðst að taka þátt í samkeppni vegna Noregs- sögusýningarinnar sem sett var upp í tengslum við Olympíuleik- ana í Lillehammer en sú sýning stendur enn. Það er 1.200 fermetra rými sem spannar alla sögu lands- ins,“ útskýrir Guðmundur. Guðmundur útskrifaðist frá arkitektaskólanum í Osló árið 1981 en hann bar sigur úr býtum í nor- rænni samkeppni um tónlistarhús sem haldin var í Reykjavik árið 1986 og hefur hlotið yfir fjörutíu verðlaun og viðurkenningar í sam- keppnum um byggingarlist. Hér heima hefur Guðmundur komið að Geysissýningunni og á döfinni er að hann hanni skála og sýningu í kringum Víkingaskipið Íslending og nýja menningar- og fræðslu- miðstöð sem stefnt er að því að reisa á Hólum í Hjaltadal. - khh SJÁVARMENNINGARSAFNIÐ NORVEG Hlaut Byggingarlistarverðlaun. Margverðlaunaður arkitekt GUÐMUNDUR JÓNSSON ARKITEKT Setur upp sýningu um Henrik Ibsen í Osló. Ingibjörg Karlsdóttir leirlistakona opnaði nýlega listmunagallaerí og vinnustofu í Grafarholti en þar gefur að líta fjölbreytta leir- og glerlist. Ingibjörg, eða Abba, byrj- aði að vinna með leir fyrir tíu árum síðan og rak áður leirmuna- verkstæði á Hvammstanga en verk hennar voru þá til sölu í Gall- erí Bardúsu þar í bæ og víðar. „Ég fann það strax þegar ég byrjaði að leira að þetta passaði mér mjög vel og ég hafði mjög mikinn áhuga á þessu,“ segir Ingi- björg en hún notar mikið náttúru- liti í verkum sínum. „Verkin eru mjög fjölbreytt, það eru skálar og englar og mikið af fuglum - ég er að gera alls konar nýjar útgáfur af þeim.“ Ingbjörg segir það mjög notalega iðju að vinna leirlista- verk en að baki hverju verki búi þó langt vinnuferli. Að auki eru gler- og myndlistarverk til sölu og sýnis í galleríinu. Gallerí Grafarholt er í verslun- arkjarnanum við Kirkjustétt 2-6 og er opið á virkum dögum frá 13- 18 og á laugardögum frá 13-16. LEIRLISTAKONAN ABBA Í GALLERÍ GRAFARHOLTI Vinnur fígúrur og fugla í steinleir. Náttúrulitir í leir ��������������������������������� ��������������������������������������������������� �� ����������������������������������������� ���������� �������������������������� �������������������������������������� ����������� �������� ������������� ������������� �������������� �� ��������������� ������������������������������������������ ������������������������������������������� ������������������ ����������������������������������������������� ������������ �������������� �� ����������� �������������������� ������������������������������� 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.