Tíminn - 04.09.1977, Síða 25

Tíminn - 04.09.1977, Síða 25
Sunnudagur 4. september 1977 25 VOLKSWAGEN 1200L - FYRIRLIGGJANDI - Hann er framleiddur af frábærum fagmönnum og undir nákvæmu eftirliti, sem tryggir að Volkswagenbíllinn þinn mun reynast þér vel og lengi. Það er líka þess vegna sem endursöluverð hans er hátt þegar þú þarft eða vilt selja. Viðurkennd Volkswagengæði — Volkswagen varahlutir — Volkswagen þjónusta — HEKLAhf. Laugavegi 1 70—1 72 — Sími 21240 Umferðarfræðsla fyrir 5, 6 og 7 ára börn á Suðurnesjum verður dagana 6.-9. sept, sem hér segir: í barnaskólanum Keflavik þriðjudaginnn 6. sept. Kl. 9 og 14 fyrir 7 ára börn Kl. 11 og 16 fyrir 5 og 6 ára börn. í grunnskóla Njarðvikur miðvikudaginn 7. sept. Kl. 9 og 14. í barnaskólanum Brunnastöðum Vatns- leysuströnd, miðvikudaginn 7. sept. kl. 11 til 13. í barnaskóla Sandgerðis fimmtudaginn 8. sept. kl. 11 og 13. Athygli skal vakin á þvi að börn eiga þess kost að koma tvisvar, klukkustund i hvort skipti. Auk fræðslunnar verður brúðuleik- hús og kvikmyndasýning,- Umferðarráð Lögreglan I Gullbringusýslu. © Pví læra ar um tima,ég og hann herbergis- félagi minn. — Uröuö þiö ekki myrkfælnir? — Nei, við sváfum ágætlega. Engin myrkfælni, engin lik- hræösla ekki neitt. Dáni maður- inn kom aldrei að vitja um part- ana sina, honum stóð vist alveg á sama um þá, hafði enga þörf fyrir þetta lengur. Menn verða liprari i um- gengni — En var ekki sjálft námiö er- fitt? — Prófin voru þung. Llffæra- fræðiprófið var skriflegt og stóð i sex klukkutima samfleytt. Það voru spurningar og efni i margar ritgerðir. En fallegar norskar stúlkur færðu okkur kaffi og með þvi á prófborðin og brostu en sögðu ekkert. Það mátti enginn tala við okkur, það sögðu þær okkur á eftir. Svona þjónustu i prófum ættu fleiri þjóðir að taka upp, þá yrði frammistaða nem- enda betri. Hljóðfræðiprófið var munnlegt. Pröfessorinn spurði mig Ut Ur i hálftima. Sá hálftimi var af gerö- inni Extra Long Super. Prófessor getur spurt um margt á hálftima, og nemandi þarf ekki hálftima tii að segja svo margar vitleysur að hann falli. En karlinn var bara ánægður með mig. Hann hló sin- um tröllahlátri og sagði að það gleddi sig að ég hefði haft gagn af kennslunni. Ég þorði ekki annað en að vera lungamjúkur og taldi það vandalaust að hafa gagn af svona góðri kennslu. Kennsluprófið var i fyrsta lagi kennsla og svo heimaritgerð um tiltekið efni. Ritgerðin mátti helzt ekki vera styttri en f jögur þUsund orð. Hún átti aö vera eign skólans eftir að búið var að gefa einkunn fyrir hana. En ég tók afrit af minni ritgerð, og á það enn. — Og svo hefur þú veriö út- skrifaöur meö pomp og pragt? — Það var heilmikil veizla, þegar prófin voru búin, með ham- ingjuóskum og tilheyrandi. Skólastjóri einhvers heyrn- leysingjaskóla norður i landi var prófdómari. Hann hélt ræðu og bauð okkur velkomin i stétt heyrnleysingjakennara. Enn fremur talaði hann um kennara- skortinn og sagðist geta tekið okkur öll að sinum skóla. En þá rak hann allt i einu augun i ts- lendinginn, ræskti sig, sló botninn i ræðuna i snatri og fór svo aö fá sér meira kaffi og tertu. — Varst þú ekki orðinn magnaöur norskumaöur, eftir svona strangt nám, sem allt fór fram á þvi máli? — Það var komið fram á sumar.og ég búinn að vera þarna allan veturinn. Þá var þaö ein- hvern dag, aö ég sat inni i borð- stofu og var að spjalla við gamla konu, sem var þar gestkomandi. Hún átti heima einhvers staðar noröur i landi. Við töluöum lengi saman. Þá stendur sú gamla upp og segir: „Jæja, það var nú gaman að hitta