Fréttablaðið - 12.06.2006, Page 10
10 12. júní 2006 MÁNUDAGUR
NÝTT BLAÐ KEMUR ÚT
ALLA FIMMTUDAGA
KANADA, AP Nýlegar handtökur
kanadísku lögreglunnar á meint-
um hryðjuverkamönnum hafa
vakið athygli á innflytjendalögum
Kanada, sem Bandaríkjamenn
hafa sagt allt of væg.
Nokkrir mannanna mæta fyrir
dómara í dag, þar sem fjallað
verður um hvort sleppa beri þeim
gegn lausnargjaldi.
Tólf menn og fimm unglingar
voru handteknir í byrjun júní eftir
að lögregla komst á snoðir um til-
raun þeirra til að kaupa þrjú tonn
af ammóníumnítrati, efni sem til-
tölulega auðvelt er að búa til
sprengiefni úr. Þetta er um þriðj-
ungi meira en notað var í sprengju-
tilræðinu sem varð 168 manns að
bana í Oklahoma-borg í Banda-
ríkjunum árið 1995.
Síðan mennirnir voru hand-
teknir hafa komið fram upplýsing-
ar um að einn þeirra hafi sett
sér það markmið að hálshöggva
Stephen Harper forsætisráðherra,
og jafnframt að þeir hafi verið
langt komnir með að útvega sér
efni til að sprengja stóra trukka í
loft upp með fjarstýringum. Þeir
hafi ætlað sér að sprengja þing-
húsið í Ottawa og skrifstofur
leyniþjónustu Kanada, auk ann-
arra mannvirkja.
Engar upplýsingar fást um
unglingana, samkvæmt kandísk-
um lögum, en mennirnir tólf eru
flestir kornungir innflytjendur
eða synir innflytjenda úr miðstétt
og eru fjölskyldur þeirra frá
Egyptalandi, Sómalíu, Pakistan,
Sri Lanka og Trínidad og Tóbagó.
Margir eru synir menntafólks.
Kanadískir fjölmiðlar hafa
greint frá því að drengirnir hafi
flestir verið afar venjulegir ungl-
ingar sem spiluðu körfubolta með
félögum sínum og snæddu grill-
mat í bakgörðum heimila sinna.
Eitthvað hafi svo breyst eftir að
þeir kynntust hinum 43 ára gamla
Qayyum Abdul Jamal, sem talinn
er forsprakki hópsins. Jamal, sem
er þriggja barna faðir, er sagður
vera uppreisnarseggur, fullur
gremju út í heimaland sitt, Kan-
ada, og afar öfgasinnaður mús-
limi. Kanadískir fjölmiðlar hafa
vitnað í fólk sem sótti sömu mosku
og hann, sem segir Jamal hafa
sagt í moskunni að kanadískir her-
menn hafi farið til Afganistan til
að nauðga konum.
Einn mannanna mun hafa hlot-
ið einhverja tilsögn í meðferð
skotvopna hjá kanadíska hernum,
en talsmenn hersins hafa sagt
veru hans í hernum hafa verið
afar stopula.
Kanada tekur við fleiri innflytj-
endum en nokkurt annað land í
heiminum miðað við höfðatölu, en
talsmenn innflytjendaráðuneytis-
ins hafa þverneitað ásökunum um
að innflytjendalög landsins séu of
væg. Í fyrra tók Kanada við fleiri
en 262.000 innflytjendum, þar af
35.000 flóttamönnum, en Banda-
ríkjamenn, sem eru nærri 10 sinn-
um fleiri en Kanadamenn, tóku
við 1,1 milljón innflytjendum, þar
af 53.813 flóttamönnum.
Talsmenn Amnesty Internation-
al stigu fram í síðustu viku og
sögðu innflytjendalög Kanada
vera nægilega stíf. Hins vegar
þyrfti að endurskoða hvernig
nýbúum tækist að samlaga sig
nýjum löndum og siðum, bæði í
Kanada sem og í fleiri löndum
heims.
Múslimasamtök í Kanada hafa
brugðist afar harkalega við hand-
tökunum og fullyrt að meintar
skoðanir mannanna endurspegli
ekki skoðanir langflestra kanad-
ískra múslima. Talsmenn þeirra
hafa opinberlega beðið kanadísk
stjórnvöld um aðstoð við að sefa
öfgafullar skoðanir ungra mús-
lima í Kanada, enda gangi hryðju-
verk þvert á kenningar íslams.
