Tíminn - 06.09.1977, Blaðsíða 8

Tíminn - 06.09.1977, Blaðsíða 8
Guðlaugur Rósinkranz Kveöja frá Norrænafélaginu. Eldhuginn Guölaugur Rósin- kranz lét viöa gott af sér leiða á langri vegferö. Enginn einn maöur triii ég hafi unnið Norræna félaginu jafnlangt og farsælt starf sem hann. Hann var ein aðaldriffjööur félagsins allt frá þvi að það var drepið úr dróma árið 1931. Hann var þá kjörinn ritari þess og átti sæti r stjórn félagsins samfleytt i 24 ár, jafnan sem ritari þess og framkvæmdastjóri, en síðustuár- in sem formaður. Af gerðabókum félagsins frá þessum árum, sem mjög eru itar- legar og aðgengilegar má sjá hvi- likur ákafa- og framkvæmda- maður hann hefur veriö. Hug- myndaauðgi og útsjónarsemilýsa af hverri siðu þessara bóka. Með hjálp góðra samstarfsmanna hef- ur hann hrundið i framkvæmd hverri menningarheimsókninni á fætur annarri. Það hefur verið ómetanlegt fyrirNorrænu félögin, sem þátt áttu f að undirbúa iarð- veginn að stofnun Noröurlanda- ráðs og öllu því nána samstarfi sem nú þykir næsta sjálfsagt, að hafa átt slíkan stuöningsmann sem Guðlaug Rósinkranz. Að starfi hans býr Norræna félagið um langa framtið. Það yrði langt mál að rekja hér allt það sem Guölaugur lagði sig fram um að framkvæma i nor- rænu samstarfi. En það kemur skýrt fram, að hvergi hefur hann legið á liði sinu. Hann sinnirekki eingöngu ritara- starfinu með prýöi heldur tekur hann að sér að hrinda i fram- kvæmd fjölmörgu að þvi sem Norræna félagiö hafði á prjónun- um á þessum árum. 1 hug mér koma leiksýningar með norrænum gestaleikurum, heimsóknir skálda og annarra listamanna á vegum félagsins, útgáfa „Norrænna jóla” um langt skeiö, timarits sem mikill menn- ingarbragur var aö. Fjársafnanir til striðshrjáðra bræðraþjóða okkar á styrjaldarárunum og siðar, svo og stuðningur viö ein- staklinga i raunum. Aðeins einu sinni kynntist ég þvi af eigin raun, hvernig Guð- laugur tók á málunum. Það var haustið 1966, aö ég kom að máli við hann um hugsanlega móttöku Þjóðleikhússins á leikflokki frá Tampere i Finnlandi, vinabæ Kópavogskaupstaðar. Hann var fljótur aðátta sigá málinuogþað var sannarlega ekki vegna skorts á stuðningi frá hans hendi og Þjóðleikhússins að ekki gat orðið af þessari heimsókn. En móttök- um hans og viðbrögðum gleymi ég ekki. Norræna félagið þakkar forystumanni sinum frábær störf i þágu þess og norrænnar samvinnu. Það yröi gæfa félags- ins aö mfnu viti aö eignast sem flesta eldhuga og áhugamenn sem Guðlaug, þá þarf ekki aðæörast um framkvæmd hug- sjóna þess. Guölaugur var heiðursfélagi Norræna félagsins. „Hann gekk þeirri bróöurhugsjön á hönd sem heilög- um sáttum skal tengja öll Norðurlönd” likt og segir i hinum fagra óöi Tómasar Guðmunds- sonar „Ot vel ég — heim”. Ég færi konu hans og skylduliði öllu hlýjar samúðarkveðjur Nor- ræna félagsins svo og sambands Norrænu félaganna á Norður- löndum, sem einmitt þessa dagana heldur þing sitt hérlendis. Hjálmar Ólafsson. t Kynni okkar Guðlaugs Rósin- kranz hófust fyrst skömmu áður en Þjóöleikhúsið tók til starfa, eða nánar tiltekið siðari hluta árs 1949. Við Þjóðleikhúsiðstarfaði ég siðan undir hans yfirstjórn næstu 23 árin, allt ti'l ársins 1972, en þá lét hann af störfum sem þjóöleik- hússtjóri fyrir aldurs sakir. Hin siðari ár var ég fulltrúi hans og vann það starf ásamt leiklistar- störfum við stofnunina. Kynni okkar urðu þvi bæði mikil og náin með árunum. Margs er að minn- ast úr þvi samstarfi og margt kemur fram i hugann, þegar gamall félagi er kvaddur hinztu kveðju. Þaö var stór hópur vonglaðra karla og kvenna, fólks á öllum aldri^sem mætti til starfa i Þjóð- leikhúsinu þann 1. nóvember 1949, en þann dag hófst undirbúningur