Tíminn - 17.07.1977, Blaðsíða 13

Tíminn - 17.07.1977, Blaðsíða 13
Sunnudagur 17. jiili 1977 13 Flugleiðaþota á Orlyflug- velli. Myndin er tekin er vél-' in var nýlent i fyrsta áætlunarfiuginu þangað frá tslandi. Neðst tU hægri er áhöfn vélarinnar að taka við blómum og láta mynda sig. sem Jóhannes bætti hraðamet ' f Sæmundar voru meðal annarra nokkrir forvigismenn sam- göngumála og örfáir aðrir gest^ ir, m.a. undirritaður Eftir að Eirikur frá Brúnum setti punkf- inn aftur við Litla ferðasögu er litt við hæfi að þreytalesendur með ferðasögum og verður það ekki reynt hér. Hitt má segjast, að þegar litt veraldarvanur Mörlandi kópti á dýrð heimsins mitt á meðal stórmerkja heims- menningarinnar, fannst honum hann hafa verið hér áður og séð þetta allt saman. Þetta er ekki sagt af yfirlæti, miklu fremur hinu andstæða. Af örstuttri snertingu við borgina eru áhrif- in svipuð og að hitta gamlan kunningja. Breiðstræti, minnis- merki, glæsihallir, allt þetta könnumst við við og þekkjum með nafni áður en komið er til borgarinnar. En það sem vekur undrun er, að við könnumst við hvern krók og kima i litilli krá sem setzt er inn á fyrir tilviljun. Við könnumst við gestina við næstu borð, við þjónana með siðu svunturnar og miðaldra stúlkuna bak við barborðið með flöskur og spegla að baki. Jafn- vel kunnuglega fyrir’sjónir götuhörn á mótum ónefndra stræta, þótt við þekkjum ekki einu sinni hverfið með nafni. Gangstéttaveitingahúsin og ið- andi mannlif lifandi borgar kemur jafnkunnuglega fyrir sjónir. Þetta er ekkert undar- legt. Listamenn hafa verið svo óþreytandi við að túlka þessa borg i máli og myndum, að ósjálfrátt er hún orðin agnarlit- ill hluti af okkur sjálfum, þó að við höfum aldrei komið ár. En þegar svo ber við, er heims- borgin svo gestrisin og litillát, að útlendingurinn verður hluti . af lifi hennar meðan hann staldrar við. Iivað taka á sér fyrir hendur á stað þar sem ekki eru bað- strendur, verður hver og einn að gera upp við sjálfan sig. Paris hefur upp á alit annað en hvitan sand að bjóða. Fagurkerarnir geta lifað þar i fullsælu, þeir skemmtanasjúku og léttúðugu geta gengið svo fram af sér, að þeir verði hælismatur eftir dvöl þar, hinir hógværu þurfa aldrei að láta sér leiðast og jafnvel þeir lötu geta látið fara vel um sig. ó.ó. Geta má að forstjóri Orly hélt smáboð eftir að vélin lenti og fagnaði þvi að áætlunarflugið er orðið að veruleika. Halldór E. Sigurðsson, samgöngumála- ráðherra, sem var með i för- inni flutti og stutt ávarp og kvaðst vonast til að sam- skipti Islands og Frakklands á sviði ferðamála ættu enn eftir að aukast. Skrifstofur Flugleiða i Parfs eru á mjög góðum stað I borginni, skammt frá Óp- erunni. Þar vinnur fjöldi manns, flest Frakkar, undir stjórn Geralds Alants, um- dæmisstjóra félagsins i Frakklandi. Starfsemi skrif- stofunnar fer sivaxandi og er þess vænzt að hún eigi enn eftir að aukast mikið vegna hins nýtilkomna áætlunar- flugs. Skrifstofan hefur einn- ig umboð fyrir Air Bahama, en ferðir með þvi eiga si- auknum vinsældum að fagna. Framan við skrif- stofuna eru tveir franskir starfsmenn hennar að fræða islenzka blaðamennum sölu- horfur, og það sem ekki var siður hugleikið, heimaborg, sina Paris. Velkomín til Blönduóss Blönduós er í þjóðbraut milli Norður- og Suðurlands og því heppilegur óningastaður Hver viil ekki stoppa smá stund? — Þjónusta okkar stendur yður til boða engu síður en heimamönnum — Gefið yður góðan tíma er þér eigið leið um til að njóta þess er við höfum að bjóða í verzlunum vorum Verið velkomin til Norðurlands kaupfélag Húnvetninga BLÖNDUÓSI Útibú á Blönduósi og Skagaströnd

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.