Tíminn - 30.09.1977, Blaðsíða 8

Tíminn - 30.09.1977, Blaðsíða 8
8 Föstudagur 30. september 1977 Opið bréf til félaga í Bandalagi starfsmanna rikis og bæja frá Jóni Sig- urðssyni, ráðuneytis- stjóra i fj ármála- ráðuneytinu um stöðu í samninga- málum BSRB og væntanlega atkvæða- greiðslu um sátta tillögu sáttanefndar Þessa dagana fer fram mikil umræða meðal ykkar rikis- starfsmanna, sem eruö aöilar aö BSRB, um sáttatillögu sátta- nefndar sem innan fárra daga verður lögð til leynilegrar at- kvæöagreiðslu í ykkar hóp. Fundir eru haldnir um allt land til að skýra tillöguna og trúlega er hún mikið rædd á hinum ýmsu vinnustöðum. öll fer þessi umræöa hins vegar fram i ljósi þess að forystumenn BSRB og einstakra félaga þess hafa skor- að á hina almennu félagsmenn að fylkja liði og fella tillöguna og þar með ryöja úr vegi siðustu fyrirstöðunni, sem lögum sam- kvæmterfyrirviðtæku verkfalli ykkar rikisstarfsmanna sem hér eigið i hlut. Kjaradeilur og verkföll vilja garna verða mikil hita- og til- finningamál. Þetta á ekki hvað sizt við um þessa deilu eftir aö forystumenn samtakanna ákváðu að beita sér gegn sátta- tillögunni. ER hætt við að þessa dagana sé þeim meira mál að tillagansé felld en nákvæmlega hvað I henni stendur eða af henni leiðir. Sér þessa greinileg merki I f jölmiðlum hina siöustu daga. NU kann vel aö vera, aö sátta- tillagan eigi enga betri meöferö skilið en vera felld. Svo mikið er vist aö þeir embættismenn sem tillöguna hafa gerst skoöaö telja ýmsa ráðstöfun fjármuna til sérhópa, sem hún felur I sér illa ráöna, sé litið burt frá þeim kostnaði, sem hún heföi I för með sér og leggja verður undir pólitiskt mat. A hinn bóginn er nauösynlegt að hvert og eitt ykkar sem at- kvæði greiðið um tillöguna haldi áttum þrátt fyrir áróöurinn sem á ykkur dynur og hverju einu ykkar sé sem allra ljósast hver ykkar afstaða er fyrir atkvæöa- greiösluna og eftir á, hvorn veg- inn sem hún fer. Hluti af þessari heildarmynd er stjórnmálaleg aðstaða fjármálaráöherra i þessum samningum. Égsem þetta skrifa hef fundið mig knúinn til að freista þess að gefa hér hlutlæga mynd af þess- ari aðstöðu. Þaö er embættis- skylda min gagnvart minum ráðherra en ég finn einnig til sömu skyldu gagnvart ykkur semég tel mig jöfnum höndum þjóna meðan ég gegni mlnu nú- verandi starfi. Kjarabætur án fórna Fyrir liggur að sáttatillagan felur I sér almenna launa- hækkun sem er svipuð þvl sem um var samið i almennu kjara- samningunum á s.l. sumri 26- 27% frá mailaunum eða 9,1- 16,2% hækkun á septemberlaun. Þar fyrir utan felur tillagan I sér ýmsar sérhækkanir og kjarabætur einstakra hópa sem i heild eru metnar sem 5-6% hækkun launaútgjalda rikisins. Þá snýst tillagan einungis um aðalkjarasamning. Sérkjara- samningar við einstök félög mundu óhjákvæmilega leiða til einhverra kjarabóta einstakra manna eða starfshópa. Loks hefur verið litið haldið á lofti, að tillagan gefur ávinning I samanburði viö ASt-samning- ana vegna hlutfallslegra hækk- ana launa og verðbota.Ekki er ljóst hversu þungt þetta atriöi vegur. Við höfum þó dæmi til visbendingar um þennan ávinn- ing. Sé gert ráð fyrir 8% breytingu vlsitölu hinn 1. desember og borin saman laun tveggja starfsmanna sem I mai höfðu jöfn laun sem svöruðu til hámarkslauna i 13. lfl. BSRB, annar eftir ASI samningi en hinn BSRB samningi verða mánaðarlaun I desember 149.727 kr. fyrir ASÍ manninn, en 175.251 kr. fyrir BSRB félag- ann, eða sem svarar rúmum 25 þús. kr. mismun á mánuöi. Meö bréfiþessu eru birt nokkur frekari