Fréttablaðið - 12.06.2006, Qupperneq 66
12. júní 2006 MÁNUDAGUR26
menning@frettabladid.is
��������������������������������� �����������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ������������������������������
������������ �������������� �� �����������
����������������������������������
������������������
������ �������������
����������������������������������� ��������
�������������� �����������������
��������������������������������
�������������� �����������������
�������������� �����������������
�������������� �����������������
������������������������������
�������������� �����������������
Alveg brilljant
skilnaður
Einleikur
Eddu Björgvinsdóttur
um allt land.
Bíó Café, Siglufirði
12. júní
Miðasala í síma 467-1111
Viðskiptavinir
Landsbankans fá
500 króna afslátt
af miðaverði
Kl. 10.00
Sýning í Hafnarhúsinu á
listaverkum sem voru valin
vegna úthlutunar listaverka-
verðlaunanna Carnegie
Art Award árið 2006. Úrval
norrænnar samtímalistar,
þar á meðal verk eftir fjóra
íslenska listamenn.
!
> Ekki missa af...
harmskopleiknum Alveg
brilljant skilnaði sem Edda
Björgvinsdóttir ferðast um
með þessa dagana.
myndlistarsýningu Hlaðgerð-
ar Björnsdóttur í Galleríi
Turpentine en þar gefur að
líta stórar portrettmyndir af
börnum.
abstraktmálverkum þýska
myndlistarmannins Rudolfs
Reiter sem eru til sýnis
í Galleríi Sævars Karls í
Bankastræti.
Rómantíkin mun svífa yfir vötnum á
söngtónleikum í Salnum í Kópavogi
annað kvöld. Yfirskrift tónleikanna er
letruð með hástöfunum L‘AMOUR en
þar mun ungur tenórsöngvari, Þor-
steinn Helgi Árbjörnsson, koma fram
ásamt amerísku sópransöngkonunni
Janette A. Zilioli og píanóleikaran-
um Aladar Rácz. Þau flytja þýsk og
amerísk sönglög og aríur og dúetta
úr óperunum La Traviata eftir Verdi
og Rómeó og Júlíu eftir Gounod.
Þetta eru fyrstu tónleikar Þor-
steins Helga, sem nýlega lauk námi
frá Oberlin Conservatory í Ohio í
Bandaríkjunum. Þorsteinn Helgi hefur tekið þátt
í ýmsum óperuuppfærslum og sungið þar m.a.
hlutverk Ferrando í Cosi fan tutte, Nemorino í Ást-
ardrykknum, Don Ottavio í Don Giovanni.
Janette hefur komið fram í ýmsum óperuupp-
færslum og sungið þar m.a. hlutverk
Fiordiligi í Cosi fan tutte, Magda í La
Rondine og Adina í Ástardrykknum.
Janette starfaði með Orlando-óperunni
á árunum 2003-2005.
Aladár Rácz stundaði fyrst nám í píanó-
leik við Georges Enescu tónlistarskól-
ann í Búkarest en síðan framhaldsnám
við Tónlistarháskólana í Búkarest og
Búdapest og hefur leikið á tónleikum
víðsvegar um heiminn, leikið inn á
geisladiska og unnið til verðlauna fyrir
píanóleik í alþjóðakeppnum, m.a.
á Spáni, Ítalíu og í Tékklandi. Síðan
árið 1999 hefur Aladár starfað sem
tónlistarkennari við Tónlistarskóla Húsavíkur, leikið
með ýmsum kórum og söngvurum á Norður- og
Austurlandi og leikið með Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands.
Tónleikarnir hefjast kl. 02.
ALADÁR RÁCZ PÍANÓLEIK-
ARI FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ástin í alls kyns tónum
Birta Benónýsdóttir vakti mikla
athygli gesta á dansleikhússam-
keppni sem haldin var í Borgar-
leikhúsinu á föstudaginn var. í
verkinu sýndi hún mikla hæfni í
sirkuslist og hékk langt fyrir ofan
gesti í efnisbútum og tóku margir
andköf þegar hún lét sig detta og
hékk á hvolfi.
Birta er nítján ára gömul
menntaskólamær og hefur æft
fimleika síðan hún var sjö ára
gömul. Hún heillaðist af sýningu
sænska sirkusins Circus Circör
sem kom til landsins í fyrrasumar
og fór hún út til Svíþjóðar síðasta
haust og lærði nokkur brögð. Hún
stefnir síðan á að fara út haustið
2007 í skóla á vegum Circus Cir-
kör. „ Ég hef gaman af því að ögra
sjálfri mér og vegna þess að ég er
mjög lofthrædd var þetta verk
mikil áskorun fyrir mig,“ segir
Birta, spurð hvort að hún hafi ekki
verið hrædd er hún hékk úr lofti
Borgarleikhúsins.
Verkið var samið af föður henn-
ar Benóný Ægissyni og búningana
hannaði kona hans Ása Hauksdótt-
ir. Þetta var því samstarfsverk-
efni innan fjölskyldunnar. Litla
systir Birtu, hin níu ára Sóley
Anna Benónýsdóttir, kom einnig
fram í verkinu en hún er að æfa
fimleika. Landsmenn geta séð
Birtu leika listir sínar á götum
miðbæjarins í sumar en hún er
meðlimur í Götuleikhúsinu. - áp
Lofthrædd fimleikastjarna
BIRTA BENÓNÝSDÓTTIR Vakti athygli áhorf-
enda á Dansleikhússamkeppninni fyrir
einstaka loftfimleika. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Kunnuglegar verur hafa
tekið sér tímabundna ból-
festu inni við í 101 Gallery
við Hverfisgötu og nokkrar
þeirr gæta hússins. Stein-
unn Þórarinsdóttir mynd-
listarkona sýnir mennskuna
steypta í alls konar efni.
Skúlptúrarnir hennar Steinunnar
mæta vegfarendum víða um borg-
ina; í Bankastrætinu hneigja tvær
verur höfuð sitt og önnur stendur í
nokkurs konar tilbeiðslu á Landa-
kotstúninu.
„Þetta eru verk frá síðustu
tveimur árum,“ segir Steinunn.
„Það mætti segja að sýningin skipt-
ist í þrennt. Fyrir utan eru útiverk
sem eru sérstaklega gerð fyrir
galleríið. En inni er veggverkaser-
ía sem er eins konar hugleiðing um
rústir og þennan brotakennda heim
sem við búum í. Síðan eru minni
verk, verk í nokkrum eintökum
sem lýsa ákveðnum aðstæðum,“
útskýrir listakonan. „Það er langt
síðan ég hef gert svona lítil verk,
líklega um 25 ár, en þá vann ég
töluvert af svona litlum verkum.
Þetta er búið að vera upprifjun og
skemmtileg vinna fyrir mig þó
þessi verk séu náttúrlega ólík þeim
sem ég gerði áður.“
Steinunn hefur starfað að list
sinni í rúm tuttugu ár en hún lærði
á sínum tíma á Englandi á Ítalíu.
Fyrstu einkasýningu sína hélt hún
í galleríinu við Suðurgötu 7 árið
1979. Síðan þá hefur hún haldið
fjölmargar sýningar víðsvegar um
Evrópu og einnig í Bandaríkjunum
og í Asíu en verk hennar eru í
einka- og opinberri eigu um allan
heim.
Skúlptúrarnir á þessari sýn-
ingu, af ýmsum stærðum og lögun,
eru fígúratívir líkt og önnur verka
Steinunnar en hún útskýrir að þeir
séu unnir úr ýmsum efnum og lýsi
ólíkum aðstæðum. „Þetta eru allt
manneskjur eins og öll mín verk.
Skúlptúrarnir tengjast að hluta til
umhverfi gallerísins, þeir eru allir
meira og minna hugsaðir inn í
þetta rými. Það er enginn eiginleg-
ur titill á sýningunni. Þessi verk
lýsa manninum í náttúrunni og
manninum í samfélagi við aðra
menn.“
Sýningin stendur til 22. júlí en
galleríið er opið fimmtudaga til
laugardaga frá kl. 14-17.
kristrun@frettabladid.is
Í félagi við mannfólkið
Bókaútgáfan Skrudda gefur út
söguna af Grendel eftir John
Gardner í þýðingu Þorsteins
Antonssonar. Sagan af Grendel
sem nú kemur í fyrsta sinn út á
íslensku hefur fylgt mannfólk-
inu frá upphafi vega í ýmsum
myndum og er líklega þekktust
meðal Íslendinga sem glíma
þeirra Gláms og Grettis. Í bók
Johns Gardner tekur þessi
saga á sig nútímalegt snið með uppgjöri
óvættarins Grendels við hið siðaða mann-
líf í ríki Hróðgeirs konungs. Höfundurinn
sækir efni sitt til hinnar fornu
Bjólfskviðu sem nýlega hefur verið
kvikmynduð.
Bandaríski rithöfundurinn John
Gardner skrifaði fjölmargar
skáldsögur, sumar miklar að
vöxtum. Einnig ritaði hann og gaf
út smásagnasöfn og fræðibækur
um siðfræði, sögu og bókmenntir.
Gardner var kominn af velskum
innflytjendum og sótti söguefni sitt
sumpart í þjóðsagnararfinn sem fylgt
hefur okkur Íslendingum jafn lengi og
þjóðernið. - khh
Grendel á íslensku
STEINUNN ÞÓRARINSDÓTTIR MYNDLISTARKONA Sýnir verk sem lýsa manninum í náttúrunni og manninum í samfélagið við aðra menn.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 3