Tíminn - 17.07.1977, Blaðsíða 8
8
Sunnudagur 17. júli 1977
Bátur og hjallar I Grimstaöavör
Ingólfur Davíðsson:
180
Byggt og búið
í gamla daga
og hákarlinum vandist ég i
barnæsku. Hann var þá algeng-
ur réttur, etinn með harðfiski og
brauði. Beztur þótti mér glæri
hákarlinn, en bragð- og lykt-
sterka skyrhákarlinum þurftu
menn að venjast — hann er ekki
barnamatur! Glær hákarl var
ráðlagður til heilsubótar maga-
veiku fólki. Ungur hákarl (got)
var stöku sinnum matreiddur
nýr i hákarlastöppu, en þótt
ekki góður og var jafnan varað
við að eta mikið af honum.
Grásleppan var hengd upp
eða siírsuð. Lika brytjuð i kýrn-
ar ef mikið veiddist, aldrei var
henni fleygt.
Hænur og fleiri alifuglar
vappa við ströndina á Ægissiðu.
Börninleika séri fjörunniog við
bátana, sem dregnir eru á land:
fá kannski stundum að fara á
flot með grásleppukörlunum.
Göngum vestur á Ægissiðu i
Reykjavik, þar sem útsýn er
fögur út á Flóann, særokið
stundum gengur á land, og þar
sem breið gatan skilur gamalt
og nýtt. Þarna mætast eiginlega
tveir heimar. Landmegin göt-
unnar stendur röð ríkmann-
legra húsa. Þaö er bjart yfir
þeim og lóðirnar vel snyrtar,
bldmog tré i göröum. Ræktunin
lánast furðanlega, þó ægir sendi
stundum salta skvettu á land,
eða a.m.k. brimsalt löður upp i
garðana, sem við hafi horfa, og
sviði kannski nokkrar greinar.
Sitkagreni þolir vel seltuna,
en getur misst tqipinn I hvass-
viðrum. Fallegar strandjurtir,
t.d. bláliljan, sem myndar lágar
bláarbreiður i f jörusandi, er til-
valin i steinhæöir.
Sjávarmegin götunnar er allt
með eldra sniði — hjallar, bát-
ar, net o.fl. veiðarfæri. Grá-
sleppan þekúr rá við rá, ýsu-
bönd sjást hanga — og kannski
leynast hákarlabeitur I ein-
hverjum hjallinu'm? Siginn fisk-
ur þykir mér herramannsmatur
Grásleppuhjallur i Grlmsstaðavör 9. júnl 1977.
Fiskhjallur I Garðavör I Reykjavik 9. jún ’77
Nr. 90 og 92 á Ægissiðu 28. mai 1976.
Komið að landi I Grimstaðarvör 28. mai 1976.