fyrir fyrstu sýningar Þjóðleik- hússins, Nýjársnóttina, tslands- klukkuna og Fjalla-Eyvind. Þessa fyrstu starfsdaga okkar i Þjóöleikhúsinu vöknuðu vissu- lega vonir, þvi að vor var i lofti fyrir islenzka leiklist. Meira en hálfrar aldar draumur Indriða Einarssonar og Sigurðar Guð- mundssonar málara var loks að verða að veruleika. Langþráðu takmarki var náð, islenzka þjóðin hafð loksins eignazt sitt eigiö hús fyrir leiklistina i landinu. Margþættir örðugleikar biðu þeirra, sem unnu að undirbúningi fyrstu sýninganna og vigslu Þjóðleikhússins og mörg ljón voru þar á veginum. Mest mæddi þetta að sjálfsögðu á Þjóðleikhús- stjóra, enda sparaði hann hvorki starfskrafta sina né tima til þess að allt mætti ganga sem bezt. Guðlaugur var gæddur óvenju- lega miklu áræði og bjartsýni og fáum mönnum hef ég kynnzt, sem hafði jafnmikla starfsorku til að bera. Oft lagði hann nótt við dag á þessum byrjunarárum. Þjóöleik- húsið var frá upphafi óskabarn hans og af heilum hug vann hann þeirri stofnun meöan hann starf- aði þar. Þjóöleikhúsið, viðgangur þess og velf erð, var hans hjartans mál. Og árin liöu eitt af öðru og mikiö vatn rann til sjávar. Menn komu og fóru. Nýir menn bættust viö i hópinn sem fyrir var. Stundum gekk vel og stundum illa. Oft gaf á skútuna og ekki tókst alltaf að verja hana áföllum, þvi að við margþætta erfiðleika var aö etja. Stofnunin var frá uppphafi mjög fjárvana og oft var tómahljóö i „kassanum”. Allir þessir erfið- leikar hvildu að sjálfsögðu mest á herðum þjóðleikhússtjóra, en alltaf tókst honum með áræði og dugnaði aö bjarga málunum og snúa vörn I sókn. Ég minnist eins sérstaks atviks i þvi sambandi, sem gerðist skömmu fyrir jól eitt starfsáriö. ..Kassinn” var tómur eins og oft áður, og hvorki bankarnir né rik- issjóöur vildu hlaupa undirbagga aö þessu sinni. Engir peningar voru þá til, svo aö hægt væri að greiða starfsfólkinu mánaöar- launin. En Guölaugur lét ekki bugast. Hann gat ekki til þess hugsað að starfsfólk stofnunar- innar fengi ekki laun sin greidd. Hann veðsetti þá húseign sina i tveimur bönkum og fékk þannig f jármagn til aö greiða fólkinu. Ég hef þá trú, aö þeir séu ekki marg- irframkvæmdastjórarnir hjá rlk- isfyrirtækjum nú til dags, sem mundu standa þannig aö málum. Guðlaugur var vel liðinn af samstarfsmönnum sinum I Þjóð- leihúsinu og vildi leysa hvers manns vanda. Ég minnist margra atburða f þvi sambandi úr löngu samstarfi. Sendimaður Þjóðleikhússins um langa hrfð var Jón Eyjólfsson, sem nú er lát- inn, þekktur borgari i Reykjavfk á sfnum tima. Jón Eyjólfsson „batt ekki bagga sina sömu hnút- um og aörir samferöamenn”. Guðlaugur reyndíst Jóni mjög vel, og átti Jón alltaf athvarf hjá Guðlaugi, ef eitthvað blés á móti. Guðlaugur Rósinkranz fór ekki varhluta af harðri gagnrýni i starfi sinu sem þjóöleikhússtjóri. Margar aðgeröir hans og fram- kvæmdir voru oft harðlega gagn- rýndar og oft ranglega og að á- stæðulausu, aö mati sanngjamra manna. Jafnan hlýtur að standa styr um þá menn sem standa i miklum framkvæmdum og veita stoínun eins og Þjóðleikhúsinu forstööu í rösklega tvo áratugi. Guðlaugur átti einnig marga öf- undarmenn, sem beittu geirum sinum markvisst og hvatlega að honum. Ollum þessum árásum tókst honum að verjast, en hvort hann hefur komið ósár úr þvi vopnaskaki, skal ósagt látið. Það er trúa mfn, aö sagan verði Guð- laugi hliðholl og hann hafi unnið merkilegt brautryðjendastarf við uppbyggingu og mótun starfsemi Þjóðleikhússins fyrstu tuttugu ár- in í rekstri þess. 1 allmörg ár var ég formaður Félags fslenzkra leikara, og féll það þá i minn hlut að semja um kaup og kjör fyrir kollega mfna við Þjóðleikhúsið. Marga stund- ina sátum við Guðlaugur á samningafundum og oft var heitt ikolunum og deilt hart. En þegar upp varstaðiö frá samningaborði voru þær erjur að jafnaði gleymdar, og vinskapur okkar hélt áfram eins og ekkert hefði f skorizt. Ég ætla mér ekki í þessu stutta greinarkorni aö rekja langan og merkan starfsferil Guðlaugs Rós- inkranz og ekki heldur rifja upp helztu æviatriði hans, uppruna eða menntun. Aðrir félagar hans á lffsleiðinni, sem þeim voru bet- ur kunnir,munu eflaust gera það. Grein þessi er fyrst og fremst hugsuð sem fátækleg kveðjuorð frá gömlum samstarfsmanni og er hér drepið lauslega á nokkur atriði úr rösklega tveggja ára- tuga samstarfi okkar i Þjóðleik- húsinu, en þar vann hann stóran hluta af ævistarfi sínu. Ég votta eftirlifandi konu hans, frú Sigurlaugu, börnum hans og öðrum nánum ættingjum innilega samúð okkar hjónanna. Blessuð sé minning Guðlaugs Rósinkranz. Klemenz Jónsson t I ræöu sinni á vigsludegi Þjóð- leikhússins 20. april 1950 vék Guð- laugur Rósinkranz, þáverandi Þjóðleikhússtjóri, m.a. að hlut- verki leikhússins og stefnu, og sagöi, að siztaf öllu bæri aðsækj- ast eftir þvi, að kyrrð rikti um leikhúsiö. — Afskiptaleysi um Þjóöleikhúsið og lognmolla i kringum það væri þaö hættuleg- asta sem fyrir þaö gæti komið, sagðihann og bættisvo við: — En hins vegar vænti ég, að þeir stormar, sem kunna að gnauða um þessa hamrahöll, verði vaktir af velvild til stofnunarinnar, að gagnrýnin verði byggð á rökum, flutt af drengskap og góðvild, i þeim tilgangi einum að eflá hana og bæta. Guðlaugur Rósinkranz þurfti svo sannarlega ekki að kvarta yf- ir lognmollu og afskiptaleysi um Þjóðleikhúsiöþau23ár,sem hann gegndi störfum Þjóðleikhús- stjóra. Um hann og störf hans stóð oft styr og þó mestur fyrstu starfsár leikhússins, frumbýlis- árin þegar flest var þar i mótun og byggja þurfti nýtt á þeim grunni, sem fyrir var i leiklistar- málum landsins. Það var storma- samt stundum og aldrei dúna- logn. A hinn bóginn var gagnrýn- in ekki alltaf flutt af drengskap eða i góðum tilgangi einum sam- an og missti þvi oftar en ekki marks, einkum þegar frá leið. Starfi Þjóðleikhússstjóra verður aldrei sinnt svo öllum liki, og á reyndar svo að vera. A miklu veltur gengi stórrar stofnunar, hvernig til tekst um samskipti og samstarf sorstöðu- manna og starfsliðs. Fáum er nauðsynlegra en Þjóðleikhús- stjóra að virkja áhuga samstarfs- manna og viðhalda góðum starfs- anda, þvi aö leikhús byggir til- veru sina ekki aðeins á fáum út- völdum heldur stórum samstillt- um hópi fólks. Þegar ég, sem þessar linur rita, kom fyrst til starfa i Þjóðleikhúsinu undir lok starfsferils Guölaugs Rósinkranz þar,f ann ég fljótt, að starfsmönn- um öllum var hlýtt til yfirboðara sins. Hann naut almennra vin- sælda, og þó að ekki væru allir alltaf sammála ákvöröunum hans i einstökum málum var sú gagn- rýni innan veggja leikhússins, að ég held, oftast flutt i þeim anda, sem Þjóðieikhússtjóri nefndi æskilegastan i ræðu sinni,vigslu- daginn. Þess vegna minnist stór hópur samstarfsmanna Guðlaugs Rósinkranz hans nú áútfarardegi meö hlýhug og þakklæti og vottar aðstandendum samúð sina. tvar H. Jónsson. t Kveðja frá Þjóðleikhúskórnum „011 byggðin man, hve bjart var um þig áöur, þvi bæði varstu elskaður og dáður”. Þetta upphaf af ljóöi Daviðs skálds Stefánssonar kom mér i hug er ég heyrði I útvarpinu andlát Guðlaugs Rósinkranz fyrr- verandi þjóöleikhússtjóra, og mins góöa vinar. Starf þjóð- leikhússtjóra er áreiöanlega eitt vandasamasta embætti landsins. Þvi sá sem þvi gegnir verður ekki einasta að vera traustur og glögg- ur fjármálamaður, heldur einnig listamaður af Guðs náð. Þaðvar engin tilviljun aö Guðlaugur Rósinkranz var til þess valinn að verða fyrstur þjóðleikhússtjóri Islendinga. Hann hafði viðtæka bókmenntaþekkingu, hafði reynst aðgætinn fjármálamaður, orð- lagður skipuleggjari og hafði lagt mikla vinnu i það aö kynna sér leikhúsrekstur og tengdar list- greinar svo sem óperur og óperettur , listdansa og annað listrænt efni svo nokkuð sé nefnt. Við vigslu Þjóðleikhússins sagði hann i ræðu sinni „Listin fyrir listina er það lögmál, sem fyrst og fremst gildir. Þjóðleikhúsið á að skýra á listrænan hátt sem flest viðfangsefni og vandamál mannlegs lifs." Þessi orð voru einkunnarorðhins farsæla og list- ræna leiðtoga, sem i rúma tvo áratugi gengdi með menningar- skyldu sinni starfi þjóðleikhús- stjóra. Með festu og áræði kom hann á fót við Þjóðleikhúsið flutn- ingi óperu og óperettu isamvinnu viö þann frábæra tónlistarmann Dr. Victor Urbancic, siðar söng- og hljómsveitarstjóra Þjóð- leikhússins. Til að undirstrika þessa ákvörðun sina stofnaði Guðlaugur Rósinkranz þjóð- leikhúskórinn þann 9. marz 1953 með 42 kórfélögum, og verður þvi þessi kór sem skipaður er bæði kven- og karlröddum 25 ára 9. marz 1978. Þetta var geysilegt átak og mikið áræði 1953, en sag- an hefur sannað að rétt var á málum haldið. Þegar Guðlaugur Rósinkranz hætti störfum sem þjóðleikhússtjóri gerði þjóðleik- húskórinn hann að fyrsta heiðurs- félaga sinum, sem örlitinn þakklætisvott fyrir þaö frábær- lega góða samstarf sem hann hafði átt við kórinn alla tið.Skal nú i fáum orðum rakinn llfsferill þessa öölingsmanns. Guðlaugur Rósinkranz var fæddur 11. febrú- ar 1903 i Tröð, önundarfirði I V- tsafjarðarsýslu. Hann stundaði nám I Alþýöuskólanum á Núpi i Dýrafirði, tók kennarapróf 1925, stundaöi nám við Tarna Folkhog- skola i Sviþjóð og siðar við Cocialpolitiska Institutet i Stokkhólmi og tók þaöan próf i hagfræði og félagsfræði 1929. Þá var hann og við framhaldsnám i hagfræði við Stockholms Hög- skola i 2 ár, framhaldsnám við Cooperative School i Manchester i Englandi i 1 ár og framhalds- námskeiö i félagsfræði I Genf 1938. Þegar heim til Islands kom varð hann fyrst kennari og brátt yfirkennari viö Samvinnuskólann i Reykjavik. Þjóðleikhússtjóri frá þvi um haustið 1949 til haustsins 1972. Hann var um tima forstjóri Sambands ísl. Byggingarfélaga, stofnandi Sænsk-Isl. félagsins og formaður þess um hrið svo og i stjórn Norræna félagsins og for- maður þess um hrið, i stjórn fjölmargra félaga, i Lýöveldis- háti'ðarnefnd bæði sem gjaldkeri og framkvæmdastjóri 1944, fram- kvæmdastjóri Snorrahátiðar 1947, formaður Vestfirðinga- félagsins i 13 ár, formaöur þjóð- leikhúsráðs 1948-1949. I stjórn Nordisk Teaterrád og formaður Islandsdeildar Alþjóöasambands leikhúsmanna um árabil. Þá var hann fórmaöúr -og framkvæmdastjóri Edda Film hf. frá 1954 og formaður Islensk- Sænska félagsins 1957. Hann hlaut mörg heiðursmerki fyrir störf sin og samdi fjölda ritverka, kennslubókaog kvikmyndahand- rita og hefur ritstýrt timaritum bæöi á Islenzku og öörum Norður- landamálum.Núsiðustu æfiár sin eftir að hann hætti störfum sem þjóðleikhússtjóri, vann hann að þýðingum, kvikmyndahandritum og slðast en ekki sizt að æfisögu sinni sem honum auðnaðist að fullgera og væntanlega kemur út nú fyrir næstu jól. Guölaugur Rósinkranz kvæntist árið 1932 hinni ágætustu konu Láru Stefánsdóttur kaupmanns á Seyðisfirði Steinholts en missti hana langtfyriraldurfram 6. júni 1959. Með Láru konu sinni eignað- ist hann 3 börn, dæturnar Jóhönnu hjúkrunarkonu og Bergljótu flugfreyju og soninn Gunnar byggingarverkfræðing öll búsett hér i borg. Siðari konu sina Sigurlaugu söngkonu Guömunds- dóttur skálds Friðfinnssonar frá

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.