Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.06.2006, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 12.06.2006, Qupperneq 12
12 12. júní 2006 MÁNUDAGUR Imperial 42 cl rauðvínsglös 1.924 kr. 12 stk. Smart og létt á fæti – heilsteypt glös á tilboðsverði Þórunn Kristjánsdóttir Sölumaður hjá RV Maldive 36 cl bjórglös Imperial 31 cl rauðvínsglös Imperial 23 cl hvítvínsglös Imperial 19 cl hvítvínsglös 1.757 kr. 12 stk. 1.579 kr. 12 stk. 1.341 kr. 12 stk. 854 kr. 6 stk. R V 62 07 A Rauð vínsg lös, h vítvín sglös og b jórgl ös á tilbo ðsve rði í jún í 200 6 MÓÐURTRYGGÐ Þeir eru svangir, banda- rísku þrastarungarnir, rétt eins og frændur þeirra hér á landi. Myndin er tekin í Iowa. FRÉTTABLAÐIÐ/AP STÓRIÐJA Varlega þarf að fara í frekari uppbyggingu á orkufrek- um iðnaði þar sem óróleiki í efna- hagslífinu getur mögulega aukist í framhaldinu. Þetta segir Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. Greint var frá því í Fréttablað- inu á laugardaginn að rússneska fyrirtækið RusAl, sem er þriðji stærsti álframleiðandi í heimin- um, ætti í viðræðum við íslensk stjórnvöld um uppsetningu álvers hér á landi sem fengi orku frá vatnsorkuveri. Þetta staðfesti Vera Kurotsjkina, upplýsingafull- trúi RusAl, í samtali við Frétta- blaðið og lagði á það áherslu að viðræður við íslensk stjórnvöld myndu halda áfram, en þær hóf- ust árið 2004. Gylfi Magnússon segir erfitt að meta það hversu mikil áhrif það muni hafa á efnahagslífið ef ráðist verði í frekari uppbyggingu á stór- iðju. „Það er ómögulegt að meta það hvaða áhrif frekari stóriðja myndi hafa á efnahagslífið, þar sem engar tímasetningar eða ákvarðanir liggja fyrir. En að lokum færi það að miklu leyti eftir aðstæðum og hvernig orkunni fyrir álverið yrði aflað, hversu mikil áhrifin yrðu. En það er aug- ljóslega verið að horfa langt fram í tímann þar sem virkjanafram- kvæmdir eiga sér alltaf langan aðdraganda.“ Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, segir íslensku ríkisstjórnina sýna mikið ábyrgð- arleysi með því að slíta ekki öllum viðræðum um frekari stóriðju. „Ég hef áður haldið því fram að íslensk stjórnvöld byðu einfald- lega öllum sem vildu að koma hingað til lands með starfsemi sína. Ríkisstjórnin segir einfald- lega því meira, því betra,“ segir Steingrímur. Hann segir ríkisstjórnina sýna ábyrgðarleysi með því að halda áfram viðræðum við fyrirtæki um stóriðju. „Nú þegar er verið að undirbúa þrjú stór stóriðjuverk- efni og það er ábyrgðarhlutur, við þær aðstæður sem hafa verið í efnahagslífinu að undanförnu, að ríkisstjórnin slíti öllum viðræðum um stóriðju. Ég tel því ríkisstjórn- ina hafa sýnt óskaplegt ábyrgðar- leysi.“ Páll Magnússon, aðstoðarmað- ur Valgerðar Sverrisdóttur, frá- farandi iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, sagðist í Fréttablaðinu á laugardag ekki líta svo á að form- legar viðræður á milli RusAl og íslenskra stjórnvalda hefðu farið fram. Engu hefði þó verið hafnað ennþá. magnush@frettabladid.is Frekari stóriðja getur valdið óróa í hagkerfinu Frekari áherslur á orkufrekan iðnað geta valdið óróleika í efnahagslífinu, að mati Gylfa Magnússonar prófessors. Engar ákvarðanir liggja fyrir ennþá. Ábyrgðarlaust að eiga í viðræðum um stóriðju, segir Steingrímur J. Sigfússon. VIRKJANAFRAMKVÆMDIR VIÐ KÁRAHNJÚKA Engar ákvarðanir liggja fyrir ennþá um hugs- anlegt álver RusAl á Íslandi. Rússneskir fjölmiðlar hafa fjallað um það undanfarna daga að RusAl eigi í viðræðum við íslensk stjórnvöld um uppbyggingu álvers. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ÍSLENSKAR KINDUR Útflutningur gengur vel enda hefur miklu verið til kostað í markaðs- starfi og kynningu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ATVINNA Duglegum nemendum í Vinnuskóla Reykjavíkur stendur til boða að vinna viku lengur en aðrir í sumar. „Þetta er hvatningartilboð til nemenda enda er til fullt af ungl- ingum sem vilja vinna meira og fá meiri tekjur en þeim hefur bara ekki staðið það til boða,“ segir Guð- rún Þórsdóttir, skólastjóri Vinnu- skólans, en hann var settur form- lega á föstudag. Guðrún sótti um þennan valkost fyrir nemendur til að koma til móts við mikið framboð á verkefnum í borginni. Í ár hafa 2.700 nemendur skráð sig í Vinnuskólann en það er talsvert minna en í fyrra þegar 3.300 nemar voru þar við vinnu. Guðrún segir þetta skekkja vinnu- framlag Vinnuskólans töluvert. Ástæðuna fyrir því að erfiðara er að manna stöður nú en í fyrra segir Guðrún aukið framboð á vinnu hjá lágvöruverslunum sem sækist eftir eldri unglingum til starfa. Til dæmis hafi þessar verslanir brugðist hratt við þegar Vinnuskólinn hækkaði laun krakkanna um tólf prósent og hækkað laun þeirra í verslununum í samræmi við það. Kostnaður vegna umbunarvik- unnar er áætlaður um 20 milljónir króna. Þar sem í fjárhagsáætlun fyrir 2006 var gert ráð fyrir 3.300 nemendum er líklegt að mismunur í fjölda nemenda vegi inn í kostnað- inn. Vegna skorts á vinnuafli mun eitthvað draga saman í þjónustu við eldri borgara. „Borgarlandið hefur forgang,“ segir Guðrún og áréttar að ekki sé of seint fyrir unginga að sækja um starf hjá skólanum. - sgi Hvatningartilboð stendur nemendum í Vinnuskóla Reykjavíkur til boða í sumar vegna fjölda verkefna: Þeir duglegu fá að vinna viku lengur LANDBÚNAÐUR Útflutningur á lambakjöti er mestur til Banda- ríkjanna, Danmerkur og Færeyja en eins og fram hefur komið í blaðinu hefur hann minnkað nokkuð til Bandaríkjanna. Ástæða þess er skortur á fram- boði en síðustu ár hafa um hundr- að tonn verið flutt út, sem jafn- gildir um 400 þúsund matarskömmtum sé miðað við að hver maður borði 250 grönmm. Til samanburðar borðar hver Íslendingur um 24 kíló á ári af lambakjöti. Á Íslandi er útflutningsskylda og á hverju ári er ákveðið hversu mikið eigi að flytja út af lamba- kjöti en það ákvarðast af lögmálum markaðarins. Ástæða útflutningsskyldunnar er til- komin vegna offramboðs sem við áttum við að glíma á árum áður. Í byrjun var mikill verðmunur milli Íslands og annarra landa en það hefur breyst mikið og að sögn Össurar Lárussonar, fram- kvæmdastjóra Landssamtaka sauðfjárbænda, myndu Íslend- ingar ekki láta bjóða sér það verð sem Bandaríkjamenn þurfa að borga fyrir kjötið. Færeyingar eru hrifnir af lambakjötinu og segir Össur að þar sé tilvalinn markaður fyrir okkur vegna nálægðar og lítils markaðskostnaðar. - gþg Útflutningur lambakjöts til Bandaríkjanna eykst: Færeyjar eru mikil- vægur markaður MIKIL ÞÖRF Á VINNUSKÓLANUM Um 600 færri nemendur verða við störf í Vinnuskóla Reykjavíkur í ár en í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI SKÝRSLA Ekki var nægilega vel staðið að björgunaraðgerðum á Viðeyjarsundi í september, þegar skemmtibáturinn Harpa steytti á Skarfaskeri með þeim afleiðingum að tveir létust, að mati formanns rannsóknarnefndar sjóslysa, en skýrsla nefndarinnar vegna slyss- ins var birt nýlega. Formaðurinn telur brýnt að samræma fjar- skiptabúnað leitar-, björgunar- og stjórnunaraðila. Í skýrslunni kemur meðal ann- ars fram að staðsetning skipsins hafi komið fram í fyrsta símtalinu til neyðarlínunnar en ekki var tekið eftir því. - sgi Björgun á Viðeyjarsundi: Illa staðið að aðgerðum DANMÖRK Nítján manns úr röðum vinstrisinnaðra mótmælenda voru handteknir í Svendborg á Fjóni á laugardag þegar þeir reyndu að koma í veg fyrir kröfugöngu sam- taka þjóðernissinna í bænum, sem hugðust krefjast þess að tveimur múslimaklerkum yrði vísað úr landi. Samkvæmt frétt á vefsíðu Danska ríkisútvarpsins var fólkið handtekið fyrir minniháttar skemmdarverk og var öllum sleppt eftir yfirheyrslu. - ks Mótmæli í Danmörku: Lenti saman við nasista
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.