Fréttablaðið - 12.06.2006, Page 72
32 12. júní 2006 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
FORMÚLA 1 Heimsmeistarinn Fern-
ando Alonso var áfram á sigur-
braut í Formúlu-1 keppni helgar-
innar þegar hann bar sigur úr
bítum á Silverstone-brautinni í
Bretlandi. Alonso hóf keppnina á
ráspól, lét forystu sína aldrei af
hendi og fór með öruggan sigur af
hólmi.
Þetta var sögulegur sigur fyrir
Alonso og Renault-liðið en þetta
var 200. kappaksturinn sem liðið
þreytir í Formúlunni. Þetta var
fimmti sigur Alonso í ár af átta og
virðist sem enginn geti stöðvað
Spánverjann.
Alonso stakk þá Kimi Räikkön-
en á McLaren og Michael Schuma-
cher á Ferrari fljótlega af og var
tæpum fjórtán sekúndum á undan
Michael Schumacher, en Kimi
Räikkönen varð þriðji. Í fyrsta
hring reyndi Räikkönen að komast
fram úr Alonso á hraðasta kafla
brautarinnar, en varð að gefa eftir.
Schumacher fylgdi í kjölfarið, en
gat ekki nýtt sér færið og Räikk-
önen eiginlega þvingað Schu-
macher út í kant. Eftir þetta hélst
staðan óbreytt, nema hvað Schu-
macher komst framúr Räikkönen
í seinna þjónustuhléinu. Stór
hópur Íslendinga fylgdist með
keppninni á staðnum og sá Alonso
auka forskot sitt í stigakeppni
ökumanna í 23 stig. „Þetta var
góður sigur hjá okkur í dag. Við
sáum að við vorum með meira
bensín á bílunum okkar en önnur
lið í tímatökunni og það hjálpaði
okkur mikið þegar við skipulögð-
um áætlunina fyrir keppnina.
Dekkin voru virkilega góð og því
voru kannski ekki miklir mögu-
leikar fyrir keppinauta okkar að
skáka okkur,“ sagði Alonso í sigur-
vímu eftir keppnina.
Schumacher viðurkenndi að
Ferrari hefði einfaldlega ekki
ráðið við Renault um helgina. „Við
vorum með tvo nýja dekkjaganga
og hin liðin ákváðu að nota ný dekk
frá byrjun. Við reyndum því hvað
við gátum að breyta áætluninni en
það heppnaðist ekki sem skyldi.
Við vorum ekki nógu fljótir um
helgina og verðum bara að skoða
okkar mál,“ sagði Þjóðverjinn.
- hþh
Heimsmeistarinn slær ekki slöku við og vann enn einn sigurinn um helgina, nú á Silverstone í Englandi:
Enginn skákar meistaranum Alonso
MEISTARINN Enginn virðist geta skákað Spánverjanum spræka um þessar mundir. Hann
hefur nú unnið fimm af átta mótum á tímabilinu. NORDICPHOTOS/AFP
2-1
Kópavogsv. Áhorf: 1200 Egill Már Markússon (6)
1-0 Daði Lárusson (Sjálfsmark, 45.)
1-1 Tryggvi Guðmundsson (70.)
Breiðablik FH
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 13–10 (4–8)
Varin skot Hjörvar 6 – Daði 4
Horn 3–2
Aukaspyrnur fengnar 10–11
Rangstöður 5–4
FH 4–3–3
Daði Lárusson 4
Freyr Bjarnason 6
Ármann Smári 6
Ásgeir Gunnar 5
Guðmundur 6
Sigurvin 7
Davíð Þór 7
Baldur Bett 5
(63. Hermann 6)
Atli Viðar 6
(78. Atli Guðnas. -)
Tryggvi 7
Ólafur Páll 6
(78. Matthías -)
*Maður leiksins
BREIÐ. 4–5–1
Hjörvar 8
Stig Kron Haaland 7
Oliver Risser 6
Srdjan Gasic 7
Árni Kristinn 6
Steinþór Freyr 8
Nenad Zivanovic 7
(81. Viktor Unnar -)
Olgeir Sigurgeirs. 6
Magnús Páll 5
Kristján Óli 7
Marel Baldvins. 7
FÓTBOLTI Fylkir og Keflavík töpuðu
bæði leikjum sínum í síðustu
umferð og er ljóst að liðin eru
staðráðin í að ná að rífa sig upp og
stefna á sigur í kvöld þegar þau
mætast í Árbænum. Bæði lið hafa
spilað skemmtilegan bolta það
sem af er móti þó þau hafi ekki
náð að sýna sitt rétta andlit síðasta
fimmtudag.
Með sigri kemst Keflavík upp
fyrir Fylki á töflunni. Þegar þessi
tvö lið mættust á Fylkisvellinum í
fyrra vann Keflavík góðan útisig-
ur en Hólmar Örn Rúnarsson skor-
aði eina mark leiksins. Viðureign
liðanna í Keflavík í fyrra bauð
hins vegar upp á jafntefli í fjög-
urra marka leik.
Þjálfarar liðanna voru báðir í
sviðsljósinu í síðustu umferð en
þeir gagnrýndu dómgæsluna
harkalega. Spurning er hvort þeir
láti í sér heyra í kvöld? - egm
Fylkir tekur á móti Keflavík:
Bæði lið stefna
á sigur í kvöld
PÁLL EINARSSON Verður í eldlínunni með
Fylki í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Mál Kekic enn í hnút
Þrátt fyrir áframhaldandi viðræður
eru deilumál Sinisa Valdimars Kekic í
Grindavík enn í hnút. Honum sinnaðist
við Sigurð Jónsson, þjálfara liðsins, en
Kekic hefur sjálfur staðfest að svo geti
farið að hann fari frá félaginu.
„Mér finnst mjög skrýtið að KSÍ fresti
ekki þessum leik og setji hann bara á
síðar í sumar. Það er gjörsamlega ófært
til Eyja og hefur verið í dag og í gær.
Þetta er búið að eyðileggja alla helgina
fyrir okkur og ég veit ekki hvaða áhrif
það hefur að hafa leikinn á morgun,
menn eru í vinnu og slíkt og það er
erfiðara að fá frí,“ sagði Teitur Þórðar-
son, þjálfari KR, ósáttur við Fréttablaðið
í gær.
Vegna slæmra veðurskilyrða varð
að fresta leik ÍBV og KR á laugardaginn
og svo aftur á sunnudaginn. Leikmenn
og forráðamenn KR biðu alla helgina
eftir flugi, ýmist í KR-heimilinu eða úti
á flugvelli. Þeir reyndu að fljúga til Eyja
í gær en gátu ekki lent og eftir eins og
hálfs tíma hringsólun í kringum Eyjar var
snúið aftur til Reykjavíkur.
„Þetta er enginn undirbún-
ingur til að fara í leik. Leikmenn
þreyttir, pirraðir og allt eftir því.
Það er alveg á hreinu að þetta
gengur ekki svona, það þurfa að
koma nýjar reglur með svona
mál,“ sagði Teitur en leikurinn
hefur verið settur á í kvöld
klukkan 19.15. Áfram er
spáð mjög slæmu veðri í
Eyjum.
„Samkvæmt reglugerð
KSÍ segir að leika eigi
næsta dag sem fært
þykir. Það er ekki gott
að fá leikjum við
Vestmannaeyinga
frestað inn í mót þar
sem það á eftir að fresta fleiri leikjum í
Eyjum í sumar. Það er því ekki gott að
vera með uppsafnaða leikdaga auk
þess sem ég sé ekki marga leikdaga
inni í mótinu. KR hefði getað komið
í veg fyrir þetta með því að taka
Herjólf á föstudagskvöldið, þá
hefði ekki verið neitt vanda-
mál. Það er laus leikdagur á
morgun og því fer leikurinn
þangað, það er okkar fasta
vinnuregla,“ sagði Birkir
Sveinsson, mótsstjóri
KSÍ, um leikinn en ef
fresta þarf leiknum í kvöld
verður honum frestað inn
í sumarið þar sem of stutt
verður í næsta leik hjá
liðunum.
TEITUR ÞÓRÐARSON ÞJÁLFARI KR EKKI SÁTTUR: LEIK ÍBV OG KR VAR FRESTAÐ Í TVÍGANG UM HELGINA
Húktu alla helgina eftir fýluferð til Eyja
> Fjölnir á topp 1. deildar
Fjölnir úr Grafarvogi vann glæsilegan
5-0 sigur á Þór Akureyri í 1. deild karla
í knattspyrnu í gær. Með sigrinum eru
Fjölnismenn komnir á topp deildarinnar
eftir fimm umferðir en Framarar eiga leik
inni. Fram er stigi á eftir Fjölni en liðið
leikur gegn Haukum á útivelli í kvöld
og með sigri í þeim leik endurheimtir
það toppsæti
deildarinnar.
KA hélt uppi
merki Akureyr-
ar í gær með
3-2 heimasigri
á Víkingi Ólafs-
vík. Mikilvægur
sigur hjá KA,
sem hafði farið
illa af stað í
mótinu.
