Tíminn - 17.07.1977, Side 33

Tíminn - 17.07.1977, Side 33
Sunnudagur 17. júll 1977 33 Á þriðja degi, eftir að þau lögðu upp frá Jakutsk, komu þau þar sem þveráin Aldan féll i stórfljótið Lenu. Aldan er i raun og veru stór- fljót eða álika löng og vatnsmikil og Dóná. Upp eftir þessu fljóti sigldu þau og vegna is- reks og mótstraums var sem skipið mjakaðist varla áfram. Eftir nokkurra daga siglingu komuþau loks á áfangastað. Var það bærinn Tukolan við mynnið á samnefndri þverá, sem féll i fljótið. Hér var jámbúrinu á þilfari skipsins loksins lokið upp og útlagarnir gengu á land. Þeir voru aðeins 24 eftir og þar á meðal voru allir fang- amir sem dæmdir voru i Tomsk — átján talsins. Hinir voru settir i land i Jakutsk. Strax og fangarnir vom komnir á land, lögðu þeir upp i siðasta áfangann 600 km göngu norður til Werchojansk. Konumar skyldu ekki yfirgefa skipið fyrr en næsta dag og farangurinn fylgdi þeim. Leiðin lá i gegnum mýrlendan skóg. Viða var jarðvegurinn svo blautur að tré höfðu ver- ið felld og bundin saman til að mynda eins konar brú eða fleka yfir verstu sikin. Hrykki einhver út af trjánum, átti hann á hættu að drukkna i fen- blautum nær botnlaus- um mýrunum. Skógurinn var gisinn og aðallega gömul „lerkitré”, og Ámi tók | eftir þvi að ræturj trjánna lágu ekki djúpt i j jarðveginum, eins og heima i Noregi, heldur breiddu sig i allar áttir að nokkru ofanjarðar. Liklega var það klakinn i freðmýrunum, sem hindraði ræturnar i þvi að vaxa eins og venju- lega djúpt niður i jarð- veginn. Fýrstu nóttina urðu fangarnir að sofa undir beru lofti, af þvi að skál- inn sem ætlaður var til gistingar, hafði bmnnið nýlega. Það var ekkert að þvi að sofa úti um hlýja sumamótt, ef mý- vargurinn hefði ekki verið svo hræðilegur. Um morguninn var göngunni haldið áfram. Nú lá leiðin upp i móti. Landið fór smáhækk- andi og i fjarska sáust tindar Werchojansk- fjallanna sem mynda vatnaskil milli fljótanna Lenu og Jana. Um há- degisbilið var farið fram hjá afskekktum sveita- bæ. Hann blasti við sjón- um útlaganna i hlýlegu dalverpi. Varðmaður einn sagði Árna, að þessi bær væri siðasti bærinn á leiðinni til Wercho- jansk, sem ennþá hefði kornrækt. Þótt klakinn hyrfi aldrei úr jörðu og oft væri lagið aðeins um 50cm ofan á klakanum, þá náði kornið þroska. Er það eingöngu að þakka hinum löngu sól- riku sumardögum. Eftir þvi sem landið hækkaði, varð skógurinn gisnari og að lokum sást aðeins tré og tré á stangli og siðast varð fjalllendið skóglaust. Skálinn sem þeir gistu i þessa næstu nótt, var alveg á mörkum þar sem snjórinn réð enn rikjum. Utan um þennan skála var engin planka- giröing og að innan var hann miklu hlýlegri en hinir höfðu verið og i stað þakglugganna voru gluggar á stöfnum og hliðum. Aðbúð öll og meðferð á föngunum var miklu betri nú, er hinir „sönnu glæpamenn” voru horfnir úr hópnum. Nýr yfirmaður hafði tekið við stjórninni. Var hann góðmannlegur og hniginn að aldri og var auðséð á öllu, að hann vildi að föngunum liði sem bezt. Árna voru það mikil vonbrigði, að Berit og hinar konurnar komu ekki i náttstað um kvöldið. Hann var lika hálf órór og óttaðist að eitthvert óhapp hefði hent þær. En það gat þó naumast verið hætta á þvi. Sterkur flokkur varðmanna var þeim til varnar. En þó, — alltaf gæti eitthvert óhapp hent. 9. Foringinn hafði lagt svo fyrir að Berit og hin- ar konurnar legðu af stað um hádegið daginn eftir að göngumennirnir fóru. Konumar voru all- ar i sama vagninum, en auk þess voru fimm vagnar með farangri og sex hermenn undir stjórn herforingja sem farinn var mjög að eld- ast. Aætlað var, að vagnarnir næðu göngu- mönnum i náttstað um kvöldið. Berit hafði næstum gleymt þessum hræði- legu vögnum, þessar vikur, sem hún var með skipinu, en nú þoldi hún hristinginn ennþá verr en áður. Vegurinn var lika mjög vondur og ekið með fullum hraða yfir plankabrýr og margs konar torfærur. „Ég held ég lifi þetta aldrei af,” andvarpaði Berit. Hún hugsaði til þess, að eiga að fara með þessum farartækj- um fulla 600 km. Henni fannst hún að þrotum komin eftir fyrsta áfangann. Að siðustu lá hún i hálfgerðu móki i vagninum og vissi varla hvað timanum leið. Allt i einu fann hún að vagninn snarstanzaði. Hún hrökk upp og gægðist út um vagn- gluggann. Hvað var þetta? Vagninn stanzaði inni i miðjum skógi. Framundan lá vegurinn eins og breitt strik, sem mjókkaði út við sjón- deildarhringinn. Ekki leit út fyrir að vagninn væri brotinn. Hvers kon- ar fyrirtekt var þetta? Eða var hana að dreyma. Hún hafði „dúndrandi” höfuðverk. Hún ætlaði að hvila sig Stórbætt þjónusta við GOÐA- FOSS ■jxéS£L Opið kl. 9-21 Helga daga kl. 11-21 yfir sumartímann Otibú Kaupfélags Svalbarðseyrar við GOÐAFOSS veitir ferðamönnum margvíslega þjónustu: Vistleg og rúmgóð kjörbúð Viðlegubúnaður Veiðibúnaður Heitar pylsur — Kaffisala Snyrting gg (0 BENZÍN OG OLÍUR kaupfélag Svalbarðseyrar

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.