Tíminn - 30.09.1977, Síða 5
Föstudagur 30. september 1977
5
á víðavangi
Grimmd
og gleði
Eins og kunnugt er standa
nú vfir miklar umræður i
stjórnmálaflokkunum um til-
högun við ákvarðanir um
framboð i næstu kosningum.
Alþýðuflokkurinn heldur próf-
kjör I öllum kjördæmum og
virðist hæpið að hann muni
lifa þau af. Sjálfstæðismenn
efna væntanlega til einhverra
forkosninga, a.m.k. hefur ver-
ið talað um slikt I Reykjavik.
Fyrir liggur að samtök fram-
sóknarmanna I nokkrum kjör-
dæmum hafa ákveðið að við-
hafa skoðanakönnun (sem er
ekki bindandi um uppstill-
ingu) eða prófkjör (sem er
bindandihPrófkjör hefur þeg-
ar farið fram á Vestfjörðum
og hefur verið ákveðið I
Norðurlandskjördæmi vestra,
en umræður standa um tilhög-
un málsins á Suðurlandi,
Vesturlandi og víðar. t
Reykjavik mun ráðið að hafa
prófkjör til alþingisframboðs,
og margir hafa mikinn hug á
að viðhafa það lika til borgar-
stjórnarframboðs.
Það hefur komið fram I
Timanum, og öðrum blöðum
einnig, að sitt sýnist hverjum
um prófkjör og skoðana-
kannanir. Hefur það greini-
lega komið fram að ekkert er i
þessum efnum gallalaust.
Flestir hafa þó verið um það
eindóma að einhverjar aðferð-
irafþessu tagiséu eðlilegar til
þess að tryggja lýðræðislega
ákvörðun. Um leið hefur þvi
veriðhaldið fram að með for-
kosningum af einhverju tagi
sé almennum flokksmönnum
og áhugamönnum um þjóð-
málin gefinn kostur á að koma
fram og leita eftir stuðningi
sem ella væri ógerningur.
í Viðavangsþáttum Timans
hefur það og verið sagt að
prófkjör yrðu að teljast nokk-
ur úrbót á þvi takmarkaða
lýðræði sem viögengst þegar
kjósendur geta aðeins valið
um lista, en hafa ekkifæri á að
velja um einstaka menn þegar
kosið er til þings eða annars
trúnaðar.
Gleðin
Alþýðubandalagið hefur al-
veg skorið sig úr að þvi er lýt-
ur að tilhögun þessara mála. t
Þjóðviljanum, sem og I sjón-
varpi og á fundum, hafa for-
ráðamenn þess reynt allt hvaö
gátu til að gera lítið úr öllum
tilraunum manna til að auka
lýðræðið f pólitiskum
ákvörðunum, og ætti þetta
engum að koma á óvart. Al-
þýðubandalagsmenn þykjast
hafa yfiraö ráða miklu „hent-
ugri” aðferöum við framboð
en lýðræðið hefur upp á að
bjóða. Hefur þar mest borið á
„miðstýrðu lýðræði”, sem
Jósef heitinn Stalfn tiðkaöi svo
m jög, en það felst í þvf að fólk-
ið er látið standa upp og
klappa þegar foringjanum
sýnist. Foringinn gefur bara
merki og þá fara allir að
klappa, svo gefur foringinn
annað merki og þá hætta allir
að klappa.
Og þessar athafnir slnar
iðka Alþýðubandalagsmenn af
miklum fögnuði. Ekki er ör-
grannt um að háöslegrar
kátinu gæti einnig litillega,
eða svo er að sjá að það
húllumhæ sem þeir efndu til á
Vestfjörðum nýlega, Kjartani
ólafssyni ritstjóra til aukinn-
ar vegsemdar, hafi einkum
verið til þess fallið að keppa
við skem mtikrafta eins og
Ragnar Bjarnason eða Ólaf
Gauk, ef marka má frásagnir
Þjóðviljans. Er það blað þó að
öðru jöfnu laust við gaman-
semi.
Eina
sambandið
Frásögnin hefst á þvi að lýst
er válegu ástandi I innan-
flokksmálum Alþýðubanda-
lagsins. Segir þar heimildar-
maður blaðsins að þvi fari
fjarri að samband forystu-
mannanna I Reykjavlk sé
nægilega gott við stuðnings-
mennina úti um land. Siðan
segir heimildarmaðurinn:
„Þaö má segja að Kjartan
Ólafsson sé eina beina sam-
„eina sambandið”
bandið sem við höfum við
höfuöstöðvarnar i Reykja-
vík.”
Við þessi orð mun ástæða til
að staldra um stund og hafa
nokkra andagt.
Heimildarmaður Þjóðvilj-
ans heldur áfram:
, ,Er stundum freistast til að
dubba til fulltrúa fólk sem er
við nám I Reykjavík. En
skólafólk er oft á tiðum laust
við heimastöðvarnar og sú
reynsla sem þvi safnast skil-
ast þess vegna illa heim i
hérað.”
Ja-hérna.
Þegar Þjóðviljinn býst til að
iýsa húllumhæ-i alþýðubanda-
lagsmanna þar vestra er
trautt að sjá hvort gamanið er
tekið að kárna eða hvort
skemmtanin er orðin að hrein-
um ærslum. Um framsögu-
ræður Kjartans ólafssonar,
sem er „eina sambandið” eins
og páfinn, og Ragnars Arn-
alds, sem er alls ekki neitt
samband, segir blaðið:
„Menn höfðu reyndar á orði
að þeir yrðu varla svona stutt-
orðir I þinginu enda var Kjart-
an óspar á að ógna mönnum
með „löngu ræðunni”, sem þó
kom aldrei.”
