Fréttablaðið - 27.06.2006, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 27.06.2006, Blaðsíða 38
■■■■ { vélar og tæki } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■14 REYNSLUAKSTUR Það er nokk sama hvaða mælikvarði er notaður en víst er að íslenskir vörubílstjórar kunna vel að meta Actros-línuna frá Mercedes Benz. Hartnær tvö ár eru síðan Askja, systurfélag Heklu, hóf sölu á bílun- um og jókst sala þeirra um 200 pró- sent fyrsta árið. Sala þeirra það sem af er þessu ári er jafngóð og ljóst að hinn þýski stimpill frá Mercedes, góð þjónusta, hefur komið Actros fyrir alvöru inn á radar vörubíl- stjóra í landinu, auk þess sem kaup- endur geta haft talsverð áhrif á útlit og búnað bílanna. GÓÐAR VIÐTÖKUR Markaðurinn fyrir vörubíla er ekki stór á Íslandi en fullyrða má að samkeppni er þar hörð. Mest seldu bílarnir hafa löngum verið hinir norrænu frá Scania og Volvo auk þess sem MAN, DAF og Iveco seljast vel. Nýr og skæður keppninautur eru Actros-bílarnir frá Mercedes en sala á þeim hefur gengið afar vel að sögn Páls Halldórs Halldórssonar, sölustjóra atvinnutækja hjá Öskju. Seldust yfir 120 stykki atvinnubíla á síðasta ári og þegar eru seldir yfir 60 það sem af er þessu ári. Er Actros þar með fjórði mest seldi vörubíll- inn í landinu sem er góður árangur á stuttum tíma. LEGO FYRIR FULLORÐNA Vörubíll sá er Fréttablaðið kynnti sér er af gerðinni Actros 4146 með sér- styrktum palli frá Meiller. Tölurnar segja til um tonnafjölda og hestöfl; þ.e. að bíllinn vegur 41 tonn og er 460 hestöfl. Áhugasamir kaupendur hafa mikið svigrúm þegar kemur að útliti bílanna og afar auðvelt er að breyta til eða bæta við eftir þörfum. Askja á þrjá slíka bíla á lager eins og sakir standa en að öllu jöfnu er afgreiðslutími vörubíla um þrír mánuðir frá kaupum. Umræddur bíll er sjálfskiptur og fullkomin minnistölva geymir upplýsingar um aksturslag hvers og eins ökumanns og má því segja að bíllinn lagi sig að ökumanni. Allur annar búnaður er fyrsta flokks og farþegarými rúmgott mjög. Umrædd útgáfa var með svokallaðan hvíld- arbekk fyrir aftan sætin en aðrar útgáfur eru í boði óski menn þess. SVIPAÐ VERÐ OG SAMKEPPNIS- AÐILAR Þessi Actros 4146 kostar rúmlega ellefu milljónir króna fyrir utan virðisaukaskatt en hægt er að kaupa slíka bíla fyrir lægri upphæðir. Verð fer að miklu leyti eftir óskum við- skiptavinarins um aukabúnað og fullyrðir sölustjórinn að hægt sé með auðveldum hætti að koma til móts við alla. Actros er þannig á svipuðu verði og helstu samkeppn- isaðilar eins og Scania og Volvo enda gæðin svipuð ef ekki meiri. albert@frettabladid.is Gæði selja sig sjálf Á þeim tveimur árum sem Askja hefur selt Mercedes Benz Actros-vörubíla hefur sala á þeim margfaldast á markaði sem löngum hefur verið einokaður af Scania og Volvo. Albert Örn Eyþórsson komst að því að það er engin tilviljun. Bíll sá er Fréttablaðið hafði til skoðunar var Actros 4146. Pallur og hús eru samlit og pallurinn smíðaður úr sérstyrktum efnum og er botn pallsins 8 mm þykkur. Blaðamaður Fréttablaðsins hafði á tilfinningunni að engin þörf væri á meiraprófi enda með eindæmum auðvelt að aka bílnum. Ökumaður ræður sjálfur hvort hann notar fullkomna sjálfskiptinguna eða skiptir yfir í beinskiptingu. Allt annað má heita að sé rafstýrt og innan seilingar og segja má að helsta áhyggjuefni ökumanna slíkra bíla hljóti að vera að halda sér vakandi á löngum keyrslum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.