Tíminn - 04.09.1977, Side 21

Tíminn - 04.09.1977, Side 21
Sunnudagur 4. september 1977 21 ílið Veröandi heyrnleysingjakennari viö nám sitt i Osló. i innkaupsferöir og matseöillinn var hinn sami alla daga: Fiskur, mjólk, brauö og kaffi. Magnús haföiekkert vit á peningum. Einu sinni gaf hann mér fimm krtínur fyrir að kaupa fisk, sem kostaöi krónu: þar aö auki sótti ég fiskinn i vinnutimanum á fullu kaupi. Grunur minn er sá, að matur sá sem Magnús ætlaöi sjálfur að boröa, hafi oft fariö i gesti hans, þvi að ekki gátu þeir sumir hverj- ir talizt fjáöir menn, aö ekki sé meira sagt. — Manstuekkieftir einhverjum sérstökum? — Um haustið gisti þarna einn slikur svo sem i' vikutima. Ekki fékk ég að vita hvaðan hann var, eða hvað hann hét. Magnús var tregur til að gefa upplýsingar um gesti sina. Þessi maöur var kallaður Nafni, en nafni hvers, — það var ekki látið uppi. Hann svaf yfirleitt allan daginn, og fór sjaldan Ut. Morgun einn, þegar ég kom i vinnuna sá ég að á verktæðinu hékk ákaflega stór og efnismikil loðkápa Ur skinni, tvöföld og sneri loðna bæði Ut og inn. Hetta var og áföst kápunni. ,,Hvað er þetta?” spurði ég. Magnús svaraöi: „Ja, hann á nú þetta, hann Nafni. Hann segir að þetta sé loökápan sem hannArsæll Arnason notaði i Grænlandsleiöangrinum á Gottu, hérna um árið.” „Hvað ætlar hann að gera við þetta?” spurði ég. „Hja, ætli hann noti hana ekki við tófurnar,” svaraði Magnús. Eins og allir Reykvikingar þekkja, geta rökkvuð, lognkyrr haustkvöld i þeirri borg, orðið með ólikindum fögur. A slikum kvöldum var „Rúnturinn” f þá daga fullur af fólki. Piltar og stUlkur leiddust þar ýmist arm i arm, eða gengu um i htípum og töluðu saman. Ef menn geta ekki með nokkru móti trúlofazt á svona kvöldum, þá veröa þeir áreiðanlega einhleypir alla ævi. Sama gildir um konur. A morgnana þegar ég kom á verkstæðiö, var Magnús vanur aö taka á móti mér með sjtíðheitu kaffi, vel sterku. Einn morgun var hann óvenju kiminn yfir kaffikönnunni og segir við mig: „Hann lenti nú i smá-ævintýri i gærkvöld hann Nafni. Hann fór út að ganga og fá sér friskt loft. Veðrið var svo gott.” — Magnús gerði nú hlé á frásögninni og sötraði kaffið. ,,Nú, og hvað svo?” spurði ég. „Ja, hann fór náttúrlega Ut f kápunni Arsælsnaut”, svaraði Magnús. Nafni svaf i svefnpoka á umbúða- kössum i ganginum fyrirframan verkstæðisdyrnar. Hann kom nú inn i verkstæöið og var mikið niðri fyrir: „Það er nú meiri helv...fiflin, þessir Reykvikingar. Það er eins og þeir hafialdrei séð fólk. Maður getur ekki farið Ut á götu fyrir þessu andsk... pakki. Þetta er ekkert annaö en bölvaður skrill.” NU fékk hann kaffiöog frásögn- in varð ekki lengri. Seinna sagði Mgnús mér fram- haldið. Það var svona: „Þetta er náttúrlega ekki gott,” sagði Magnús og fékk sér i nefið. Ég sá hann, þegar hann fór út, það var orðið dimmt, og hann var eins og skógarbjörn. — Ég skil i manninum aö gera „Og hvaö svo?” spurði ekkert þetta.” ég. „Nú, þú getur náttUrlega imyndað þér það. Miðbærinn full- ur af fólki. Svo fór ég aö heyra einhver lifandis læti alla leið hingað inn I kjallara og fór út að athuga hvað eiginlega gengi á.” „NU, hvaö gerðist svo?” spurði ég. „Lögreglan bjargaöi honum. Ég veit ekki hvernig þeir komust að honum gegnum allan þennan grúa sem utan um hann er. Aðal- strætið var alveg fullt alla leið hingað upp að dyrum. Það var mikið að hann var ekki drepinn. Þeirskiluðu honum hingað. Hann var óbrotinn, en eitthvað var hann nú dasaður.” Kokkur i setuliðsvinnu — Hvað tókst þd þér fyrir hendur þegar lokið var vistinni hjá þessum merkismanni? — Frá Magnúsi fór ég i setuliðs- vinnuna og gerðist hjálparkokkur hjá vinnuflokki sem var að reisa bragga uppi við Hafravatn. Þetta var hundraö manna flokkur, og allir utan af landi. Þeir sváfu þarna I bröggum og þurftu auð- vitað að láta elda ofan i sig. Vinnutiminn var fimmtán stundir á dag, sunnudaga sem aðra daga. 011 vinna var greidd samkvæmt matsveinataxta. Viö þurftum aö smyrja á milli fjögur- og fimm hundruð brauösneiðar á dag, skræla um hálfan poka af kartöfl- um, einn pakki af saltfiski fór i hverja máltiö og annað var eftir þessu. Mennirnir unnu erfiðis- vinnu úti i kulda, minnst tiu stundir á dag, og vildu hafa mat sinn og engar refjar. Einu sinni fór ameriskur flutningabill út af, og farmurinn út i skurð, einhver tísköp af súkkulaði og allt ónýtt. Með þessu súkkulaði kyntum viö ofninn i skálanum þar sem við sváfum i mörg kvöld. Einusinnibar svo við að upp aö eldhúsdyrunum renndi amerisk- ur trukkur, fullur af hermönnum. Þeir snöruðu sér inn i eldhús og bentu 'á eldavélarnar með miklu pati. „Gvendur” sagði yfirkokk- urinn. „Spurðu þá hvað þeir séu að þvælast hingað inn I eldhiís.” „Þeirsegjast vera komnir til þess að sækja eldavélarnar og það eigi að taka allan eld úr þeirn strax, svo hægt sé að flytja þær”, svaraði ég. Kokkurinn stóð orðlaus stundarkorn en svo fékk hann máliö: „Sækja eldavélarnar? Taka úr þeim eldinn? Hvurn sjálfan dj... hef ég aö gera með eld ef ég hef ekki vél? Segöu þeim að fara til andsk... og taka eldinn með sér þangað. Þaö er brúk fyrir hann þar, þegar þeir veröa komnir þangað!” Svo stóð hann andartak og hugsaði. Siðan þaut hann út7 komst meö einhverjum ráöum niður i Reykjavik og kom aftur með fullan bil af tilbúnum mat: „Losiöi bflinn, strákar, þetta er allt I lagi viö fáum bráöum vélar aftur.” Krókur á móti bragði Þegar eldamennskunni lauk fékk ég vinnu sem smiður við stóra spitalabyggingu i Mosfells- sveitinni. Majórinn, sem var yfir öllum framkvæmdunum, rak fljótlega augun i fyrrverandi kokk, þar sem hann var með fulla kistu af smiöattílum, farinn úr hvita eldhúsjakkanum, kominn i bláan nankins galla og smiðaði eins og hann heföi aldrei gert annað um dagana, allra sizt unnið kokksstörf. — Majórinn sneri sér aö verkstjóranum og sagði við hann nokkur orð i styttingi. Sið- ustu orðin voru þessi: „...You make carpenters of all the men.” („Þú geriralla mennina að smið- um.”) Majórinn gaf mér lengi illt auga, og