tslending. Ég hef lesið um þetta allt saman. Veit allt um þetta. En það sem mér finnst einkennilegast af öllu, er hvað málið hefur litið breytzt allar þessar aldir sem liðnar eru siðan Norðmennimir tóku sér búsetu á Islandi. Ég skildi bara töluvert af þvi sem þú varst að segja”. (Okkar á milli sagt, þá var ég aö tala norskuna mina!) Svona reynsla hefur ákaflega holl áhrif á menn, ef það hefur komizt lofti þá. Menn veröa lipr- ari i umgengni fyrir vikið. Nám heyrnarskertra — Og svo er þaö nú kennsla þln i Heyrnleysingjaskólanum. — Þegar maður þykist hafa lært eitthvert starf, er þá ekki næst að fara að gutla eitthvað i þvi? Ég hef verið I Heym- leysingjaskólanum samfellt, siöan ég lauk námi. Ég átti sextugsafmæli i vor. Og ég veit ekki betur en ég eigi þrjátíu ára afmæli á þessu ári, sem starfandi kennari, svo ég á tvöfalt afmæli i ár. Þetta eru samtals niutiu ár — eða er ekki svo? Ég hef aldrei átt gott með að reikna. Undanfarin ár hef ég kennt iðnnemunum i Heyrnleysingja- skólanum ymsar bóklegar grein- ar, sem koma iðnnáminu við, en sjálft verknámiö ferfram á verk- stæðunum og i Iðnskólanum i Reykjavik. Sá skóli hefur alltaf verið okkur sérstaklega hliðholl- ur, og iðnskólakennararnir, sem eru störfum hlaðnir menn, hafa alltaf verið reiðubúnir að kenna okkar iðnnemum lika. Jón Sætran, tæknifræðingur, kennari við Iðnskólann, fór til Noregs fyrir nokkrum árum og kynnti sér iðnfræöslu heyrn- leysingja þar I landi. Hann hefur siðan bæði kennt iðnnemunum okkar, samið fyrir okkur náms- bækur, haft stöðuga umsjón með iðnfræðslunni, leiðbeint mér og annazt alla mögulega fyrir- greiðslu, sem of langt yrði upp að telja. Hann hefur alls ekki viljaö þiggja laun fyrir, heldur gerir hann þetta allt i sjálfboðavinnu. Ekki má ég heldur gleyma meisturunum á verkstæðunum, sem hafa tekið þessa drengi til iðnnáms. Af skiljanlegum ástæð- um er erfiðara að hafa heyrnar- daufan iðnnema heldur en heyr- andi. Þessir meistarar eiga þakk- ir skildar fyrir sitt framlag. Ýmsir aðilar, bæði i Reykjavík og úti á landi hafa lagt þarna hönd á plóginn. Ég hef þá i huga, þó að ég nefni engin nöfn. Ég man engin dæmi, þar sem þessum málum hefur ekki verið tekið með jákvæðum huga, þótt menn hafi ekki alltaf getað leyst vanda okk- ar. — Hvaöa iöngreinar leggja heyrnleysingjar einkum stund á? — Fram til þessa tima hefur það einkum verið vélvirkjun, bif- vélavirkjun, skósmiði, netagerð, gullsmíði, húsgagnasmiði, plötu- og ketilsmiði, og einn er að byrja að læra bifreiðasmiði. Nokkrir heyrnleysingjar hafa þegar lokið sveinsprófi og fengið sveinsbréf sin. Aðrir hafa lokið náminu, en eiga ennþá eftir sveinsprófið. Hinireru svo á ýms- um stigum iðnnámsins. Nokkrir nemendur Heyrn- leysingjaskólans hafa stundað nám i öðrum skólum, með aöstoð og undirbúning frá Heyrn- leysingjaskólanum, til dæmis sjúkraliði, tækniteiknari og auglýsingateiknari. Kannski gleymi ég einhverjum, en það verða menn að fyrirgefa mér vegna ellinnar. Aðalatriði i lifi hvers manns Það sem hér er að gerast hefur tekizt fyrir mikla vinnu og góðan vilja margra manna, og er að minum dómi allrar athygli vert. Það eru aðalatriði i lifi hvers manns, að hann kunni starf, sem hann getur lifað af, og að hann hafi réttindi til þess að vinna það starf. Enginn má þó skilja orð min svo, að hér megi láta staðar numið. öðru nær. Mikið verk er enn óunnið hvað snertir fram- haldskennslu heyrnleysingja. Það þarf að auka hana, móta hana betur og ætla henni stað i framhaldsskólakerfi landsins, þegar lög verða sett um fram- haldsskóla. 1 þeim lögum verður að taka fullt tillit til þess, að okk- ar menn hafa sinar sérstöku þarfir. — Hverjar eru þær aðallega? — Hinar sérstöku þarfir orsak- ast meðal annars af þvi, aö heyrnleysingjar þurfa miklu lengri tima til þess að læra en heyrandi fólk, og það stafar af málleysinu. Þess vegna þurfa þeir meiri kennslu og lengri námstima. En meiri kennsla og lengri námstimi krefst fleiri kennara. Þetta verða menn aö gera sér ljóst, þvi aö þetta er aðalatriði málsins. Heyrnarleysi er orsök málleysis, og þetta tvennt orsakar erfiðleika, sem heyrandi fólk á mjög erfitt með að gera sér fulla grein fyrir. Framhaldsdeild, sem tekur við þegar skyldunáminu lýkur, er þarna höfuðmál. Hlutverk hennar er fyrst og fremst málkennslan, aðalatriði allrar heyrnleysingja- kennslu. Meðal margs annars er það hlutverk þessarar deildar að búa unglingana undir starfsnám, i mörgum tilvikum iðnnám. Það er engin sanngirni að gera ráð fyrir þvi, aö heyrnardaufur mað- ur ljúki iðnnámi á sama áraf jölda og heyrandi maður. Sá heyrnar- daufi á þvi tvimælalausan rétt á undirbúningsnámi, eftir þvi sem þörf hans krefur, þegar skyldu- náminu lýkur. Sem dæmi um nauðsyn þessar- ar deildar, vil ég benda á eftirfar- andi staðreyndir: Eins og sakir standa, hafa margir unglingar lokið skyldunámi sinu. Núna i haust þurfa þeir allir á fram- haldsnámi að halda. Það liggur þvi alveg ljóst fyrir, aö fjölgun kennara við framhaldskennsluna er mjög knýjandi nauðsyn. Allir þessir unglingar hafa látið i lj<5s óskir um framhaldsnám, sem ljúka myndi með iðnnámi og tilskildum réttindum iðnaðar- manna. En þvi fer viðs fjarri, að hér með sé sagan öll. Núna eru i skólanum um það bil þrjátiu börn, sem öll eru á sama árinu. Eftir örfá ár ljúka þau skyldu- námi sinu öll i einu. Það yrði meiriháttar áfall fyrir alla aðila, ef sá stóri hópur ætti ekki kost á allri þeirri fyrirgreiðslu, sem skóli og kennarar. geta veitt. Þrotlaus vinna og sjálfsnám — Þú segist kenna iðnnemum ýmsar bóklegar greinar. Hefur þú ekki þurft að læra sérstaklega til þess að geta leyst þetta af hendi? — Ég hef orðið að lesa heilmikið um þetta allt saman. Og þetta er oröið of mikið fyrir mig einan. Ég er farinn að gefa eftir. Ég verð að búa til mikið af námsgögnum, það verða allir heyrnleysingjakennarar aö gera. Viö liggjum yfir námsgagnagerö marga klukkutima á dag, eftir kennslutima. Ég hef viöað aö mér heilmiklu af tæknibókum, og það tekur sinn tima aö lesa slikar bækur, þær eru flestar á erlend- um málum. Nú, i elli minni, er ég orðinn eins konar eilifðarstúdent i enskum tækniskóla. Það er bréfa- skóli, og ég hef verið að læra þar tækniteiknun, stærðfræði og fleira imörgár, til þess að geta þófrek- ar klórað i bakkann með þessa kennslu. — Nú hefur löngum verið sagt. að kennarar ættu lengra sumarfri en aðrar stéttir. — Ég hef ekki fariö I sumarfri i tuttugu og fimm ár, eða meira. Ég kalla það ekki sumarfri, þótt kennarihætti að vinna i kennslu i skólanum, en fari i stað þess að vinna að henni heima hjá sér. Ég hefekkitekið mér fri einn einasta dag i sumar. Þó er ég ekki búinn að gera það sem ég hefði þurft að gera fyrir þann vptur, sem nú fer ihönd. Það sem á vantar, verðég aðgera eftir kennslutima I vetur, og á sunnudögum. Það gerir svo sem ekkert til, égólstekkiupp við sunnudaga, nema á dagatalinu. Meginhluta ævinnar hef ég unnið á sunnudögum likt og aöra daga. Það stafar svo sem ekki af neinni dyggð. Maður þarf bara að hafa eitthvaö fyrir stafni, annars leiðist manni. — VS

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.