Tíminn - 04.09.1977, Qupperneq 7

Tíminn - 04.09.1977, Qupperneq 7
Sunnudagur 4, september 1977 7 Vill ekki vera gólfmotta fyrir Best Bandarisk stúlka, Angeía MacDonald James að nafni, komst á forsiður blaðanna nýlega, þegar hún stofnaði til náinna kynna við George Best, fótboltasDörnuna frægu. Angela, sem hefur fyrirsætustörf að aðalsíarfi, var stödd i Ameriku og vann sem einkaritari söngkonunnar Cher (Sonny & Cher), þegar hún hitti hina irsku fótboltahetju. Þau vöktu mikla athygli, er þau sáust saman við það tæki- færi, er Best lék sinn fyrsta leik með liðinu Fulham eftir langt hlé á fótboltaferli sinum. Bjuggu þau saman um nokkurt skeið, en mesti glansinn var fljótur að fara af öllu saman, og Angela yfirgaf Best með þeim orðum, að hún væri siður en svo reiðubúin til þess að verða „gólfmottan hans”. Nú leggur hún tvöfalt harðar að sér við fyrirsætu- störfin og vilji fólk forvitnast um fyrrverandi vin hennar setur húnupp sakleysislegt bros og spyr „hvaða Georges”. Fyrir nánum vinum sinum hefur hún þó viðurkennt, að enn beri hún heitar tilfinningar til Georgs Best og muni likleg- ast alltaf gera. Betty ofmetur sjálfa sig Betty Davis er bæði velþekkt og virt leik- kona, að minnsta kosti þótti mörgum mikið til hennar koma hér áður fyrr, en nú eru takmörk fyrir þvi, hvað menn vilja borga fyrir að sjá andlit hennar á tjald- inu. Nú fyrir stuttu sið- an fór sjálfsálit hennar fram úr öllu hófi, er hún krafðist 750.000 dollara fyrir smáhlut- verk i sjónvarpsþætti. Það er með þetta eins og svo margt annað,að einhvers staðarverður að setja mörkin. Er menn fengu að heyra kröfur hennar voru þeir ekki lengi að snúa við henni bakinu og hún var látin lönd og leið, en önnur tekin i hÞt- verkið. spurningin Áttu von á verkföllum hjá rikisstarfsmönnum? Þórir Jóhannesson, vinnur hjá Alafossi: Já, heldur. beir eru langt á eftir i launamálum skilst mér og ætli þeir reyni ekki að rétta sinn hlut. Hanna Jóhannesdóttir, nemi: Já, ég held aö þetta endi meö verk- föllum hjá þeim og viö fáum sjálf- sagt aö finna fyrir þeim. Hjörtur Gunnarsson, vinnur I fasteignasölu: Þaö þykir mér ekki ólfklegt, að rikisstarfsmenn fari i verkfall. Sigriöur Eirfksdóttir, afgreiöslu- stúlka: Nei, ég held ekki. Þeir hafa varla efni á þvi. Eirikur Hermannsson, keunata- nemi: Ég reikna frekar meö þvi já, nema samninganefndin fari aö gefa eitthvaö eftir en hún hefur hafnað öllum kröfum rikisstarfs- manna fram til þessa, skilst mér.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.