ég vissi, að hann langaði innilega til að reka mig. En svo fór, aö viö urðum mestu mátar. Það kom nefnilega i minn hlut að smiða handa honum skrif- borð. Ég geirnegldi allar skúffur og vandaði verk mitt eins og ég gat. Hann kom flesta daga og leit á smiðina. Smáttog smátthrundi utan af honum þessi harða skel, sem hann iklæddist sem herfor- ingi. Innan undir henni var hinn almenni borgari: hr. múrari NN, U.S.A. Góðlegur karl, fá- máll, gæddur þægilegri kimni- gáfu, bar mikla persónu, með af- brigðum samvizkusamur maður, hvað starf þarna snerti, sem var að lita eftir byggingum sem fag- maður i handverki. Hann fékk sitt skrifborð, — og ætli ég sé ekki eini Islendingur- inn, sem hefur smiðað skrifborð fyrir ameriskan herforingja? — Þú hefur þá veriö einn hinna svokölluöu gervismiða. sem urðu taisvert fræg stétt hér á landi á sinum tima? —Já. Þessistéttmanna varö til á striösárunum, og gervi- smiöirnir voru vitanlega þeir menn, sem töldu sig smiði og unnu að smiöum, þótt þeir heföu ekki réttindi sem slikir og jafnvel litla kunnáttu. I Reykjavik voru ráöningarskrifstofur sem réðu menn i vinnu hjá hernum. Að sjálfsögðu vildu menn heldur fá vinnu sem smiöir en verkamenn, þvi að þá fengu þeir miklu hærra kaup og þaö orö lá á, að sumir hefðu j af nvel brugöið á þa ð ráö að kaupa sér smiðaáhöld og hafa þau meö sér, þegar þeir leituðu eftir vinnu. Nú hvildi sá vandi á ráðningarstofnunum að reyna með einhverju móti að greina lagtæka menn sem eitthvaö kunnu til smiða frá hinum, sem ekkert þýddi aö ráða I smiöa- vinnu. Aðferð ráðningarskrifstofanna var sú að yfirheyra umsækjendur dálitið. Sú spurning sem flestir félluá, varákaflega sakleysisleg. Hún var i þvi fólgin að grennslast eftir þvi hvernig ástatt væri um verkfæraeign hinna væntanlegu smiða. Af þvi, hvort verkfærin voru gömul eða ný, mátti greina hvort menn væru vanir smiöum eða ekki. Þeir, sem voru svo heppnir að kunna skil á þessu prófi, stóðust það, hinir féllu, og fengu ekki smiðavinnu. Sagt er að eftirfarandi samtal hafi átt sér stað á ákveðinni ráðningarstofu i' Reykjavik. Um- sækjandi var með öllu óvanur smiöum, en haföi hins vegar búið sig vel undir prófiö: llávaröur Guömundsson bóndi á Hamri og Sigriöur Guömundsdóttir kona hans. Hjá þeim áttu þeir athvarf, sem á einhvern hátt stóöu höllum fæti i lifsbaráttunni. Hamar i Nauteyr.arhreppi. „Svo þú vilt komast i smiöa- vinnu. Þú hefur þá náttúrlega al- mennileg verkfæri, ný og góö?” „Ja, min verkfæri eru nú ekki ný, enda er þaö ekkert atriöi, ef þau eru i góðu standi. Ég hef allt- af farið vel með min verkfæri.” Hann var þegar i stað ráðinn sem smiður hjá hernum! Að duga eða drepast — Nú langar mig að viö förum aö ræöa um sérgrein þina, kennslu heyrnarskertra nemenda og hvernig þú bjóst þig undir þaö mikla vandaverk. — Já, það er ekki nema sann- gjarnt að ég segi eitthvaö um þá hluti. Ég lærði heyrnleysingja- kennslu i heyrnleysingjaskólan- um i Skádalen i Osló veturinn 1949-’50. Við vorum sex sem stunduöum þar nám i þeim fræö- um þennan vetur, fimm Norð- menn og ég. Við fengum þarna mikla og góða kennslu. Námið var vel skipulagt og hver stund notuð. Fyrst gengum við bekk úr bekk og horföum á kennsluna. Svo komu æfingar undir leiðsögn kennaranna. Verkefnin fengum við með góöum fyrirvara, svo viö gátum búið okkur vel undir tim- ana. Það var mikill kennara- skortur i Noregi á þessum árum. Norsku kennaranemarnir höföu allir hálfar stöður við skólann. — En ekki hefur þér, út- lendingnum, staöiö neitt slikt til boöa? — Kennarar veikjast eins og aðrir menn og þarna var enginn forfallakennari. Ég var spuröur, hvort ég vildi taka forfalla- kennslu. „Sjálfsagt,” sagði ég, og bar mig mannalega. Og nú var annaðhvort að duga eða drepast. Ekki veit ég hvort ég dugði en ekki drapst ég. Ég var mikiö i smiðakennslunni og eins i bekkj- um. Meö þessu móti fékk ég tals- verða æfingu. Ég fékk lika kaup fyrir, bara snyrtilegan pening. ,,Þarna lágu likin á marmaraborðum.,. ” — Þetta hefur þá veriö bæöi bóklegt og verklegt nám? — Já. Bókleg fræðsla fór fram i Skádalen og i Oslóarháskóla. Þar voru timar i anatómiu, — lif- færafræði- uppeldisfræði og hljóð- fræði. — Hverjar af þessum náms- greinum heldur þú aö þér séu minnisstaðastar? — Kennslan i liffærafræðinni er mér minnissteeð. Prófessorinn lét sér ekki nægja bækurnar. Hann hafði parta af likum, höföi og hálsi og fór m jög rækilega í gegn- um námsefnið. Mér þóttu þessi kennslugögn dálitið óhugnanleg fyrst i stað, en þaö vandist fljótt. Einu sinni varö mér litiö inn i sal þarna á hæðinni, þar sem læknastúdentarnir voru viö ana- tómíunámið. Þarna lágu lfkin á marm araborðum, likin sem stúdentarnir notuðu við nám sitt. Yfirsum var breitt, en við hliöina á öðrum voru læknanemarnir með bækur sínar opnar, og læröu af miklu kappi og alvöru. A sum- um af þessum boröum, við hliöina á líkunum stóöu kaffibrúsar og brauðpakkar stúdentanna, áhug- inn var svo mikill aö þeir tóku sér ekki kaffihlé. Þarna blasti við mér, leikmanninum, ofurlitið sýnishorn af þvi mikla námi sem liggur á bakviö læknisstarfið og þeirri alvöru og ábyrgö sem þvi fylgir. Nú gæti einhverjum dottið i hug að þessari sjón hafi fylgt einhver óhugnan. Þaö var öðru nær. Yfir þessu öllu hvildi einhver sér- stakur friður og ró, alvara dauðans og alvara lifsins. Þegar ég kom út i haustkyrrð- ina og hina miklu fegurð, sem rik- ir yfir Oslóborg á sólbjörtum septemberdögum, fann ég að ég var ekki alveg samur maöur og áður. Ég tyllti mér á bekk i Stúdentalundinum og horfði á þetta unga og fallega fólk, glatt og hamingjusamt, sem sat þar á bekkjunum. Sól þess skein glatt i hádegisstað. Fyrir hinum, sem lágu á marmaraborðunum, var sól jarðlifsins gengin til viðar. Við kennaranemarnir, fengum lika part úr höfði og hálsi til þess að nota viö lesturinn heima á kvöldin. Þetta var alveg nýtt, rautt kjöt og gulleit fita. Við geymdum þetta i herberginu okk- Framhald á bls. 25

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.