Fréttablaðið - 12.06.2006, Page 23
MÁNUDAGUR 12. júní 2006
�������������������������
�������������������
����������������������������������������
Faxafeni 5 • Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Opið virka daga frá kl. 10-18
Lokað á laugardögum í júní og júlí
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
06
Guðmundur Óli Scheving
SKRIFAR UM MEINDÝR OG MEINDÝRAVARNIR
Lesendum Fréttablaðsins er velkomið að senda fyrirspurn á netfangið
gudmunduroli@simnet.is.
Hér á landi eru fjórar tegundir
af þessum alkunnu bláleitu maðka-
flugum. Flugurnar eru: (Phormia
terraenovae), (Calliphora uralensis),
(Cynomya mortuorum) og (Calli-
phora erythrocephala). Fiskiflugan er
blá að lit og bregður fyrir silfurglitri á
afturbol. Fyrir neðan augun eru eins
konar kinnar sem eru rauðar með
svörtum hárum sem eru 8-15 mm.
Fiskiflugan flýgur 300 sinnum lengd
sina á sekúndu. Þetta eru stórar flug-
ur, 15 mm á lengd, og þær verpa allt
að 500 eggjum á nokkrum dögum.
Fiskiflugan verpir eggjum sem
kallast víur og eru hvítar og örlítið
bognar.
Flugan verpir víunum í fisk og
kjöt, bæði hrátt og soðið, alls kyns
matarúrgang, hræ o.fl. Lirfa fiskiflug-
unar er hvít og getur orðið allt að
tveimur cm að lengd. Þegar sumur
eru heit gengur þróunin fljótt fyrir
sig, lirfunar koma úr eggjunum á
fyrsta sólarhringnum eftir varp og
geta orðið fullvaxta á einni viku. Þær
nærast á því æti sem þeim var verpt
í. Þegar lirfurnar eru fullvaxta, púpa
þær sig í jörðinni. Púpan er dökk-
brún og kallast tunnupúpa.
Maðkafluga er samheiti fyrir alla
ættina. Það hefur komið í ljós að oft
verður mjög mikið tjón af flugunni í
skreiðarframleiðslu og annarri mat-
vælaframleiðslu.
Flugan virðist miklu síður sækja
í fisk sem hengdur er upp í háum
hjöllum, yfir klöppum og grjóti og
út í vatni heldur en í lausum jarð-
vegi eða graslendi þar sem lirfunum
gengur betur að púpa sig.
Hægt er að nota sömu varnir við
fiskiflugu og öðrum flugum.
Menn sem hafa hagsmuna að
gæta ættu að hefja forvarnir á
vorin og láta meindýraeyði eitra fyrir
flugunni bæði innanhúss og utan
og nota flugnabana en það eru tæki
sem nota skal innanhúss. Menn ættu
að fá sérfræðinga til að setja upp
flugnabana svo að sem best nýting
verði á þeim. Lofthæð húsa, birta og
loftræsting hefur allt að segja með
nýtingu flugnabana í rýmum.
Ein tegund af fiskiflugum (Cyn-
omya mortuorum) sem menn sjá
í t.d. kirkjum (ég kalla hana kirkju-
flugu) og í sumarbústöðum er mun
minni og svartleitari. Hún er mjög
hvimleið og yfirleitt mikið af henni
þar sem hún nær sér á strik.
Fiskiflugur eru meindýr vegna
viðkomu sinnar í umhverfinu og
miklar líkur á að hún geti borið með
sér listeríu, chamfolibacter, salmoll-
ellu o. fl. Hún verpir jafnvel í/á dýr
eins og nautgripi og hross í haga.
Eggin klekjast mjög hratt út og lirf-
unar skríða niður hárin og grafa sig
ofan í húðina á dýrunum þar sem
þær nærast þar til þær eru fullvaxta.
Þetta er mjög þekkt erlendis eins og
t.d. í Bandaríkjunum.
Ef þú þarft að fá meindýraeyði
skaltu óska eftir að fá að sjá starfs-
skírteini útgefið af Umhverfisstofn-
un, eiturefnaskírteini gefið út af lög-
reglustjóra/sýslumanni og athugaðu
hvort skírteinin séu útrunnin. Þá
mega meindýraeyðar og garðúðar
ekki starfa eða bjóða þjónustu nema
hafa starfsleyfi.
Heimildir: Upplýsingar og fróð-
leikur um Meindýr og varnir 2004
Fiskiflugur