Enn
grimmari
Það er greinilegt aö menn
ekkert samband
hafa taliö þörf á aö hafa stjórn
á gleðskapnum. Þannig segir
Þjóðviljinn frá þvl að fundar-
stjórinn annan daginn hafi
ekki látið
„menn komast upp með
neinn moðreyk”.
Og um fundarstjórann siðari
fundardaginn segir blaðið að
hann hafi reynzt
„enn grimmari”.
Hamingjan sanna.
Grimmastur
Segja má að Alþýðubanda-
lagsmenn þar vestra hafi
næsta fjölbreytilegar ástæður
til kátlnu um þessar mundir.
Þau dæmi sem hér hafa veriö
nefnd eru þó ekki nema upp-
takturinn að þeim fagnaði sem
fram kemur siðar I frásögn
Þjóöviljans af hinum glæsi-
lega samsöng. Þannig ber við
að frá Bolungarvik er gerður
út fiskibátur sem heitir hvorki
meira néminna en Kari Marx.
Hefði margt skipiö sokkið
undir léttara nafni, en svo er
ekki um farkost þennan. Af
þeim útvegi segir Þjóðviljinn:
„Ja, það er náttúrlega hug-
myndafræðin sem skiptir
máli, séröu, benti Hallgrlmur
á af bragði. — Varðandi hana
er áhöfnin náttúrlega ólikt
betur I stakk búin en áður. —
Hallgrimurbætti þvl við að út-
gerðin gengi skltsæmilega
þrátt fyrir aö Kristján
Ragnarsson væri slfellt að
barma sér fyrir hönd „okkar
útgerðarmanna” eins og þaö
væri orðað. Það eitt út af fyrir
sig væri náttúrlega Ijóst dæmi
um yfirburði sósialismans. Og
gegn svo kraftmikilli rök-
semdafærslu áttu hvorki aörir
áhafnarmeðlimir né Þjóð-
viljasnápur nokkra mótbáru.”
Þegar er slitið hafði verið
gleðisa m k v æm i Alþýðu-
bandalagsmanna á Vestfjörð-
um brá ólafur Jónsson,
kommissar þeirra I „höfuð-
stöðvunum”, við og kunngerði
að vel kæmi til greina að efnt
yrði til prófkjörs innan flokks-
ins I Reykjavik. Er sizt að
undra sllk viðbrögð.
JS
Jóhann við eitt verka sinna.
Jóhann G. Jóhannsson sýnir
í Hamragörðum
Jóhann G. Jóhannsson heldur
nú málverkasýningu að Hamra-
görðum, Hávallagötu 24. Sýningin
var opnuð 24. sept. og stendur til
2. október, sýningartimi er frá 4
til 10 alla dagana. Myndirnar sem
Jóhann sýnir eru allar málaðar á
þessu ári og verðið er frá 50 þús.
upp I 250 þús. Jóhann hefur þegar
selt tiu myndir.
Listmuna- og forngripa-
kaupstefna i Gautaborg
SJ-Reykjavik. Alþjóðleg List-
muna- og forngripakaupstefna
verður haldin 12.-20. nóvember i
Gautaborg. Er þetta i þriðja sinn
sem slik kaupstefna er haldin
þar. I fyrra tóku 65 aöilar þátt i
kaupstefnunni, en nú hafa þegar
yfir 80 tilkynnt þátttöku, og fleiri
gætu bætzt við næsta mánuðinn.
Listmuna- og fomgripasalarnir,
sem þátt taka, eru frá Englandi,
Hollandi, Vestur Þýzkalandi,
Austurriki og Sviþjóð.
Húsgögn, leirmunir, glervörur
og postulinsgripir, sem á kaup-
stefnunni verða, eru frá þvi fyrir
1840, og silfur og tingripir frá þvi
fyrir 1850. Þessir munireru I góðu
ásigkomulagi. A sömu deild og
þessir gripir verða einnig fri-
merkiog mynt. Dómnefnd skoðar
þessa muni áður en þeir hljóta
samþykki.
Mikið veröur um gömul mál-
verk á kaupstefnunni. Heill salur
verður helgaður nútimalist, og
sýna þar um tiu listaverkasalar.
Meðal annars verða þarna frum-
myndir af frimerkjaflokki, sem
er að koma út i Sviþjöð, „Villt
ber” heitir hann.Lennart Helje
málari frá Vestur Sviþjóð teikn-
aði.
Motorola Alternatorar
í bila og báta.
6/12/24/32 volta.
Platinulausar transistor-
kveikjur I flesta blla.
HOBART rafsuöuvélar.
Haukur og Ólafur hf. Armúla
32, Simi 37700.
| Auglýsítf í
: í Timanum {
Jörð til sölu
Til sölu er eyðijörðin Gularáshjáleiga i
A-Landeyjum.
Kauptilboð sendist til ólafs Ólafssonar
Kaupfélagsstjóra Hvolsvelli.
'&^aupfélag
angseinga
Með því að sækja iðnkynninguna
færð þú afsláttarkort sem gilda í fjölda
verslana og verksmiðja.
Viljir þú versla á staðnum býðst þér
kynningarafsláttur af verði margrar
vöru.
Þessi föstudagur getur því orðið þér
til verulegs fjár.
Gjöf til gests dagsins:
Stóll frá Gamla Kompaníinu og allar
bækur Bókaklúbbs AB 22 bindi.
p IÐNKYNNING „
■ Bi LAUGARDALSHOLL
É