Tíminn - 16.09.1977, Side 13

Tíminn - 16.09.1977, Side 13
Föstudagur 16 . september 1977. 13 Sigurjón Bjarnason. Félagsþroskinn vex með vaxandi starfi Næst tókum við tali Sigurjón Bjarnason formann Ungmenna- og íþróttasambands Austur- lands. Hann sagði m.a.: — Mesturávinninguraf starfi ungmennafélagshreyfingarinn- ar er tvimælalaust sigur í sjálf- stæðisbaráttu islenzku þjóðar- innar, auk þess, sem félags- þroski þjóðarinnar hefur ávallt sveiflaztmeð starfi ungmenna- félaganna. Höfuðverkefni framtíðarinn- ar hlýtur að vera að gera hverj- um einstaklingi það Ijóst að hann verði að taka ábyrga af- stöðu til náungans þannig að fé- lagshyggja þroskist meðal ís- lendinga. A þann hátteinan get- um við staðið vörð um sjálf- stæðissigra okkar. Mér sýnist vera farið að gæta verulegs undanhalds i sjálf- stæðismálinu. Birtist það und- anhald einkum á efnahagsleg- um sviðum en þó einnig I við- tækari þjóðfélagslegri mynd. Stefán Tryggvason Þj óömálaumræðan mætti vera meiri Einn af fulltrúum Ungmenna- sambands Kjalarnesþings var Stefán Tryggvason i Skrauthól- um á Kjalarnesi. Hann hafði m.a. þetta að segja um afmælis- þing félagsins og framtíðar- verkefni: — Það er af nógu að taka þeg- ar litið er til helztu verkefna UMFÍ næstu árin. Má þar nefna þjónustumiðstöð samtakanna I Reykjavik, en á þessu þingi var mælzt til þess að samtökin stefnduaðþviaöeignastþak yf- ir höfuðið. Slík miðstöð myndi efla allt starf ungmennafélag- anna og auövelda samskipti að- ildarfélaganna jafnt innanlands sem samskipti við hliðstæð félög i nágrannalöndunum. Þá vil ég nefna uppbyggingu i Þrastarskógi, landi Ungmenna- félags tslands. Það verkefni er ofarlega i minum huga, og þar er mikið verk óunnið. Þar er möguleiki a,ð koma upp æfinga- búðum, orlofsheimili, funda- og félagsaðstöðu, svo eitthvað sé nefnt. Hér þarf að gera átak, og er full þörf á að stjórn UMFl beiti sér fyrir miklum umbótum jafnframt þvi, sem nauðsynlegt er að kynna þennan fagra stað meira fyrir landsmönnum. Þetta þing mótaðist eðlilega mikið af næsta stórverkefni UMFÍ, þar sem 16. landsmót fé- lgsins að ári er. Landsmótin eru helzti viðburður ungmennafé- laganna og verð6kuldar vissu- lega heitið Olympiuleikar is- lenzkrar æsku. Ungmennafélögin starfa fyrst og fremst i dreifbýli og úti um landið, og fer starfið sifellt vax- andi. Ungmennafélagshreyfing- unni hefur tekizt að samræma starfið að stöðunni á hverjum stað, og að starfið skuli sitellt aukast, er fyrst og fremst að þakka mikilli skipulagningu og erindrekstri stjórnar og fram- kvæmdastjóra UMFÍ. Að lokum vil ég geta þess að ég saknaði þess, að ekki skyldi vera meiri þjóðmálaumræða á þessu þingi. Slík umræða finnst mér eigi að vera þar og má t.d. nefna afstöðu manna til herset- unnar, stóriðju, landverndar og landnýtingar. Sigurður Geirdal Stjórn UMFt, varastjórn og starfslið. Taliö frá vinstri: 1 fremri röð Jón Guöbjörnsson, Hafsteinn Kristjánsson ritstjóri Skinfaxa, Ingólfur Sngólfur Steindórsson, Björn Agústsson, Hafsteinn Jó- hannesson, Diðrik Ilaraldsson, Bergur Torfason, Liija Steingrimsdóttir, skrifstofustúlka, Sigurö- ur Geirdai, framkvæmdastjóri. — Timamynd: MÓ t lok þingsins á Þingvöllum var haldið veglegt hóf til þess að minnast 70 ára afmælisins. Máttur hreyfingarinnar mikill Loks náðum við tali af Sigurði Geirdal framkvæmdast jóra UMFÍ. Hann sagði m.a. — Að loknu þessu þingi er mér efst i huga sú bjartsýni á mátt hreyfingarinnar, sem greinilega kemur fram i þeim á- lyktunum, sem þingið sam- þykkti. Þessi bjartsýni er efa- laust afleiðing þess að ung- mennafélögin hafa verið i örum vexti á siðustu árum. Tekizt hefur verið á við stór verkefni, og þau hefur tekizt að leysa, enda er skipulag hreyfingarinn- ar ætið endurbætt eftir þörfum hvers tima. Um hvað framundan er mætti margt segja. En nú læt ég nægja að nefna að þetta þing sam- þykkti ályktanir um fjölmörg stór verkefni, sem við munum fást við i náinni framtið. Okkar verk er að vinna fyrir æsku þessa lands og fá hana virka til starfa. En þegar spurt er um hverju ungmennafélögin hafi fengið á- orkað á þessum sjötiu árum, er þvi fljótsvarað. Það þarf félags- legan þroska til þess að lýðræðið þrffist og verði virkt. Ung- mennafélögin hafa verið nefnd félagsmálaskóli þjóðarinnar og sem slik hafa þau haft áhrif á fjölmarga þætti i félags- og menningarlffi okkar. MÓ. Bílaleiga Höfum til leigu Vauxhall Viva. Sparneytinn, þægilegur, öruggur. Berg s.f. Skemmuvegi 16 Kópavogi. Simi 7-67-22. Kvöld og helgar simi 7-20-58. \ Auglýsicf í : í Tímanum: Alternatorar og startarar í Chevrolet, Ford, Dodge, Wagoneer, Fiat o.fl. i stærð- um 35-63 amp. 12 & 24 volt. Verð á alternator frá kr. 10.800. Verð á startara frá kr. 13.850. Amerisk úrvalsvara. Viðgerðir á alternatorum og störturum. Póstsendum. Verzlunin Hof, Ingólfsstræti 1 Nú líður að þvi að saumaklúbbar og kven- félög hefji störf sin eftir sumarið. Er þvi tilvalið tækifæri að lita inn i Hof og gera góð kaup. Hannyrðavörur og efni á kjaraverði. Ódýrt þvottavélagarn i skólapeysuna, — ennfremur mikið úrval af fallegum gjafa- vörum. Verzlunin Hof, Ingólfsstræti 1 BÍLARAF H.F. Borgartúni 19 Sími 24-700

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.