Fréttablaðið - 12.06.2006, Qupperneq 78
12. júní 2006 MÁNUDAGUR38
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1. Á Íslandi.
2. Einar K. Guðfinnsson.
3. Bubba Morthens.
��������
��� ��� ��� ��� ���
��� ��� ��� ��� ������
��� ��� �
�� �� �� �� �
�� �� �� �� �
��������
�����������������������
�������������
������������������������������
�
���������
�����������
��������������
���� ���������
������������������������������
HRÓSIÐ
...fær Ómar Ragnarsson fyrir að
gefa út nýja plötu þar sem Bubbi
syngur dúett með honum.
Verk Mörtu Nordal sigraði í
Dansleikhússamkeppninni 25
tímar sem haldin var á fimmtu-
dagskvöld í Borgarleikhúsinu.
Marta er lærð leikkona en er hrif-
in af dansleikhúslistforminu.
„Þessi keppni gefur fólki tæki-
færi til að sýna sig og koma með
nýjar hugmyndir. Það er alltaf
verið að leita að einhverju nýju
og þarna geta allir tekið þátt,
myndlistarmenn, tónlistarfólk,
og fólk úr leik- og dansheiminum
og það er svo skemmtilegt,“ segir
Marta, en hún vonast til þess að
vinna meira með listformið í
framtíðinni. „Þetta form tengir
saman tvær listgreinar og veitir
þér möguleika að gera mjög fjöl-
breytta hluti. Þetta er svo opið,
þú getur tjáð hluti meira abstrakt
í dansi en í leikhúsi. Í dansleik-
húsinu ertu ekki að njörva þig
niður í einhverju ákveðnu formi,“
segir Marta, en hún var lengi í
ballet og dansi þegar hún var
yngri og hefur því ágætisbak-
grunn.
Marta segir að samstarfið með
leikurunum og dönsurunum, sem
voru alls sex í verkinu, hafi verið
mjög gefandi. „Það er svo
skemmmtilegt að vinna með
svona atvinnufólki, gaman að vera
í díalóg með listamönnum sem
hafa skoðanir á hlutunum. Það er
gulls ígildi,“ segir Marta. Hún
hefur ekki sest í leikstjórastólinn
í atvinnuleikhúsi áður og segir
það hafa verið skemmtilegt verk-
efni að sjá um verkið frá A til Ö.
Viðfangsefni Mörtu í dansleik-
hússamkeppninni voru boðorðin
tíu. „Mig langaði til að sýna
hvernig við erum alltaf að brjóta
boðorðin í okkar daglega lífi.
Hluti af óhamingju okkar stafar
af því að við brjótum boðorðin,
höldum framhjá, stelum, tölum
illa um manneskjuna, og gerum
grín að trúnni,“ segir Marta, en
hún hefur undanfarið verið að
leika í Viltu vinna milljón fyrir
fullu húsi. „Ég var einmitt að
sýna það verk þegar frumsýning-
in var, þannig að ég kom bara
beint í verðlaunaafhendinguna,“
segir Marta hlæjandi. Fram
undan hjá leikkonunni og dans-
leikhúshöfundinum er að leika í
Mein Kampf á Nýja sviðinu í
Borgarleikhúsinu en æfingar á
því hefjast í næstu viku.
Samdi dansleikverk um boðorðin tíu
„Ég enda pottþétt á Íslandi, þar er
best að vera,“ segir Sigríður Ósk
Kristjánsdóttir mezzo-sópran,
sem nú fetar í fótspor fremstu
óperusöngvara á Bretlandi en hún
hefur nám við hinn þekkta óperu-
skóla Benjamin Britten Inter-
national Opera School við Royal
College of Music í London í haust.
Nokkur hundruð manns sóttu um
og fóru í inntökupróf en aðeins tíu
manns eru teknir inn á ári. Þetta
er tveggja ára óperunám í einum
eftirsóttasta skóla Englands í dag.
Þarna kemur fólk frá ýmsum
löndum, til dæmis Suður-Afríku,
Norðurlöndunum, Bandaríkjun-
um og núna Íslandi,“ segir Sigríð-
ur og segir það mikinn heiður að
hafa komist inn i skólann.
Fram undan hjá söngkonunni
ungu er annað skemmtilegt verk-
efni, því hún var valin úr stórum
hópi umsækjenda til þess að
syngja með British Youth Opera í
haust, en það er óperufélag sem
setur upp sýningar með fólki sem
er að klára óperunám og er yngra
en þrjátíu ára. „Þetta er gott tæki-
færi til þess að sýna sig og mynda
sambönd, en að óperunni koma
virtir stjórnendur og leikstjórar
úr óperuheiminum í Bretlandi,“
segir Sigríður Ósk. Hún mun fara
með hlutverk Filipyevnu í óper-
unni Eugene Onegin eftir Tsjaí-
kovsky.
Sigríður Ósk er nú í meistara-
námi í söng í Royal College of
Music. „Nú er ég aðallega í óper-
unni, klassískri óperu. Það er leik-
húsið sem mér finnst svo spenn-
andi, leikhús og tónlist í bland,“
segir Sigríður, sem hefur lítinn
áhuga á að syngja í söngleikjum í
augnablikinu. En fá óperuunnend-
ur á Íslandi að sjá hana í framtíð-
inni? „Draumurinn er að fá að
vinna að spennandi sýningum
með góðu fólki og það skiptir ekki
máli hvar það er. Bransinn er
þannig að fólk er mikið á ferðinni,
ég myndi vilja flakka svolítið
milli landa. En ég verð örugglega
eitthvað í Englandi til að byrja
með því ég er búin að mynda sam-
bönd,“ segir Sigríður Ósk. Hún
saknar þó Íslands mikið og er
ákveðin í að enda flakkið á
Íslandi.
En hvað skyldi vera uppáhalds-
óperan hennar? „Það er nú svo oft
þannig að tónlistin sem maður er
að hlusta á í augnablikinu er alltaf
best, og þess vegna er óperan sem
ég er að vinna í núna uppáhaldið
mitt. Hún heitir L‘Enfant og er
eftir Ravel,“ segir Sigríður, en
Madame Butterfly eftir Puccini
og Carmen eftir Bizet eru einnig
efst á blaði.
SIGRÍÐUR ÓSK KRISTJÁNSDÓTTIR: Á HRAÐLEIÐ UPP STJÖRNUHIMIN ÓPERUNNAR
Lærir þar sem stærstu
óperustjörnurnar fæðast
SIGRÍÐUR ÓSK KRISTJÁNSDÓTTIR Sigríður komst inn í virt óperufélag í Bretlandi.
LÁRÉTT
2 afl 6 bardagi 8 andi 9 kóf 11 skóli
12 étur allt 14 löður 16 sjó 17 æðri
vera 18 knæpa 20 guð 21 eining.
LÓÐRÉTT
1 hita 3 í röð 4 ataður 5 fæða 7
raddfæri 10 hæfileikamikill 13 kaðall
15 megin 16 gerast 19 utan.
LAUSN
FRÉTTIR AF FÓLKI
Útvarpsmaðurinn Magnús Einars-son hefur ákveðið að hætta með
vinsæla morgunþætti sína á Rás 2 og
snúa sér að öðrum
verkefnum hjá
stöðinni. Rödd
Magnúsar hefur
vakið hlustendur
stöðvarinnar síðustu
misseri og ljóst er
að margir eiga eftir
að sakna kappans
af þeim vettvangi.
Á móti kemur þó
að Maggi byrjaði
í gær með
nýjan þátt
í félagi við
Sniglaband-
ið sem verður eftirleiðis á dagskrá á
sunnudögum. Þá mun hann einnig
aðstoða herramennina í Popplandi, þá
Óla Palla, Guðna Má og Ágúst Bogason.
Undirbúningur stendur nú sem hæst fyrir sjónvarpsþættina FC Nörd
sem sýndir verða á Sýn í haust.
Þættirnir eru sem kunnugt er
gerðir eftir sænskri fyrirmynd
en þeir þættir hafa vakið
mikla athygli á Sýn að
undanförnu. Hellisbúinn
Bjarni Haukur Þórsson
stýrir áheyrnarprufunum
þessa dagana en nú er
búið að fækka áhuga-
sömum úr 100 og niður
í 30. Einungis 16 nördar
verða svo eftir þegar lokaúr-
takið hefur verið valið. Eins
og Fréttablaðið hefur áður
greint frá er búist við því að
Logi Ólafsson taki að sér að
þjálfa lið nördanna svo það stefnir allt í
áhugaverða þætti í haust.
Geisladiskasala Dr. Gunna vakti mikla athygli eftir að Fréttablaðið greindi
frá henni á föstudag. Gunni hafði áður
auglýst söluna á heimasíðu sinni og
þetta framtak mæltist afar vel fyrir því
vel á annað hundrað manns fengu
lista yfir diska hans senda með kaup í
huga. Hægt er að fylgjast með þessu og
öðrum ævintýrum Doktorsins á heima-
síðu hans, this.is/drgunni. Ástæða þess
að hann ákvað að selja alla diskana var
sú að hann uppgötvaði að hann hlustar
lítið sem ekkert á þá lengur, tölvan og
plötu- spilarinn duga honum vel.
Eftir að söngkonan Heiða
Eiríksdóttir keypti af
honum alla geisla-
diskarekka hans
varð svo ekki
aftur snúið.
Á vorin fyllast göturnar af mótorfákum
af öllum stærðum og gerðum sem
eigendurnir þenja sem mest þeir
mega, sérstaklega þegar veðrið
er gott. Eva Dögg Þórsdóttir,
stoltur eigandi Kawasaki ZX6R
og fjölmiðlafulltrúi bifhjóla-
samtakanna Sniglanna,
er að sjálfsögðu farin
að þeysa um á sínum
fáki og bíður spennt
eftir landsmóti félagsins.
„Landsmótið er topp-
urinn á sumrinu
og í ár verður það
haldið dagana
29. júní til 2. júli
í Hrífunesi, sem
er í um 20 mín-
útna akstursfjar-
lægð frá Kirkju-
bæjarklaustri,“
segir Eva. Mikið er
um dýrðir á þessum
landsmótum, sem
iðulega eru vel sótt af
mótor- hjólaáhugamönnum.
Í ár spila hljómsveitir öll kvöldin og
keppt er í ýmsum greinum eins og
venjulega. „Á föstudeginum sameinast
allir í súpumáltíð en þá er elduð súpa
í risastórum potti ofan í allan hópinn.“
Tæplega 1.800 manns eru í Sniglun-
um sem eru 22 ára gömul samtök, en
Eva Dögg telur að um 3.000 mótor-
hjól séu á landinu. Aðspurð að því
hvert sé flottasta mótorhjól allra tíma
á hún erfitt með að svara. „Mótorhjól
skipast eiginlega í tvo flokka: raiser-
hjól og hippa, og það er misjafnt af
hvorum hjólunum fólk er hrifnara. Ég
verð samt að segja að þegar Kawazaki
zx10´88 kom á markað varð umbylt-
ing í raiser-græjunum.“
- snæ
SÉRFRÆÐINGURINN: EVA DÖGG ÞÓRSDÓTTIR
Landsmótið er toppurinn
EVA DÖGG ÞÓRSDÓTTIR Brunar um götur
borgarinnar á mótorfáki í sumar og ætlar
líka á landsmót Sniglanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HIPPI hér má sjá
dæmi um hippa-
hjól en mótorhjól
skiptast í tvo
flokka, hippa og
Raiser hjól.
LÁRÉTT: 2 orka, 6 at, 8 sál, 9 kaf, 11
ma, 12 alæta, 14 froða, 16 sæ, 17 guð,
18 krá, 20 ra, 21 eind.
LÓÐRÉTT: 1 baka, 3 rs, 4 kámaður, 5
ala, 7 talfæri, 10 fær, 13 tog, 15 aðal,
16 ske, 19 án.
MARTA NORDAL Marta var að leika í Viltu
vilja milljón og missti því af sýningunni,
en kom í tæka tíð fyrir verðlaunaafhend-
inguna.
- hdm