Fréttablaðið - 27.06.2006, Blaðsíða 19
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Dong Qing Guan, eigandi Heilsudrek-
ans í Skeifunni 3j, stundar kínverska
leikfimi, sem hefur verið þróuð í alda-
raðir og nýtur sívaxandi vinsælda á
Vesturlöndum.
„Kínverska leikfimin sem ég iðka
samanstendur af taichi, hugrænni teygju-
leikfimi og kungfu,“ segir Qing, spurð nánar
út í leikfimisæfingarnar. „Taichi er forn
kínversk bardagalist, sem byggist upp á
afslöppuðum, mildum hreyfingum og nýtur
mikilla vinsælda víðs vegar um heim. Því er
ætlað að koma jafnvægi á orkuflæði
líkamans, sem sýnir sig meðal annars í því
hvernig það styrkir öndun, miðtaugakerfið,
meltingu og hjartað. Það hentar því vel
gegn alls kyns sjúkdómum.“
Innt eftir því hvort munur sé á vestrænni
og austurlenskri líkamsrækt, eins og þeirri
sem Qing stundar, segir hún andlega þáttinn
oft fyrirferðarmeiri í kínverskri leikfimi en í
sumum vestrænum íþróttagreinum. „Taichi
og kungfu efla hvort tveggja, bæði líkam-
legt og andlegt heilbrigði iðkandans. Það
geta allir aldurshópar stundað þessa
leikfimi og hjá Heilsudrekanum er til að
mynda boðið upp á barnanámskeið sem
kínverskur kungfu-meistari heldur. Svo er
líka andlega nærandi að bregða sér í
kínverskt nudd, en það geri ég reglulega til
að halda heilsunni í lagi,“ bætir hún við.
Qing segist einnig leggja mikið upp úr
hollu mataræði, sem samanstendur aðal-
lega af ávöxtum, grænmeti, fiski og síðast
en ekki síst tei. „Nauðsynlegt er að drekka
te á hverjum degi,“ segir hún ákveðin. „Ég
mæli með hinum ýmsu tegundum, svo sem
grænu tei, úrontei og jurtatei, enda eru þau
allra meina bót.“ roald@frettabladid.is
Te og taichi eru
allra meina bót
Qing heldur sér í formi með ástundun kínverskrar leikfimi, sem byggir á aldagömlum grunni, og tedrykkju. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Rúmlega áttatíu prósent
sjúklinga með Parkinson-sjúk-
dóminn finna oft fyrir þunglyndi
samkvæmt nýrri rannsókn
sem framkvæmd var í Frakk-
landi, Þýskalandi, Ítalíu, Spáni
og Bretlandi. 500 sjúklingar á
mismunandi stigum sjúkdóms-
ins tóku þátt í rannsókninni og
fjörutíu prósent töluðu sjaldan
eða aldrei við lækninn sinn um
þunglyndi.
Fótboltaaðdáendur
í Bretlandi eru
varaðir við að
halda ró sinni
í mikilvæg-
um leikjum í
heimsmeistara-
keppninni í
knattspyrnu þar
sem mikil hætta
er á hjartaáföllum
undir slíkum
kringumstæðum. Rann-
sóknir í Bretlandi sýna að
hætta á hjartaáföllum eykst um
fjórðung á meðan á leikjum í
keppninni stendur. Þetta á vænt-
anlega ekki aðeins við í Bretlandi
og ættu allir fótboltaaðdáendur
að passa skapið þó það reynist
erfitt í hita leiksins.
ALLT HITT
[ HEILSA ]
LÉLEG SAMBÖND GETA BENT TIL SLÆMRAR SJÁLFSMYNDAR
Samkvæmt nýjum bandarískum
rannsóknum getur það að eiga í
svokölluðum „haltu mér – slepptu
mér“ sambandi verið til marks um
slæma sjálfsmynd.
Rannsóknirnar voru til umfjöllunar
í nýjasta hefti Journal of Personality
and Social Psychology. Talið er að
niðurstöðurnar geti hjálpað pörum
þar sem tilfinningar til makans eru
mjög sveiflukenndar.
Til að rannsaka slík sambönd tók
fólk próf til að meta sjálfsmyndina.
Síðan var það spurt út í tilfinningar
þess til ástvina. Kom þá greinilega
í ljós að einstaklingar sem höfðu
lélega sjálfsmynd báru mjög
andhverfar tilfinningar til ástvina.
Dregin er sú ályktun að fólk með
góða sjálfsmynd eigi auðveldara
með að meðtaka jákvæðar og
neikvæðar tilfinningar til fólks í huga
sér en þeir sem hafi slæma sjálfsmynd. Fólk með slæma sjálfsmynd
sé þá aftur á móti líklegra til að aðgreina á milli jákvæðra og
neikvæðra tilfinninga og festist því í „haltu mér – slepptu mér“-
gildrunni þegar það getur ekki gert upp á milli tilfinninganna.
Haltu mér, slepptu mér
Með því að bæta sjálfsmyndina
aukast líkurnar á betra
sambandi. NORDICPHOTOS/GETTY
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 2.59 13.31 24.02
Akureyri 1.40 13.15 24.47
MISGÓÐ SUMAR-
TILBOÐ Í GANGI
Líkamsræktarstöðvar hafa
brugðið á það ráð að bjóða
upp á sumartilboð til að lokka
fólk í ræktina í góða veðrinu.
HEILSA 3
GÓÐAN DAG!
Í dag er þriðjudagurinn
27. júní, 178. dagur ársins
2006.
MEÐ ÁHUGA Á UPP-
ELDI, MANNRÆKT OG
FRÆÐSLUSTARFI
Þorsteinn Pétursson lögreglumaður
á Akureyri hlaut nýlega íslensku
forvarnarverðlaunin.
HEILSA 2