Fréttablaðið - 30.03.2006, Qupperneq 58
30. mars 2006 FIMMTUDAGUR58
Sigtryggur Jónsson Löggildur fasteignasali.
Hlíðasmári Kópavogur.
Fr
u
m
Vorum að fá í sölu
verslunarhúsnæði á
jarðhæð 193 fm á þess-
um eftirsótta stað. 2
inngangar stórir gluggar
með miklu auglýsinga-
gildi. Húsnæðið skiptist
í;Lager,salerni,kaffistofu
og stóran sal.
V. 46 millj. (4041)
FORMÚLA-1 Kólumbíumaðurinn
Juan Pablo Montoya segir að hann
þurfi að bíða eftir ákvörðun hjá
félaga sínum hjá McLaren, Kimi
Raikkonen, fyrir árið 2007 áður en
hann tekur ákvörðun um eigin
framtíð. Annar hvor þeirra þarf
að víkja fyrir heimsmeistaranum
sjálfum, Fernando Alonso, eftir
yfirstandandi keppnistímabil
þegar hann kemur til liðsins frá
Renault.
„Ég er að horfa í kringum mig
eins og allir aðrir. Ég hef heyrt
það eins og allir aðrir að Raikkon-
en sé að fara til Ferrari. Ég heyri í
það minnsta stöðugan orðróm um
það,“ sagði Montoya sem óttast þó
ekkert um liðsval þegar að því
kemur.
„Það gæti verið laust sæti hjá
Toyota. BMW munu leitast við að
bæta sig, og það sama má segja
um Renault. Ef maður horfir í
kringum sig er nóg af lausum
sætum í Formúlunni,“ sagði öku-
þórinn að lokum en næsta For-
múlukeppni fer fram um helgina
þegar ekið verður í Ástralíu.
- hþh
Formúla 1:
Montoya er í
viðbragðsstöðu
JUAN PABLO MONTOYA Á fullri ferð á
æfingu NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Umboðsmaður egypska
framherjans Midos hefur greint
frá því að nokkur félög séu komin
framar í goggunarröðina heldur
en Tottenham í kapphlaupinu um
leikmanninn. Mido er í láni hjá
Lundúnaliðinu frá Roma á Ítalíu
en Tottenham hefur lýst yfir áhuga
sínum á því að kaupa hann án þess
að hafa gert tilboð.
Mino Raiola segir að Roma vilji
gjarnan fá Mido aftur þar sem
þeir eru að leita sér að framherja
en framherjinn hefur sjálfur sagt
að hann vilji vera áfram á White
Hart Lane. Luciano Spalletti hefur
tekið við Roma síðan Mido var lán-
aður en hann lenti upp á kant við
félagið og var í kjölfarið sendur
frá Ítalíu með hraði.
„Við höfum ekki útilokað Tot-
tenham en önnur félög leiða nú
kapphlaupið,“ sagði Raiola og
bætti við að hann væri mjög von-
svikinn með Tottenham að hafa
ekki klárað málið nú þegar. - hþh
Enska úrvalsdeildin:
Tottenham að
missa af Mido?
MIDO Gæti farið aftur til Roma en hefur
lýst yfir áhuga á að vera áfram hjá Totten-
ham. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Þeir Sigurður Eggerts-
son og Baldvin Þorsteinsson
verða að öllum líkindum ekkert
meira með Val það sem eftir er af
leiktíðinni. Sigurður á enn í vand-
ræðum með hnémeiðsli sem hafa
verið að plaga hann í allan vetur
og Baldvin hefur ekki losnað við
einkirningssóttina sem hann fékk
um hátíðirnar og hefur fyrir vikið
neyðst til að draga sig úr íslenska
landsliðshópnum öðru sinni.
„Hnéð hefur ekkert verið í lagi
í allan vetur og nú ætla ég að fara
í myndatöku og skoða málið því
ég er nokkuð kvalinn og get lítið
sem ekkert æft,“ sagði Sigurður
við Fréttablaðið í gær en hann
var nýbúinn að jafna sig eftir
uppskurð þegar hann fór að æfa
með landsliðinu fyrir EM og Sig-
urður telur líklegt að hann hafi
einfaldlega farið of snemma af
stað og því sé hnéð enn í ólagi.
„Það er lítið eftir af tímabilinu
og við eigum ekki möguleika á
titlinum þannig að meiðslin koma
félaginu sem betur fer ekki í mik-
inn bobba,“ sagði Sigurður. - hbg
Valsmenn missa lykilmenn fyrir lokaátökin í DHL-deildinni:
Sigurður og Baldvin væntan-
lega úr leik út tímabilið
FÚLT AÐ VERA MEIDDUR Baldvin Þorsteinsson og Sigurður Eggertsson spila væntanlega
ekki meir á þessu tímabili. Sigurður er meiddur á hné og Baldvin er aftur lagstur í rúmið
með einkirningssótt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Danska úrvalsdeildarfé-
lagið Silkeborg vann góðan sigur á
AGF í gær, 1-0. Silkeborg hefur
leikið mjög vel síðustu vikur og er
í áttunda sæti deildarinnar.