dæmi um hinar raun- verulegu launabreytingar sem sáttatillagan felur i sér. Þó ekki sé ljóst hvernig fjár- málaráðherra greiðir atkvæði um sáttatillöguna má telja full- víst hveriig sem það atkvæði fellur, að samþykki tillögunnar af hálfu rikisstarfsmanna munditryggja þeimkjör hennar eða því sem næst án nokkurra fórna af þeirra hálfu. Við það verður þvi mat hvers og eins ykkar rikisstarfsmanna að mið- ast, þegar þið ákveöiö afstöðu ykkar til sáttatillögunnar. Hvað kostar verkfall? Þvi sjónarmiði hefur verið hreyftað ekki þurfi að koma til verkfalls þótt sáttatillaga yrði felld. Nýjum samningum mætti ná milli þess sem úrslit at- kvæöagreiðslunnar lægju fyrir og verkfall er boðað. Þetta tel ég mjög ótrúlegt. Ég tel með ólikindum að á ör- fáumdögum semjist um neitt það sem forráðamenn BSRB téldu sér fært að bjóða sinum félagsmönnum að ný- felldri sáttatillögu. Máliö væri þvi i siálfheldu og svo virðist sem samninganefnd BSRB hafi ekki neitt vald tilaðfresta verk- falli fram yfir þann dag sem nú hefur veriö ákveðinn af sátta- nefnd. Þvl tel ég ekki raunhæft að telja annað en fallin sátta- tillaga muni leiða til verkfalls. Þá er að líta á, hver er fórn rikisstarfsmannsins i verkfalli. Nærri lætur að hverjir tveir vinnudagar i verkfalli kosti rikisstarfsmanninn 1% árs- launa. 6 vinnudaga vertóall og samningur að þvi loknu um 3% kauphækkun umfram sáttatil- lögu gerir rikisstarfsmanninn þannig jafnsettan eftir árið eins og hann hefði verið ef sáttatil- lagan var samþykkt. Þriggja vikna verkfall og7% hækkun frá sáttatillögu aö þvi loknu gerði rikisstarfsmanninn sömuleiðis jafnsettan eftir árið og sáttatil- lagan heföi verið samþykkt. A samningstímanum mundu þess- ar hækkanir hafa heildaráhrif sem nemur 1,5% og 3,5% af launum. A hinn bóginn væri upp hafspunktur næstu samninga sem þessu næmi hærri. Þessi fórn rikisstarfsmanna kæmi mjög misjafnt niður. Ýmsirfélagar BSRB mega ekki leggja niður vinnu og missa þvi einskisienfá allan ávinninginn. Að þvi leyti er BSRB illa i stakk búið til verkfalls fyrr en þvi væri komið á, að þeir sem vinna deildu launum með hin- um, sem ekki vinna i verkfalli. Niðurstaða þessara bollalegg- inga er sú, að samningar, sem gerðir yrðu i lok verkfalls yrðu að vera mjög verulega hærri en sáttatillagan til að gefa rikis- starfsmönnum umtalsveröan nettóávinning af verkfalli á samningstimanum. Aðstaða ráðherrans Næst verður fyrir að skoða hver er aöstaða fjármálaráö- herra til samninga eftir að BSRB hefði fellt sáttatillöguna. Hér er fjallaö um svið þar sem pólitiskt mat verður að ráöa um niöurstöður. SliTít mat get ég ekki lagt á þetta mál. Hins vegar eru hverjum manni ljósarýmsaraðstæðursem gera fjármálaráðherra erfitt fyrir um slika samninga. ASÍ samningana s.l. sumar ber þar hæst. Hvert skref sem ráðherra stigi i samningum við rlkis- starfsmenn umfram þá samninga væri efni I harða gagnrýni hvað svo sem BSRB félögum kann að þykja um sanngirni sinna krafna. Vegna þessa ætla ég að samningar i yfirvofandi verk- falli gætu orðið mjög erfiðir. Fjármálaráðherra fyndi á sér brenna samanburöinn við breytingarnar á almenna markaðnum og forráðamenn BSRB teldu sig ekki geta gengið frá samningum nema sú ákvörðun að fella sáttatillög- una, skilaði verulegum árangri. Framhjá því verður ekki komizt að sáttatillagan gefur verka- fólki innan BSRB, svo dæmi sé tekið 104-108 þús. kr. mánaðar- kaup I september en hæstu Sóknarkonur á spitölunum hafa þá tæp lOOþúskr. i laun. Er sizt aö undra þótt ráðherra eigi er- fitt um vik að auka þennan launamun. Vegna þess tel ég liklegt að verkfall ef til kæmi gæti dregizt mikið á langinn. Það tel ég þvi einnig eigi að hafa i huga þegar afstaðan til sátta- tillögunnar er ákveðin. Verkfall er forngripur Þetta bréf vildi ég hafa skrifað ykkur rfkisstarfsmenn, sem eigið að ákveða hvort tií verkfalls ykkar skuli koma eða ekki. Fram að þessu hefur bréf- ið verið hlutlægt. Það sem hér fer á eftir, er það ekki. Þiö hafið fengið ráð ykkar for- ystumanna sem eflaust eru gef- in af góðum hug og fyllstu sann- færingu um góðan málstaö. Þessir forystumenn hafa hins vegar árum saman barizt fyrir verkfallsrétti rlkisstarfsmanna og þeim er vorkunn að hvetja til þessað sá réttur verði nú látinn sanna ágæti sitt. Þeim mun meiri yrði ljóminn sem þeir fyndu á sig falla. Þið rlkisstarfsmenn en ekki forystumenn ykkar einir eruð hins vegar að taka ákvörðun um verkfEll. Þetta eruð þið að gera i fyrsta skipti og eigið þvi hvorki að vera bundin af ákefð foryst- unnar né þeirri hefð sem frá gömlum tíma rikirinnan verka- lýðshreyfingarinnar um með- ferð verkfallsréttarins. Það væri mikill sigur skynseminnar yfir þessari gömlu skaðlegu verkfallshefð, ef þið félagar BSRB afneituðuð þvl að beita verkfalli til að knýja fram kröf- ur ykkar frekar en orðið er, ekki vegna þess hversu sáttatillagan sé góð heldur vegna þess hversu hinn kosturinn er vondur. Verk- fallsrétturinn á sinn stað i réttindabaráttu verkalýðsins en verkfall er forngripur. Það á að leggja af i siðuðu þjóðfélagi af sömu ástæðu og við höfum lagt niður vlgaferli. Hvorugt er skynsamleg aðferðeða siðuðum mönnum sæmandi til að útkljá deilu. Þeir eru sjálfsagt fáir ríkis- starfsmenn sem eru svo vel haldnir I launum að þeir þurfi ekki meira. Engu að slður freistast ég til að rifja upp gamla húsganginn: Margur ágirnist meir en þarf maður fór að veiða skarf og hafði fengið fjóra. Elti þann fimmta en I því hvarf ofan fyrir bergið stóra. Með þessum orðum bið ég menn telja vandlega sina skarfa áður en til atkvæðagreiöslunnar kemur. Reykjavik 26.09. 1977 Jón Sigurðsson V E.S. Gangnamenn BSRB smala landið þessa daga. Þeir leita ekki eftir mati ykkar hvers og eins á þvi, hvað gera skuli heldurheimta algera samstöðu. Ég trúi ekkifyrr en ég tek á þvi, aö rikisstarfsmenn láti reka sig þannig til réttar. JS Sáttatillaga: Dæmi um launabreytingar. BSRB laun hækka um 51% þegar ASi laun hækka um 29%. Laun i mai 1977 skv. lfl. B-13, 3. þrepi voru 115.767 kr. Yiirlitið sýnir, hvernig þau laun verða i desember miðað við spá um verðlagsþróun, hækki launin annars vegar eft- ir reglum um verðbætur og áfangahækkanir er ASI samdi um og hins vegar I samræmi við samninga BSRB og ákvæði sáttatillögunnar. 3604 stöðugildi eru i launaflokkunum 11.-15. Mal-laun ASÍ 115.767 BSRB 115.767 7.791 6,73% verðlagshækkun Júni-laun 115.767 123.558 18.000 Grunnkaupshækkun 23. júnl 4.942 4% grunnkaupshækkun 1. 20.745 Grunnkaupshækkun sáttatil- lögu Júli-laun 133.767 3.520 149.245 5.970 4% verðbótahækkun SeDtem- ber-laun 137.287 155.215 2.328 1,5% grunnkaupshækkun skv. sáttatillögu Nóvem- ber-laun 137.287 7.440 5.000 157.543 12.603 8% verðbót 1. desember 5.105 Grunnkaupshækkun 5000 kr. skv. ASl og 3% skv. sáttatillögu Desem - berlaun 149.727 175.251 Hækkun BSRB er 25.524 kr. umfram ASÍen báöir aöilar höfðu jöfn mai-laun. 1 dæmi þessi er ekki reiknað með hækkunum vegna ákvæða i sérsamningum ASI-félaga né heldur áætluð hækkun vegna væntanlegra sérsamninga BSRB.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.