Tíminn - 30.09.1977, Blaðsíða 9
Föstudagur 30. september 1977
9
Úr sáttatillögu:
Hækkun septemberlauna hjúkrunarfræð-
ings: 40.430 kr. eða 24,95%.
Iijúkrunarfræðingur, sem gengur þriskiptar vaktir (40
klst. vinnuviku) fær septemberlaun (föst laun og vakta-
álag) er nema
160.467 kr.
Sambærileg septemberlaun skv. sáttatillögu verða
200.510 kr.
1 liö 1.4.2 i sáttatillögu segir svo:
„Að þvi er stefnt, að próf, sem lögum samkvæmt veita
starfsmönnum sömu starfsréttindi, verði jafngild til
launa án tillits til þess, á hvaða tima þau hafa verið tek-
Sé efni málsgreinar þessarar túlkað með varfærni ætti
það að þýða tilfærslu þeirra hjúkrunarfræðinga, sem eigi
eru í efsta flokki upp um einn flokk. Hjúkrunarfræðingur,
sem nú er 112. lfl. ætti þvi að lenda 113. lfl.
1 lið 1.6. 1 I sáttatillögu segir,
,,að vaktaálag skuli vera 45% af dagvinnukaupi i lfl. B-ll
á tfmabilinu frá kl. 0.00 til 8.00 svo og á laugardögum,
sunnudögum og sérstökum fridögum, en 90% á stór-
hátiðardögum.”
Skv. núgildandi samningi er vaktaálag 33,33% þó tvöfalt á
stórhátiðardögum.
Hjúkrunarfræðingur, sem nú tekur laun skv. 3. þrepi 12.
lfl. fær I föst septemberlaun
129.778kr.
Vaktaálagiseptember 30.689 kr.
Samtals 160.467 kr.
Sáttatillagan gerir ráð fyrir mánaðarlaunum i 13. lfl. 3. þr.
155.215 kr.
Vaktaálag Iseptember 45.295 kr.
Samtals
200.510 kr.
Hækkun septemberlauna er 24,95%. Laun hækka til við-
bótar um 1,5% 1. nóv. n.k. og um 3% þar til viðbótar 1.
desember n.k.
Hjúkrunarkonur og hjúkrunarmenn bera nú öll starfsheit-
ið hjúkrunarfræðingur.
Úr sáttatillögu:
Septemberlaun kennara við 1.-6. bekk grunnskóla i 12. lfl.
3. þrepi voru: 129.778 kr.
Septemberlaun skv. sáttatillögu verði: 169.186 kr.
Hækkun septemberlauna: 39.408 kr. eða
30,37%.
1 lið 1.4.2 I sáttatillögu segir svo:
„Að þvl er stefnt, að próf, sem lögum samkvæmt veita
starfsmönnum sömu starfsréttindi, veröi jafngild til
launa án tillits til þess, á hvaða tima þau hafa verið tek-
in”.
Sé efni málsgreinar þessarar túlkaö með varfærni ætti
það að þýða tilfærslu þeirra kennara, sem eigi eru i efsta
flokki grunnskólakennara upp um einn flokk. Kennari,
sem nú er 112. lfl. ætti þvi að lenda í 13. lfl.
í lið 1.4.11 i skjali, er nefnist „Kennarar og skólastjórar”
eru teknar upp greiðslur fyrir leiðréttingu skriflegra
verkefna i grunnskóla en áður voru slikar greiðslur ein-
ungis I 7.-10. bekk.
1 lið 2.2.2 i kennaraskjali er vikuleg kennsluskylda stytt
um eina kennslustund á viku.
Liður 2.2.12 í kennaraskjali er skilinn svo, að hafi kennari
umsjón með meira en einum bekk, skuli lækka kennslu-
skyldu hans um eina einingu á viku fyrir hvern bekk um-
fram einn.
Kennari við 1.-6. bekk grunnskóla, sem nú tekur laun skv.
3. þrepi 12. lfl. fær I septemberlaun
129.778 kr.
Sáttatillagan gerir ráð fyrir mánaðarlaunum I 13. lfl. 3.
þrepi
155.215 kr.
Yfirvinnu vegna minnkaðrar kennsluskyldu dreift á 12
mánuði)
4.656 kr.
Yfirvinnu vegna umsjónar með tveimur bekkjum (dreift á
12 mánuði. Ekki eru þó allir kennarar með umsjón I 2
bekkjum).
4.656 kr.
Yfirvinnu vegna leiðréttinga verkefna (dreift á 12 mán.)
4.656 kr.
Samtals
169.183 kr.
Hækkun septemberlauna er 30,37%. Laun hækka til við-
bótar um 1,5% 1. nóv. n.k. og um 3% þar til viðbótar 1.
desember n.k. Auk þessa greiöast verðbætur á laun
þann 1. desember sk. prósentureglu.
Nýr kór
í uppsigl-
ingu
Kór Alþýðumenningar hefur.
starfsemi sina n.k. sunnudags-
kvöld, 2. október kl. 20.30 i Eddu-
hdsinu við Lindargötu i Reykja-
vik.
Kórinn flytur lög og texta sem
eru til stuðnings baráttu alþýðu-
fólks f yrir bættum IIfskjörum en á
siðasta ári hóf kórinn starfsemi
sina.
Kór Alþýðumenningar vantar
bæði söngfólk og hljóðfæraleikara
til starfa i vetur og hvetur áhuga-
fólk til að mæta á fyrstu æfinguna
á sunnudagskvöldið og taka þátt i
áframhaldandi uppbyggingu
kórsins.
Kvikmynda-
sýning í
Listasafninu
FB-Reykjavik Næst komandi
laugardag verður kvikmynda-
sýning i Listasafni íslands. Sýn-
ingin hefst klukkan þrjú, og verða
sýndar tvær kvikmyndir um
myndhöggvarana Constantin
Brancusi sem var uppi 1876 til
1957 og Ágúst Rodin, sem var uppi
1840 til 1917.
Aðgangur er öllum heimill og
ókeypis.
Styrkir
til islenskra visindamanna til námsdvalar
,og rannsóknastarfa i Sambandslýðveldinu
Þýskalandi
Þýska sendiráðið I Reykjavik hefur tjáö Islenskum
stj.órnvöldum að boönir séu fram nokkrir styrkir handa
islenskum visindamönnum til námsvaiar og
rannsóknastarfa I Sambandslýðveidinu Þýskalandi um
allt að fjögurra mánaða skeið á árinu 1978. Styrkirnir
nema 1.000 þýskum mörkum á mánuði hið iægsta, auk
þess sem til greina kemur aö greiddur veröi ferðakostnað-
ur að nokkru.
Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamála-
ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 1. nóvem-
ber n.k. Sérstök umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
26. september 1977
Styrkur til háskólanáms i Sviss.
Svissnesk stjórnvöid bjóða fram styrk handa islendingi til
háskólanáms I Sviss skólaárið 1978-79. Ætlast er til þess aö
umsækjendur lokið kandidatsprófi eða séu komnir langt
áleiðis i háskóianámi. Þeir sem þegar hafa verið mörg ár I
starfi, eða eru eldri en 35 ára, koma að ööru jöfnu ekki til
greina við styrkveitingu. Styrkfjárhæöin nemur 800
svissneskum frönkum á mánuði fyrir stúdenta, en allt að
950 frönkum fyrir kandidata. Auk þess hlýtur styrkþegi
nokkra fjárhæð til bókakaupa og er undanþeginn kennslu-
gjöldum. —Þar sem kennsla I svissneskum háskólum fer
fram annaðhvort á frönsku eða þýsku, er nauðsvnlect að
umsækjendur hafi nægilega kunnáttu I öðru hvoru þess-
ara tungumála. Þurfa þeir að vera undir það búnir að á
það verði reynt með prófi.
Umsóknum um styrk þennan skal komið til menntamála-
ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 1. nóvem-
ber n.k. — Sérstök umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
26. september 1977.
\ Berklavarnardagur
sunnudagur 2. október
Merki dagsins kosta 200 krónur og blaðið „Reykjalundur"
200 krónur. Merkið gildir sem happdrættismiði.
Vinningur er stórglæsilegt No rdmende litsjónvarpstæki
með fjarstýringu og leiktækjum, að verðmæti
450.000 krónur.
Afgreiðslustaðir merkja og blaða i Reykjavik og nágrenni:
Reykjavik: Seltjarnarnes:
S.Í.B.S., Suðurgötu 10, simi 22150 Melaskóli Mýrarhúsaskóli
Grettisgata 26, simi 13665 Kópavogur:
Eskihlíð 10, simi 16125 Langabrekka 10, simi 41034
Hrisateigur 43, simi 32777 Hrauntunga 11, simi 40958
Kambsvegur 21, simi 33558 Eikjuvogur 19, simi 30505 Vallargerði 29, simi 41095
Sólheimar 32, simi 34620 Háaleitisbraut 56, simi 33143 Háagerði 15, simi 34560 Garðabær: Barnaskóli Garðabæjar
Langagerði 94, simi 32568 Hafnarfjörður:
Árbæjarskóli Þúfubarð 11
Fellaskóli Reykjavikurvegur 34
Sölubörn komi kl. 10 árdegis — Há sölulaun
S.Í.B.S.