Fréttablaðið - 06.06.2006, Síða 12

Fréttablaðið - 06.06.2006, Síða 12
12 6. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR nám fjölbreytt við allra hæfi I ‹ N S K Ó L I N N Í R E Y K J A V Í K Almennar bóklegar greinar eru hluti af námi á öllum brautum skólans. Allt almenna námið er matshæft á milli skóla eftir því sem við á. Einnig er hægt að stunda nám í almennum greinum í eina til fjórar annir. Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut. Á rafiðnasviði eru eftirtaldar brautir: Grunnnám rafiðna • Rafvirkjun • Rafeinda- virkjun • Rafvélavirkjun • Rafveituvirkjun Símsmíði. Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut. Á byggingasviði eru fimm iðnbrautir í framhaldi af grunnnámi bygginga- og mannvirkjagreina: Húsasmíði • Húsgagnasmíði • Múrsmíði • Málun • Veggfóðrun og dúklagningar. Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut. Á tölvusviði er ein braut: Tölvubraut sem býður upp á sérhæfingu í forritun og netkerfum. Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut. Á sérdeildarsviði eru tvær brautir: Starfsdeild • Nýbúabraut. Auk þess er endurhæfingarnám Janusar (rekið í tengslum við skólann). Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut. Á hönnunarsviði eru fjórar brautir: Listnámsbraut (almenn hönnun og keramik) • Hársnyrting • Fataiðnabraut (klæðskurður og kjólasaumur) • Gull- og silfursmíði. Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut. Á upplýsinga- og margmiðlunarsviði eru þrjár brautir: Upplýsinga- og fjölmiðlabraut • Tækniteiknun • Margmiðlunarskólinn. Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut. Fjarnám er áhugaverður kostur fyrir þá sem ekki geta nýtt sér staðbundið nám, t.d. vegna vinnu eða búsetu. Í fjarnáminu er boðið upp á fjölbreytt námsúrval í bóklegum og fagbóklegum greinum ásamt ýmsum greinum meistaranámsins. Skólavörðuholti I 101 Reykjavík Sími 522 6500 I Fax 522 6501 www.ir.is I ir@ir.is alm ennt svið h önnunars vi ð rafiðnasv ið fjarnám sérdeild a sv ið by ggingasvið tö lvusviðu pp lý si n ga - o g m a rg m ið lun arsvið Aðstoð við innritun fyrir þá sem ljúka grunnskólaprófi í vor verður í skólanum fim. 8. júní frá kl. 10:00–14:00. Námsráðgjafar og sviðsstjórar leiðbeina þá um námsval og brautir skólans. Innritun í fjarnám og kvöldskólann stendur yfir. Allar upplýsingar á vef skólans www.ir.is. Allar nánari upplýsingar á www.ir.is og á skrifstofu skólans, síma 522 6500. SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR Í nýrri skýrslu sem valinkunnur hópur sérfræðinga úr öllum heimshorn- um hefur samið fyrir Sameinuðu þjóðirnar er skorað á kjarnorku- veldi heims, einkum og sér í lagi Bandaríkin, að taka sér tak og full- gilda sjálf þá sáttmála sem þau ætlast til að önnur ríki hlíti. Hans Blix, fyrrverandi yfir- maður vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna í Írak, stýrði skýrslu- gerðinni, en að baki henni liggur tveggja ára starf. Í skýrslunni eru settar fram alls sextíu tillögur að því hvernig komast megi nær því markmiði að losa heiminn við ógn- ina af gereyðingarvopnum, það er kjarnorku-, efna- og sýklavopn- um. Efst á óskalista skýrsluhöfunda er að allar ríkisstjórnir heims skrifi undir sáttmálann um bann við kjarnorkuvopnatilraunum sem saminn var fyrir áratug; að þau ríki sem nú ráða yfir kjarnorku- vopnum geri gangskör að því að minnka kjarnorkuvopnabúr sín og að þau verði að hætta að framleiða plútóníum og háauðgað úran í fleiri kjarnorkusprengjur. Blix lýsti þessum tillögum í við- tali við Fréttablaðið hinn 6. apríl síðastliðinn, en skýrslan var form- lega lögð fram í höfuðstöðvum SÞ í New York á fimmtudag. - aa SÞ-skýrsla um aðgerðir til að losa heiminn undan ógn gereyðingarvopna: Hvatt til átaks í afvopnun AUSTUR-TÍMOR, AP Nóbelsverð- launahafinn Jose Ramon Horta, sem er utanríkisráðherra á Austur- Tímor, tók fyrir helgi einnig að sér embætti varnar- málaráðherra og innanríkisráð- herra. Ekkert lát er á óeirðunum á Austur-Tímor, þrátt fyrir að þúsundir erlendra friðar- gæsluliða séu komnar þangað. Átökin hófust í síðasta mánuði þegar Mari Alka- tiri forsætisráðherra rak þriðjung hersins. Hinir reknu hermenn, sem höfðu kvartað undan aðbún- aði sínum, hafa síðan barist við þá sem eftir voru í hernum, auk þess sem almennar óeirðir hafa brotist út. - gb Átökin á Austur-Tímor: Horta tekur að sér öryggismál LADY WASHINGTON Lady Washington heitir þetta skip sem sigldi nýverið tignarlega undir Morrison-brú í Portland í Oregon í Bandaríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP HANS BLIX 60 tillögur í þágu afvopnunar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP JOSE RAMOS HORTA SAMRÆMD PRÓF Námsmatsstofnun hefur birt niðurstöður úr sam- ræmdu prófunum í ár. Þar kemur fram að Suðvesturkjördæmi er með hæstu meðaltalseinkunn í íslensku og stærðfræði en Reykjavík fylgir þar fast á eftir. Suðurkjördæmi er hins vegar með lægstu einkunnirnar í þessum greinum. Reykjavík og Suðvesturkjör- dæmi eru með jafn háa meðaltals- einkunn í ensku eða 6,9 en þar rekur Norðvesturkjördæmi lestina. Alls 49 nemendur fengu tíu í stærðfræði en enginn í íslensku. Ítarlegri tölur eru væntanlegar á næstunni. - gþg Samræmd próf í grunnskóla: Höfuðborgar- svæðið hæst DÓMSMÁL 24 ára gamall maður hefur í Héraðsdómi Reykjavíkur verið dæmdur í fimm mánaða skil- orðsbundið fangelsi til þriggja ára fyrir hrottalega líkamsárás í október í fyrra gegn fyrrum sam- býliskonu sinni, sem er árinu yngri. Maðurinn hrinti konunni í gólf- ið og traðkaði á maga hennar svo gat kom á smágirni. Hún var flutt á sjúkrahús þar sem hún fór í skurðaðgerð, sem bjargði henni úr lífshættu. Lögreglan var kölluð að íbúð fólksins í Hraunbæ til að stöðva slagsmál milli þess. Lögreglan kom að konunni fyrir utan íbúðina þar sem hún hélt um magann. Hú var þjökuð af verkjum og kviður- inn spenntur þegar hún komst undir læknishendur. Konan greindi lögreglu frá misklíð þeirra á milli eftir skemmtanahald. Hann sagði lögreglunni að hún hefi lamið hann með gítarnum sínum, sem konan staðfesti. Hann var með roða á bringu og ofarlega á maga. Hann var hruflaður á hálsi vinstra megin. Lögreglunni hafði verið tilkynnt um að hún hefði lagt til hans með hnífi, en hvorugt þeirra staðfesti það. Læknir bar fyrir dómi að mikið afl þyrfti til að veita áverkana sem konan hlaut. Sambærilegir áverk- ar sæust helst í bílslysum. Maðurinn hefur hlotið fjölda refsidóma, en dómurinn var ekki þyngri þar sem konan átti upptök- in að slagsmálunum. - gag Hlaut fimm mánaða skilorðsbundinn dóm í þrjú ár fyrir heimilisofbeldi: Í lífshættu á skurðarborðinu VAR FLUTT Á SJÚKRAHÚS Konan var flutt á sjúkrahús með spenntan kviðinn og þjökuð af verkjum. Hún var í lífshættu. RÚSSLAND, AP Forseti Rússlands, Vladimír Pútín, svaraði í gær gagnrýni sem hann hefur fengið á sig vegna skorts á fjölmiðlafrelsi í Rússlandi. Forsetinn sagði á Heimsþingi dag- blaða (World News- paper Congress) að fólk hefði gleymt því hversu stóran hlut fjölmiðlar áttu í umbreytingu landsins frá Sovét- tímanum yfir í hið nýja Rússland. Hann svaraði þó ekki gagnrýni Gavin O‘Reilly, forseta Heimssam- bands dagblaða, þess efnis að fjöl- miðlafrelsi hefði minnkað á þeim rúmu sex árum sem Pútín hefur verið við völd. Þrjár helstu sjón- varpsstöðvar landsins eru undir stjórn ríkisins og gagnrýna ekki forsetann, en margir aðrir miðlar eru háðir svæðisyfirvöldum. - sgj Fjölmiðlafrelsi í Rússlandi: Pútín svarar gagnrýni VLADIMIR PÚTÍN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.