Fréttablaðið - 12.06.2006, Page 17
Nú hefur ríkissjóður gefið út
nýjan flokk ríkisbréfa til tveggja ára.
Útgáfan markar upphaf nýs útgáfufyrirkomulags ríkisbréfa sem miðar
að því að bæta vaxtamyndun á innlendum skuldabréfamarkaði með því
að brúa bilið á milli skammtíma- og langtímavaxta. Framvegis verða gefnir
út nýir flokkar ríkisbréfa á sex mánaða fresti og munu ríkisbréfin gegna
mikilvægu verðmyndandi hlutverki á markaði. Fjárfestar munu geta notað
tveggja ára ríkisbréf til að auka enn frekar fjölbreytni í eignasöfnum sínum
sem jafnar sveiflur í ávöxtun.
Nýr flokkur ríkisbréfa verður tekinn á skrá Kauphallar Íslands og verður
viðskiptavakt með flokkinn í höndum aðalmiðlara ríkisbréfa sem mun
tryggja seljanleika á eftirmarkaði. Ríkisbréfin bera auðkennið RIKB 08 0613,
eru óverðtryggð og bera 9,50% ársvexti sem greiðast eftir á, einu sinni á ári.
Ávöxtunarkrafan ræðst í útboði.
Sölufyrirkomulag:
Aðalmiðlarar með ríkisverðbréf eru:
Glitnir
KB Banki
Landsbanki Íslands
MP Fjárfestingarbanki
Straumur-Burðarás Fjárfestingarbanki
Nýr flokkur
óverðtryggðra
ríkisbréfa til
tveggja ára
LÁNASÝSLA
RÍKISINS
Borgartún 21, 150 Reykjavík • Sími 540 7500,
Fax 562 6068 • www.lanasysla.is
Leiðin að
öruggri ávöxtun
Lindaskart (Pohlia wahlenbergii)
Fyrsta útboð ríkisbréfa til tveggja ára verður haldið miðvikudaginn 14. júní
kl. 14:00. Aðalmiðlarar ríkisverðbréfa hafa einir heimild til að leggja fram
tilboð í útboðum en þeir annast miðlun fyrir fjárfesta. Frekari gögn er hægt
að nálgast í afgreiðslu og á heimasíðu Lánasýslu ríkisins, www.lanasysla.is