Tíminn - 04.09.1977, Page 19
Sunnudagur 4. september 1977
19
Ctgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Uitstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Kitstjórn-
arfulltrúi: Jón Sigurösson. Auglýsingastjóri: Steingrfmur
(iislason. Kitstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og
auglvsingar Siöumúla 15. Sími 863(10. Verð i lausasölú kr.
70.00. Askriftargjald kr. 1.300 á mánuöi.
Blaöaprent h.f.
Grundvöllur lagður
í kjölfar kjarasamninganna i sumar var það
vitað að ýmsir myndu reyna að kasta allri byrð-
inni af sér og atvinnurekstri sinum yfir á herðar
almennings með meiri verðhækkunum en efni
stóðu til vegna kjarabótanna. Þetta gekk svo
langt að Samband málm- og skipasmiðja og
Landssamband rafverktaka gáfu út nýja taxta
sem ekki voru i samræmi við það sem heimilað
hafði verið. Nú hefur verðlagsstjóri ákveðið að
kæra þessa aðila fyrir þetta i athæfi. Þvi ber að
fagna að stjórnvöld vilja þannig sýna að fullur
hugur fylgir máli i þvi að verja almenning óeðli-
legum verðhækkunum, sem til eru komnar vegna
sérsamninga er brjóta i bága við markaða heild-
arstefnu i kjara- og efnahagsmálum.
Verðlagsstjóri hefur að undanförnu sýnt mjög
athyglisvert og ánægjulegt frumkvæði, og þessi
siðasta ákvörðun markar á ýmsa lund timamót
sem beðið var eftir.
Þessir atburðir leiða hugann óneitanlega að
verðbólguvanda islenzku þjóðarinnar, ástæðum
hans og hugsanlegum leiðum til lausnar.
Það er upplýst að meðal meginástæðna verð-
bólgunnar eru þær að íslendingar eru háðir út-
flutningi einnar vöru eða vöruflokks um gjald-
eyrisöflun sina. Þeir eru að sama skapi háðir inn-
flutningi margvislegustu neyzlu- og rekstrar-
vara. Við þetta bætist að útflutningsvaran er háð
náttúrulegum sveiflum sem ekki er i valdi manna
að hindra.
Þegar sveiflan er ,,upp á við” og færir þjóðinni
tekjuauka er honum jafnað út um þjóðfélagið
með ýmsum ákvörðunum, svo sem i kjarasamn-
ingum. En þegar sveiflan verður ,,niður á við”
verða viðbrögðin ekki að sama skapi, heldur er
samdrátturinn hulinn undir vaxandi hrúgu verð-
minni króna. Og þannig hefur þetta gengið til
áratugum saman.
í þessu verður hlutur hvers konar hagsmuna-
samtaka i landinu mjög alvarlegur, og á það ekki
aðeins við um samtök launþega. öllum virðist
umhugað um að koma vandanum frá sér og sin-
um, enda þótt vitað sé að skammgóður vermir
leiðir til langvarandi efnahagslegs sjúkdóms.
Sá þáttur sem þó virðist einna erfiðastur
viðfangs er að verðbólgan leiðir til mikillar
skuldasöfnunar i þjóðfélaginu. Skuldir falla
smám saman, en þar á móti hækkar verðlag
og lán verða til óeðlilega skamms tima. Þetta
kemur einkum við húsbyggjendur, sem eru tals-
verður hluti yngri kynslóðarinnar, og við þau
fyrirtæki, t.d. i framleiðslugreinum, sem eru i
uppbyggingu. 1 skjóli þessara aðila geta siðan
þeir sem spekúlera i skuldum blómstráð.
Hafi menn gert sér grein fyrir meginástæðun-
um á að vera kleift að leggja til atlögu við
vandann. Á hitt ber að leggja sérstaka áherzlu
að hann verður ekki leystur i einu vetfangi,
heldur aðeins með stöðugu uppbyggingarstarfi ár
frá ári. Núverandi rikisstjórn hefur lagt grund-
völl sem skilyrðislaust ber að byggja á i þessum
efnum.
Það er deginum ljósara að bót verður ekki ráð-
in á verðbólgusýkinni nema með mjög viðtækri
samstöðu sem nær út fyrir svið stjórnmálamanna
og stjórnvalda. Hagsmunasamtökin i landinu
verða að kannast við ábyrgð sina. Þau verða
aðtað taka ábyrgan þátt i lýðræðislegum samráð-
um undir þjóðkjörinni forystu.
JS
ERLENT YFIRLIT
Li og Wang eru
valdamiklir
t»eir ganga næst Hua, Yeh og Teng
Japana.Eftiraö kommúnistar
komust til valda i Kfna hlaut
Li strax mikilvæg embætti og
þótti hann sýna, aö honum
væri einkum sýnt um aö
stjórna fjármálum, þótt enga
heföi hann hagfræöimenntun-
ina. Hann var skipaöur fjár-
málaráöherra 1954 og gegndi
þvi starfi i rúm tuttugu ár, en
1975 var honum falin stjórn
allra efnahagsmála Kina.
Taliö er, aö þaö hafi veriö gert
aö ráöum Chou En-lai, sem
mat Li mikils og hélt verndar-
hendi yfir honum á timum
menningarbyltingarinnar.
Róttæki armurinn i Kommún-
istaflokknum haföi jafnan
horn i siöu Lis og taldi hann of
ihaldssaman. Einkum féllu
þær kenningar hans illa i geö
hinna róttæku, aö atvinnu-
reksturinn yröi engu siöur aö
skila aröi, þótt hann væri rek-
inn af rlkinu eöa sameignar-
búum. Þaö er haft eftir Li, aö
kenningar Maos væru góöar,
en hins vegar væri ekki sama,
hvernig þær væru fram-
kvæmdar. Þess vegna þyrfti
aö athuga þær vel áöur en til
framkvæmda kæmi, þvi aö
ella væri ósýnt um árangur.
WANG, sem er 61 árs aö
aldri, er miklu minna þekktur
en Li. Hann gekk ungur i her
kommúnista og hófst þar brátt
til mannaforráöa. Ariö 1947
þótt hann sýna mikiö snar-
ræöi, þegar honum tókst aö
koma i veg fyrir, aö Mao,
Chiang Ching og Chou En-lai
féllu ihendurhers Chiang Kai-
sheks, en taliö er, aö mjóu hafi
munaö. Eftir þaö haföi Mao
mikiö dálæti á Wang og geröi
hann ekki aöeins aö lifveröi
sinum, heldur siöar aö æösta
stjórnanda leynilögreglunnar
eöa öryggislögreglunnar svo-
nefndu. Taliö er, aö Wang hafi
átt mestan þátt i aö hindra
byltingartilraun Lin Piao
varnarmálaráðherra 1971.
Hann sá lika um fangelsun
Chiang Ching og félaga
hennar á siðastl. hausti.
Sumar sagnir herma, aö hann
hafi þá beitt brögöum. Hann
hafi látizt ætla aö koma til
hennar i kurteisisheimsókn og
hún þvi verið andvaralaus og
ekki gert vöröum sinum viö-
vart. Þátttaka Wangs i falli
Lin Piaos og Chiang Ching
hefur oröiö til þess, aö ýmsir
fréttaskýrendur eru famir aö
likja honum við Beria. Vafa-
samt er þó, aö sú samliking
eigi rétt á sér, en hitt er senni-
legt, aö þessi lágvaxni og
brosmildi Kinverjieigi eftir aö
koma meira viö sþgu, enda er
hann mun yngri en þeir Yeh,
Teng og Li.
Þ.Þ.
A NÝLOKNUM landsfundi
kinverska Kommúnista-
flokksins var sú breyting gerö
á yfirstjórn hans, að hún var
aðallega falin fimm mönnum.
Auk þeirra Hua, Yehs og
Tengs, sem taldir eru valda-
mestu menn flokksins, skipa
þessa yfirstjórn þeir Li-
Hsien—nien og Wang Tung-
hsing. Þaö kom ekki á óvart,
aö Li var kjörinn i þessa yfir-
stjórn, þvi aö hann hefur lengi
veriö einn af valdamestu
mönnum flokksins og oft veriö
gizkað á, aö hann tæki við for-
sætisráöherraembættinu, ef
Hua teldi sér ekki fært aö
gegna þvi, jafnhliöa for-
mennskunni I flokknum. Kjör
Wangs I yfirstjórnina kom
meira á óvart, en ljóst þykir
nú, aö hann hafi á undan-
förnum árum veriö mun
valdameiri en almennt var
álitiö. Hann hefur ekki aöeins
stjórnar lifveröi Maos, heldur
veriö yfirmaöur öryggislög-
reglu Kina, sem talin er ein
fullkomnasta eöa fullkomn-
asta leyniþjónusta i heimi.
Það þykir vera til marks
um, aö þeim Li og Wang er
ekki ætlaö aö leika nein auka-
hlutverk, að skömmu eftir aö
Vance utanrikisráöherra fór
frá Peking, átti hinn þekkti
bandariski blaðamaöur,
Harrison E. Salisbury, langt
viötal viö Li, og var Li mun
opinskárri, bæöi varöandi for-
tiöina og framtiöina, en titt
hefur veriö um kinverska
ráöamenn siöan kommúnistar
komu til valda. Þaö þykir
sýna, aö Li hafi mikil völd,
enda hniga margar spár I þá
áttaö frami hans eigi enn eftir
aö aukast.
LI, sem er 69 ára gamall,
hefur annars verið þekktur
fyrir þaö aö láta ekki mikiö á
sér bera en ráöa þeim mun
meiraaö tjaldabaki. Frá þeim
tima, þegar styrjöld stóö I
Li Hsien-nien
Wang og Hua
Kina milli herja Chiang Kai-
sheks og Japana, er höfö setn-
ing eftir Li, sem oft hefur
veriö vitnaö i siöar: Sitjum
kyrrir og horfum á tigrisdýrin
rifa hvort annað á hol. Þessari
sömu reglu hefur Li fylgt i
sambandi viö innbyröis-
deilur i kommúnista-
flokknum, en þó mun hafa
munað litlu aö hann væri
sviptur völdum, þegar menn-
ingarbyltingin stóö sem hæst.
Li er kominn af fátækum
bændaættum og hefur aldrei
notið neinnar skólamennt-
unar. Hann gekk ungur i her
kommúnista. Þegar styrjöldin
hófst milli Japana og stjórnar
Chiangs Kai-sheks, geröist Li
leiötogi skæruliöa á hernáms-
svæöi Japana, og vann sér þar
mikla frægö. Aðallega vann
hann þá að þvi aö koma her-
sveitum Japana og Chiangs
Kai-sheks i hár saman.
Skæruliöasveitir hans uxu að
sama skapi og er taliö aö hann
hafi um skeið stjórnað 50 þús.
manna her á umráðasvæöi