Fréttablaðið - 12.06.2006, Qupperneq 75
MÁNUDAGUR 12. júní 2006 35
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JÚNÍ
9 10 11 12 13 14 15
Mánudagur
■ ■ LEIKIR
19.15 Breiðablik og Þór/KA
mætast í Landsbankadeild kvenna í
knattspyrnu á Kópavogsvelli.
19.15 Fylkir og Keflavík mætast í
Landsbankadeild karla í knattspyrnu
á Fylkisvelli í Árbænum.
20.00 Haukar og Fram mætast í 1.
deild karla í knattspyrnu á Ásvöllum.
■ ■ SJÓNVARP
12.30 HM stúdíó á Sýn.
Íþróttafréttamenn Sýnar fá góða
gesti í heimsókn í HM stúdíóið.
12.50 HM í fótbolta á Sýn. Bein
útsending frá leik Ástralíu og Japan
í F-riðli.
15.00 HM stúdíó á Sýn.
15.50 HM í fótbolta á Sýn. Bein
útsending frá leik Bandaríkjamanna
og Tékka í E-riðli.
18.00 HM stúdíó á Sýn.
18.50 HM í fótbolta á Sýn. Bein
útsending frá leik Ítalíu og Gana í
E-riðli.
21.00 4-4-2 á Sýn. HM-uppgjör
dagsins.
C-riðill:
SERBÍA/SVARTFJALLALAND-HOLLAND 0-1
0-1 Arjen Robben (17.)
D-riðill:
MEXÍKÓ-ÍRAN 3-1
1-0 Omar Bravo (28.), 1-1 Yahya Golmohammadi
(36.), 2-1 Omar Bravo (76.), 3-1 Antonio Zinha
(79.).
ANGÓLA-PORTÚGAL 0-1
0-1 Pauleta (4.).
HM 2006
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Hollendingar unnu 1-0
sigur á Serbíu/Svartfjallalandi í
Leipzig í gær og komust því upp
að hlið Argentínumanna í C-riðlin-
um. Besti maður vallarins var
Arjen Robben, hinn ungi væng-
maður Chelsea, sem sýndi oft á
tíðum mögnuð tilþrif og var hetj-
an með því að skora eina markið.
Hann skoraði á átjándu mínútu
eftir góða sendingu Robin van
Persie, slapp einn í gegn og kláraði
færið listilega vel.
Hollendingar voru betra liðið í
fyrri hálfleiknum og fengu þeir
mikið pláss frá Serbunum. Robb-
en var nánast allt í öllu og fór á
kostum. Stuttu eftir mark sitt var
hann nálægt því að bæta öðru við
en Dragoslav Jevric varði meist-
aralega. Í seinni hálfleik hægðist
nokkuð á leiknum, hollenska liðið
færðist aftar á völlinn og ákvað að
reyna að halda fengnum hlut.
Meira líf færðist í mótherjana og
loks fóru þeir að sýna sitt rétta
andlit.
Þrátt fyrir nokkrar mjög efni-
legar sóknir náðu þeir þó ekki
marki og hollenska liðið fékk því
stigin þrjú. Sigur Hollands var
fyllilega sanngjarn en illa gekk
hjá Serbum að skapa sér færi og
oft á tíðum vantaði herslumuninn.
Savo Milosevic var nokkuð spræk-
ur í fyrri hálfleiknum en gat ekki
tekið þátt í þeim síðari vegna
meiðsla.
„Ég er mjög ánægður með
frammistöðu mína, sérstaklega í
seinni hálfleik. Ég veit að ég get
gert betur en í seinni hálfleiknum,
hitinn var þá farinn að hafa mikil
áhrif á leikinn. Það sem mestu
máli skiptir er samt að við náðum
sigri,“ sagði Robben en hann lék
Nenad Djordjevic, hægri bakvörð
Serba, grátt og endaði það með því
að Djordevic var skipt af velli
fyrir hálfleik. - egm
Holland vann eins marks sigur á Serbíu/Svartfjallalandi í C-riðli í gær:
Arjen Robben í banastuði
MAÐUR LEIKSINS Arjen Robben var langhættulegasti leikmaður Hollands í gær en hér
fagnar hann með Robin van Persie. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Mexíkó vann 3-1 sigur á
Íran í D-riðli Heimsmeistara-
keppninnar í gær en leikið var í
Nürnberg. Íranar áttu góðan fyrri
hálfleik og voru betra liðið á vell-
inum ef eitthvað var. Staðan var
1-1 í leikhléi en í síðari hálfleik
var allur vindur úr liðinu og
Mexíkóar gerðu út um leikinn
með tveimur mörkum á skömm-
um tíma.
Það var Omar Bravo, leikmað-
ur Guadalajara í heimalandinu,
sem kom Mexíkó yfir á 28. mínútu
með marki sem kom í kjölfarið á
aukaspyrnu en tíu mínútum fyrir
hálfleik jöfnuðu Íranar með marki
varnarmannsins Yahya Golmo-
hammadi. Í seinni hálfleik ætlaði
Íran að halda fengnum hlut en það
gekk illa og Mexíkóar sýndu hvað
í þeim býr með tveimur mörkum.
Bravo skoraði sitt annað mark
eftir varnarmistök og það var
síðan Zinha sem gulltryggði sigur-
inn með flottu skallamarki.
Faðir Oswaldo Sanchez, mar-
kvarðar Mexíkó, lést þremur
dögum fyrir leikinn en hann ætl-
aði að fylgjast neð syni sínum í
Þýskalandi. Mexíkóar tileinkuðu
minningu hans sigurinn. - egm
Heimsmeistarakeppnin í gær:
Góður sigur
Mexíkó á Íran
BRAVO Omar Bravo skoraði tvö mörk í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Flestir bjuggust við því
að Portúgal myndi sýna fyrrum
nýlendu sinni Angóla í sjö heim-
ana á heimsmeistaramótinu í
knattspyrnu í gær en svo fór ekki.
Baráttuglaðir Angólamenn bitu
frá sér og sýndu mikla baráttu
sem dugði þó ekki til jafnteflis.
Þrátt fyrir það voru það leik-
menn Portúgal sem sáu aðallega
um að sækja og eftir aðeins þrett-
án sekúndur hafði Pauleta skotið
rétt framhjá úr dauðafæri. Sókn-
armaðurinn gerði þó engin mistök
þrem mínútum seinna þegar hann
skoraði auðveldlega eftir góðan
undirbúning Figo, sem lék við
hvern sinn fingur í leiknum.
Sigur Portúgala var aldrei í
hættu en þeir fengu næg tækifæri
til að skora fleiri en það eina mark
sem þeir gerðu. Angólamenn
sýndu litla sóknartakta og verða
að laga það hið snarasta ef þeir
ætla sér að skora í riðlakeppn-
inni. - hþh
Heimsmeistaramótið í gær:
Portúgal lagði
Angólamenn
SIGURMARKINU FAGNAÐ Pauleta er hér vel
fagnað af liðsfélögum sínum í gær.
NORDICPHOTOS/AFP