Fréttablaðið - 30.03.2006, Síða 46
30. mars 2006 FIMMTUDAGUR46
Eight Below er endurgerð jap-
önsku myndarinnar Nankyoku
Monogatari sem kom út árið 1983.
Hún er byggð á sannsögulegum
atburðum og fjallar um tvo starfs-
menn vísindastofnunar (Paul
Walker úr Fast and the Furious og
Jason Biggs úr American Pie) sem
eru að störfum á Suðurskautsland-
inu þegar þeir fá hættulegt verk-
efni. Eiga þeir að finna loftstein á
svæðinu og þurfa að leggja upp í
erfiðan leiðangur á hundasleðum í
slæmu veðri sem á eftir að reyn-
ast þeim mikil þrekraun.
Að komast lífs af
„Ætlarðu að tala við Paul Walker
líka? Hann var á Íslandi að taka
upp með Clint Eastwood, ekki
satt?“ er það fyrsta sem Frank
Marshall segir í spjalli sínu við
blaðamann. Marshall segist aldrei
hafa komið til Íslands en kom
aftur á móti til Grænlands til að
taka upp nokkur atriði fyrir nýju
myndina.
Hann segist hafa heillast að
handriti Eight Below þegar hann
las það. „Ég er hrifinn af hundum
og krefjandi tökustöðum og
myndin býr einmitt yfir því. Ég
leit á þetta sem mjög gott tæki-
færi. Ég varð fyrir miklum inn-
blástri af sögunni og skemmti
mér mjög vel yfir verkefninu,“
segir Marshall.
Að sögn Marshalls er Eight
Below saga um að komast lífs af,
rétt eins og hin vinsæla Alive.
„Þetta er ævintýramynd sem
fjallar um það að komast af. Hún
gerist líka í snjó og hefur því
nokkuð svipaðan söguþráð sem
felur í sér ákveðni, hugrekki, holl-
ustu og samstarf. Þær snúast
báðar um að gefast aldrei upp þar
sem aðalpersónurnar reyna í sam-
einingu að komast yfir nánast
ómögulegar hindranir.“
Marshall segist hafa mjög
gaman af þannig myndum sem
geti veitt fólki von og innblástur.
„Á hverjum degi kemst fólk yfir
erfiðar hindranir og er kastað í
aðstæður sem það á ekki von á að
lenda í en þarf að klóra sig í gegn-
um þær,“ segir hann.
Sjálfur segist hann hafa lent í
erfiðum aðstæðum sem þó komist
ekki í hálfkvisti við þær sem per-
sónurnar í myndum hans lenda í.
„Ég held að hlutirnir virki þannig
þegar maður gerir kvikmyndir,“
segir hann og hlær. „Þú er alltaf að
skipuleggja eitthvað þegar óvænt-
ir hlutir koma upp á. Það þarf að
leysa mörg vandamál við gerð
þeirra sem mér finnst mjög áhuga-
vert. En ég hef aldrei þurft að
glíma við erfið vandamál eins og í
þessari mynd en vissulega mörg
lítil.“
Hefur unnið með snákum, pödd-
um og rottum
Marshall segist aldrei hafa leik-
stýrt hundum áður í verkefni af
þessari stærðargráðu. „Ég hef
unnið með mörg dýr, meðal annars
snáka, pöddur og rottur. Ég hef
unnið með hunda áður en munur-
inn er sá að núna voru hundarnir
átta og með þeim voru 15 til 16
þjálfarar sem voru í kringum
myndavélina. Ég þurfti að vita
hvar þeir ætluðu að vera til að
stýra hundunum og það var krefj-
andi verkefni. Við unnum með
þeim í yfir sex mánuði og eitt af
því sem ég lærði var að það þarf
mikla þolinmæði og skipulagningu
og það var mikið af hvoru tveggja
við gerð þessarar myndar.
Aðspurður segir Marshall að
vegna breytilegs veðurfars á
Grænlandi hafi tökuliðið þurft að
vera með þrjú mismunandi atriði í
startholunum í byrjun hvers dags.
„Eftir að hafa tekið upp Alive veit
ég að veðrið er síbreytilegt á
svona stöðum. Við vorum með eitt
sólaratriði tilbúið, eitt víðáttuat-
riði og annað sem átti að taka upp
í hríð, þannig að ef þú sérð þannig
atriði í myndinni þá lítur það
svona vel út af því að það er raun-
verulegt.“
Marshall er mjög ánægður með
frammistöðu Pauls Walker í mynd-
inni. „Hann er vanur að leika ein-
hverja töffara en þarna sýnir hann
á sér mjúka og tilfinningaríka hlið.
Hann er mikill útivistarmaður og
á hund og kann því að umgangast
þá. Mér fannst hann henta vel í
þetta hlutverk og hann lítur allan
tímann út fyrir að þykja mjög
vænt um hundana. Hann var sá
fyrsti sem mér datt í hug fyrir
þetta hlutverk,“ segir hann.
Ellfu ára bið á enda
Ellefu ár eru liðin síðan Marshall
leikstýrði síðustu mynd sinni,
Congo. Hann segir að tvær ástæð-
ur hafi ráðið þessari löngu bið.
„Við ákváðum að eignast fjöl-
skyldu og núna á ég tvær stúlkur,
níu og sjö ára, og ég vildi eyða
tíma með þeim. Síðan sá ég aldrei
nein handrit sem ég vildi leikstýra
en aftur á móti komu nokkrar
myndir sem ég vildi framleiða
fyrir aðra eins og The Sixth Sense,
Seabiscuit og Bourne-myndirnar.
Þetta voru allt frábær verkefni
þar sem leikstjórinn var þegar
fyrir hendi en þegar ég sá handrit-
ið að Eight Below langaði mig að
snúa aftur í leikstjórastólinn.“
Marshall segir það mun meira
gefandi að vera leikstjóri heldur
en framleiðandi. „Sem leikstjóri
geturðu sett fram þína eigin skap-
andi sýn á verkefnið. Þegar þú
sérð afraksturinn á hvíta tjaldinu
veistu að þetta voru allt saman
ákvarðanir sem þú tókst. Á móti
kemur að þetta er meiri áhætta
fyrir þig sjálfan. Það er frábært ef
mönnum líkar myndin en ef þeim
líkar hún ekki færð þú allar
skammirnar.“
Skjólstæðingur Spielbergs
Marshall hefur unnið með mörg-
um þekktum leikstjórum, meðal
annars Steven Spielberg og M.
Night Shyamalan. Hann segir það
ekkert mál að láta aðra um að
leikstýra myndunum sem hann
framleiðir. „Það er bara auðveld-
ara að vinna með öðrum leikstjór-
um því þá þarf ég ekki að vakna
eins snemma,“ segir hann og
hlær. „Á öllum mínum ferli hef ég
unnið með leikstjórum sem er
gott að starfa með. Þeir hlusta á
mig en ég veit að þeir eiga loka-
orðið. Ég hef alltaf stutt við bakið
á leikstjórunum og veit alveg
hvar mörkin liggja. Leikstjórar
gera sér líka grein fyrir því að ég
veit hvað þeir eru að fara í gegn-
um og það hjálpar til,“ segir hann,
og viðurkennir að samstarfið við
Spielberg hafi verið frábært.
„Hann er mjög stoltur að mér og
lítur á mig sem einn af sínum
skjólstæðingum. Hann var svo
sannarlega lærifaðir minn. Hann
var mjög ánægður með nýju
myndina og sagði að hún væri
alveg yndisleg. Síðan ætlum við
að gera Indy 4 [Indiana Jones 4]
einhvern tímann,“ segir hann og
hlær.
„Verkefnið gengur vel en það
er mikið í húfi. Við viljum hafa
gott handrit í höndunum en það
erfiðasta er að finna tíma fyrir
alla til að vinna við hana. Ég held
að það gæti gerst á næsta ári. Við
höfum tvö handrit núna sem við
erum að vinna að.“
Lance Armstrong og Indy 4
Næsta leikstjóraverkefni Mars-
halls er innan seilingar og því
ljóst að engin ellefu ár munu líða
fram að næstu mynd hans. Bygg-
ir það einmitt líka á sögu um hug-
rekki og því að gefast aldrei upp,
rétt eins og margar af myndum
hans til þessa.
„Mig langar að kvikmynda
sögu Lance Armstrong [hjólreiða-
kappans þekkta]. Ég keypti bók-
ina hans og hef verið að vinna
með honum og handritshöfundi.
Handritið ætti að verða klárt í
sumar og vonandi verður það
næsta myndin mín sem leik-
stjóri,“ segir hann.
Framleiðandinn Marshall
mun næst snúa sér að framhalds-
myndinni Bourne Ultimatum með
Matt Damon í aðalhlutverki. Verð-
ur hún tekin upp víðs vegar í Evr-
ópu og hefjast tökur í ágúst.
Marshall, sem verður sextug-
ur síðar á þessu ári, hóf feril sinn
í kvikmyndaborginni er hann
vann við hina klassísku The Last
Picture Show árið 1971. Hann
segist ekki hafa getað átt betri
feril í kvikmyndaborginni.
„Ég fékk tækifæri til að vinna
að litlum myndum þegar ég var að
byrja og hafði mjög gaman af því.
Ég hugsaði með mér: „Þetta lang-
ar mig að gera“ en upphaflega
ætlaði ég að verða lögfræðingur,
held ég,“ segir hann. „Ég hef unnið
með frábærum leikstjórum og
ferðast um heiminn. Þetta hefur
verið stórkostlegt og þess vegna
elska ég þetta starf.“ ■
YFIR ÓMÖGULEGAR HINDRANIR
Bandaríski leikstjórinn og framleiðandinn Frank Marshall, maðurinn á bak við myndir á borð við Alive,
Congo og Arachnophobia, sendi nýverið frá sér myndina Eight Below þar sem hundar koma mikið við
sögu. Freyr Bjarnason spjallaði við Marshall í tilefni af frumsýningu myndarinnar hér á landi á morgun.
ÚR SMIÐJU MARSHALL
LEIKSTJÓRI:
2006 Eight Below
1995 Congo
1993 Alive
1990 Arachnophobia
FRAMLEIÐANDI:
2004 The Bourne Supremacy
2003 Seabiscuit
2002 Sings
1999 The Sixth Sense
1989 Indiana Jones and the Last Crusade
1985 The Colour Purple
1982 Poltergeist
1981 Raiders of the Lost Arc
VI
NN
IN
GA
R
VE
RÐ
A
AF
HE
ND
IR
H
JÁ
B
T
SM
ÁR
AL
IN
D.
K
ÓP
AV
OG
I.
M
EÐ
Þ
VÍ
A
Ð
TA
KA
Þ
ÁT
T
ER
TU
K
OM
IN
N
Í S
M
S
KL
ÚB
B.
1
49
K
R/
SK
EY
TI
Ð.
DVD spilari+King Kong á DVD + King Kong varningur
LENDIR Í BT 30. MARS!
AUKAVINNINGAR ERU:
• KING KONG Á DVD
• PEPSI KIPPUR
• KING KONG TÖLVULEIKUR
• VARNINGUR TENGDUR MYNDINNI
• FULLT AF ÖÐRUM DVD MYNDUM
OG MARGT FLEIRA
ÞÚ SENDIR SMS SKEYTIÐ
BTC KKF Á NÚMERIÐ 1900
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ KING KONG Á DVD!
9.HVERVINNUR!