Tíminn - 04.12.1977, Síða 27
Sunnudagur 4. desember 1977.
27
önnur styttan sem ekkja Guömundar Einarssonar frá Miödal
hefur nú gefiö til nýja íþróttahússins viö Varmá.
íþróttahúsið
að Varmá vígt
GV — iþróttahúsiö aö Varmá i
Mosfellssveit veröur vigt sunnu-
daginn 4. des. og veröur fjölbreytt
dagskrá i tiiefni dagsins I hinu
nýja íþróttahúsi. Þangaö hefur
verið boöiö allmörgum gestum
s.s. alþingismönnum kjördæmis-
ins og ráöherrum, sem hafa
fjallaö um málefni þessarar
framkvæmdar. Ennfremur ýms-
um forystumönnum f fþrótta- og
ungmennafélagshreyfingunni og
fyrrverandi formönnum Ung-
mennafélagsins. Þá býöur
hreppsnefnd einnig öllum hrepps-
búum eftir þvi sem húsrúm leyfir
en stjórn sam íomunnar annast
sveitarstjórinn Jón Baldvinsson.
Margar gjafir hafa borizt félag-
inu og hafa margir lagt hönd á
plóginn i sjálfboðavinnu. En gjöf
ekkju Guömundar Einarssonar
frá Miðdal er þar þó merkilegust
en hún hefur gefið tvær forkunar-
fagrar höggmyndir sem hlutu
fyrstu verðlaun á listsýningu sem
haldin var á Ólympiuleikunum i
Helsinki.
Salur iþróttahússins er nú tilbú-
inn til notkunar en hann er 25
sinnum 45 metrar að flatarmáli.
Búningsherbergi eru i kjallara
sundlaugarinnar og er þar innan-
gengt. Næsti áfangi hússins
verður reistur strax og ástæður
leyfa en það eru hliðarsalir.
Móðurmálskennarar
stofna með sér samtök
A laugardag 3. desember
verður stofnfundur samtaka is-
lenzkra móðurmálskennara og
verður hann haldinn i Kennara-
háskóla Islands og hefst kl. 14.
Stofnun slíkra samtaka hefur
lengi verið á döfinni og i haust
hefur hópur kennara af öllum
skólastigum unnið að undirbún-
ingi. Móðurmálskennarar telja
sig hafa að mörgum brýnum
verkefnum að vinna og meðal
þeirra sem þeir ætla að vinna að
má nefna eftirfarandi:
1. Félagið á að vinna að vexti og
viðgangi islenzkrar tungu á öllum
sviðum.
2. Það á að efla samstarf þeirra
sem móðurmál kenna i skólum
landsins og hafa samskipti við þá
aðila utan skólanna, sem öörum
fremur hafa áhrif á þróun is-
lenzks máls.
3. Félagið á að fylgjast með
nýjungum i móðurmálskennslu
og stuðla að þvi að kennarar taki
virkan þátt i að móta kennslu,
inntak og aðferðir.
4. Félagið á að láta sig skipta
menntun móðurmálskennara og
hafa samvinnu við þær stofnanir
sem þá menntun annast.
5. Félagið á að leita eftir tengsl-
um við móðurmálskennara i
öðrum löndum, fyrst og fremst á
Norðurlöndum, með þvi m.a. að
stuðla að kynnisferðum.
6. Félagið á að beita sér fyrir
ráðstefnum, efna til námskeiða og
halda uppi útgáfustarfi. —SST
Sveinafélag skipasmiða:
Mótmælir frumvarpi
til iðnaðarlaga
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt einróma á fundi i Sveina-
félagi skipasmiða 29. nóvember
1977:
„Fundur i Sveinafélagi skipa-
smiða haldinn 29. nóvember 1977,
mótmælir þeirri grundvallar-
breytingu sem fram kemur i
Frumvarpi til iðnaðarlaga sem
lagt hefur verið fram á alþingi
þ.e. að hægt veröi að ráða til
iðnaðarstarfs óiðnlært fólk án
nokkurs samráðs viö viðkomandi
félög iönsveina og án nokkurrar
frekari skilgreiningar. 1 núgild-
andi lögum um iðju og iðnað er
heimild til slikrar undanþágu i
sérstökum tilvikum og þá með
samþykki bæði meistara og
sveina.
Með þvi að opna þannig iðn-
greinarnar fyrir öllum, án tillits
til hvort viðkomandi hefur lagt á
sig nám i iðngreininni eða ekki er
verið að forsmá verklega mennt-
un sem ráðamenn þjóöarinnar
hafa þó haldið fram að nauðsyn-
legt væri að efla.
Alþingismenn standi við löngu
gefin fyrirheit
FI. — Stúdentaráö Háskóla ts-
lands hefur sent öllum alþingis-
mönnum ályktun, þar sem lýst er
yfir eindreginni óánægju með
þann niðurskurð á fjárlagabeiðni
Lánasjóðs isl. námsmanna sem
núverandi fjárlagafrumvarp ger-
ir ráð fyrir. Segir i ályktuninni, að
verði sú upphæð sem þar sé inni
samþykkt, hafni fjárveitinga-
nefnd þcirri stefnu LÍN að út-
hlutað skuli 100% lánum tii náms-
manna i stað 85% lána.
Stúdentaráð trúir þvi ekki fyrr
en á reynir að alþingismenn
samþykki þennan niðurskurð ef
höfð eru i huga orð þeirra frá
1970-1971, en þá voru þeir
ákveðnir i að úthlutun 100% lána
yrði komin á áriö 1975.
Sútdentaráðsfundur minnir al-
þingismenn á að hrinda nú i
framkvæmd þessari stefnu og
standa þannig við löngu gefin
fyrirheit.
Móttaka á vörum
til útlanda flutt i
Bíldshöföa 20
í dag flytjum við vörumóttöku okkar, fyrir vörur til
útlanda, frá Reykjavíkurflugvelli í vöruafgreiðslu
Flugfraktar að Bíldshöfða 20.
Afgreiðslan verður opin mánudaga-föstudaga
kl. 9-12og 13-17.
Símanúmerið er 82855 - Biðjið um vörumóttöku.
FLUCFÉLAG
ÍSLANDS
LOFTLEIDIfí
fflMgifrakt
„Ég hef aldrei kynnst ókvalráðari
manni/ aldrei jafn hreinskiptn-.
um/ aldrei íslenzkari manni"/.
segir höfundurinn um Skála-
teigsstrákinn/ Þorleif Jónsson.
Þorleifur hefur víða komið við
og kann sæg af skemmtilegum
sögum. Hann er fæddur og upp-
alinn á Norðfirði/ var um tfma
lögregluþjónn í Hafnarfirði/
siðan hægri hönd Geirs Zöega,
umboðsmanns erlendra skipa á
striðsárunum/ bæjarfulltrúi i
Hafnarfirði á þriðja áratug/
glerharður sjálfstæðismaður og
ritstjóri bæjarmálablaðs.
Fékkst um tíma við málflutn-
ingsstörf/ var útgerðar- og
sveitarstjóri á Eskifirði/ fram-
kvæmdastjóri i Stykkishólmi og sat átján ár í stjórn Fiski-
málasjóðs. — Það heyrir undir brýn þjóðþrif i dag að bóka
ævi manna eins og Þorleifs Jónssonar og það er dauður
maður, sem lætur sér leiðast undir tungutaki hans og efnis-
tökum Jóhannesar Helga.
SKÁLA