Tíminn - 31.08.1977, Page 16

Tíminn - 31.08.1977, Page 16
16 Mi&vikudagur 31. ágúst 1977 Ásgeir verður fyrirliði og Teitur með gegn Belgíu — Leikum 4-4-2 að venju, sagði Knapp Ásgeir Sigurvinsson verður fyrirliði íslenzka lands- liðsins í knattspyrnu, sem mætir Hollendingum í kvöld. Tony Knapp, þjálfari liðsins, tilkynnti frétta- mönnum i gær hvaða ellefu menn munu hef ja leikinn í kvöld. Knapp sagði þá, að íslenzka liðið myndi leika svipaða leikaðferð og það hef ur gert undanfarin þrjú ár, þ.e. 4-4-2. — Ég sé enga ástæðu til að breyta út af þeirri leik- venju, þar sem hún hefur reynzt vel, sagði Knapp í gær. Það verður þó ekki ákveðið f yrr en rétt fyrir leikinn hvort það verður Sigurður Dagsson eða Árni Stefánsson, sem stendur i markinu, þar sem Sigurður fékk slæma hálsbólgu. í gær benti þó allt til þess, að Sigurður myndi leika, þa grænt Ijós hjá lækni einsog hér í opnunni. Að öðru leyti verður islenzka liðið skipað eftirtöldum mönn- um: Ölafur Sigurvinsson, Vest- mannaeyjum Marteinn Geirsson Koyal Union Gisli Torfason, Keflavlk Janus Guðlaugsson, FH Guögeir Leifsson, Vestmanna- eyjum Hörður Hilmarsson, Val Asgeir Sigurvinsson, Standard Liege Arni Sveinsson, Akranesi Teitur Þór&arson, Jönköbing Ingi Björn Albertsson, Val. Knapp sagði, að hann reiknaði með þvi að skÍDta um sóknar- leikmann i hálfleik. Atli Eðvaldsson, Val, Jón Gunnlaugsson, Akranesi, Asgeir Eliasson, Fram og Matthias Hallgrimsson, Halmia verða varamenn i leiknum auk annaö hvort Sigurðar Dagsson- ar eöa Arna Stefánssonar einsog kemur fram að ofan. Guömundur þorbjarnarson, Val og Kristinn Björnsson, Akranesi munu hvila að þessu sinni. ' sem hann hefur fengið kemur fram annars staðar Teitur leikur í Belgíu Ellert B. Schram, formaöur KSl, hringdi i gær til forráða- manna Jönköbings, sem Teitur bórðason leikur með, og -fór fram á það, að Teitur fengi aö leika með gegn Belgiu. For- ráðamenn Jönköbings tóku mjög vel i þessa málaleitan Ellerts og gáfu Teiti leyfi til að leika meö liðinu i Brussel á laugardaginn. Asgeir Sigurvinsson i eldlinunni. Hann veröur fyrirliöi islenzka landsliösins í kvöld. Islendingar leika sinn 100. landsleik — í knattspyrnu í kvöld Landsleikurinn gegn Hollend- ingum I heimsmeistarakeppn- inni I kvöld veröur hundraðasti landsleikur tslendinga i knatt- spyrnu. tslendingar léku sinn fyrsta landsleik gegn Dönum á Melavellinum 17. júli 1946. Leikurinn i kvöld verður fimmti landsleikurinn gegn Hol- lendingum. íslendingar léku fyrst gegn þeim á Laugardals- vellinum 1961 og lauk þeim leik meösigri (4:3) tslands. Gunnar Felixson (2), Þórólfur Beck og Steingrimur Björnsson skoruðu mörk tslands. tslendingar léku siðan tvo landsleiki gegn Hol- lendingum i heimsmeistara- keppninni 1973 og lauk þeim báöum með sigri Hollendinga, 5:0 i Amsterdam og 8:1 I Gevdmgen, þar sem Elmar Geirsson skoraði eina mark Is- lands við mikinn fögnuö áhorf- enda, sem hrópuðu Geirsson, Geirsson af fullum krafti. Hol- lendingar unnu siöan tslendinga á Laugardalsvellinum s.l. sum- ar i leik, sem var mjög jafntefl- "-------- islegur, og voru Islendingar ó- heppnir að tapa i þeim leik. sos Eltnar Geirsson. Ragnar sigraði í Afrekskeppni FÍ — um síðustu helgi tslenzkir golfmenn hafa held- ur betur veriö i&nir viö kolann i sumar. Um helgina var enn eitt mótiö haldið, hin svonefnda Afrekskeppni Flugfélags tslands, en hún var háö á Nes- vellinum á Seltjarnarnesi. Þaö áttust viö 11 af beztu golfmönn- um landsins og var keppnin milli þeirra mjög hörö fram á siöustu holu. Upphaflega átti þessi „meistarakeppni meistaranna” að vera 72 holur, en ákveðið var á laugardaginn að leika þá að- eins 18 holur, enda veörið það slæmt að varla var stætt á nes- inu. Ásunnudaginn vpru aftur á móti leiknar 36 holur- en veðriö þá mun skaplegra — og voru þvi leiknar 54 holur i keppninni i stað 72. Þegar 18 holur voru eftir af þessum 54 holum, höfðu 6 menn góöa möguleika á sigri i mótinu, en þeir voru allir á 159 til 162 höggum. Heldur dró i sundur siðustu 9 holurnar og stóö þá baráttan um sigurinn á mdli Ragnars Olafssonar GR og unglingameistara Islands 1977, Siguröar Péturssonar GR, hafði Ragnar þá leikið 9 holurnar á 35 höggum — eða pari vallarins — en Sigurður gerði enn betur og lék á 33 höggum. Þegar ein hola var eftir var Sigurður einu höggi betri en Ragnar. En hann fór siðustu holuna á 5 höggum Ragnar á 4 höggum þannig að þeir voru þá jafnir. Uröu þeir þvi að halda aftur af staö með allan áhorf- endaskarann á eftir sér, og leika þar til annar sigraði a'einhverri holu — eða leika „bráöabana” eins og það er nefnt á golfmáli. (Þeirri viðureign lauk með sigri Ragnars, sem þar með hlaut hin eftirsóttu 1. verðlaun i mdtinu — golfferö til Skotlands. Alls áttu 13kylfingar réttá að taka þátt i þessu ,,meistarmóti meistaranna 1977 og mættu 12 þeirra til leiks. Haraldur JUlius- son meistari Vestmannaeyinga komst ekki til „lands”. Einn keppenda hætti eftir fyrstu 18 holurnar, Magnús Halldórsson GK, en hann lék þær á 98 högg- um, og var þá siðasturaf öllum. Hinir 11 luku allir keppni og var röð þeirra og árangur sem hér segir: Högg Ragnar Ólafsson, GR.....230 Sigurður Pétursson, GR..230 Þorbjörn Kjærbo.GS .....234 Sveinn Sigurbergsson, GK ..234 ÓskarGuömundsson.GR ...237 Björgvin Þorsteinsson, GA .. 238 Jón H.Guðlaugsson, NK ....243 Jóhann R. Kjærbo, GS....243 SiguröurThorarensen.GK ..247 Hálfdán Þ. Karlsson, GK .... 251 ómarö. Ragnarsson.GL ...254 MÓL

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.