Fundaði Harper forsætisráðherra
með leiðtogum múslima fyrir lukt-
um dyrum á laugardag.
Um 750 þúsund múslimar búa í
Kanada. smk@frettabladid.is
Innflytjendalög Kanada
gagnrýnd eftir handtökur
Eftir að upp komst um hóp meintra hryðjuverkamanna í Kanada sem ætlaði sér að afhöfða forsætisráð-
herrann og sprengja mannvirki heyrast nú raddir um að Kanadamenn séu of mildir þegar kemur að inn-
flutningsmálum. Kanada tekur við fleiri nýbúum en nokkuð annað land í heiminum, miðað við höfðatölu.
MEINTIR HRYÐJUVERKAMENN FYRIR DÓM Fjölskyldur manna sem handteknir hafa verið í Kanada grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk
mæta í réttarsal. NORDICPHOTOS/AFP
STURTUBAÐ Miklir hitar eru nú í Indlandi
og var þetta barn víst fegið vatnsgusunni
á byggingarsvæði í Nýju-Delí í gær. Hitinn
hefur farið yfir 43 gráður á sumum svæð-
um Norður-Indlands undanfarna daga.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÍKNARMÁL Arnaldur Birgir Kon-
ráðsson, Evert Víglundsson og
Róbert Traustason ætla að hlaupa
samtals hundrað kílómetra frá
Hellu til Reykjavíkur til styrktar
Blátt áfram. Fyrir ári hjóluðu þeir
félagar yfir hálendið, rúma 410
kílómetra, og söfnuðu um milljón
króna fyrir unga stúlku sem var á
leið til Svíþjóðar í beinmergs-
skipti.
Þeir félagar ætla að leggja af
stað á miðnætti aðfaranótt laugar-
dagsins 8. júlí en hlaupinu lýkur
við Reykjavíkurhöfn um átján
tímum síðar. Þátttakendur geta
keypt bol á 1.500 krónur og safnað
áheitum. Ágóðinn verður nýttur í
auglýsingaherferð sem Blátt áfram
fer af stað með í haust. - sgi
Hlaupið til styrktar Blátt áfram:
100 kílómetrar
á 18 tímum
SAFNA ÁHEITUM Þeir Arnaldur, Evert og
Róbert ætla að hlaupa frá Hellu til Reykja-
víkur. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
HLAUP Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fór
fram í 17. sinn í fyrradag en talið er
að á bilinu 16-17.000 konur á öllum
aldri hafi tekið þátt á yfir 90 stöðum
hér á landi. Er það svipuð þátttaka
og á síðasta ári. Í Garðabænum voru
þátttakendur um 5.000 talsins og
aldursdreifing mikil en elsti þátt-
takandinn var Herdís Steinsdóttir,
92 ára. Að sögn „guðmóður“ hlaups-
ins, Lovísu Einarsdóttur, „gekk Her-
dís tvo kílómetra og fékk að launum
sérlegan silfurdisk sem afhentur er
elsta þáttakandanum á hverju ári en
nafn viðkomandi er rist á diskinn
honum til heiðurs“.
Í Mosfellsbæ og á Akureyri tóku
um 700 konur þátt, sem er álíka
fjöldi og tók þátt í fyrra. Jóna
Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri
Kvennahlaupsins, segir það „sér-
stakt gleðiefni að á Reyðarfirði
jókst þátttakan um helming frá því í
fyrra, um 120 konur. Veðrið hér á
suðvesturhorninu setti strik í reikn-
ingin en það var bongóblíða bæði
fyrir norðan og austan sem hafði
áhrif á þátttökuna“.
Í ár var yfirskrift Sjóvá Kvenna-
hlaups ÍSÍ „Hvert skref skiptir
máli“ en ÍSÍ og UNIFEM á Íslandi
skrifuðu undir samstarfssamning
til að vekja athygli á starfi UNIFEM
í þágu kvenna, sérstaklega í Afgan-
istan, og hvetja íslenskar konur til
að sýna samstöðu með mannréttind-
um kvenna um leið og þær efldu
eigin heilsu. 50 kr. af hverjum bol
renna til UNIFEM. Formaður UNI-
FEM, Edda Jónsdóttir, segir söfnun-
ina hafa gengið vonum framar en
„safnað hafi verið fyrir kvennamið-
stöð í Afganistan sem ætlað er að
ýta undir sjálfshjálp kvenna. Söfn-
unin heldur áfram og fer bæði fram
á Þjóðhátíðardaginn og Kvennadag-
inn 19.júní.
Hlaupið fer einnig fram á
nokkrum stöðum erlendis um næstu
helgi í tengslum við 17. júní hátíðar-
höld. - brb
Hlaupið til styrktar konum í Afganistan víða um land þegar kvennahlaup ÍSÍ fór fram í fyrradag:
Elsti þátttakandinn fékk silfurdisk
KVENNAHLAUPIÐ Ræsing frá
Garðatorgi í Garðabæ kl. 14
Átta stútar teknir Lögreglan í
Reykjavík stöðvaði átta ökumenn í gær
og fyrrinótt sem grunaðir eru að hafa
ekið undir áhrifum áfengis.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SKÓLAMÁL Samkvæmt nýrri könn-
un á vegum verðlagseftirlits ASÍ
hefur verð hækkað á milli ára á ríf-
lega helmingi þeirra sumarnám-
skeiða sem til skoðunar voru. Tals-
verðar hækkanir urðu á
námskeiðum margra íþróttafélaga
og mest var hækkunin á nám-
skeiðagjaldi hjá Fimleikafélaginu
Björk í Hafnarfirði, sem hækkaði
um áttatíu prósent milli ára.
Námskeið á vegum sveitarfé-
laganna hækkuðu mest á Seltjarn-
arnesi og í Reykjavík, um fimm
prósent. Í könnuninni er einungis
um verðsamanburð að ræða og
ekki lagt mat á þjónustu og dag-
skrá sem í boði er á mismunandi
námskeiðum. Könunin náði aðeins
til hluta þeirrar starfsemi sem í
boði er fyrir börn um land allt.
Flest íþróttafélag standa fyrir sum-
ardagskrá fyrir börn og ungmenni.
Knattspyrnuskólar fyrir börn frá
fimm ára aldri eru víða starfandi
og kostar tveggja vikna námskeið
hálfan daginn frá 4.500 krónum hjá
Leikni í Reykjavík og Gróttu á Sel-
tjarnarnesi, upp í 11.000 krónur
hjá Þrótti í Reykjavík. Af þeim
námskeiðum sem starfrækt eru á
vegum íþrótta- og tómstundaráðs
og nefnda sveitarfélaga hefur verð
hækkað á námskeiðum á vegum
ÍTR í Reykjavík og Íþrótta- og
Tómstundaráðs Seltjarnarness.
Leikja- og ævintýranámskeið á Sel-
tjarnanesi hafa hækkað um rúm
fjórtán prósent á milli ára en nám-
skeið á vegum ÍTR um fimm pró-
sent. Gjöld á önnur námskeið á
vegum sveitarfélaganna sem skoð-
uð voru eru óbreytt frá því í fyrra.
Verð á reiðnámskeiðum var í
fyrsta sinn skoðað í ár en reiðnám-
skeið hálfan daginn í eina viku
kosta 8.000 krónur hjá Reiðskóla
Berglindar í Mosfellsbæ upp í
15.000 krónur hjá Íshestum í
Hafnarfirði.
Kostnaður við námskeiðin er
misjafn og á milli sveitarfélaga en
áætla má að kostnaður geti verið á
bilinu 20-30 þúsund krónur fyrir
eitt barn á sumri. - brb
Sumarnámskeið hækka víða á milli ára samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ:
Mest hækkun á Seltjarnarnesi
AÐ LEIK Krakkar úr Langholtsskóla hlaupa í
skarðið á Torginu.
Varað við stormum Yfirvöld á Kúbu
og Flórída í Bandaríkjunum hafa gefið út
viðvörun vegna fyrsta hitabeltisstorms
ársins. Stormurinn Alberto stefnir nú
óðfluga í átt að Kúbu og Cayman-
eyjum, þar sem hellirigndi í gær. Óttast
er að aurskriður kunni að fylgja. Í fyrra
urðu fjölmargir hitabeltisstormar að
fellibyljum og týndu 1.300 manns lífi í
Bandaríkjunum vegna þeirra.
BANDARÍKIN