Tíminn - 30.09.1977, Síða 1
1
GISTING
MORGUNVERÐUR
SÍMI 2 88 66
v.
ila 4
r y rir
vörubiláf*^
Sturtu-
grindúr
Sturtu
dælur
Sturtu
drif
— 30 þús. gestir
komnir
Kás-Reykjavik í gær heimsótti
forseti tslands Iðnkynninguna I
Laugardalshöll. Hann dvaldi i
tæpar þrjár klukkustundir á
sýningunni og var leystur út
með gjöfum á mörgum stöðum.
Að sögn Geirs Thorsteinsson-
ar framkvæmdastjóra Iðnkynn-
ingar i Laugardalshöll voru um
þrjátiu þúsund manns búnir að
heimsækja sýninguna i gær-
kvöldi, en vonazt er til að gestir
að gestir veröi nálægt fimmtlu
þúsundum þegar yfir lykur.
Þá sagði Geir, að þeir væru
bjartsýnir þessa stundina eins
og endranær. Nú eru aðeins þrir
dagar eftir af sýningunni, en
henni lýkur á sunnudagskvöld
með pompi og prakt, svo fólk
þarf að fara að drifa sig, ef það
ætlar ekki að missa af þessum
einstæða viðburði. En Geir bætti
þvi við, að þetta væri sýning
sem enginn mætti missa af.
Þrír
dagar
eftir
Sigur skvnseminnar ef sáttatillagan yrði samþykkt:
„Verkfall er forngripur
— segir Jón Sigurðsson, ráðuneytisstjóri, í opnu bréfi til
f élaga í BSHB
99
Kás-Rvk. — ,,Þið rikisstarfs-
menn, en ekki forystumenn ykk-
ar einir, eruð hins vegar að taka
ákvörðun um verkfall. Þetta eru.
þið að gera I fyrsta skipti og eigið
þvi hvorki að vera bundin af
ákefð forystunnar né þeirri hefð,
sem frá gömlum tima rfkir innan
verkalýðshreyfingarinnar um
meðferð verkfallsréttarins. Það
væri mikill sigur skynseminnar
yfir þessari gömlu skaðiegu verk-
fallshefð, ef þið félagar BSRB af-
neituðuð þvf að beita verkfaiii til
að knýja fram kröfur ykkar
frekar en orðið er, ekki vegna
þess hversu sáttatillagan sé góð,
heldur vegna þess hversu hinn
kosturinn sé vondur”. Á þessa
ieið segir Jon Sigurðsson, ráðu-
neytisstjóri i fjármálaráðuneyt-
inu, i opnu bréfi til félaga i BSRB
og birtist hér I biaðinu i dag.
Hann segir ennfremur: „Verk-
fallsrétturinn á sinn stað i
réttindabaráttu verkalýðsins, en
verkfall er forngripur. Það á að
leggja af I siðuðu þjóðfélagi af
sömu ástæðu og vfö höfum lagt
niður vlgaferli. Hvorugt er skyn-
samleg aðferð eða siðuðum
mönnum sæmandi til að útkljá
deilu.”
Þá segir Jón að það láti nærri
að hverjir tveir vinnudagar I
verkfalli kosti rikisstarfsmann-
inn 1% af árslaunum sinum. Sex
vinnudaga verkfall og samning-
ur að þvi loknu um 3% kauphækk-
un umfram sáttatillögu, gerir
rikisstarfsmanninn jafnsettan
eftiráriðeins og hann hefði verið,
ef sáttatillagan hefði verið sam-
þykkt. Þriggja vikna verkfall og
7% hækkun frá sáttatillögu að þvi
loknu gerði rlkisstarfsmanninn
sömuleiðis jafnsettan eftir árið.
Jón Sigurðsson ræðir einnig að-
stöðu fjármálaráðherra til samn-
inga og segir m.a., að hverjum
manni geti verið ljóst að ráðherra
hljóti að vera bundinn ASI-samn-
ingunum frá sl. vetri að nokkru
leyti, enda yrði hvert skref sem
ráðherra stigi umfram þá samn-
inga, efni i harða gagnrýni, hvað
svo sem BSRB félögum kynni að
þykja um sanngirni sinna krafna.
Sjá nánar á bls. 8-9
Jón Sigurðsson
Steinefnavinnsla og blönd-
un olíumalar á Heyðafirði
Hin nýja vélasamstæða við Melshorn við Seljateigshjáleigu.
mynd: Sigmar Hjelm.
Tlma-
— Fyrir skömmu er hafin vinnsla
steinefna og blöndun oliumaiar
fyrir Austuriand i svonefndu
Melshorni við Seijateigshjáleigu
innan við Reyðarfjörð, sagði Sig-
mar Hjelm fréttaritari Tlmans á
Eskifirði. Á að blanda þarna átta
til tiu þúsund lestir, sem nota skal
á götur I bæjum og kauptúnum á
Austurlandi
Fyrirtækið Grettistak, sem er
sameign Oliumalar hf. og Sauð-
árkrókskaupstaðar hefur nýverið
keypt til landsins vélasamstæðu
frá Sviþjóð, og tvimalar þessi
vélasamstæða efnið, sem i blönd-
una á að fara og skiptir þvi I tvo
stærðarflokka. Er afkastageta
hennar fjögur hundruð rúmmetr-
ar á átta til tiu klukkustundum,
og má einnig nota vélarnar til
þess að vinna efni, er.nota skal i
steinsteypu.
Verð þessarar samstæðu, sem
er af mjög fullkominni gerð og
mikið til sjálfvirk, er á milli
fjörutiu og fjörutlu og fimm
milljónir króna, að sögn þeirra
Þóris Hilmarssonar, bæjarstóra á
Sauðárkróki, og Benedikts Boga-
sonar verkfræðings, sem eru
aðalfyrirsvarsmenn fyrirtækis-
íns.
Með vélasamstæðunni komu
fimm Sviar, sem sáu um uppsetn-
ingu á henni og frumprófanir.
Timinn birtir i dag viðtai við Kristin Jónsson, tilraunastjóra a
Sámsstöðum. Tilraunastöðin þar varð fimmtug á siðast liðnu vori,
og I viðtalinu er rætt um margt, sem gert hcfur verið á Sámsstöð-
um, siðastliöna hálfa öld.og einnig um viðfan£sefni liðandi stund-
ar og I næstu framtlö. Að lokum er vikiö að skógrækt, en skilyrði
til 6kógræktar eru ágætl Fljótshlið eins og skógræktarstööin I
Tumastööum er órækast vitni um.