Fréttablaðið - 06.06.2006, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 6. júní 2006 17
FRÉTTASKÝRING
SIGURÐUR ÞÓR SALVARSSON
ssal@frettabladid.is
D-listi í sjö af níu
Vesturlandið er ekki síður blátt
yfir að líta. Í fimm stærstu sveit-
arfélögunum stjórna sjálfstæðis-
menn ýmist einir eða með öðrum.
Þeir hafa hreinan meirihluta í
Snæfellsbæ, Stykkishólmi og
Grundarfirði og hafa myndað
meirihluta á Akranesi með
Frjálslyndum og í nýju samein-
uðu sveitarfélagi í Borgarfirði
með Borgarlistanum.
Á Vestfjörðum fækkar bláu
merkjunum hins vegar frá síð-
ustu kosningum. Flokkurinn
tapar meirihluta sínum í Vestur-
byggð yfir til Bæjarfélagsins
Samstöðu og í Bolungarvík eru
sjálfstæðismenn í fyrsta sinn í
sögu flokksins ekki í meirihluta.
Þeir vinna aftur á móti hreinan
meirihluta á Tálknafirði og halda
meirihluta sínum í Ísafjarðarbæ
með stuðningi Framsóknar.
D-listi í fimm af sjö
Á Norðurlandi kemur Sjálfstæðis-
flokkurinn að meirihlutastjórn
fjögurra af sjö stærstu sveitar-
félaganna. Hann missir meiri-
hluta sinn í tveimur; á Blönduósi
þar sem Blönduóslistinn fékk
hreinan meirihluta og í Skaga-
firði þar sem Framsókn og Sam-
fylking hafa myndað meirihluta.
Staðan í Dalvíkurbyggð er hins
vegar óljós þegar þetta er skrif-
að en þar féll meirihluti sjálf-
stæðismanna og Framsóknar en
viðræður eru í gangi milli J-lista
óháðra og B-lista Framsóknar
um myndun nýs meirihluta.
Í Húnaþingi vestra er ríkis-
stjórnarmynstrið uppi á teningn-
um. Sömu sögu er að segja í hinu
nýja sveitarfélagi Siglufjarðar
og Ólafsfjarðar, Fjallabyggð, og
enn fremur í nýju sveitarfélagi á
Norðurlandi eystra, Húsavík og
nágrenni sem hugsanlega fær
nafnið Norðurþing. Á Akureyri
féll meirihluti sjálfstæðismanna
og Framsóknar en nýr meirihluti
sjálfstæðismanna og Samfylk-
ingar tekur við.
D-listi í níu af ellefu
Á Austurlandi eru sjálfstæðis-
menn áfram við völd í tveimur af
fjórum stærstu sveitarfélögun-
um; missa meirihluta á einum
stað en vinna hann á öðrum. Þeir
ná hreinum meirihluta á Seyðis-
firði og stýra Fljótsdalshéraði
ásamt L-lista Héraðslistans.
Meirihluti þeirra og Framsóknar
fellur í Hornafirði og Framsókn
myndar nýjan ásamt Samfylk-
ingu. Í stækkaðri Fjarðabyggð er
meirihluti L-listans, Fjarðarlist-
ans og Framsóknar áfram við
völd.
Loks er það Suðurland en þar
er blái liturinn allsráðandi. Sjálf-
stæðisflokkurinn er þar í meiri-
hluta í öllum sjö stærstu sveitar-
félögum fjórðungsins. Í fimm
þeirra er hann einn í meirihluta;
heldur honum í Rangárþingi ytra
en vinnur hann í Mýrdalshreppi,
Hveragerði, Ölfusi og Vest-
mannaeyjum. Í Árborg er komið
á samstarf D og B og í Rangár-
þingi eystra hafa sjálfstæðis-
menn myndað meirihluta með K-
lista Samherja rétt eins og á
síðasta kjörtímabili.