Fréttablaðið - 27.06.2006, Blaðsíða 59

Fréttablaðið - 27.06.2006, Blaðsíða 59
ÞRIÐJUDAGUR 27. júní 2006 31 16-liða úrslit: ÍTALÍA-ÁSTRALÍA 1-0 1-0 Francesco Totti, víti (95.). ÚKRAÍNA-SVISS 0-0 Úkraína vann 3-0 í vítaspyrnukeppni. LEIKIR DAGSINS: 16-liða úrslit: BRASILÍA-GHANA 15.00 SPÁNN-FRAKKLAND 19.00 HM 2006 ÚRSLIT GÆRDAGSINS FÓTBOLTI Ashley Cole viðurkennir að enska landsliðið muni treysta á snilli Waynes Rooney til að komast enn lengra á HM. England mætir Portúgal í 8-liða úrslitunum þann 1. júlí. „Þetta er einfalt, ef við látum hann fá boltann þá býr hann eitthvað til eða skorar sjálfur,“ sagði Cole. „Því meira sem við látum hann hafa boltann, þeim mun meira getur hann hrist fram úr erminni. Hann stóð sig vel gegn Ekvador og á bara eftir að sýna meira. Hann er leikmaður í heimsklassa og við erum í skýjunum yfir því að hann er kominn í fínt form.“ - hþh Ashley Cole: Wayne Rooney er lykillinn ROONEY OG COLE Voru ánægðir með sigurinn gegn Ekvador en Rooney ku hafa ætlað að nota vikuna í að skella sér í ljósatíma. NORDICPHOTOS/AFP FÓTBOLTI Portúgalski landsliðs- fyrirliðinn Luis Figo þykir vera mjög heppinn með að sleppa við leikbann eftir að hann skallaði Mark van Bommell í leik Hollands og Portúgals í 16-liða úrslitum HM á sunnudaginn. Figo fékk gult spjald en talið var að FIFA myndi jafnvel breyta úrskurðinum. „Honum var refsað á staðnum af dómaranum og því mun FIFA ekki aðhafast neitt í málinu. Það er aðeins þegar um klárt agabrot er að ræða, sem dómarinn sér ekki, þegar FIFA skerst í leikinn, en það á ekki við núna,“ sagði Markus Siegler, talsmaður alþjóða knattspyrnusambandsins. - hþh Portúgalinn Luis Figo: Fer ekki í bann SKALLAÐUR Hér sést greinilega hvernig Figo skallar van Bommel. NORDICPHOTOS/AFP FÓTBOLTI Ruud van Nistelrooy, sóknarmaður Manchester United, er farinn að íhuga hvar hann muni spila næsta tímabil en hann lenti upp á kant við Sir Alex Ferguson stjóra sinn á síðasta tímabili. Hann gæti farið frá United í sumar en mörg lið hafa sýnt honum áhuga, einna helst Bayern München. „Kannski skýrist eitthvað í vikunni, við verðum að sjá hvað United gerir og hvort mörg lið hafa áhuga. Hvað sem gerist mun ég velta framtíð minni vel fyrir mér og ákveða hvað er best fyrir mig,“ sagði Nistelrooy. - hþh Ruud van Nistelrooy: Hugar nú að framtíðinni FÓTBOLTI Leikmenn Sviss vilja sjálfsagt gleyma vítaspyrnu- keppninni sem kostaði liðið sæti í fjórðungsúrslitum HM í Þýskalandi á kostnað Úkraínu. Eftir að Andryi Shevchenko lét verja frá sér fyrsta vítið var útlitið gott en leikmenn Sviss klúðruðu öllum sínum spyrnum í keppninni og Úkraínu- menn skoruðu úr öllum sínum eftir það. Niðurstaðan því 3-0 sigur. Leikurinn sjálfur var afar bragðdaufur og kemur vissulega til greina sem einn af leiðinlegustu leikjum keppninnar. Það var helst í fyrri hálfleik sem liðin voru nærri því að skora en næst komst Alexander Frei, leikmaður Sviss, er hann skaut knettinum í slána á marki Úkraínu beint úr aukaspyrnu. - esá Úkraína áfram í 8-liða úrslit: Unnu 3-0 í víta- spyrnukeppni VARIÐ Olexandr Shovkovskiy markvörður Úkraínu varði þrjár slakar spyrnur sviss- nesku leikmannanna. NORDIC PHOTOS/AFP FÓTBOLTI Það var engin spenna á KR-vellinum í gær þegar Fylkir kom í heimsókn í Landsbankadeild kvenna. Leikurinn var einstefna frá upphafi til enda og aðeins eitt lið á vellinum sem sést á lokatöl- unum, 11-0 fyrir KR. Það voru aðeins fjórar mínútur liðnar þegar Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins með skalla. Hólmfríður var besti leikmaður vallarins í gær en þegar yfir lauk hafði hún skorað fjögur mörk í öllum regnbogans litum. Fjóla Dröfn Friðriksdóttir var einnig á skotskónum í gær og skoraði fjögur mörk líkt og Hólm- fríður. Þær tvær skoruðu öll mörk- in sex í fyrri hálfleiknum og voru báðar komnar með þrennu þegar gengið var til búningsherbergja. Í upphafi síðari hálfleiks var loks örlítið lífsmark með Fylkisstúlk- um en leikur þeirra rann fljótlega út í sandinn og Embla Grétars- dóttir bætti við marki eftir fyrir- gjöf Hólmfríðar. Alicia Wilson skoraði áttunda markið af harðfylgi og Fjóla skor- aði síðan sitt fjórða mark áður en Emma Wright skoraði úr auka- spyrnu. Hólmfríður átti síðan lokaorðið en hún skoraði falleg- asta mark leiksins undir blálokin og innsiglaði 11-0 sigur KR. Fylkis- stelpur úr Árbænum virtust ein- faldlega ekki hafa neina trú á því að þær gætu strítt Vesturbæjar- liðinu og sýndu litla sem enga mót- spyrnu. KR er í fjórða sæti eftir þennan stórsigur en níu stig eru í efsta sætið þar sem Valsstúlkur eru. Valur heimsótti Kaplakrikann í gær og rótburstaði lið FH 15-0. Þegar sjö umferðum er lokið er Valur áfram með þriggja stiga for- skot á Breiðablik sem er í öðru sæti og markatöluna 51-3. Þrír leikir voru í deildinni í gær og alls 35 mörk skoruð en Keflavík vann Þór/KA á heimavelli sínum 6-3. - egm Knattspyrnukonur voru á skotskónum í leikjum Landsbankadeildarinnar í gær: 35 mörk í þremur leikjum EITT AF ELLEFU KR-stúlkur fagna einu af ellefu mörkum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL BERGMANN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.