Tíminn - 04.09.1977, Side 20

Tíminn - 04.09.1977, Side 20
20 Sunnudagur 4. september 1977 ,,Því læra börnin m; Maður er nefndur Guðmundur Einarsson. Kenn- ari er hann að mennt, en varla mun teljast oflof þótt sagt sé, að hann sé af þeirri tegund manna, sem stundum eru kallaðir þúsundþjalasmiðir. En Guð- inundi er ekkert um það gefið að fjölyrt sé um þá hluti. „Segðu litið eða ekkert um húsið mitt. Ég má ekki gera minn hlut þar of stóran, þá geri ég þeim rangt til sem alltaf voru að hjálpa mér,” sagði Guð- mundur, þegar blaðamaður sagði eitthvað i þá átt- ina, að hús þeirra hjónanna, Guðmundar Einars- sonar og Guðrúnar Jónsdóttur, myndi hafa verið reist á þeim árum, þegar menn urðu að bjarga sér sjálfir, hver sem betur gat. ,,Jú, ég vann mikið við það sjálfur, til dæmis allt tréverk og margt fleira,” bætti Guðmundur við og siðan var ekki meira um það talað. Þar áttu hinir athvarfs- lausu skjól — Segðu mér þá heldur eitthvað um sjálfan þig og það sem þú hef- ur séð og heyrt á lifsleiðinni fyrst þú vilt ekki tala um húsbyggingu, sagði undirritaður. — Já, það verður vist svo aö vera, fyrstég hryggbraut þig ekki strax, þegar þú fórst að biöja um þetta viötal. Ef þú vilt heyra eitthvaö um upphaf mitt, þá fæddist ég á Hamri i Nauteyrarhreppi i Norð- ur-lsafjaröarsýslu 28. mai áriö 1917. Ég varð þvi sextugur núna i vor er leiö. Þau Hávaröur bóndi á Hamri ogkona hans eignuöust ekki börn', en þó var heimili þeirra ekki barnlaust. Þau munu hafa aliö upp tðlf börn, sem flest voru þeim óskyld og óvandabundin, en áttu enga aö. Þetta segir meira um innræti þeirra og alla gerð, en löng ræöa, enda veit ég ekki betur en aö allir hafi lokið upp einum munni um þaö, að á Hamri hafi jafnan staöið opnar dyr þeim er minna máttu sln, hvort sem þaö voru börn, gamalmenni eöa aörir sem á einhvern hátt stóöu höllum fæti i lifinu. Og reglusemi og - snyrtimennsku Hamarshjóna var við brugðiö. Faöir minn, Einar Friöriksson, var fæddur 19. sept. 1885 i Drangavfk f Árneshreppi i Strandasýslu. Hann er dáinn fyrir nokkrum árum. Móöir min og hann giftust ekki, en kona fööur mins var Lárusina Fjeldsted, og hann var seinni maöur hennar. Þau bjuggu meðal annars i Reykjavik, og hjá þeim var ég fyrstu árin i Reykjavik á meöan ég var f Kennaraskólanum. Móöir min, Halldóra Arnadótt- ir, er enn á lifi á Elliheimilinu Grund. Hún fæddist 19. sept. 1883 á Melum i Vikursveit i Stranda- sýslu. Hún hefur alla ævi veriö ógift, og veriö vinnukona á ýms- um bæjum við Djúp. Hún var ákaflega dugleg og svo þrifin var hún, aö á orði var haft. — Þú hefur þá ekki alizt upp með báðum foreldrum þfr-sn, cf þau hafa ekki búið saman? — Nei. Fósturforeldrar minir frá fæðingu og fram til átta ára aldurs voru Guömundur Kristjánsson, húsmaöur á Hamri á Langadalsströnd, fyrrum bóndi þar, og amma min, Ingibjörg óladóttir, ráöskona hans. Guð- mundur Kristjánsson dó áriö 1926. Upp frá þvi telst ég fóstur- barn Hávarðar, — sonar Guö- mundar Kristjánssonar — og konu Hávaröar, Sigriðar Guö- mundsdóttur. Amma min var áfram á Hamri eftir dauöa Guö- mundar og þar dó hún. ,,Ég klappa honum á dyrastafinn” — Barnanámið var samtals tólf mánuöir. Þaö var auövitað far- skóli og þetta var indæll timi. Sjálfsagtþykirmörgum nú á dög- um þetta stuttur námstimi, en at- hugaðu það aö viö sveitabörnin þurfum ekki langa skólagöngu. Viö erum þannig gerö, aö við get- um lært á örfáum mánuöum þaö sem kaupstaöarbörn eru aö gutla viö að læra i mörg ár. — Fórst þú svo ekki i héraðs- skóla, þegar barnanámið var úti? — Jú,égvari héraösskolanum i Reykjanesi viö Djúp. Þar var barnaskóli, iþróttaskóli, heitt vatn og sundlaug. Þarna var ég lika tvö sólrik sumur. Reykjanes hefur sjarma. Maður á aldrei aö reyna aö skilja sjarma. Þaö er höfuöglæpur að gera ekki greinarmun á honum og reikningsdæmi. I Reykjanesi var min Mallorka, min Costa del Sol. — Svo hefur hugur þinn staöið til frekara náms? — Ég fór I Kennaraskólann og útskrifaöist þaöan 1941. Þaö var góöur skóli. Ég klappa honum alltaf á dyrastafinn þegar ég á leiö framhjá honum. Oft er þaö, þegar gamlir menn rifja upp endurminningar, aö þeir taka kennara sina, leggja á þá mæli- stiku og gefa þeim einkunnir. Ég er löngu biíinn að gefa öllum min- um gömlu kennurum tiu. En gáöu að þvi, aö þetta er voöalega hættuleg tala. Sjáöu um, aö hún verði ekki prentuö meö tölustöf- um. Hugsaöu þér afleiöingarnar, ef prentvillupúkinn færi á kreik I sambandi viö þessa tvo viösjár- veröu tölustafi. 1 viðbót við þetta er svo heyrn- leysingjakennara-námið, og svo sextiu ára stúderingar i bók lífs- Magnúsar Guðnasonar — Þú hefur auövitað notið þeirrar barnafræðslu, sem tiðkaðist á uppvaxtarárum þin- um ? Einar Friðriksson, faðir Guð- mundar, þess sem hér er rætt viö. Rætt við Guðmund Einarsson kennara, sem hefur kennt í Heyrnley singj a - skólanum í þrjátíu ár þáttur — Fórst þú svo ekki aö kenna strax og þú hafðir aflað þér rétt- inda til þess? — Nei, ekki fyrr en mörgum ár- um seinna. Þaö sumar, 1941, og fram undir jól, vann ég hjá manni, sem hét Magnús Guöna- son. Hann var einn af þessum mönnum sem kallaðir eru þús- undþjalasmiöir, bæöi i gamni og alvöru. Hann haföi verkstæöi i Uppsalakjallaranum, smiöaöi gitara og svaf á verkstæðinu. Magnús, var blásnauöur gáfu- maöursemfáireöa engirmátu aö verðleikum. Hann kallaöi sjálfan sig uppfinningamann i gamni, en hann var uppfinningamaöur i al- vöru. Hann haföi meðal margs annars fundið upp hljóöfæri sem hann kallaði strokhörpu. Hún gekk fyrir rafmagni. Þaö var eitt sinn spilaö á hana i útvarpiö, á fjóröa áratugnum eöa fyrr. Ég heyrði þennan hljóöfæraleik. Seinna sagðiMagnúsmér, aö Páll Isólfsson heföispilaö. Ég sagöi þá Magnúsi, aö ég heföi sjálfur hlustaö á þetta. Ég man vel eftir formálsorðum Páls. Hann sagöi, að Magnús heföi náö merkilega góöum hljómi úr þessu hljóöfæri. Páll sagöi orörétt. „...merkileg- um tóngæðum...” eöa „miklum tóngæöum.” Þetta man ég enn. En ekki óraöi mig fyrir þvi þá, aö Guömundur Kinarsson. ég ætti eftir að vinna hjá Magnúsi. Ég held, aö Magnús hafi veriö búinn aö rifa þetta hljóöfæri i sundur, þegar ég kom til hans. Hann var eitthvað aö tala um aö hann hefði ekki komið þvi fyrir. Einu sinni fann ég hjá honum i rusli likan af bát. Það var á aö gizka eittfet á lengd, þilfar var og borðstokkur. Skuturinn var með gafli, i gaflinum var ferningslag- aö op, eöa skarö og þar hallaði þilfarinu niöur aö sjólinu. Likaniö sem var kubbur var málaö svart og hvitt og litaskiptin sýndu sjó- linuna. ,,Hvað er þetta, Magnús?” spuröi ég. „Þetta er bara ein vitleysan úr mér,” svaraöi hann þá. „Þaö er ekkert aö marka þetta. Ég er alltaf meö alis konar vitleysur i hausnum.” Ég hef oft spurt sjálfan mig siðan: Var hún ekki þarna I rusl- inu hjá honum Magnúsi Guöna- syni i Uppsalakjallaranum, fyrsta hugmyndin aö skut- togaranum? Ef þessu litla báts- likani heföi veriö gefinn sá gaum- ur, sem þaö veröskuldaði, og hon- um Magnúsi, hvaö heföi þá getaö gerzt? Spyr sá sem ekki veit. „Nafni” Til Magnúsar komu ýmsir menn, sem ekki bundu bagga sina sömu hnútum og samferða- mennirnir. Þeir gistu þarna nótt og nótt, sumir margar nætur, þö aö litil væru húsakynnin, þvi þar sem hjartarýni er, þar er einnig húsrými. Magnús eldaöi sjálfur mat sinn á verkstæöinu sendi mig Við sundlaugina I Reykjanesi veturinn 1937-’38.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.