Fréttablaðið - 06.06.2006, Page 90
6. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR34
LA
N
DS
BA
N
K
AD
EI
LD
IN
2-1
Kaplakrikav. Áhorf: 2162 Jóhannes Valgeirsson (7)
1-0 Jónas Guðni Sævarsson, sjm (19.)
2-0 Atli Viðar Björnsson (53.)
2-1 Freyr Bjarnason, sjm (69.)
FH Keflavík
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 9–12 (4–8)
Varin skot Daði 7 – Ómar 3
Horn 1–4
Aukaspyrnur fengnar 9–10
Rangstöður 2–1
KEFLAVÍK 4–4–2
Ómar Jóhanns. 6
Guðjón Árni 6
Guðm. Mete 7
Baldur Sig. 6
Milicevic 5
Jónas Guðni 5
Servino 8
(82. Ólafur Jón -)
Hólmar Örn 6
Magnús Sverrir 5
(69. Þórarinn Krist. 6)
Guðm. Steinars. 6
Samuelsen 7
*Maður leiksins
FH 4–3–3
*Daði Lárusson 8
Freyr Bjarnason 7
Ásgeir Gunnar 6
Ármann Smári 7
Guðm. Sævars. 7
Baldur Bett 6
Sigurvin Ólafs, 7
Davíð Viðars. 8
Tryggvi Guðmunds. 7
(81. Matthías -)
Atli Viðar 8
(87. Atli Guðna -)
Allan Dyring 4
(33. Ólafur Páll 7)
STAÐAN Í LANDSBANKADEILDINNI
1. FH 5 5 0 0 11-3 15
2. FYLKIR 5 3 0 2 6-4 9
3. VÍKINGUR 5 3 0 2 9-9 9
4. GRINDAVÍK 5 2 2 1 8-7 8
5. KEFLAVÍK 5 2 1 2 7-5 7
6. BREIÐABLIK 4 2 0 2 9-9 6
7. VALUR 5 2 0 3 7-8 6
8. KR 4 2 0 2 3-7 6
9. ÍBV 5 1 1 3 3-9 4
10. ÍA 5 0 0 5 5-10 0
HANDBOLTI Landsliðsmaðurinn
Arnór Atlason mun væntanlega
skrifa undir samning við danska
úrvalsdeildarfélagið FCK í vik-
unni. Arnór er með tilboð frá
danska félaginu sem og frá þýska
úrvalsdeildarfélaginu Düsseldorf,
sem Markús Máni Michaelsson er
að yfirgefa, og hann hallast að því
að FCK verði fyrir valinu.
„Ég reikna með að lenda í
Kaupmannahöfn en það er samt
ekki rétt sem hefur verið sagt að
ég sé búinn að skrifa undir hjá
félaginu og hafna Düsseldorf,“
sagði Arnór við Fréttablaðið í gær.
„Ég er að velta þessu fyrir mér og
líklegra en ella að ég loki þessu
fyrir helgina. Það er stigsmunur á
þessum félögum. FCK kemur til
með að berjast um titla á næstu
árum og taka þátt í Evrópukeppni
á meðan Düsseldorf verður lík-
lega í neðri hlutanum. Ég er með
ágætis tilboð en það er ekki aðal-
málið heldur að vera í góðu félagi
þar sem keppt er um titla á hverju
ári og vel haldið utan um hlutina.“
FCK ætlar sér stóra hluti á
næstu árum og hefur félagið verið
að sanka að sér leikmönnum síð-
ustu vikur enda búið að setja mun
meiri pening í félagið en áður.
Félagið ætlar sér sigur í dönsku
deildinni næsta vetur og að fara
langt í Evrópukeppninni. - hbg
Arnór Atlason væntanlega á förum frá Magdeburg í Þýskalandi:
Semur líklega við FCK í Kaupmannahöfn
ARNÓR ATLASON Yfirgefur herbúðir Magdeburg fljótlega og flyst væntanlega yfir til Dan-
merkur. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Valsstúlkur eru einar í
efsta sæti í Landsbankadeild
kvenna eftir að hafa unnið örugg-
an sigur, 4-1, á Breiðablik í topp-
slag á Valbjarnarvelli á laugar-
daginn. Sigurinn var mjög öruggur
enda var Valsliðið mun sterkara í
leiknum. Rakel Logadóttir skoraði
tvö fyrstu mörkin en á lokamínútu
fyrri hálfleiks minnkaði Greta
Mjöll Samúelsdóttir muninn.
Málfríður Erna Sigurðardóttir
og Margrét Lára Viðarsdóttir
bættu við mörkum í seinni hálf-
leiknum og Valur hefur nú skorað
samtals 26 mörk í fjórum fyrstu
umferðunum, aðeins fengið á sig
eitt mark og er með fullt hús
stiga. - egm
Stórleikur í kvennaboltanum:
Valsstúlkur
með fullt hús
MARKASÚPA Í VETUR Guðjón Valur
Sigurðsson kokkaði markasúpu ofan í
Þjóðverja í vetur.
HANDBOLTI Guðjón Valur Sigurðs-
son var í gærkvöldi útnefndur
besti leikmaður þýsku úrvals-
deildarinnar en hann var jafn-
framt markahæsti leikmaður
þessarar sterkstu deildar heims.
Lokaumferðin fór fram á
sunnudag og voru sjö Íslendingar
í eldlínunni. Kiel vann Gummers-
bach 31-29 en liðið tapaði ekki
einum einasta heimaleik á tímabil-
inu. Guðjón Valur Sigurðsson
skoraði sjö mörk og Róbert Gunn-
arsson fimm fyrir Gummersbach.
Alexander Peterson var í mikl-
um ham og skoraði tíu mörk fyrir
Grosswallstadt og Einar Hólm-
geirsson fjögur þegar liðið sigraði
Lemgo, 29-27. Logi Geirsson skor-
aði tvö mörk fyrir Lemgo. Magde-
burg vann Minden 30-27, Arnór
Atlason skoraði eitt mark fyrir
Magdeburg og Snorri Steinn Guð-
jónsson eitt fyrir Minden. Kiel
varð efst í deildinni með 62 stig en
Flensburg í öðru með 55 stig. Þar á
eftir komu Gummersbach, Magde-
burg og svo Lemgo. - egm
Þýski handboltinn:
Guðjón bestur
í Þýskalandi
FÓTBOLTI „Við erum núna búnir að
vinna þrjá leiki í röð og við vitum
að við eigum möguleika gegn
öllum liðunum í deildinni ef við
spilum eins og við getum. Hvað
sjálfan mig varðar þá hef ég
gaman að þessu og mórallinn í
liðinu er góður og það hjálpar,“
sagði Arnar Jón Sigurgeirsson
eftir góðan sigur á Val í gær en
hann hefur spilað vel það sem af
er Landsbankadeildinni.
Það verður seint sagt að sigur-
inn hafi verið öruggur því Vals-
menn voru sterkari aðilinn lengi
vel en að því er ekki spurt, það
voru heimamenn sem fóru með
sigur af hólmi.
Gestirnir voru sterkari til að
byrja með en Víkingar unnu sig
smám saman inn í leikinn. Það
skilaði loks marki þegar Davíð
Þór Rúnarsson skoraði eftir
góðan undirbúning Viktors
Bjarka Arnarssonar. Fyrri hálf-
leikur var frekar tíðindalítill en
Kjartan Sturluson varði hins
vegar vel frá Arnari Jóni Sigur-
geirssyni undir lok fyrri hálf-
leiks.
Valsmenn mættu grimmir til
leiks í upphafi síðari hálfleiks og
fengu tvívegis ákjósanleg tæki-
færi til að jafna leikinn. Matthías
Guðmundsson og Pálmi Rafn
Pálmason fóru illa með góð færi
en sá síðarnefnda urðu hins vegar
á engin mistök þegar stundar-
fjórðungur var liðinn af hálf-
leiknum. Hann jafnaði þá leikinn
eftir slæm mistök hjá Ingvari
Kale í marki Víkinga.
Nú héldu Valsmönnum engin
bönd og Víkingar voru heppnir í
tvígang að gestirnir tækju ekki
forystuna. Í seinna skiptið fór
Guðmundur Benediktsson illa
með sannkallað dauðafæri en
skot hans fór í stöngina. Það var
því þvert gegn gangi leiksins
þegar Viktor Bjarki Arnarsson
kom Víkingum yfir úr vítaspyrnu
eftir að brotið hafði verið á Davíð
Þór Rúnarssyni í vítateignum.
