Fréttablaðið - 27.06.2006, Side 47
ÞRIÐJUDAGUR 27. júní 2006 19
Aldrei skal ganga út frá því að
maður hafi séð allt í pólitík og
enn og aftur virðist Framsókn
hafa sérstakt lag á því að koma
öllum á óvart með ótrúlegum
uppákomum. Halldór Ásgríms-
son ákveður að stíga af hinni pólit-
ísku lest og ekkert í sjálfu sér um
það að segja og skiljanlegt á
margan hátt að maðurinn sé
búinn að fá sig fullsaddan af
ástandinu inn á framsóknarheim-
ilinu. Við sem störfum á þingi
höfum lengi fundið fyrir því að
væringar væru milli þingmanna
innan þingflokks Framsóknar, en
aldrei hvarflað að nokkrum
manni að ástandið innan þing-
flokksins væri jafn slæmt og
raun ber vitni. Ástandið hefur
orðið öllum ljóst í atburðarás
undanfarinna vikna þar sem
þingmenn Framsóknarflokksins
hafa vegið hver annan í fjölmiðl-
um og gert opinbert hversu
traustið milli manna er lítið.
Það er í raun ótrúlegt að sjá
hvernig hugmyndir Halldórs um
að kalla Finn Ingólfsson til að
taka við flokknum umbreytast á
nokkrum dögum í að Jón Sig-
urðsson seðlabankastjóri geri
það. Það virðist hafa verið
útgangspunktur hjá Halldóri að
enginn innan þingforystu Fram-
sóknar gæti tekið við sem for-
maður og mat hans að kalla
þyrfti í einhvern utan þingflokks
til að leysa það verk af hendi.
Orð Jóns Sigurðssonar um að
menn yrðu að gera skyldu sína
eru skiljanleg í því ljósi að Hall-
dór virðist engan meta hæfan
innan eigin þingflokks til for-
ystu í flokknum.
Hverjir ráða í Framsóknar-
flokknum? Eru það örfáir ein-
staklingar sem telja sig hafa vald
til þess að ákveða hvað sé best
fyrir flokkinn og hinn almenna
flokksmann, eða eru það flokks-
menn sem ráða málum? Í ljósi
þess farsa sem við höfum horft
uppá í tengslum við brotthvarf
Halldórs, þá hlýtur maður að
álykta að fámenn klíka í flokkn-
um telji sig þess umkomna að
ráða fyrir hönd allra flokks-
manna og sú klíka hefur nú kom-
ist að þeirri niðurstöðu að það sé
skylda Jóns Sigurðssonar að taka
við flokknum ef marka má orð
innan þingliðsins.
Það verður fróðlegt að fylgj-
ast með því hvernig framsóknar-
menn velja næsta formann. Ekki
munu þeir gera það í almennri
atkvæðagreiðslu allra flokks-
manna, eins og gert var í for-
mannskjöri Samfylkingarinnar,
svo mikið er víst. Slík kosning er
of lýðræðisleg að mati þeirra
sem ráða og gæti leitt til úrslita
sem valdaklíkan sættir sig ekki
við og slíkt leyfir hún ekki. For-
mannsvalið framundan verður
prófsteinn á það hvort Framsókn-
arflokkurinn er alvöru stjórn-
málaflokkur sem taka á alvarlega
eða valdabandalag fárra einstakl-
inga sem fjarstýra höndum
almennra flokksmanna í vali á
formanni.
Mun farsinn þar sem Halldór
finnur Jón ganga upp á endan-
um? Því hlýtur hinn almenni
flokksmaður í Framsókn að ráða,
að því gefnu að þeir vilji að flokk-
urinn sé tekinn alvarlega.
Halldór Finnur Jón
UMRÆÐAN
FRAMSÓKNAR-
FLOKKURINN
JÓN GUNNARSSON
ÞINGMAÐUR SAMFYLKINGARINNAR
AF NETINU
Trú og stríð
Nú er sennilega ekki ástæða til að efast
um að þessir hryðjuverkamenn hafi verið
ákafir í trú sinni, en jafnvel þó svo sé þá
er fráleitt að leiða af því þá niðurstöðu
að trúarbrögð séu hættuleg og ættu að
hverfa úr mannlífinu. Trú, skoðanir, metn-
aður, ást, langanir -Trú - allt getur þetta
orðið til þess að þess að maður fremur
óhæfuverk. En það er ekki þar með sagt
að þessi hugtök sem slík séu slæm eða
að ástæða sé til að ferðast land úr landi
til að uppræta það. Þó einhver maður
fremji einhvers konar ástríðuglæp þá
verður það ekki ástæða til þess að menn
reyni að útrýma ástartilfinningum fólks
úr heiminum.
Vefþjóðviljinn á andriki.is
Ég hef einfaldan smekk
Blaðið segir frá því í dramatískum stíl í
dag, að ég hafi krafist þess að fá skrif-
stofu í Ráðhúsinu og telur síðan upp
fjölda starfsmanna sem hafi orðið að
rýma skrifstofur sínar fyrir hinn mikla
höfðingja. Hnyttilega skrifað að mörgu
leyti, en eini gallinn er sá að allt er þetta
uppspuni frá rótum. [...] Skrifstofan sem
ég fæ er á 2. hæð Ráðhússins, þar sem
áður var lítið en snoturt fundaherbergi.
Það er því lítið til í þeirri fullyrðingu að
embættismenn í fleirtölu hafi þurft að
rýma til fyrir mér og raunar var það svo,
að þegar kom að því að finna húsgögn í
skrifstofuna óskaði ég eftir því að kannað
yrði hvað væri til að notuðum húsgögn-
um.
Björn Ingi Hrafnsson á bjorningi.is
Ódýrt á Íslandi
Í gær hélt ég að ég hefði endanlega
misst vitið. Atvikið varð í eldhúsi mínu
í Reykjavík og ég var að hlusta á sex-
fréttir Ríkisútvarpsins meðan ég sinnti
eldamennsku eins og góðri húsmóður
sæmir. Þá kom frétt um
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga. Fréttin
snerist um að þessi stofnun gerði nú mun
fleiri fegrunaraðgerðir en áður. Síðan var
rætt við lækni á stofnuninni sem var
kampakátur með þessa þróun og taldi
verst að ekki mætti auglýsa þjónustuna í
útlöndum þar sem hér á landi væri mun
ódýrara að fara í lærapokaaðgerð en t.d. í
Bretlandi. Markaðssetja mætti aðgerðirn-
ar með annarri ferðamennsku. Fram kom
í fréttinni að meðal aðgerða sem hægt
væri að velja úr í þessum súpermarkaði
heilbrigðisins væru augnpokaaðgerðir,
brjóstastækkanir, svuntuaðgerðir (sem
ku vera einhvers konar strekkingar) og
skapabarmaaðgerðir.
Katrín Jakobsdóttir á murinn.is
Vonbrigði
Það verður að segjast eins og er að enska
liðið hefur valdið nokkrum vonbrigðum.
Spilamennska liðsins hefur þótt litlaus
og frekar hæg. Þessi staðreynd hefur
virkað sem vatn á myllu þeirra fjölmörgu
sem hafa gagnrýnt þann landsliðshóp
sem Sven Göran-Eriksson, landsliðs-
þjálfari Englendinga, valdi til þátttöku í
mótinu. Hinsvegar verður það ekki tekið
af Eriksson að liðið endaði efst í sínum
riðli með 7 stig af 9 mögulegum. Enski
leikmannahópurinn er vafalaust einn sá
sterkasti í keppninni og er liðið því ávallt
líklegt til sigurs. Ef landsliðið ætlar sér
hinsvegar að standa undir væntingum
enska almúgans, sem fer fram á ekkert
minna en sigur í mótinu, er ljóst að spila-
mennska liðsins verður að taka nokkrum
framförum.
Hannes Rúnar Hannesson á deiglan.
com
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI