Fréttablaðið - 06.06.2006, Page 26
6. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR6
Arkitekt: Jes Einar Þorsteinsson
JES EINAR ÞORSTEINSSON ARKITEKT NOTAR FORM ÚR
ÍSLENSKRI NÁTTÚRU SEM VIÐMIÐ Í SÍNUM VERKUM.
„Í stórum dráttum má segja að ég reyni að tengja verkin
íslenskri náttúru. Hún kallar á sterk og einföld form,“
segir Jes Einar Þorsteinsson arkitekt spurður hvernig
hann lýsi sínum verkum í stuttu máli. „Annars er þetta
allt hálfgerður hrærigrautur,“ bætir hann svo við glettn-
islega. Jes Einar lærði arkitektúr í Frakklandi. Hann hefur
starfað sjálfstætt um áratuga skeið og eftir hann liggja
mörg verk sem ná yfir breitt svið. Þar eru íbúðarhús,
skólar, sjúkrahús, heilsugæslustöðvar, íþróttamannvirki
og ótal margt fleira. „Þetta er svona sitt lítið af hverju,“
segir hann og hlær við. Öll verkefnin hafa verið innan-
lands að hans sögn og afraksturinn er að finna bæði úti
á landi og á höfuðborgarsvæðinu.
Eftirlætisviðfangsefnin segir hann þau sem hann fæst
við hverju sinni en sundstaðir eru í nokkru uppáhaldi.
„Sundlaugar og umhverfi þeirra bjóða upp á talsvert
mikinn fjölbreytileika en allt er auðvitað samkomulagi
háð við þá sem að byggingunni koma.“
Vel fer um tónlistarskóla og heilsugæslustöð Seltjarnarness undir sama þaki.
Sterk og einföld form
Sundlaugarbygging og íþróttamiðstöð í Brautarholti á Skeiðum.
Grjótasel 19, sem er íbúðarhús og vinnu-
stofa Jes Einars sjálfs. Stóri heiti potturinn við Laugardalslaugina er eitt af hugverkum Jes Einars.
Erna Valsdóttir lögg. fasteigna-, skipa- fyrirtækjasali
Fr
um
Þrjú sumarhús
í Skorradal
Gistiheimilið Taergesen
á Reyðarfirði
Glæsileg, ný ca. 75 fm sumarhús í byggingu við Skálalækjarás
í landi Indriðastaða í Skorradalshreppi. Sumarhúsin eru hæð
og ris samkvæmt samþykktum íslenskum teikningum og
stöðlum, með ca 100 fm timburverönd. Húsið skilast fullfrá-
gengin með innréttingum, tækjum og gólfefnum. Verönd
skilast fullfrágengin með grindverki. Húsin liggja í kjarri vöxnu
landi Indriðastaða. (einnig er möguleiki á að fá húsin styttra á
veg komin). Verð 18,9 millj.
Fasteignakaup kynnir eitt best nýtta gistiheimilið á landsbyggð-
inni. Gistiheimilið Taergesen á Reyðarfirði með 28 herbergjum.
Leyfi er fyrir 60 manns í gistingu en í dag eru 52 rúm. Gistingin
er fullnýtt í allt sumar og næsti vetur lýtur mjög vel út. Til viðbót-
ar er matsölustaður í húsinu með heimsendingarþjónustu og er
yfir 100 manns í mat á dag, sæti fyrir 60 manns er í húsinu. Öll
tæki og fylgihlutir til gistingar fylgja með. Húsið er í góðum
rekstri og hentar bæði fyrir fjárfesta og einstakling sem vill koma
að markaðssetningu og rekstri hússins.