FÓTBOLTI Nýliðar Breiðabliks gerðu
1-1 jafntefli gegn Íslandsmeistur-
um FH á Kópavogsvelli í gær.
Þetta eru fyrstu stigin sem FH
tapar á mótinu en Blikar léku vel,
sýndu góða baráttu og hefðu með
smá heppni getað fengið öll stig-
in.
Enginn af Dönunum þremur
var í leikmannahópi FH en liðið
var meira með boltann í fyrri hálf-
leiknum. Heimamenn léku hins
vegar skynsamlega og gáfu fá
færi á sér. Völlurinn var blautur
og áttu margir leikmanna í
stökustu vandræðum með að fóta
sig. FH átti fyrsta markskot leiks-
ins þegar Guðmundur Sævarsson
átti glæsilega sendingu á Tryggva
Guðmundsson en skot hans fór
beint á Hjörvar Hafliðason. Meiri
hætta var á nítjándu mínútu þegar
Tryggvi átti góðan skalla sem
hafnaði í stönginni eftir að hafa
fengið langa sendingu.
Blikar voru þolinmóðir og
fengu sín færi. Vinstri vængurinn
var ógnandi með hinn norska Stig
Kron Haaland í bakverðinum og
Steinþór Þorsteinsson á kantin-
um. Þá var Marel Bandvinsson að
halda boltanum vel frammi og
skapaði hættu. Á 27. mínútu voru
Blikar óheppnir að taka ekki for-
ystuna en þá átti Steinþór hörku-
skot sem Daði Lárusson mark-
vörður varði. Marel náði
frákastinu en hins vegar náði
hann ekki góðu skoti og boltinn
flaug yfir.
Eftir þetta færi kom mjög tíð-
indalítill kafli þar sem gestirnir
héldu áfram að vera meira með
boltann en erfiðlega gekk hjá
þeim að skapa sér alvöru færi.
Allt stefndi í að markalaust yrði í
hálfleik þegar Breiðablik fékk
hornspyrnu á lokamínútu fyrri
hálfleiks. Haaland tók spyrnuna
og Daði í marki FH kom út úr
markinu en sló boltann inn á
furðulegan hátt. Mistök eru sjald-
séð hjá Daða, hvað þá eins klaufa-
leg og þessi.
Þó kom að því að FH-ingar
næðu að jafna og það gerði Tryggvi
Guðmundsson með skoti úr teign-
um, en hann var einn og ódekkað-
ur eftir undirbúning frá Ólafi Páli
Snorrasyni. Á 74. mínútu fékk
Guðmundur bakvörður FH-inga
sitt annað gula spjald fyrir brot á
Steinþóri sem hafði átt hörku-
sprett, og Íslandsmeistararnir
léku því einum færri í rúman
stundarfjórðung.
Bæði lið komust nálægt því að
skora áður en leiktíminn rann út.
Hjörvar Hafliðason átti góðan leik
og varði aukaspyrnu frá Tryggva
vel og þá átti Kristján Óli Sigurðs-
son hættulegt skot fyrir heima-
menn en framhjá. Steinþór gerði
sig einnig líklegan en Daði varði
frá honum í horn og 1-1 lokastað-
an
„Maður hefði viljað öll stigin
þrjú eins og leikurinn var búinn að
þróast. Við þurfum enn að vinna í
því að læra að halda forystu, þetta
var enn einn leikurinn þar sem við
komumst yfir en missum það
niður. Við vorum að spila ágæt-
lega í dag gegn Íslandsmeisturum
en hefðum átt að klára þá,“ sagði
Kristján Óli Sigurðsson, leikmað-
ur Breiðabliks.
„Við getum unnið hvaða lið sem
er ef viljinn og rétti hugsunarhátt-
urinn er til staðar. Við spiluðum
skynsamlega í fyrri hálfleik og
frábært að fá mark rétt fyrir leik-
hlé. Súrt að ná ekki að halda því en
eitt stig er betra en ekki neitt. FH-
ingar eru ekki ósigrandi og við
sýndum það.“ elvar@frettabladid.is
Íslandsmeistararnir ekki ósigrandi
Breiðablik kom FH í opna skjöldu á heimavelli sínum í Kópavogi í gær í Landsbankadeild karla. Leiknum
lauk með 1-1 jafntefli en þetta eru fyrsti stigin sem FH tapar í sumar eftir að hafa unnið alla hina leikina.
JAFNT Í KÓPAVOGINUM Breiðablik sýndi að FH-ingar rúlla ekki yfir öll lið í deildinni en
Íslandsmeistararnir hafa þó vænlega forystu á toppi deildarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR