Fréttablaðið - 30.03.2006, Side 50
30. mars 2006 FIMMTUDAGUR50
Silja Ósk Þórðardóttir hannar og
selur ýmiss konar eyrnalokka í
versluninni Ranimosk á Klappar-
stíg. „Mér finnst gaman að búa
til fallegt dót úr hálfgerðu drasli
og bara einhverju sem ég finn.
Ég hef verið að grúska við þetta í
um það bil ár og geri líka eyrna-
lokka úr steinum en sel þá reynd-
ar ekki í búðinni,“ segir Silja sem
vinnur aðallega úr silfri, plasti
og gleri. Hún fór að hanna eyrna-
lokka handa sjálfri sér og byrj-
aði í upphafi á að gera þá úr
öryggisnælum.
„Ég hef alltaf verið hrifin af
eyrnalokkum og svo stakk vin-
kona mín upp á því að ég færi að
selja þá einhvers staðar. Ég kaupi
sjálf efnið í eyrnalokkana og
salan á þeim hefur gengið alveg
hreint ágætlega. Ég hef ekkert
lært skartgripahönnun en var þó í
einum áfanga í grunnskóla þar
sem kennd var skartgripagerð.
En núna er ég á þriðja ári í
Kvennaskólanum á náttúrufræði-
braut og tek myndlistaráfanga í
FB með.“
Hannar eyrnalokka og selur
SILJA ÓSK ÞÓRÐARDÓTTIR Hún hannar og
selur skartgripi í búðinni Ranimosk.
EYRNALOKKAR Silja notar steina, silfur,
plast og gler í eyrnalokkana.
Fatamerkið Diesel sem stofnað
var á Ítalíu árið 1978 af hönnuðin-
um Renzo Rosso og vinum hans
hefur tekið miklum stakkaskipt-
um upp á síðkastið. Árið 1985
keypti Renzo Rosso vini sína út úr
fyrirtækinu og hefur hann stýrt
því með miklum sóma síðan. Undir
hans stjórn hefur Diesel vaxið og
dafnað og í dag er merkið orðið
samkeppnishæft við önnur hátísku-
merki. Eini munurinn er sá að
Rosso leggur áherslu á að almenn-
ingur geti gengið í fötunum en
ekki bara ítalskir milljónamær-
ingar. Þetta hefur gert það að
verkum að Diesel-fötin eru vinsæl
um allan heim hjá breiðum aldurs-
hópi. Diesel skiptist í nokkrar
línur. D-Diesel er aðallínan og
hefur hún verið fáanleg á Íslandi
síðan 1986. Hún er nú seld í versl-
unum Gallerís sautján, Deres og
Retro en líka í verslunum víða um
land. Í henni er mest lagt upp úr
gallabuxum og öðrum hversdags-
fatnaði eins og bolum, skyrtum og
jökkum. Diesel-gallabuxurnar
þekkja flestir enda hafa þær feng-
ið mikla athygli í Evrópu og
Bandaríkjunum á síðustu árum.
Gallabuxurnar þykja vel hannað-
ar og mikið er lagt í þær til að gera
þær sem fjölbreyttastar. Þess má
geta að hönnuðir Diesel voru með
þeim fyrstu sem buðu upp á mis-
munandi þvott á gallabuxum og
ekki er óalgengt að buxur sömu
gerðar séu mjög ólíkar því oft á
tíðum eru þær handþvegnar til að
ná fram hárréttum smáatriðum.
Þetta gerir buxurnar framúrskar-
andi og eftirsóttar. Stylelab-línan
frá Diesel er örlítið dýrari en D-
línan. Á bak við hverja tískulínu
liggur gríðarlega hugmyndavinna
og hönnuðir Diesel ferðast út um
allan heim til þess að næla sér í
innblástur. Fyrir hönnun á vor- og
sumarlínunni í ár dvöldu þeir á
japanskri eyju þar sem starfrækt
er herstöð á vegum Bandaríkja-
hers. Á þeirri eyju mætast tveir
menningarheimar, innfæddir og
hermenn, sem skapar sérstaka
blöndu. Í nýjustu línunni koma
þessi áhrif í ljós en þar er her-
mannaútliti blandað saman við
japönsk munstur sem gerir sum-
arlínuna afar skemmtilega. Á
laugardagskvöldið verður Diesel-
hátíð á vegum fyrirtækisins N.T.C.
sem er umboðsaðlili fyrir Diesel á
Íslandi. Á hátíðinni verður tísku-
sýning þar sem gestir gefst kostur
á að berja vor- og sumarlínuna
augum.
Diesel verður
hátískuvara
Tom Cruise hefur gefið Katie
Holmes iPod með róandi tónlist til
þess að hjálpa henni að hljóða ekki á
meðan á fæðingunni stendur. Parið
hefur nú þegar hengt upp plaköt um
allt heimilið í Beverly Hills sem
minna hana á að vera ekki með læti
og að fara sér hægt. Samkvæmt
kenningum Vísindakirkjunnar er
það mjög slæmt fyrir börn að heyra
móðurina öskra er hún fæðir þau.
„Tom gaf Katie
iPod með mörg-
um lögum. Hann
vill að hún hlusti
á róandi tónlist
en að hún sé með
heyrnartól svo
það verði enginn
hávaði,“ sagði
heimildarmað-
ur, en Katie en
von er á barninu
á næstu dögum.
Katie fær
róandi tónlist