Fréttablaðið - 12.06.2006, Page 21
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 3.00 13.28 23.56
Akureyri 1.52 13.12 24.36
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
GÓÐAN DAG!
Í dag er mánudagurinn
12. júní, 163. dagur ársins
2006.
Átta glæsilegar íbúðir
auk verslunarhúsnæðis
rísa nú í Skipholti.
ÁF-hús byggir um þessar
mundir nýtt húsnæði í Skip-
hotli 29b, rétt við gistiheim-
ili færeyskra sjómanna, en
áður var þar lítið annað en
ljótt bílastæði. Húsnæðið er
gott dæmi um hvernig hægt
er að þétta byggðina í
höfuðborginni á áhrifaríkan
hátt. Byggðin hefur verið að
dreifast mjög á undanförn-
um árum en hið nýja hús-
næði sýnir og sannar að það
er vel hægt að byggja nýjar
íbúðir miðsvæðis, bæði í
minni og stærri kantinum.
Hið nýja húsnæði í Skip-
holti hefur að geyma átta
mjög rúmgóðar íbúðir, frá
103,6 fermetrum upp í 175,1,
en einnig er verslunarhús-
næði í byggingunni. Versl-
unarhúsnæðið er rúmir 240
fermetrar en enn hefur ekki
verið ákveðið hvernig rekst-
ur mun þar fara fram en
húsnæðið gæti hýst hvernig
rekstur sem er. Fjögur stæði
verða í bílskúr hússins en
fyrir utan verða sautján
bílastæði.
Framkvæmdir hófust í
janúar á þessu ári og mun
þeim ljúka ári síðar, í janúar
á næsta ári.
Arkitekt húsnæðisins er
Kristinn Ragnarsson. Fast-
eignasalan Hof sér um sölu
íbúðanna, sem eru þegar
komnar á sölu en eins og
áður segir sér ÁF-hús um
byggingu húsnæðisins.
Frekari upplýsingar má
nálgast á síðu 11 í fasteigna-
blaðinu og á heimasíðunni
www.afhus.is
steinthor@frettabladid.is
Átta íbúðir í
Skipholti
Vinna er nú í fullum gangi við Skipholt 29b enda mun framkvæmdum ljúka í janúar á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
SEÐLABANKINN BIRTI TÖLUR YFIR ÍBÚÐALÁN BANKANNA FYRIR
HELGI ÞAR SEM KEMUR FRAM AÐ DREGIÐ HEFUR ÚR ÚTLÁNUM
TIL ÍBÚÐAKAUPA.
Samkvæmt nýjum tölum frá Seðlabankanum námu útlán
bankanna tæpum 7,5 milljörðum króna en það eru lægstu útlán
í einum mánuði frá því bankarnir komu inn á íbúðalánamarkað
í ágúst árið 2004. Fjöldi lána er kominn í 36.801 og meðaltals-
fjárhæð láns er rétt um 9,5 milljónir króna.
Greiningardeild Glitnis greinir frá að samdráttur hafi verið
í mánaðarlegum útlánum bankanna á þessu ári miðað við
það sem var á síðasta ári. Til samanburðar má nefna að útlán
bankanna í maí í fyrra námu 19,1 milljarði króna.
Haft er eftir talsmanni hjá Greiningardeildinni á vefsíðu
Viðskiptablaðsins að minni útlán skýrist að miklu leyti af því
að endurfjármögnun íbúðalána er að stórum hluta lokið. Því
má gera ráð fyrir að meirihluti lána bankanna nú séu ný lán.
Auk þess er skýringuna að finna í auknu aðhaldi í útlánsstefnu
bankanna en þeir hafa lækkað hámarkslán sín og hert skilyrði
fyrir útlánum.
Flest bendir til þess að á íbúðamarkaði muni kólna verulega
á næstu misserum þar sem mikið framboð er framundan á
íbúðum og við blasir vaxtahækkun og minna aðgengi að lánum.
Frétt fengin af www.vb.is. - jóa
Dregur úr útlánum til
íbúðakaupa
Að mati greiningardeildarinnar má búast við kólnun á íbúðamarkaði
næstu misseri. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
HANGIÐ Í HENGIRÚMI
Sumarið er sannarlega tíminn til að slaka á
og ekki er verra að gera það í hengirúmi.
HÚS 4
FASTEIGNASÖLUR
Ábyrgi 17
Ás 30-33
Árborgir 28
Búseti 15
Domus 20
Draumahús 23-26
Fasteignamiðlun FMG 14
Fyrirt.sala Íslands 22
Híbýli og skip 27
Hof 15
Höfði 7
Húsanaust 19
Lundur 8
Lyngvík 10
Lögmenn Suðurl. 18
Neteign 13
Nýtt 16
Remax Hrafna 29
Remax Lind 12
Remax Mjódd 18
Valhöll 6
Viðskiptahúsið 27
AUGL†SINGASÍMI
550 5000Mest lesna vi›skiptabla›i›
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
G
a
ll
u
p
k
ö
n
n
u
n
f
y
ri
r
3
6
5
p
re
n
tm
i›
la
m
a
í
2
0
0
5
.