Fréttablaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 62
30. mars 2006 FIMMTUDAGUR62
opið alla laugardaga 10-14
35% Afsláttur
Af öllum Humri
Bak við böndin er nýr tónlistar-
þáttur sem fer í loftið þriðja apríl
á sjónvarpsstöðinni Sirkus. Í
honum fylgjast plötusnúðarnir
Ellen og Erna með hljómsveitum
landsins á ferð og flugi hérlendis.
Hugmyndin er upphaflega komin
frá þeim stelpum en þær brugðu á
það ráð að fá reynsluboltann Dóru
Takefusa til liðs við sig.
Dóra starfar hjá almannatengsla-
fyrirtækinu Forever Entertain-
ment og hefur skipulagt viðburði
auk þess sem fyrirtækið sinnir
alhliða framleiðslu í afþreyingar-
iðnaðinum. „Í upphafi var þetta
stofnað sem sjónvarpsframleiðslu-
fyrirtæki en það hefur eitthvað
misskilist,“ segir Dóra sem var
nýbúin að jafna sig eftir smá veik-
indi og var að keyra með dóttur
sinni þegar Fréttablaðið náði tali
af henni. „Ég framleiddi allt sjálf á
mínum síðustu árum og þekki þetta
því mjög vel,“ bætir hún við, en
Dóra mun nú vinna með gömlum
starfsbróður frá árunum á Skjá
einum, en Árni Þór Vigfússon er
sem kunnugt er sjónvarpsstjóri
Sirkus. „Það hefur reyndar ekkert
með mína aðkomu að gera enda
vildu þær Ellen og Erna fara með
þáttinn yfir á stöðina,“ segir hún.
Dóra hefur verið fyrir framan
myndavélarnar frá fimmtán ára
aldri og voru margir sem söknuðu
hennar þegar hún ákvað að gefa
þeim smáfrí. „Annars var tíminn
fyrir framan myndavélina auka-
atriði, meirihlutinn fór í að fá við-
mælendur, klippa og þar fram eftir
götunum,“ útskýrir hún en Dóra
útilokar þó ekki að hún muni snúa
aftur á skjáinn. - fgg
Útilokar ekki endurkomu
DÓRA TAKEFUSA Framleiðir nýjan tónlist-
arþátt fyrir sjónvarpsstöðina Sirkus sem
plötusnúðarnir Ellen og Erna stjórna.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LÁRÉTT
2 læra 6 tveir eins 8 málmur 9 röð
11 tónlistarmaður 12 átölur 14 yfir-
stéttar 16 tölvuverslun 17 hlaup 18
for 20 tveir eins 21 krakki.
LÓÐRÉTT
1 dreifa 3 tveir eins 4 land 5 struns
7 matjurt 10 óvild 13 tækifæri 15
óhapp 16 hryggur 19 kyrrð.
LAUSN
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT: 2 lesa, 6 tt, 8 eir, 9 róf, 11 kk,
12 ámæli, 14 aðals, 16 bt, 17 gel, 18
aur, 20 yy, 21 krói.
LÓÐRÉTT: 1 strá, 3 ee, 4 sikiley, 5 ark,
7 tómatur, 10 fæð, 13 lag, 15 slys, 16
bak, 19 ró.
HRÓSIÐ
...fær sjónvarpsstöðin Sýn en í
ágúst hefst þar nýr raunveru-
leikaþáttur þar sem íslenskum
„nördum“ gefst tækifæri til að
bæta við sig kunnáttu í knatt-
spyrnu.
Félag íslenskra bókaútgefanda í
samstarfi við íslenska bóksala
ætlar að gefa hverju heimili í land-
inu ávísun upp á þúsund krónur í
tilefni af viku bókarinnar sem er
frá 19. apríl til 23. apríl. Ef miðað
er við að hundrað þúsund heimili
séu á Íslandi er ljóst að upphæðin
mun nema rúmum hundrað millj-
ónum íslenskra króna. Félag
íslenskra bókaútgefanda leggur til
50 milljónir og bóksalar hinar 50
en nokkur fyrirtæki munu enn
fremur leggja sitt á vogarskálarn-
ar til að verkefnið nái fram að
ganga. Ávísunin mun gilda á allar
íslenskar bækur og mun þetta
sögulega tilboð standa til þriðja
maí.
Benedikt Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra
bókaútgefenda, var í óða önn að
gera upp eftir bókamarkaðinn en
sagði að svo yrði farið í þetta verk-
efni af fullum krafti en ekki væri
byrjað að blása í neina herlúðra
enn sem komið væri. „Þann 23.
apríl er alþjóðlegur dagur bókar-
innar en við höfum haft þann hátt-
inn á að vera með viku bókarinn-
ar,“ útskýrir Benedikt en þá hafa
allir þeir sem koma nálægt bóka-
útgáfu slíðrað sverðin og tekið
saman höndum við að kynna
íslenskar bókmenntir. Fjöldi lista-
manna hefur yfirleitt verið feng-
inn til að kynna þessa viku en nú fá
landsmenn auglýsinguna senda
beint heim til sín. „Undanfarin ár
höfum við viljað einbeita okkur að
börnum og unglingum enda viljum
við hvetja þau til að lesa meira eða
að lesið sé meira fyrir þau,“ bætir
hann við. „Þá höfum við enn frem-
ur verið með sérvaldar bækur sem
ekki hafa alltaf höfðað til allra og
með þessu getur fólk hreinlega
valið sjálft,“ segir Benedikt.
Verið er að leggja drög að dag-
skránni og má reikna með að skáld
verði fengið til að semja ávarp í
tilefni af vikunni. „Við ætlum að
sjá til hvernig þetta gengur og ef
vel tekst til er ekki útilokað að
þetta verði gert að ári aftur,“ segir
Benedikt sem vonast auðvitað til
þess að þjóðin taki vel í gjöfina.
VIKA BÓKARINNAR: LANDSMENN FÁ ÓVÆNTA GJÖF
Þúsund króna ávísun
inn á hvert heimili
FRÉTTIR AF FÓLKI
L inda Pétursdóttir, alheimsfegurðar-drottning og auglýsandi og markaðs-
stjóri Iceland Spa, mun á hverjum föstu-
degi sjá um stutt innslag í þættinum Á
milli sex og sjö sem Guðrún Gunnars-
dóttir og Felix Bergsson stjórna. Þar
mun hún, ásamt Kristínu Stefánsdóttur
stofnanda No Name, fjalla um allt milli
himins og jarðar en þær stöllur munu
bregða upp nýrri sýn á daglega og
hversdagslega hluti. Samkvæmt því sem
Fréttablaðið kemst næst er þetta frum-
raun hjá Lindu Pé og Kristínu í sjónvarpi.
Reyndar er
þetta ekki
í fyrsta
skipti
sem við
Íslendingar
höfum
alheims-
fegurðar-
drottningu
sem þátta-
stjórnanda því
Unnur Birna
stjórnaði sem
kunnugt er
Sjáðu á
Sirkus
en sá
þáttur var
fljótlega
tekinn af
dagskrá.
Síðasta sextán liða rimman í Meistar-anum, þætti Loga Bergmanns, verður
háð í kvöld en þá keppa Inga Dóra Ingv-
arsdóttir og Friðbjörn Eiríkur Garðarsson.
Þau kepptu bæði í undankeppninni og
ættu því að vera orðin þaulvön leiknum.
Áður munu þó sexmenningarnir í Strák-
unum keppa í spurningakeppni en þeir
eru þekktir fyrir allt annað en gáfuleg
uppátæki. Gömlu strákarnir, Auddi,
Sveppi og Pétur, keppa á móti þeim
Huga, Atla og Gunnari en væntanlega
verður hart barist enda má búast við því
að þeir sem
tapa þurfi
að fram-
kvæma
enn
eina vitl-
eysuna.
-fgg
BENEDIKT KRISTJÁNSSON Íslenskir bóksalar og bókaútgefendur fara ótroðnar slóðir þegar þeir kynna íslenskar bækur.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Morgunmatur: Ef þú hefur ekki smakkað lífræna
jógúrt með mangóbragði þá verður þú að prófa þessa
dásemd.
Hreyfingin: Farðu í sund og syntu að minnsta kosti
kílómetra. Vertu í flottum sundbol og gættu þess að
gleyma ekki blöðkunum, þær hjálpa þér að kom-
ast hraðar og svo auka þær líka brennsluna.
Sýningin: Skokkaðu upp á Gyllinhæð á
Laugaveginum þar sem nemendur á 2.
ári í Listaháskóla
Íslands sýna verk
sín.
Leikritið: Upplifðu alvöru
nostalgíu við að sjá klassíker-
inn Litlu hryllingsbúðina sem
Leikfélag Akureyrar sýnir þessa
dagana.
Hádegisverðurinn: Farðu á Mokka og
upplifðu gömlu stemninguna á meðan þú
kjamsar á samloku með skinku, osti og
aspas. Dásamlegt alveg hreint.
Bíómyndin: Kíktu á nýjustu mynd
Natalie Portman, V for Vendetta.
Hún er víst góð skemmtun og svo
rakar Natalie líka kollinn á sér í
myndinni.
Tónleikarnir: Benni Hemm
Hemm, Borko og Seabear í Gyllta
salnum, Hótel Borg á föstudaginn. Ávís-
un á gott kvöld.
Veitingahúsið: Farðu á Caruso og pant-
aðu þér sjávarfang dagsins. Þú verður
ekki fyrir vonbrigðum.
CD: Það er ekki úr vegi að hita upp fyrir komu Ray
Davies og skella góðum Kinks-diski í tækið. Prófaðu
diskinn The Village Green Preservation Society. Hann
er himneskur.
Heimasíð-
an: Farðu
á www.
overheard-
innewyork.
com og lestu
óborganlegar
tilvitnanir frá
alvöru New
York búum.
Helgin okkar...