Tíminn - 04.09.1977, Síða 29

Tíminn - 04.09.1977, Síða 29
Sunnudagur 4. september 1977 29 Aðalbjörn Kjartansson framkvæmdastjóri Stangveiðifélags Rangæinga. veiddist hér einkum bleikja. En siðan laxinn fór að sjást, hefur aðsóknin aukizt mjög á svæðið. Áður sætti það tiðindum ef lax veiddist. Nú ermikið af honum og ástæða að búast við aukinni veiði. I Hólsá er sjóbirtingsveiði þeg- ar komið er fram i miðjan ágúst. Sumir segja, að með aukinni laxaradít hverfi sjóbirtingurinn. Þetta er umdeilt. Veiðimenn vilja engu siður glima við sjóbirtinginn en laxinn. Sjálfur veiddi ég til skiptis lax og sjóbirting úr sama pyttinum i fyrra. Það var i Fiská og raunar sama daginn. Veiði i Fiská hefur aldrei verið umtalsverðfyrr en á siðasta ári. Þá tók árangur fiskeldisins að koma i ljós. Ég get skotið þvi hér inn að ég er nýbúinn að vigta stærsta fiskinn sem komið hefur á land í sumar. Það var Haraldur Stefánsson, sem veiddi 14 punda lax á ytra svæðinu. Stærsti laxinn sem veiddist i fyrra var 17 pund. Verðlaun fyrir stærstu fiskana Þeim sem hafa hug á að koma hingað að veiða, má benda á, að Stangaveiðifelagið heldur sina fyrstu árshátið I vetur. Þá verða þeir veiðimenn verð launaðir sem veitt hafa stærstu fiskana,lax, sjóbirting og bleikju. Það er til nokkurs að vinna þvi verðlaunin verða liklega veiði- leyfi og afnot hússins. Þá má geta þess, að i félaginu eru nú 150 manns með landeigendum. Klakhús — vegalagnir — merking örnefna og veiðisvæða — Hvaða verkefni blasa viðnú? — Þau eru mjög mörg. A döf- inni er að byggja klakhús á veg- um félagsins. Við eigum að skila kiakhúsi til landeigenda á leigu- timanum sem er 10 ár. Við feng- um úthlutað lóð i Helluvaðslandi skammt frá Hellu.Þetta er mikið og dýrt verkefni sem að likindum verður unnið i áföngum. Fjár- munir og mannafli liggja ekki á lausu. Við munum byrja á að girða svæðið svo að minkur kom- ist ekki inn fyrir,þvi þarna verða fisktjarnir. Við höfum notið góðs af klak- húsi við Stokkalæk á Rangárvöll- um. Þaðan er mest af þeim fiski sem ræktaður hefur verið. Frá 1972 hafa 1.4 milljónir seiða verið settar i árnar. Verkefnin eru ótæmandi, enda svæðið stórt. Það þarf t.d. mikla vinnu við vegalagnir á svæðinu meðfram ánum. Sums staðar er oft ekki fært nema á jeppum. Nú er unnið við varanlega merkingu á veiðisvæðunum: ör- nefnamerkingar og merkingu veiðistaða. Bændur og staðfróðir menn hafa verið okkur ákaflega vinsamlegir við þessar merking- ar, enda vitað mál, að ánægjan eykst ef menn vita hvað lands- lagið heitir, eins og skáldið sagði. Veiðisvæðin eru niu talsins og alltaf höfð tvö saman nema Fiská sem er stakt svæði. Gangi illa á einu svæðinu er hitt I bakhönd inni og einnig hægt að hvila svæð- in. Veiðidagurinnerfrá kl. 3 og til hádegis næsta dag. Eins ogég gat um áðan er Fiská stakt svæði upp að Skútufossi. Draumurinn er að gera fossinn fiskgengan. Þá fæst stórt svæði ofan við hann, sem talið er góðar hrygningarstöðvar. Fiskisvæðið myndi þá stækka að mun. Loks má nefna,aðnú eruá döfinni við- ræður við landeigendur undir Eyjafjöllum um Markárfljót og landeigendur i Fljótshlið um Þverár. Hætti hjá Kaupfélaginu — hóf sjálfstæðan rekst- ur — Nú höfum við rætt mikið um veiðimál. En eftir er að ræða um þig og þinn atvinnurekstur. — Þar er nú ekki frá miklu að segja. Ég er fæddur i Reykjavfk og fluttihingaðlO ára gamall með foreldrum minum. Faðir minn tók þá við verkstjórn i trésmiðju Kaupfélagsins. Hann stóð að byggingu ýmissa húsa hér, m.a. Kaupfélagsbúðinni og fleiri bygg- ingum. Ég byrjaði i trésmiðanámi hjá föður mi'num 1960, hér á Hvols- velli. Þegar hann féll frá 1961 fór ég til Isleifs Sveinssonar og lauk náminu hjá honum. Meistara- prófinu lauk ég 1965. Hjá Kaup- félaginu vann ég til 1968. Þá byrjaði ég þessa starfsemi mfna ásamt félaga minum í bilskúr, sem ég hefi stækkað talsvert. Þetta húsnæði hentar mér ágæt- lega eins og er. Þá tók ég einnig að mér handa- vinnukennslu við gagnfræðaskól- ann og sinnti henni um fimm ára skeið. Nú á ég þessa trésmiðju einn og byggi mina lifsafkomu á henni. Hjá mér vinna 3 fastráðnir menn en eru 6-7 þegar mest er að gera. Ég hef aðallega fengizt við innivinnu t.d. innréttingar,skápa- smiði og útihurðasmi'ði. Fram- leiðsluna sel ég hér i héraðinu og talsvert fer til Reykjavikur. Texti og myndir: Haraldur Blöndal Veiðihúsið er 60 fermetrar, fjögur herbergi. BpÉ : '/■" ", -yf \ ÉK Hl ■ fttsm| t' m m Eins og sjá má er húsið hið vistlegasta að innan. Húsgögn og allar innréttingar komin frá Hvolsvelli. Vestur á Snæfellsnesi hef ég verið með stórt verkefni i Grundar- firði: innréttingar i gagnfræða- skólanum nýja, búningsklefa og iþróttahúsið, einnig innréttingar. Þéttilistaumboð og næg verkefni framundan. Fyrirrúmum 8 árum byrjaði ég með vinnu við sænska þéttilista Slottslisten sem er nú stór hluti minna vinnuumsvifa. Ég tók þetta umboð að mér fyrir ólaf Kr. Sigurðsson i Reykjavik sem flyt- urþessa lista inn. Þessa þéttilista hefi ég verið með i Árnes- og Rangárvallasýslu svo og V- Skaftafellssýslu. Listarnir eru settir með gluggum og svala- hurðum. Þeir hafa nú verið settir i öll helstu hús hér i sýslunum svo og eldri hús. Áöur hafði ég næga vinnu fyrir marga menn við þetta, einkum fyrstu 7 árin. Nú er þessi listaásetning einkum við framleiðslu á gluggum. Aðalástæða þess, að ég hætti hjá Kaupfélaginu var sú, að ég hafði svo mikla aukavinnu við þéttilistana, að mér varð ljöst, að þetta væri full atvinna fyrir mig. Þéttilistarnir spara geysilegan oliukostnað og það er ekki hvað sizt ástæðan fyrir vinsældum þeirra. Kaupfélagið er hér sterkasti aðilinn. Samvinna min við það hefur alla tið verið mjög góð. Kaupfélagið flytur t.d. fyrir mig allt efni og hefur staðið að tilboð- um i samvinnu við sjálfstæða at- vinnurekendur hér á Hvolsvelli. Við Sigöldu hef ég haft ýmis verkefni undanfarin ár, og verið undirverktaki. Nú eru þar þrir menn á minum snærum. Þá má nefna að ég tók að mér að reisa starfsm annaskála fyrir Energoprojekt. Við Búrfell og Sigöldu hafði ég hóp manna sem þétti hvem einasta glugga með þessum margnefndu þéttilistum. Smærri aðilar samein- ast um tilboð i stór verk 1 april 1977 stofnaði ég ásamt By ggingarþjónustunni sf. og Braga Runólfssyni sf. Byggingar- félagið As. Hjá þessu fyrirtæki vinna engir fastráðnir starfs- menn. Verði reist hér stór mann- virki eða útboð einhvers staðar hér i grennd, þá höfum við hugsað okkur að sameinast um tilboðin. Þetta megnum við ekki hver um sig. Það vakir fyrst og fremst fyrir okkur að tryggja að vinnan fari ekki út úr héraðinu vegna smæðar fyrirtækjanna. Við höf- um ekki mannafla til að ráðast i stærri verkefni, en saman höfum við um 20 manna flokk. Þessi fyrirtæki sem ég nefndi eru eink- um með uppslátt, útivinnu og þjónustu við bændur, en sjálfur er ég einkum með innivinnuna. Mitt fyrirtæki hefur næg vcrk- efni langt fram á næsta ár. Hér kann ég vel við mig og vil hvergi annars staðar vera, sagði Aðalbjörn Kjartansson að lokum. Góð bújörð i Suður-Þingeyjarsýslu til sölu ef viðun- andi tilboð fæst. Jörðin er i miðri sveit við þjóðveg, á staðnum er simi og rafmagn. Land er mikið afgirt og framræst að nokkru. Hagstæð til búrekstrar hvort heldur kúa eða sauðfjárbús. Upplýsingar veittar til 30. sept. n.k. i sima (91)53009.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.