Fréttablaðið - 12.06.2006, Síða 22
[ ]Skólpkerfi er að mati margra mesta uppfinning allra tíma. Það er líkast til sú uppfinning sem bjargað hefur flestum mannslífum og meðal annars gert borgar-samfélagið mögulegt.
Oddur Bjarni Þorkelsson,
leikstjóri og leikari, eyðir
vetrarmánuðunum á fjölum
leikhúsanna. Sumrinu ver hann
hins vegar í grjóthleðslu.
Vel hlaðnir grjótgarðar og veggir
eru bæði fallegir og þjóðlegir.
Oddur Bjarni er einn þeirra sem
kalla mætti atvinnugrjóthleðslu-
mann. „Ég lærði að hlaða grjót-
veggi einfaldlega með því að vinna
við það,“ segir Oddur Bjarni. „Það
er hægt að læra þetta í garðyrkju-
skólum í skrúðgarðyrkju en ég fór
aðra leið.“
Oddur Bjarni er búinn að hlaða
grjót síðustu ellefu sumur en hann
byrjaði í teymi við tvo roskna
menn. Annar þeirra, Bergsteinn,
er látinn en samkvæmt Oddi var
þar áttræður maður á ferð með
úthald á við tvítugan strák. Hinn
er Haraldur Karlsson frá Fljóts-
bakka og nú hefur Benedikt
Björnsson bæst í hópinn. „Þeir eru
ekki margir sem stunda grjót-
hleðslu og ég efa að starfstéttin
myndi fylla Laugardalshöll á árs-
hátíð,“ segir Oddur Bjarni. „Það
hefur samt átt sér stað ákveðin
vakning og eftirspurnin er að auk-
ast.“
Þeir eru ófáir garðarnir og
veggirnir sem Oddur Bjarni hefur
átt þátt í að hlaða. Meðal verka
hans er uppbygging Hraunsréttar
í Aðaldal og viðhald og uppbygg-
ing byggðarsafna á Grenjaðarstað
og Þverá í Aðaldal. Hann lagði
einnig kirkjugarðsvegg á Húsavík
en auk þess má sjá handbragð
hans á Keldum og við Reyðarfjörð.
„Ég skrapp líka til Grænlands og
tók þátt í að hlaða skála Eiríks
Rauða og Þjóðhildarkirkju í
Bröttuhlíð, eða Qassiarsuk eins og
Grænlendingarnir kalla staðinn,“
segir Oddur Bjarni. „Einnig höfum
við hlaðið fyrir einkaaðila og
hellulagt úr náttúrulegu efni.“
Oddur segir verkefnin mjög
fjölbreytt og skemmtileg um leið.
„Það er mismunandi hvaða efni er
unnið með þegar hlaðið er. Það fer
oft eftir landshlutum hvað er
notað og hér fyrir norðan er til
dæmis mikið hlaðið úr hrauni,“
segir Oddur Bjarni. „Við hlöðum
líka torfveggi og sníðum og tyrfum
þök.“
Leikhúsið og hleðslan eiga lítið
sameiginlegt og það kom Oddi
Bjarna skemmtilega á óvart að
hann gæti gert eitthvað í höndun-
um. „Mér finnst gaman að geta
bent á fallegt handbragð og sagt
þetta gerði ég. Maður gengur ekki
inn í leikhúsið og segir fyrir tíu
árum gerði ég eitthvað einhvern
tímann,“ segir Oddur Bjarni. Ann-
ars fara þessar tvær greinar vel
saman í tilfelli Odds Bjarna. Leik-
hús á veturna og hleðsla á sumrin
er fyrirkomulag sem honum líkar.
Inntur eftir því verki sem hann
er stoltastur af svarar Oddur
Bjarni því að það sé verkefnið sem
hann sé að vinna að núna. „Við
erum að hlaða tvo 45 metra grjót-
veggi sitt hvoru megin við inn-
ganginn að Dimmuborgum. Stein-
arnir eru rúnaðir og það þarf að
höggva fimm hliðar af sex,“ segir
Oddur Bjarni. Allir steinarnir eru
handhöggnir með hamri og meitli
og því liggur gríðarleg vinna að
baki hverjum steini fyrir sig. Í
raun mætti segja að þeir væru að
búa til náttúrulega Lego-kubba.
„Á meðan við vinnum spjöllum við
svo við túrista og breska ellilíf-
eyrisþega,“ segir Oddur Bjarni og
hlær. „Það kom ein gömul bresk
kona, pínulítil og krumpuð, og
sagði við okkur: Where I come
from we have convicts to do this,
you know? Ég svaraði bara: Well,
you don‘t know what I‘ve done.
Það tók hana svo smá tíma að átta
sig að ég var ekki blóðþyrstur
morðingi.“
tryggvi@frettabladid.is
Hlaðið að fornum sið
Oddur Bjarni við garðinn góða við Dimmuborgir.
Geitungabúum er sjaldan tekið
fagnandi nálægt heimilum
fólks. Á síðasta ári hrundi geit-
ungastofninn að mestu
leyti og létti við það
mörgum. Horf-
urnar í ár eru
ágætar fyrir þá
sem hræðast
þessa vágesti.
Geitungastofn-
inn hafði vaxið
markvist undan-
farin ár þar til
kuldakast vorið
2005 tók stóran toll af
stofninum. „Ætli það sé
ekki hægt að segja að það sé
bara lítið eða ekkert af þeim í ár.
Ég hef fengið kannski tvær eða
þrjár hringingar út af geitungum
í ár,“ segir Konráð Magnússon,
meindýraeyðir hjá Firringu.
„Það er reyndar fullsnemmt
að dæma um hvernig þetta verð-
ur í sumar, en í fyrra var
mjög rólegt framan
af en síðan kom
síðan
kom
svolítið
skot í rest-
ina.“ Fyrir
nokkrum
árum síðan
var tölu-
vert
komið upp
af geitungum á
þessum tíma árs.
„Það var oft kominn
hellingur af geitungum
jafnvel í lok maí og byrjun
júní, en það má segja að það sé
mjög lítið af þeim í ár,“ segir
Konráð.
Fáir geitungar í ár
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
���������������
��������������������
���������������������������
���������������������
�������������
�����������
������
������
�
�
�
��
��
��
���
�
�����������������������������������
SANYL
ÞAKRENNUR
• RYÐGA EKKI.
• PASSA Í GÖMLU RENNUJÁRNIN.
• STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR.
• AUÐVELDAR Í UPPSETNINGU.
• ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR.
Ritstjóri
Auður I. Ottesen
2
VIÐ RÆKTUM
Lauftré
á Íslandi
Handhægur leiðarvís
ir fyrir ræktendur
2
V
IÐ
R
Æ
K
TU
M
Lauftré á Ísland
i
Sum
arhúsið
o
g
g
arð
urinn ehf
Hún er komin!
Önnur bókin
í bókaflokknum
„Við ræktum“
er komin út.
Tryggðu þér
eintak í næstu
bókabúð
eða í áskrift
í síma 586 8005
Sumarhúsið og garðurinn ehf,
Síðumúla 15, 108 Reykjavík, www.rit.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A