Íslendingarnir Bjarni Ólafur
Eiríksson og Hörður Sveinsson
voru báðir í byrjunarliði Silke-
borg eins og venjulega.
Bjarni Ólafur lék allan leikinn
en Herði var skipt af velli á 70.
mínútu en hann skoraði ekki mark
Silkeborg að þessu sinni en Hörð-
ur skoraði fjögur mörk í tveimur
fyrstu leikjum sínum með danska
félaginu.
- hbg
Enn sigur hjá Silkeborg:
Bjarni og
Hörður í liðinu
FÓTBOLTI Peter Kenyon, stjórnar-
formaður Chelsea, greindi frá því
í gær að félagið væri komið í
ítarlegt samstarf við AEG sem á
eða rekur fjögur félög í banda-
rísku atvinnumannadeildinni.
Aðalsamstarfið verður við LA
Galaxy en einnig verður samstarf
við Chicago Fire, DC United og
Houston Dynamo.
- hbg
Forráðamenn Chelsea:
Færa út kví-
arnar
FÓTBOLTI Mikil eftirvænting ríkti
fyrir leik Lyon og AC Milan í
Frakklandi en lærisveinar Ger-
ards Houllier í Lyon hafa komið
skemmtilega á óvart í keppninni
og leikið einna skemmtilegasta
boltann enda sóknarleikur í háveg-
um hafður hjá liðinu. Sérfræðing-
ar töldu það góðan prófstein á liðið
hversu vel því gengi gegn skipu-
lagðri ítalskri vörn sem þó sakn-
aði lykilmanna.
Fyrri hálfleikur var frekar
bragðdaufur en heimamenn stýrðu
þó umferðinni en þegar nær dró
marki Milan fjöruðu sóknir liðsins
nær undantekningalaust út. Gest-
irnir frá Ítalíu undu glaðir við sitt
enda eflaust takmarkið að verja
markið af mætti og allt annað væri
síðan bónus þar sem liðið á síðari
leikinn á heimavelli.
Það var markalaust í leikhléi en
meira líf færðist í leikinn í síðari
hálfleik þegar heimamenn freist-
uðu þess að opna vörn gestanna og
koma sér um leið í þægilega stöðu
fyrir síðari leikinn.
Nokkurt líf færðist í leikinn um
miðbik síðari hálfleiksins en þó án
þess að liðunum tækist að skora
og bæði lið virtust nokkuð sátt
þegar blásið var til leiksloka og
niðurstaðan markalaust jafntefli.
Mikið fjör var í hinum leik gær-
kvöldsins þar sem hitt Mílanólið-
ið, Inter, tók á móti spænska spútn-
ikliðinu Villarreal á San Siro.
Leikurinn byrjaði með miklum
látum þegar Diego Forlan kom
gestunum yfir á fyrstu mínútu
með marki sem gæti reynst mjög
dýrmætt þegar upp er staðið.
Heimamenn í Inter voru fljótir
að svara fyrir sig þegar Brasilíu-
maðurinn Adriano kom boltanum
yfir línuna af stuttu færi á sjö-
undu mínútu. Þannig stóðu leikar í
leikhléi en Nígeríumaðurinn Obaf-
emi Martins kom Inter yfir eftir
aðeins níu mínútur í síðari hálf-
leik.
Mikið gekk á það sem eftir lifði
leiks og gáfu heimamenn allt sem
þeir áttu til að jafn leikinn en
Spánverjarnir vörðust fimlega og
eygja ágætis möguleika á sæti í
undanúrslitum með dýrmætt
mark á útivelli í farteskinu.
henry@frettabladid.is
Mílanó-liðin í góðum málum
í meistaradeildinni
Tveir leikir fóru fram í átta liða úrslitum meistaradeildar Evrópu í gær. Lyon
og AC Milan gerðu markalaust jafntefli í Frakklandi en Inter lagði Villarreal á
Ítalíu, 2-1. Mílanóliðin standa því vel að vígi fyrir seinni leikina.
STÁL Í STÁL Það var ekkert gefið og fátt um
færi hjá Lyon og AC Milan.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
DÝRMÆTT MARK Diego Forlan fagnar hér
gríðarmikilvægu marki sem hann skoraði í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
HETJA INTER Obafemi Martins tryggði Inter mikilvægan sigur gegn Villarreal í gær. Inter leiðir með einu marki fyrir seinni viðureign liðanna
sem fram fer á Spáni. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP