Fréttablaðið - 12.06.2006, Síða 21

Fréttablaðið - 12.06.2006, Síða 21
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 3.00 13.28 23.56 Akureyri 1.52 13.12 24.36 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is GÓÐAN DAG! Í dag er mánudagurinn 12. júní, 163. dagur ársins 2006. Átta glæsilegar íbúðir auk verslunarhúsnæðis rísa nú í Skipholti. ÁF-hús byggir um þessar mundir nýtt húsnæði í Skip- hotli 29b, rétt við gistiheim- ili færeyskra sjómanna, en áður var þar lítið annað en ljótt bílastæði. Húsnæðið er gott dæmi um hvernig hægt er að þétta byggðina í höfuðborginni á áhrifaríkan hátt. Byggðin hefur verið að dreifast mjög á undanförn- um árum en hið nýja hús- næði sýnir og sannar að það er vel hægt að byggja nýjar íbúðir miðsvæðis, bæði í minni og stærri kantinum. Hið nýja húsnæði í Skip- holti hefur að geyma átta mjög rúmgóðar íbúðir, frá 103,6 fermetrum upp í 175,1, en einnig er verslunarhús- næði í byggingunni. Versl- unarhúsnæðið er rúmir 240 fermetrar en enn hefur ekki verið ákveðið hvernig rekst- ur mun þar fara fram en húsnæðið gæti hýst hvernig rekstur sem er. Fjögur stæði verða í bílskúr hússins en fyrir utan verða sautján bílastæði. Framkvæmdir hófust í janúar á þessu ári og mun þeim ljúka ári síðar, í janúar á næsta ári. Arkitekt húsnæðisins er Kristinn Ragnarsson. Fast- eignasalan Hof sér um sölu íbúðanna, sem eru þegar komnar á sölu en eins og áður segir sér ÁF-hús um byggingu húsnæðisins. Frekari upplýsingar má nálgast á síðu 11 í fasteigna- blaðinu og á heimasíðunni www.afhus.is steinthor@frettabladid.is Átta íbúðir í Skipholti Vinna er nú í fullum gangi við Skipholt 29b enda mun framkvæmdum ljúka í janúar á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR SEÐLABANKINN BIRTI TÖLUR YFIR ÍBÚÐALÁN BANKANNA FYRIR HELGI ÞAR SEM KEMUR FRAM AÐ DREGIÐ HEFUR ÚR ÚTLÁNUM TIL ÍBÚÐAKAUPA. Samkvæmt nýjum tölum frá Seðlabankanum námu útlán bankanna tæpum 7,5 milljörðum króna en það eru lægstu útlán í einum mánuði frá því bankarnir komu inn á íbúðalánamarkað í ágúst árið 2004. Fjöldi lána er kominn í 36.801 og meðaltals- fjárhæð láns er rétt um 9,5 milljónir króna. Greiningardeild Glitnis greinir frá að samdráttur hafi verið í mánaðarlegum útlánum bankanna á þessu ári miðað við það sem var á síðasta ári. Til samanburðar má nefna að útlán bankanna í maí í fyrra námu 19,1 milljarði króna. Haft er eftir talsmanni hjá Greiningardeildinni á vefsíðu Viðskiptablaðsins að minni útlán skýrist að miklu leyti af því að endurfjármögnun íbúðalána er að stórum hluta lokið. Því má gera ráð fyrir að meirihluti lána bankanna nú séu ný lán. Auk þess er skýringuna að finna í auknu aðhaldi í útlánsstefnu bankanna en þeir hafa lækkað hámarkslán sín og hert skilyrði fyrir útlánum. Flest bendir til þess að á íbúðamarkaði muni kólna verulega á næstu misserum þar sem mikið framboð er framundan á íbúðum og við blasir vaxtahækkun og minna aðgengi að lánum. Frétt fengin af www.vb.is. - jóa Dregur úr útlánum til íbúðakaupa Að mati greiningardeildarinnar má búast við kólnun á íbúðamarkaði næstu misseri. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI HANGIÐ Í HENGIRÚMI Sumarið er sannarlega tíminn til að slaka á og ekki er verra að gera það í hengirúmi. HÚS 4 FASTEIGNASÖLUR Ábyrgi 17 Ás 30-33 Árborgir 28 Búseti 15 Domus 20 Draumahús 23-26 Fasteignamiðlun FMG 14 Fyrirt.sala Íslands 22 Híbýli og skip 27 Hof 15 Höfði 7 Húsanaust 19 Lundur 8 Lyngvík 10 Lögmenn Suðurl. 18 Neteign 13 Nýtt 16 Remax Hrafna 29 Remax Lind 12 Remax Mjódd 18 Valhöll 6 Viðskiptahúsið 27 AUGL†SINGASÍMI 550 5000Mest lesna vi›skiptabla›i› FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA G a ll u p k ö n n u n f y ri r 3 6 5 p re n tm i› la m a í 2 0 0 5 .

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.