Eftir þetta var allur vindur úr
Valsmönnum og heimamenn
gengu á lagið og ráku síðasta
naglann í kistu gestanna en það
gerði Davíð Þór Rúnarsson. - gjj
Víkingar á mikilli siglingu í Landsbankadeildinni:
Baráttusigur gegn Val í Víkinni
ÞVÍLÍKAR KLAUFAR Willum þjálfari Vals
greip oft um höfuð sér í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI „Ég er bara alveg
þrælsáttur við að hafa náð að
leggja Keflvíkinga. Þeir eru með
hörkulið en þetta datt einfaldlega
ekki þeirra megin, við vorum oft á
tíðum algjörlega á hælunum en ég
held að hin margumtalaða
meistaraheppni hafi verið til stað-
ar. Ég trúi því að hún sé til og hafi
verið með okkur,“ sagði Daði
Lárusson, markvörður FH, en
hann var hetja liðsins í gær og
varði tvær vítaspyrnur þegar tvö
efstu lið deildarinnar áttust við í
Kaplakrika. Sú síðari kom í upp-
bótartíma og hefði getað tryggt
Keflavík stig en bjargvætturinn
Þórarinn Kristjánsson stóð ekki
undir nafni.
FH-ingar komust yfir á átjándu
mínútu eftir fyrstu alvöru sókn
sína í leiknum. Baldur Bett átti
hörkuskot af löngu færi sem Ómar
Jóhannsson varði vel og sló bolt-
ann út en í kjölfarið átti Sigurvin
Ólafsson sendingu sem fór í Jónas
Guðna Sævarsson, miðjumann
Keflvíkinga. Slysalegt sjálfsmark
en Jónas var við enda vítateigsins
og af honum fór boltinn í boga yfir
Ómar í markinu og efst í fjær-
hornið. Svekkjandi fyrir gest-
ina,sem höfðu verið sprækari ef
eitthvað var í byrjun leiksins.
Tíu mínútum eftir þetta mark
áttu Keflvíkingar góða sókn sem
endaði með því að þeir fengu víta-
spyrnu eftir að réttilega var dæmd
hendi innan vítateigs á bakvörð-
inn Frey Bjarnason. Guðmundur
Steinarsson, fyrirliði Keflavíkur,
fór á punktinn en Daði Lárusson,
sem átti mjög góðan leik í gær,
varði spyrnuna vel. Gestirnir áttu
síðan nokkrar ágætis sóknir fyrir
leikhlé en ekki tókst þeim að skora
og héldu svekktir til búningsher-
bergja.
Eftir sjö mínútna leik í seinni
hálfleik bætti FH við öðru marki,
Atli Viðar Björnsson gerði vel og
skoraði. Eftir þetta var mjög
rólegt yfir leiknum og leit út sem
gestirnir væru búnir að játa sig
sigraða. En svo var aldeilis ekki
og um miðjan hálfleikinn fundu
þeir taktinn á ný. Guðmundur
Mete átti ágætis skalla eftir fyrir-
gjöf frá Daniel Severino sem Daði
náði að verja, en Severino átti oft
góða spretti í leiknum. Þórarinn
náði síðan að minnka muninn eftir
að hafa komið inn sem varamaður
en hann náði að læða fyrirgjöf í
netið með viðkomu í Frey Bjarna-
syni. Hann hefur ekkert leikið
síðan í fyrstu umferð vegna
meiðsla en fékk svo sannarlega
tækifæri til að vera hetja leiksins
þegar þrjár mínútur voru komnar
yfir venjulegan leiktíma.
Þórarinn fór á punktinn eftir að
brotið var á Færeyingnum Simuni
Samuelsen innan teigs en aftur
náði Daði að verja og skömmu
síðar flautaði Jóhannes Valgeirs-
son til leiksloka. „Þetta er í fyrsta
sinn sem ég næ að verja tvær víta-
spyrnur í leik og það er ekki leið-
inlegt, þó maður nái því svona
fyrst á gamals aldri,“ sagði Daði.
Enn eru FH-ingar með fullt hús
stiga í deildinni þó að liðið virðist
enn ekki almennilega komið í
gang. Það er erfitt að sjá að eitt-
hvað lið eigi að ná að veita FH-
ingum alvöru samkeppni á tíma-
bilinu og er allt útlit fyrir þriðja
titil þeirra í röð. Keflavík er með
gott lið og voru Suðurnesjamenn
ekki verra liðið á vellinum í gær,
en herslumuninn vantaði.
elvar@frettabladid.is
Daði sá um Keflvíkinga
Daði Lárusson, markvörður FH, átti stórleik gegn Keflavík og varði meðal ann-
ars tvær vítaspyrnur og þá síðari í uppbótartíma. FH hefur nú unnið alla fimm
leiki sína í Landsbankadeildinni til þessa og virkar óstöðvandi.
VÍTI NÚMER EITT Daði Lárusson ver hér fyrra vítið sitt gegn Keflavík í gær en það var Guðmundur Steinarsson sem tók fyrri spyrnuna.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL