Fréttablaðið - 27.06.2006, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 27.06.2006, Blaðsíða 52
52 27. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli, andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Á þessum degi árið 1979 tilkynnti boxarinn Múhammeð Alí að hann ætlaði að draga sig í hlé frá íþróttinni. Hann hafði þá verið heimsmeistari í boxi og varið titil sinn alls nítján sinnum. Á yngri árum sínum hét Múhammeð Alí Cassius Marcellus Clay yngri en hann tók sér Múhammeðsnafnið þegar hann gerðist múslimi. Hann komst í fréttirnar þegar hann neitaði að ganga í herinn þegar Víetnamstríðið stóð sem hæst. Vegna þess var hann dreginn fyrir rétt, heimsmeistaratitillinn tekinn af honum og hann settur í leikbann í þrjú og hálft ár. Múhammeð Alí vann þó titilinn aftur tvívegis eftir að hann mátti keppa á ný. Árið 1979 tilkynnti Múhammeð Alí svo að hann myndi draga sig í hlé eftir tvo erfiða bardaga við Leon Spinks. Hann sneri þó aftur um stutta stund á árunum 1980 til 1981 með slæmum árangri. ÞETTA GERÐIST: 27. JÚNÍ 1979 Múhammeð Alí hættirJOHN ENTWISTLE (1944-2002), LÉST ÞENNAN DAG. „Ég hef aldrei heyrt neinn spila eins og ég geri með hljómsveitinni minni og ég er ánægður með það.“ Enski bassaleikarinn John Entwistle gerði garðinn frægan með hljómsveitinni The Who. Í dag, á alþjóðlegum baráttu- degi samkynhneigðra, taka gildi ný lög um réttindi homma og lesbía. Að sögn Hrafnhildar Gunnarsdóttir, formanns Samtakanna 78, leiðrétta lögin næstum allt lagalegt misrétti gagnvart samkynhneigðum og marka því stór tímamót í réttinda- baráttu samkynhneigðra. „Með frumvarpinu eru um fjörutíu lagagreinar leið- réttar. Þar ber hæst að sam- kynhneigðir mega skrá sig í sambúð og þurfum við þess vegna ekki lengur að stað- festa samvist til að geta nýtt skattkort og annað. Nú sitj- um við líka við sama borð við frumættleiðingar og tækni- frjóvgun og önnur pör í land- inu,“ segir Hrafnhildur. Hún leggur þó áherslu á að næst- um öllu misrétti hafi verið eytt, því enn séu atriði sem verði að leiðrétta. „Ég tel aðallega tvö atriði sem enn eru eftir. Í fyrsta lagi er að leyfa vígslumönnum söfnuða að staðfesta samvist, því eins og stendur eru það bara embættismenn hjá sýslu- manni sem staðfest samvist.“ Hrafnhildur myndi einnig vilja eyða orðalaginu um staðfesta samvist út úr lög- unum og tala um hjónaband eins og hjá gagnkynhneigð- um pörum. „Í okkar hópi talar fólk aldrei um að ganga í staðfesta samvist, fólk gift- ir sig, það er ekkert flóknara en svo.“ Baráttan krefst þolin- mæði og Hrafnhildur er sannfærð um að það sem eftir er eigi eftir að breytast með tímanum. „Baráttan hefur staðið yfir í þjátíu ár sem er reyndar stuttur tími af því oft vissum við ekki nákvæmlega fyrir hverju við vorum að berjast. Síðasta lota hefur svo staðið síðan 1996 þegar lög tóku gildi sem leyfðu okkur að ganga í stað- festa samvist. Sú breyting SAMKYNHNEIGÐIR: NÝ LÖG Í GILDI Í DAG Stór tímamót Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Engilbert Hannesson fyrrverandi bóndi á Bakka í Ölfusi, sem lést 20. júní á Landspítala við Hringbraut verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju fimmtudaginn 29.júní, kl 15.00. Jóhanna Engilbertsdóttir Páll Jóhannsson Valgerður Engilbertsdóttir Garðar Guðmundsson Svava Engilbertsdóttir Gunnlaugur Karlsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, Guðrún Sigríður Wormsdóttir frá Eiríksbúð, Arnarstapa, lést laugardaginn 24. júní á Hrafnistu í Hafnarfirði. Gullý Bára Kristbjörnsdóttir Ágúst Geir Kornelíusson Sigurborg Jenný Kristbjörnsdóttir Kristín Hulda Kristbjörnsdóttir Sveinn Sigurjónsson Anna Björg Kristbjörnsdóttir Ómar Árni Kristjánsson Ástkær dóttir okkar, sambýliskona, systir, mágkona og frænka, Guðrún Gísladóttir Arnarhrauni 11, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 28. júní kl 15.00. Gísli Sumarliðason Guðrún M. Jónasdóttir Einar B. Pétursson Sigrún Erla Gísladóttir Þorvaldur Svavarsson Jón Ari Gíslason Arnar Gíslason Björk Arnbjörnsdóttir og systkinabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Helgi Sigurðsson Brautarhóli, Svalbarðsströnd, verður jarðsunginn fimmtudaginn 29. júní í Svalbarðs- strandarkirkju kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsam- legast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á aðstandendafélag hjúkrunarheimilinu Seli. Margrét Jóhannsdóttir Jóhann Helgason Sigríður Helgadóttir Sigurlína Helgadóttir Hrefna Helgadóttir Reimar Helgason tengdabörn, afa- og langafabörn. Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Hulda Guðmundsdóttir Álftamýri 6, Reykjavík sem lést þriðjudaginn 20. júní sl. á líknardeild Landa- kotsspítala verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 29. júní kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að styrkja Krabbameinsfélagið. Svava Haraldsdóttir Guðmundur Jens Þorvarðarson Guðmundur Haraldsson Rakel Kristjánsdóttir Erna Haraldsdóttir Karl Þórðarson Bjarni Óli Haraldsson Árný Davíðsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur okkar og bróðir, Konráð Guðmundsson andaðist að heimili sínu 22. júní. Jarðarför auglýst síðar. Guðmundur Konráðsson Fjóla Jósepsdóttir Bjartmar Guðmundsson Hafþór Guðmundsson afi, amma, ættingjar og vinir hins látna. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, mágur, afi og langafi, Leifur Sigurðsson, rennismíðameistari, Sogavegi 168, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum, laugardaginn 17. júní, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 29. júní kl. 13.00. Guðmundur Ingi Leifsson Elín Einarsdóttir Sigurður Leifsson Margrét Árný Sigursteinsdóttir Elías Halldór Leifsson Margrét Jónsdóttir Guðrún Kristófersdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigríður Sigurbjörnsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn 20. júní sl. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 28. júní kl. 13.00. Þorvarður Guðmundsson Anna Sigurbjörg Þorvarðsdóttir Valur Þórarinsson Guðmundur Jens Þorvarðarson Svava Haraldsdóttir Stefán Ragnar Þorvarðarson Aðalbjörg Þorvarðardóttir Tryggvi Aðalsteinsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigurbjörg Jónína Jónsdóttir lést þriðjudaginn 21. júní sl. á Sjúkrahúsi Akraness. Útförin fer fram frá Hólmavíkurkirkju miðvikudaginn 28. júní nk. kl. 14.00. Guðmundur R. Jóhannsson Guðrún R. Valtýsdóttir Marinó Jóhannsson Guðrún Hupfeldt Hrafnhildur Jóhannsdóttir Jón Pálmi Þórðarson Gunnar Jóhannsson Rakel Jóhannsdóttir Jónbjörn Bogason barnabörn og barnabarnabörn. Móðir mín Valgerður Jónsdóttir andaðist 22. júní sl. F.h. ættingja, Hákon Tryggvason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.