Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.06.2006, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 27.06.2006, Qupperneq 46
46 27. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR „Ég vakna klukkan sjö á morgnana en ligg upp í rúmi í fimm mínútur á hverjum morgni og óska þess að ég geti sofið lengur,“ segir Erla Hjördís Gunnarsdóttir, fjölmiðlafræðingur og ritstjóri innblaða hjá Íslenskum almannatengslum. „Ég vinn frá átta til fjögur á hverjum degi og felst starfið mitt í almannatengslum, skipulagi viðburða, ráðgjöf og þjónustu á sviði markaðs- og upplýsingamála og viðtölum,“ segir Erla en það tekur önnur vinna við henni þegar heim er komið. „Þá dúllast ég með dóttur minni og stundum forum við út á róló eða í sund. Síðan liggja þrifin og þvottarnir alltaf yfir manni og háttatími ekki fyrr en um miðnætti.“ „Skemmtilegast við vinnuna mína er hugmyndavinna, sköpun og starfsfólkið en það getur verið mjög leiðinlegt þegar ritstíflurnar koma,“ segir Erla sem nýtur þess að vera í faðmi fjölskyldunnar og vera úti í náttúrunni í frístundum sínum. Leiðinlegt að fá ritstíflu Erlu finnst hugmyndavinna, sköpun og starfsfólkið það besta við vinnuna sína. SJÓNARHORN „Armur minn nær langt og víða“ gæti þessi ágæti gluggaþvottamaður hugsað meðan hann teygir kústinn upp í hæstu hæðir á Bergþórugötunni. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR HVUNNDAGURINN ...að lengsta orð á ensku sem eingöngu er myndað úr sérhljóðum er Euouae? Það er myndað úr sérhljóðum orðanna „seculorum amen“, þýðir um aldir alda, amen og er notað við helgihald. ...að útbreiddasti sjónvarpsþáttur veraldar er Baywatch, Strandverðir? ...að söluhæsta plata allra tíma er Thriller með Michael Jackson en frá árinu 1982 hafa verið seld 51 milljón eintök? ...að söluhæsti töframaður á heimsvísu er David Copperfield? ...að lengsta bíla- og lestarbrú í heimi er Seto-Otashi-brúin í Japan sem er 9,4 kílómetrar? ...að mesti hraði sem bolti í nokkurri íþróttagrein nær er 302 kílómetrar á klukkustund í basknesku íþróttinni jai-alai? ...að Phil Taylor frá Bretlandi hefur unnið flesta heimsmeistaratitla í pílukasti eða alls tólf? ...að Paul Crake frá Ástralíu var fljótastur upp Empire State- bygginguna árið 2003? Hann hljóp upp 1.576 þrep byggingarinnar á 9 mínútum og 33 sekúndum. ...að sú fegrunarskurðaðgerð sem flestir láta hafa sig í er augnlokamótun? ...að hæsti sykurmolaturn í heimi var reistur af Anitu Cash frá Bretlandi en hann var 140,5 sentimetra hár? ...að lengsti fjallgarður í heimi eru Andesfjöllin í Suður-Ameríku en þau ná yfir alls 7.600 kílómetra og yfir sjö lönd? ...að stærsti flói í heimi er Mexíkóflói en flatarmál hans er 1.544.000 ferkílómetrar? ...að stærsta landspendýr í heiminum er fullorðinn, karlkyns Afríkufíll sem getur orðið 3 til 3,7 metrar upp á herðakamb? ...að hættulegasta sníkjudýrið er malaríusníkillinn af ættinni Plasmodium sem moskítóflugur af ættinni Anophelse bera með sér? ...að Stephanie Monyak frá Bandaríkjunum hefur gripið ellefu brúðarvendi í hjónavígslum sem hún hefur sótt síðan árið 1983? ...að stærsta bókasafn í heimi er bókasafn Bandaríkjaþings í Washington D.C. í Bandaríkjunum en þar eru yfir 128 milljónir muna? Safnkosturinn nær yfir 853 hillukílómetra. VISSIR ÞÚ...
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.